Vísir - 20.07.1974, Side 3

Vísir - 20.07.1974, Side 3
Vísir. Laugardagur 20. júll 1974. 3 ■ lj 81*1» ■ 1 1 eS fl !■ r ... . . ■ -v.: ■ itip-t q Sjúkrahúslœknar segja upp störfum ,,Það er rúm vika siðan Læknafélag Reykjavikur sendi Reykjavikurborg, og Læknafélag | íslands sendi viðkomandi stjórnvöldum bréf, þar sem óskað er eftir, að heilbrigðisyfirvöldin hefðu samband við full- trúa spitalalækna út af uppsögnum þeirra.”, sagði Pálli Þórðarson framkvæmdastjóri læknafélaganna i við- tali við blaðið i gær. „Ekkert svar hefur enn bor- izt, en við verðum að vona, að það verði komizt að einhverri niðurstöðu sem fyrst.” sagði Páll. Þegar hafa borizt 38 uppsagnir til rikisspitalanna samkvæmt upplýsingum Péturs Jónssonar starfsmannastjóra þar. Kaup lækna er frá tæpum 72 þús. hjá kandídat, sem er aö koma út úr háskóla og um 120 þús kr. fyrir sérfræðing:, sem unnið hefur I 6 ár. ,,Viö þetta bætist svo mis- munandi mikil yfirvinna, en dæmi eru til þess að kandidatar fari upp i allt að 170 klst. á mán- uði, en það er þó ekki oft,” sagði Pétur. Ef læknir er kallaður út að nóttu, fær hann greiddar minnst tvær klst. kr. 1340, en rafvirki fær til samanburðar kr. 1140 fyrir útkailið. — EVI — HESTAR GERÐU SÉR VEIZLU í SKÓLAGÖRÐUM Tiu hestar voru komnir inn I skólagarðana i nánd við Árbæjar- safn I gær. Tröðkuðu þeir þar á reitum barnanna og átu græn- metiö, sem þau eru að rækta. Þessir hestar eru hluti af öllu þvi stóði, sem gengur laust um borgarlandið vegna trassaskapar eigenda þcirra og vegna þess að girðingar halda þeim ekki utan bor ga rmarkanna. Vörzlumaöur borgarlandsins var á ferð i fyrrinótt, að stugga burt ágengum hrossum, sem sóttu inn I garða og álpuðust út á vegi. Lögreglan I Arbæjarhverfi hefur haft mjög mikil afskipti af hrossunum og kemur varla sá dagur, að ekki þurfi að kalla á vörzlumanninn. Garðaeigendur i Arbæjarhverfi w hafa búið viö þetta ástand I hverfinu undanfarin ár. Það eru ekki aðeins hross, sem angra þá, heldur og lika ágengar kindur. Að sögn lögreglunnar, þá eru þetta mikið til sömu menn ár eftir ár, sem eiga lausagangsdýrin. Þeir flytja þau á beit rétt út fyrir borgarlandið og hirða svo sjaldnast um þau, það sem eftir er sumars. Umferð kvikfénaðar um götur getur llka verið stórhættulegur, þegar bilar eru að aka á skepn- urnar. Þar að auki veröa bil- eigendur sjálfir að bera skaðann á sinum bil og tapa bónus og greiöa sjálfsábyrgð, ef þeir aka á búpening, nema ef bilarnir eru kaskótryggöir. —ÓH Jslands þúsund ór' hundrað óra Nú nálgast aldarafmæli þjóðsöngsins okkar, en hann var fyrst fluttur 2. ágúst 1874 i Dóm- kirkjunni. Og þess verður að sjálfsögðu minnzt með pompi og pragt, eins og vara ber nú um þjóðhátiðina. 1 samtali við Jón Þdrarinsson, sagði hann, að þessa væri minnzt á tvennan hátt. Fyrst laugar- daginn 3. ágúst og siðan á sunnu- dagskvöldið þar á eftir. Klukkan 15.25 verður af- mælisins minnzt á Arnarhóli og hefst með þvi, að biskup tslands, hr. Sigurbjörn Einarsson, flytur ávarp. Þar á eftir verður þjóðsöngurinn fluttur af Söng- sveitinni Filharmoniu og Sinfóniuhljómsveit Islands. Stjórnandi verður Jón Þórarins- son. A sunnudagskvöldiö veröur svo hátiðarsamkoma i Dómkirkjunni I tilefni afmælsins. Þar flyt- ur Andrés Björnss. útvarpsstjóri, erindi um séra Matthias Jochumsson, höfund þjóðsöngsins, og siöan flytur Jón Þórarinsson erindi um tón- skáldiö Sveinbjörn Sveinbjörns- son. Þvi næst flytur Dómkórinn undir stjórn Ragnars Björns- sonar, og fleiri aðilar tónlista eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. -EA. MAÐUR INNI I STOFU VARÐ FYRIR ÁFALLI ER BÍLL SKALL Á HÚSI HANS Hörkuárekstur í Þingholtunum: Minnisvarði um fyrstu lögin Svo sem áður hefur verið frá skýrt, er áformað, að fram fari i dag stutt athöfn að Breiðabólstað i Vesturhópi, þar sem afhjúpaður verður minnisvarði, reistur af Lögmannafélagi Islands sem gjöf til þjóðarinnar i tilefni af, að liðin eru 1100 ár frá upphafi Islands- byggðar og tii minnis um, að vet- urinn 1117-18 fór fram fyrsta skráning almennra laga á tslandi hjá Hafliða Mássyni á Breiða- bólsstað. Formaður Lögmannafélags ts- lands, Páll S. Pálsson, flytur ávarpsorö. Viðstaddir verða, sem heiðurs- gestir, forseti hæstaréttar, Bene- dikt Sigurjónsson og ráðuneytis- stjóri dóms- og kirkjumálaráðu- neytisins Baldur Möller, svo og fulltrúi þjóðhátiðarnefndar, Egill Sigurgeirsson hrl. Athöfnin hefst kl. 15.30. —EVI— Afleiðingar hörkuáreksturs á horni Amtmannsstigs og Þing- holtsstrætis I Reykjavik urðu meiri cn þær, að aðeins farþeg- ar bilanna slösuðust. Samtals voru fimm manns i tveimur fólksbilum, sem rákust á á þessu horni. önnur fólksbif- reiðin kastaði hinni upp að húsi, sem stóð þar á horninu. Bif- reiöin, sem kastaðist á húsið, klesstist upp við húsvegginn, braut gluggarúðu og múrhúðun. Inni i húsinu var fullorðinn maður staddur, sem er hjart- veikur. Honum varö svo mikiö um hið óvænta högg á húsið, aö hann fékk hjartaáfall, og var fluttur á sjúkrahús. Bifreiðin, sem kastaöist á húsið, er talin gjörónýt. — ÓH Skipt um hlutverk Það má segja, að þeir hafi skipt um hlutverk, Hjálp- ræðishersmenn og unga fólkiö úr hópi svokallaðra Guðs- barna. Guðsbörnin héldu nefnilega tölur á göngugöt- unni i Austurstræti, en Hjálp- ræðisherinn horfði á. Yfirleitt hefur það verið herinn, sem fólk hefur horft og hlustað á, en i þessu tilfelli var það her- maðurinn, sem var áhorfandi og áheyrandi.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.