Vísir - 20.06.1974, Síða 3
Vlsir. Fimmtudagur 20. júni 1974
Bókahnífur
*
i
tilefni
afmœlisins
Hér gefur að lita bókahnif,
sem Jens Guðjónsson gull-
smiöur er að setja á markað-
inn I tilefni 1100 ára afmælis-
ins. Jens hefur getið sér sér-
staka frægð fyrir smíðisgripi
sina og má þar m.a. nefna
jólaskeiðarnar, sem hann
hefur gert undanfarin ár.
Hann gerði einnig skeið i til-
efni fyrstu lendingar mannaðs
geimfars á tunglinu og þegar
Noregskonungur var hér á
dögunum, var honum gefinn
hnifur, sem Jens hafði gert.
Og þá má lika minna á skák-
hnifinn, sem Jens setti á
markaðinn I tilefni skákein-
vigis þeirra Fishers og
Spasskys. „Þeir minjagripir
seldust upp á stuttum tima”,
segir Jens. „Mest þótti mér
gaman að heyra ánægju
Fischers með þann grip. Hann
kom á vinnustofu mina og
bauð háar fjárhæðir fyrir
hring, sem væri með sama
munstri og hnifurinn. Hann
sat yfir mér i tvo klukkutima
og þrábað mig, en án árang-
urs. Verkið var of viðamikið
og timafrekt, en Fisher áleit
að ég gæti afgreitt á meðan
hann biði...”
— ÞJM/Ljósm: Bragi.
Mjög ánœgð að dansa hér á fslandi
segir Sveinbjörg Alexanders
„Mér finnst afar gam-
an að vera komin hingað
heim til íslands og
dansa hér, en það eru
fjögur ár siðan ég dans-
aði hér siðast.”
Þetta sagði Svein-
björg Alexanders, þegar
við náðum tali af henni
niður i Nausti, þar sem
hún var að borða hádeg-
ismatinn klukkan rúm-
lega tvö i gærdag.
Sveinbjörg sagði okkur, að hún
kæmi oft til íslands I leyfum. Hún
hefði t.d. verið hér I fyrra. Þegar
hún og maðúr hennar, Gray Vere-
don frá Nýja Sjálandi, og strákur-
inn þeirra 6 ára, Simon, eru hér,
þá finnst þeim mest gaman að
ferðast um landið og vera I tjaldi.
Símon, sem ekki er með þeim
núna af þvi hvað þau stoppa stutt,
vill helzt búa á Islandi: „En'da
allt svo frjálst hérna ekki svo
mikiö um boð og bönn eins og svo
áberandi er I Þýzkalandi. Mér
llkar mjög vel að búa I Þýzka-
landi, en Þjóðverjar geta stund-
um verið einum of nákvæmir.”
segir Sveinbjörg.
Hún er nýkomin úr 6 daga
ferðalagi til. Dublin. „Það lá
nærri, að hætt væri við ferðina,
vegna þess að sprengja hafði ný-
lega orðið 20 manns að bana þar I
borg. Þakklátari áhorfendur
hef ég varla haft og húsfylli á all-
ar sýningar. Þeir trúðu þvi naum-
ast, að við hefðum raunverulega
lagt I að koma. En ósköp var eitt-
hvað auðnulegt á kvöldin, fólk
sást varla á götum. Enda tilmæli
lögreglu að það skyldi halda sig
innandyra. Það var leitað að
sprengjum á hverjum einasta á-
horfanda sem koni i leikhúsið”.
Aöspurð um, hvort sonurinn
væri farinn að læra ballett líka,
fyrst bæði hjónin væru svona
frægir ballettdansarar, (að visu
setur Gray Veredon ballettinn að-
allega á svið núna og semur ball-
etta): Aldeilis ekki, hann ætl-
ar að verða vélfræðingur og helzt
ætti mamma hans að vera skrif-
stofustúlka. Hvers vegna? Jú,
mamma vinar hans vinnur á
skrifstofu.
— EVI —
Sveinbjörg Alexanders og mótdansari hennar Wolfgang Kegler á æfingu I Þjóðleikhúsinu. Þau eru aðal-
dansarar hins fræga þýzka ballettflokks „Tanz Forum”. En flokkurinn ferðast vlðs vegar um heiminn
og fer héðan til Istanbul.
