Tíminn - 09.02.1966, Blaðsíða 13
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 9. febrúar 1966
TÍMINN
13
Gdansk í dag?
Síðari leikur Pólverja og Dana í dag
Það er í dag, sem Pólverjar og
Danir leika sí'ðari leik sinn í heitns
meistarakeppninni í handknattleik.
SigurSur R. Guðjónsson.
Eins og kunugt er, sigru'öu Dan-
ir í fyrri leiknum, sem fram fór í
Danmörku, og takist þeim að
sigra Pólverja aftur í dag, glæðast
vonir íslands um að komast í loka
keppni HM. Sigri Pólverjar hins
vegar, minnka möguleikar fslands,
því þá verða bæði Danir og Pól
verjar með 4 stig á móti engu
stigi íslands, en tvö efstu löndin
í riðlinum komast í lokakeppnina.
Helztu möguleikar okkar eru
sem sé þeir, a'ð Danir sigri í dag,
en þá verður ísland að vinna Pól-
verja hér heima á sunnuriaginn
kemur og annað hvort ná jafntefli
eða sigra Dani í síðari leiknum.
Fari svo, að Pólverjar vinni Dani.
verður ísl. landsliðið að sigra bæði
Pólverja og Dani með miklum
mun til að komast í lokakeppnina.
Þess má geta, að leikur Pólverja
og Dana í dag verður háður í
Gdansk á sama stað og íslending
ar léku gegn Pólverjum í cfðasta
mánuði.
an í riðlinum ei þessi:
Danmörk 2 2 o 4
Pólland 2 10 1 43:41 2
A-þýzku meistararnir frá Leipzig meö þjálfara sínum, Peter Kretzschmar.
Island
Fjrmakeppni Skíðaráðs Reykjavíkur:
Davíð S. Jónsson &
Co í fyrsta sæti
Firmakeppni Skíðaráðs lteykja
víkur var haldin s. I. sunnudag við
.Skíðaskálann í Hveradölum.
Keppnin hófst kl. 12 á hádegi. Um
eitt hundrað fyrirtæki tóku þátt í
keppninni. Tólf fyrirtæki fengu
verðlaun:
1. Davíð S. Jónsson & Co. h. f.
umboðs- og heildverzlun, Þingholts
stræti 18, keppandi Sigurður R.
Guðjónsson, Ármanni.
2. Sport, verzlun, Laugavegi 18,
keppandi Bjarni Einarsson, Árm.
3. Leðurvöruverzlun Jóns Brynj
ólfssonar. Austurstræti 3, kepp-
andi Tómas Jónsson, Ármanni.
Kristinn' Ben.
keppir á al-
hióðlegu móti
í Noregi
Skíðasambandi íslands hefur
verið boðið að senda einn kepp
anda til Rjukan í Noregi, til
að keppa þar á alþjóðlegu skíða
móti í alpagreinum 12. og 13.
febrúar n. k.
Mótið er haldið i tilefni þess,
að nú eru liðin 10 ár frá því
fyrsta skíðamótið var haldið á
Þelamörk.
Stjórn Skíðasambandsins hef
ur valið fslandsmeistarann
Kristinn Benediktsson til farar
innar.
4. Olíufélagið Skeljungur h. f.
keppandi Guðni Sigfússon, ÍR.
5. Kr. Kristjánsson, h. f. bif-
reiða- og varahlutaverzlun, Suður
landsbraut 2, keppandi Guðni Sig
fússon, ÍR.
6. Fálkinn h. f., Laugavegi 24,
keppandi Gunnlaugur Sigurðsson,
KR,
7. Harpa h. f., lakk- og málninga
verksmiðja, Einholti 8 og Skúla-
götu 42, keppandi, Leifur Gísla
son, KR.
8. Tryggingafélagið Eagle Star,
keppandi Guðmundur Ingólfsson,
Árm.
