Vísir - 20.07.1974, Page 4

Vísir - 20.07.1974, Page 4
Vlsir. Laugardagur 20. júll 1974. ÚTLÖND ÚTLÖND ÚTLÖND ÚTLÖND UTLÖND UTLÖND ÚTLÖND UTLÖND Spennan eykst umhverfís Kýpur — Tyrkir senda flota af stað — Grikkir hafna kröfum Tyrkja ForsetahöIIin I Nikósiu. Hiin er nii illa farin af skothrlö og eldi. Makarios slapp út um leynidyr, þegar uppreisnin var gerð. Mikil hræðsla greip um sig í Níkósiu höfuðborg Kýpur, í gær, þegar þangað bárust f regnir um það, að hlaðin her- flutningaskip og fall- byssubátar hefðu lagt úr höfn frá Tyrklandi og stefndu í áttina til eyj- unnar. Kýpurbúar af grískum ættum hlupu út á stræti og torg og hrópuðu „Tyrkirnir koma — Tyrkirnir koma". Verzlunum var lokað og skrifstofufólk flýði úr vinnu sinni. Tyrkneska stjórnin staðfesti síðdegis í gær, að f lotadeild hefði lagt úr höfn frá bænum Mersin í 60 km fjarlægð frá Kýpur. Ekkert var þó látið uppi um f jölda skip- anna eða hvert þau færu. Fréttamenn segja, að a.m.k. 35 skip, að mestu landgöngu-skip, hafi siglt út úr höfninni kl. 13 að ís- lenzkum tíma. Á sama tíma var foringjum í höfuðstöðvum tyrkneska hersins í Ankara bannað að yfirgefa stöðvar sínar og starfsmönnum út- varps og sjónvarps voru gefin fyrirmæli um að vera við öllu búnir. Joseph Sisco, aðstoðarutan- rikisráðherra Bandarikjanna, fór til Aþenu og Ankara i gær og hélt áfram tilraunum sinum til að miðla málum. 1 tilefni af komu hans til Ankara lýstu tyrkneskir embættismenn yfir þvi, að Tyrkir vildu enn reyna að finna friðsamlega lausn á deilunni. Sögðu þeir, að það mundi ráðast af boðum Siscos frá Aþenu. Makarios, erkibiskup og for- seti Kýpur, ávarpaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna i gær- kvöldi. Sendimenn byltingar- stjórnarinnar á eyjunni komu til New York sömu erinda. öryggisráðið viðurkennir Makarios sem löglegan forseta Kýpur og þar af leiðandi geta Sala minnispenings Þjóðhá- tíðarnefndar 1974 er hafin. Söluna annast bankar og helstu mynt- salar. Fornar vættir og landnáms- eldur prýða peninginn, s.em hann- aður er af Kristínu Þorkelsdóttur teiknara. Peningurinn er 7 cm í þvermál, hátt upphleýptur og þykk- ur. Slegnar voru tvó þúsund samstæður af silfur- og bronspen- ingi, sem kosta kr. 18.000,00, og ellefu þúsund eintök af stökum bronspeningum á kr. 1.900,00. Hver peningur er númeraður. Pen- íngarnír eru seldir í öskjum, og fylgir hverri þeirra smárit, sem gerir grein fyrir landvættum ís- lands og útgáfu peningsins. .... og meo 26/7 takmarkast afgreiðsla á samstæðum við þrjár til hvers kaupanda.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.