„Samtökin" í Reykjavík klofin í miðju — Tvö blöð
Einn hlutinn með „Þjóðmál'
— annar með „Ný Þjóðmál
„Við leyfum þeim að sigla
sinn sjó,” sagði Bragi Jósepsson
i gær.
Bragi átti við „Samtökin,”
sem hafa breytt nafni blaðs sins
úr „Þjóðmál” I „Ný Þjóðmál”,
og er „Ný” sett framan við
blaðhausinn með litlu letri. „En
við ætlum áfram að gefa út
blaðið „Þjóðmál”, segir Bragi,
„Þjóðmál verður málgagn
þeirra, sem voru I „Samtökun-
um”, en vilja ganga með Al-
þýðuflokknum, en ekki Möðru-
vallahreyfingunni.
Bragi Jósepsson og félagar
eru á þeirri linu og ráða útgáfu-
félagi blaðsins Þjóðmál. Stjórn
útgáfufélagsins hefur skipað
þriggja manna ritnefnd, sem i
eru Daniel Kjartansson, Jakob
Ólafsson og Valborg Böðvars-
dóttir, fólk, sem var i Samtök-
unum. Blað á að koma út i vik-
unni. Megintilgangurinn er, að
sögn Braga, að styðja samein-
ingarmálið og „slá skjaldborg
um Alþýðuflokkinn”.
Framkvæmdastjórn Samtak-
anna bauð Braga þá málamiðl-
un, að Samtökin gæfu út Þjóð-
mál til 1. júli, en fengju á meðan
ekki á sig kröfur um lögbann.
Þessu hafnaði Bragi og hans
menn. Hins vegar ætlar Bragi
nú að láta óátalið, að Samtökin
gefi út „Ný Þjóðmál”.
„Um 80 manns úr Samtökun-
um eru aðstandendur okkar
blaðs,” segir Bragi um „Þjóð-
mál”. „Eftir i félagi Samtak-
anna i Reykjavik munu hafa
verið um 60 félagar eftir klofn-
inginn, en við hafa bætzt siðan
allmargir úr Möðruvallahreyf-
ingunni, sem hefur yfirtekið fé-
lagið,” segir hann.
— HH.
„Ekki landkynningarmynd af
flfimlll dfÁlflhllltl^^ Sigurður Sverrirog Magnús Magnússon
yuilliu 3KUIUIIUIII fú milljón til kvikmyndagerðar
„Þrjár ásjónur íslands” heitir
mynd, sem Sigurður Sverrir
Pálsson og Magnús Magnússon
hafa fengið styrk til að kvik-
mynda. Þetta er hinn árlegi
styrkur Menntamálaráðs, og
nemur hann nú einni milljón
króna.
Sigurður Sverrir starfar við
sjónvarpið hér, en Magnús Magn-
ússon er starfsmaður BBC i Skot-
landi. Sigurður sagði, að sam-
vinna þeirra hefði byrjað, er þeir
störfuðu saman að gerð myndar
um landhelgina. Hefði sú sam-
vinna gengið vel og vildu þeir nú
reyna á ný.
„Þrjár ásjónur íslands” er
landkynningarmynd. „En þetta
er ekki landkynningarmynd af
gamla skólanum,” sagði Sigurður
Sverrir. „Beinagrind handritsins
liggur fyrir. Við lltum landið aug-
um 1 a n d n á m s m a n n a n n a
Hrafna-Flóka, sem leizt illa á
landið, Herjólfs, sem lýsir bæði
kostum og löstum landsins og
Þórólfs smjörs, sém lofar landið
mjög. Við munum því reyna að
lýsa landinu sem hörðu, góðu og
mjög góðu.
Við notum lika atriði úr þjóðhá-
tiðarhöldunum inn i myndina, þar
sem það á við, þannig að hún
verður jafnframt eins konar
heimildarmynd um hátíðahöldin.
Ég kem til með að taka mynd-
ina og Magnús að stýra henni. Við
gerum þetta þvi sennilega mest
sjálfir, en fáum hljóðupptöku-
mann til hjálpar og annan kvik-
myndatökumann, þegar svo ber
undir.
Við reiknum með, að verkið
kosti milli 2 og 3 milljónir. Styrk-
urinn er 1 milljón, en afganginn
reynum við að fá með þvi að selja
myndina fyrirfram,” sagði Sig-
urður Sverrir að lokum um vænt-
anlega mynd sina.
— JB.