Tíminn - 09.02.1966, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 9. febrúar 1966
Kvikmyndasalur Háskóla ís-
lands, þar sem sinfóníuhljóm-
gveit okkar Kemur fram hálfs
mánaSarlega og flytur háfleyg
ar tónsmíðar eftir Baoh og
Beethoven fyrir virðulega á-
heyrendur, var nú þéttsetinn
af æsikufólki, sem lét hrifnngu
sína í Ijós á mun áþreifanlegri
máta heldur en fyrmefndir
sinfóníugestir er þeir fagna
hinum erlenda stjómanda. Á
stæðan var sú, að brezka
„'beat”-hljómsveitin THE
HOLLIES var að túlka tónverk
ið I’m alive með sínum raf-
mögnuðu strengjahljóðfærum.
Hljómleikar þessir hófust
á því að tvæi íslenzkar „beat”
hljómsvejtir, Dátar og Logar,
frömdu þar listir sínar tilheyr-
endum til óblandinnar ánægju.
En þegar Hollies-piltamir birt
ust, sýndu viðstaddir sína
innri gleði og fögnuðu ódulin
með því að rísa úr sætum. -Þó
ekki á jafn virðulegan máta og
þegar tekið er hinni postul-
legu kveðju 1 húsi guðs, því
þessari athöfn fylgdu öskur
svo mikil, að nægt hefði að
raska ró í líknúsi og til árétt
ingar hentu tilbiðjendumir yf
irhöfnum sínum hátt í loft
upp Gekk þessu svo fram
mest allan pann tíma, sem
fimmmenningamir frá Man
chester seiddu tilbiðjendur
sína með þeim tryllitækjum,
sem nefnd eru rafmagnsgítar-
um.
Þegar kom að síðasta laginu
náði múgsefjunin algeru há-
marki og það skipti engucn tog
um, hljómleikagestimir risu á
fætur allir sem einn maður og
æddu að sviðinu likt og í flóð
Grein og myndir:
Benedikt Viggósson.
TIMINN
bylgju. Verðir laganna reyndu
að mynda varnarvegg, sem
jafnhraðan brotnaði niður.
Meiri hluiti þessara eldiegu
aðdáenda var kvenkyns og
reyndu stúlkurnar óspart að
kómast'í smertingu við Hollies
piltana. Þeir virtust kunna
þessu vel og tóku í framréttar
hendumar, en Graham Nash
varð hált á þessu, því að stúlk
umar gerðu sér lítið fyrir og
kipptu honucn niður af svið-
inu. Hann komst þó við illan
leik til félaga sinna, en sjonar
vottar sögðu, að hann hefði
mátt þakka fyrir að halda bux
unum. Skömmu áður en þetta
gerðist, komst stúlka ein upp
á sviðið og faðmaði Bob Eliot
af miklum innileik en hún var
brátt fjarlægð.
Það vom flestir sammála um
það. að aðfarir þær, sem lög
reglan hafði til að reyna að
K>-amhald a ois '■ -
Allar
vildu