Vísir - 27.07.1974, Side 1

Vísir - 27.07.1974, Side 1
VISIR 64. árg. — Laugardagur 27. júll 1974. —134. tbl. VISIR OSKAR LANDS- MÖNNUM ÖLLUMÁNÆGJU LEGRAR ÞJÓÐHÁTÍÐAR Sá fyrsti hjólar hring- veginn — Baksíða • LOKS GAT INDRIÐI SLAPPAÐ AF -Baksíða „Herforingjaráöiö” á slöasta fundi slnum, þar sem gengiö var frá öllum smáatriöum, sem voru óafgreidd. Hvaö Indriöi er aö segja viö Bjarka Eliasson, yfirlögregluþjón, vitum viö ekki, en vist er aö hann gæti alveg eins veriö aö leggja áherzlu á stórt atriöi eins og smátt atriöi. Allt skiptir máli. Ljósm. Visis.: Bj.Bj. Isvélarnar spara 15 biðdaga V W • ú ari „Annað en gott veður er óhugsandi" — spjallað við bjartsýna fram- kvœmdamenn við lokaundir- búning Þjóðhátiðarinnar —bls. 2 Hannibal trimmar —íþróttir á bls. 10 ,,Það er allt tilbúið hérna undir það, að þjóðhátiðin hefjist”, sagði Indriði G.| Þor- steinsson, fra m- kvæmdastjóri þjóðhá- tiðar, á Þingvöllum i gær, er Visir fylgdist með lokaundirbúningi hátiðar haldanna. Þá sat Indriöi á fundi i stóru tjaldi meö þeim, sem hafa um- sjón með framkvæmdum á Þing- völlum. Smáatriði jafnt sem stærri atriði voru tekin fyrir, og sama hvaða vandi kom upp, allt var hægt að leysa. Mest voru það þó smáatriði, enda lokið við að ganga frá stærri verkefnum. „Hvernig eigum við að koma lúðraþeyturunum inn á hátiðar- svæöið? Þeir hafa engin skilriki”, spurði einn. Þarna var um að ræða, að fjórir lúðraþeytarar kæmust ákveðna leið framhjá laganna vörðum. ,,Ég held það leiki enginn vafi á hvert mennirnir eru að fara, ef þeir veifa lúðrum”, sagði Indriði. Fleiri mál af þessu tagi voru rædd, þangað til allt virtist klapp- að og klárt. Þá var þessum fundi „herforingjastjórnarinnar” slit- íð. Sigurjón Sigurðsson, lögreglu- stjóri,og fleiri, sem þarna voru, stóðu fastir á þvi, að veðrið yrði gott á sunnudag. „Mér finnst ein- hvern veginn eins og það sé óhugsandi, að annað en gott veður rlki þá”, sagði Sigurjón. í stjórnstöðvum þjóðhátiðar- innar var mikill ys og þys. Sima- menn gengu frá lögnum, og i tjaldi lögreglunnar var fullkomið fjarskiptakerfi komið i samband. I gegnum það er hægt að hafa beint samband við Reykjavik, Selfoss, hjálparsveitamenn og lögregluþjóna með göngutal- stöðvar, og við lögregluvarð- BÚIZT VIÐ ÁGÆTU ÞJÓÐHÁTÍÐARVEÐRI EN SKÚRALEIÐINGUM stöðvarnar, sem standa á leiðinni til Þingvalla. Þingvellir hafa fengið á sig há- tiðarblæ eftir að fánar og skraut- fánar voru dregnir upp. Sérstak- lega setja fánarnir uppi á brún Álmannagjármikinn svip á svæð- ið. Vinnuflokkur var að ljúka viö að draga upp fána sýslna og kaupstaða, en þeir standa i þyrp- ingu rétt hjá hátiðarsvæðinu, á Efrivöllum. Það er hinn snjalli teiknari, Kristin Þorkelsdóttir og auglýsingastofa hennar, sem á heiöurinn af þessari skemmtilegu uppsetningu og hönnun fánanna. A Lögbergi er sérsmiðaður pallur fyrir hátfðarþinghaldið kominn upp. Sjónvarpið er búið að koma tækjum sinum fyrir viö pallinn, og lá við að linsurnar á myndatökuvélunum væru þegar stilltar. „Það er svona heldur óákveðið með veðrið um helgina”, sagði Páll Bergþórsson, veðurfræðingur, þegar við höfðum samband við hann i gærkvöldi og spurðum hann um þjóðhátiðar- og Þing- vallaveðrið. Páll sagði þó, að mestar likur væru á hægum vindi, að allvel hlýtt yrði en hætt við skúra- leiöingum. Hann sagði þó, að það væru alls ekki likur á þjóðhátiðar- veðri eins og var ”44, stöðugri fastarigningu. Veðrið verður þvi eitthvaö svipað þvi sem var i Reykjavik I gær. Nokkuð þungbúið var, og „smá skúrir i kring, en hiti var talsverður.t.d. var 15 stiga hiti á Þingvöllum. En þó að komi aðeins væta úr lofti, þá láta menn það liklega ekki mikið á sig fá á hátið sem þessari. —EA A Efrivöllum, sem eru rétt fyrir neöan Oxarárfoss, verða flest dagskráratriði hátiðarinnar flutt. Sérstakur pallur hefur veriö byggður fyrir gesti, og stólum raðaö á hann. Stólarnir eru allir svartir á lit, nema fremstu tvær stólaraðirnar. Þar eru stólarnir rauðir. — ÓH ( „Landnemar hinir nýju" hressir og kátir: „Norska vinargjöfin i tilefni 1100 ára afmæiis tsiands, tein- æringarnir örn og Hrafn, komust i dag, 26. júli kl. 0900 inn i 200 milna auðlindalögsögu tslands”, segir i skilaboöum scm klúbbstöð islenzka radió- amatöra, TF3IRA náði við stöð þcirra i Hrafni LA21/MM kl. HLAKKA TIL AÐ SJA 16.30 I gærdag. Staðsetning bátanna var 64 gráður norður og 07 gráður vestur, gott veður, nokkuð há- skýjað og austan byr. Sögðu félagarnir,að ferðin sæktist vel, allir hressir og kátir og hlökkuðu mjög til fyrstu land- sýnar. Liklega hefur sæförum fyrir 1100 árum verið svipað innanbrjósts. Búast þeir félagarnir viö að koma upp að suðausturströnd- inni i dag enda hafa þeir góöan suðaustan byr. Bátarnir hafa staðið sig með eindæmum vel og eru hin frábærustu sjóskip. 1 gær var siglingafáni tslands LAND dreginn að húni af vikingunum, þegar komið var inn fyrir 200 milna-mörkin. Einmitt verndun auðlinda smáþjóða gegn rán- yrkju erlendra stórvelda er eitt af þvi, sem leiðangursmenn vilja undirstrika með hinni djörfu siglingu sinni. —JBP

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.