Vísir - 27.07.1974, Blaðsíða 7
Vlsir. Laugardagur 27. júli 1974.
7
Myndin var tekin á Þingvöllum I gær og sýnir nokkur tjöld.sem voru komin upp á hátíöasvæöinu. Þessi tjöld eru að visu ekki á aöal tjaldsjtæöinu, en þaö er f.vrir ofan
Almannagjá. Einnig er nóg af tjaldstæðum viö Skógarhóla og hjá Leirum. Ljósm.: Bj.Hj.
Hann vinur okkar, Jón
Jónsson, er mikið búinn
að hlakka til þessarar
helgar og að vonum, því
að hann ætlar á Þingvöll í
dag með sína kæru f rú og
krakka. Hann hefði nú
helzt kosið að vera lagður
af stað, en eins og
gengur, þá losnaði hann
ekki úr vinnu fyrr.
Jón var mikið búinn að hugsa
um þessa Þingvallaferð sina og
hvort ekki yrði nú mikil umferð
austur eða hvort hann gæti nú
komið tjaldi sinu fyrir á góðum
stað. Hans háttvirta frú var
búin að sauma á krakkana,
upphlut á stelpuna og spari-
buxur á strákinn, svo að nú var
aðeins að vonast eftir góðu
veðri. Ekki vantaði heldur, að
góðgæti væri i matarkörfunni,
hangikjöt og svið, harðfiskur,
smjör, kæfa rúllupylsa og annar
ósvikinn islenzkur matur. Allt
skyldi vera i þjóðlegum stil um
þessa helgi.
|Nú er allt komið út i bil hjá
Joni, maturinn, tjaldið, svefn-
pokarnir, konan og krakkarnir,
og hann aðgætir, hvort ekki sé
allt i lagi með bilinn, þvi að ekki
væri gott, ef eitthvað yrði að á
miðri leið. Það gæti hæglega
haft þær afleiðingar, að billinn
stöðvaðist Þar fyrir utan
kæmist Jón ekki á þessa lang-
þráðu þjóðhátið, og myndi
jafnvel tefja umferðina fyrir
öðrum.
Hvar eru
viögeröarbílarnir
En biðum við, kannski væri
þetta nú óþarfa kviði hjá Jóni,
Umsjón: Erna
V. Ingólfsdóttir
þvi að viðgerðarbilar frá Félagi
islenzka bifreiðaeigenda ætla að
vera með viðgerðarbifreiðar á
leiðinni til Þingvalla, og Jón
rifjaði upp fyrir sér i huganum,
hvar þær ættu að vera stað-
settar. Hann mundi lika, að það
var einmitt á sömu stöðum og
lögregluvarðstöðvarnar eru.l. á
mótum Þingvallavegar og
Vesturlandsvegar 2.á Mosfells-
heiði.á mótum Þingvallarvegar
og Kjósarskarðsvegar 3. á
Þingvallavegi, á mótum
Grafningsvegar, 4. á Þingvalla-
vegi, móts við Kárastaðastig
(þar sem ekið var niður
Almannagjá), 5. á Þingvöllum,
nánar tiltekið á Leirunum, 6. á
mótum Gjábakkavegar og
Sogsvegar, 7. á Skógarhólum og
8. á Uxahryggjaleið, við gatna-
mót Kaldadalsvegar og
Uxahryggjavegar.
Spenniö bílbeltin
Gleymdi hann nú nokkru? Jú,
að spenna bilbeltin. Það var
áreiðanlega vissara. Jón mundi
eftir mörgum slysum, sem hann
hafði heyrt um, að hefðu alls
ekki orðið eins alvarleg, ef fólk
hefði bara munað eftir að
spenna beltin. Já, og var ekki
einmitt tilkynning frá
Umferðarráði um, að þeir, sem
væru með beltin spennt.fengju
afhentan getraunaseðil með 10
léttum spurningum? Vinning-
arnir voru heldur ekki af verri
endanum, þvi að þeir voru
fjórir, og hver vinningur
viðleguútbúnaður upp á hvorki
meira né minna en 50 þús. kr.
Jæja, þetta gengur nú allt
saman vel hjá Jóni. Hann hefur
keyrt með jöfnun hraða og er
kominn fram hjá bilastæðinu
við Kárastaði. Þaðan er bila-
umferð bönnuð á sunnudag, en
fólk getur tekið strætó niður á
hátiðarsvæðið. Hann keyrir
fram hjá tjaldstæðinu á Lækjar-
bökkum við Grimagilslæk ofan
Almannagjár og fram hjá hjól-
hýsunum og inn að Skógar-
hólum, þvi að þar ætlar hann að
tjalda. Hann veit sem er, að það
verða engin vandræði að
komast niður á hátiðarsvæðið,
þvi að strætó bjargar þvi.
Stjórnstööin
Ef einhver skyldi nú verða
veikur eða meiða sig, þá er
skyndihjálp á Leirunum og
stjórnstöð löggæzlunnar er i
tjaldi við Efrivelli. Stjórnstöðin
er i fjarskiptasambandi við
lögregluvarðstöðvar, lögreglu-
bifreiðar, og björgunar- og
hjálparsveitir. Hafa starfsmenn
Landsimans skipulagt sérstak-
lega fjarskipta- og simakerfið. t
hverri varðstöð lögreglunnar
verður varðstjóri, ásamt
tveimur lögreglumönnum, auk
tveggja aðstoðarmanna frá
hjálparsveitunum. Þyrlur
Landhelgizgæzlunnar munu
verða til taks við eftirlits- og
björgunarstörf. Vegagerð
rikisins hefur viðbúnað til þess
að lagfæra vegi og vegamann-
virki, ef þörf krefur.
Þar sem Jón er nú búinn að
koma sér fyrir á Skógarhólum,
hugsar hann með sér að það
væri nú gott, að hann skyldi ekki
þurfa að keyra þessa leið á
sunnudagsmorguninn. En ef
hann hefði gert það, þá hefði
hann áreiðanlega haft útvarpið
opið frá kl. 7 og hlustað á létt
morgunlög og ýmsar
leiðbeiningar um umferðina.
Eitt var lika vizt, að hann myndi
fylgjast vel með. hvað þeir
ætluðu að segja honum i
umferðarspjallinu. sem hæfist
kl. 19.30. þegar hann væri á leið-
inni heim.
—EVI
Næst þegar þú
kaupir verkfæri,
vertu viss um að
þaðsé
STANLEY