9. Tryggingamiðstöðin h. f., Að
alstræti 6, keppandi Einar Þor-
kelsson KR.
10. Kristján Ó. Skagfjörð h. f.
umboðs- og heildverzlun, Tryggva
Framhald á bls. 14.
Sjö landsliöskonur
í liði SC. Leipzig
— er mætir Valsstúlkunum í Evrópubikarnum í kvöld.
Alf-Reykjavík, — Það má búast
við miklu fjöri < íþróttahöllinni í
Laugardal í kvöld, en þá fer |ram
fyrri Evrópubikarleikur kvenna-
liðs Vals gegn a-þýzku meisturun
um frá Leipzig, og í kaupbæti fá
áhorfendur svo pressuleik, en lið
landsliðsnefndar og blaðamanna
munu bítast fyrir kvennaleikinn í
síðustu prófrauninni fyrir Pólverja
leikinn, sem verður á sunnudaginn
kemur.
A-þýzku kvennameistararnir frá
Leipzig komu til landsins í fyrri
nótt. Engar upplýsingar höfðu bor
izt um liðið, en nú er komið í ljós,
að 7 af liðskonunum hafa leikið
með a-þýzka landsliðinu, sem álitið
er eitt sterkasta í heimi. í því
sambandi má geta þess, að í síð
ustu heimsmeistarakeppni kvenna
gerðu a-þýzku stúlkurnar jafn
tefli gegn Ungverjalandí í undan
keppni og varð að varpa hlutkesti
um það hvort liðið héldi áfram í
keppninni. Ungverjar unnu hlut
kestið og komust því áfram, og
urðu ungversku stúlkurnar síðar
heimsmeistarar.
SC Leipzig er ungt félag, stofn
að fyrir þremur árum, en þá sam
einuðust tvö sterk félög, Lokomo
tiv Leipzig og Rotation Leipzig og
ákváðu að leika undir einu merki,
SC Leipzig. Félagið leggur stund
á margar greinar íþrótta fyrir ut-
180 fyrirtækg i
firmakeppni TBR
an handknattleik, m. a. frjálsíþrótt
ir, leikfimi, glímu, sundknattleik,
bl^k hnefaleika og fl„
Þetta er í fyrsta skipti, sem fétag
ið tekur þátt í Evrópubikarkeppni
kvenna í handknattleik. í fyrstu
umferð léku a-þýzku stúlkurnar
ge.gn hollenska liðinu Swift.
Roexmond og unnu báða leikina.
Það er greinilegt, að Valsstúlk
urnar fá erfiðan mótherja í kvöld,
sennilega mun sterkari en norska
liðið Skogn, sem Valur sló út í
fyrstu umferð keppninnar. Engu
er hægt að spá fyrir um úrslit í
kvöld, en vonandi standa Sigríðúr
Sigurðardóttir og stöllur hennar
sig vel og færa Val sigur. Víst er,
að heimavöllur er alltaf betri en
útivöllur og hvatningarhróp áhorf
enda geta verkað eins og vítamín-
sprauta á heimaliðið.
Fyrri leikurinn í kvöld hefst kl.
8.15 og verður það pressuleikurinn,
eins og fyrr er getið, en Evrópu
bikarieikurinn hefst strjix á eftir.
Valsmenn sökktu
K.R. auðveldlega
Firmakeppni Tennis- og badmin
tonfélags Reykjavíkur verður í
íþróttahúsi Vals næsta laugardag
hinn 12. febrúar og hefst kl. 3
e. h.
Firmakeppni þessi er fastur lið
ur í starfsemi félagsins og haldin
árlega i febrúarmánuði. Hefur
fyrirtækjum. sem tekið hafa þátt í
keppninni, fjölgað ár frá ári og
aldrei verið fleiri en núna. En
nú eru þau 180.
Undanúrslit hafa farið fram að
undanförnu og eru 16 fyrirtæki
eftir, sem keppa munu til úrslita
á laugardaginn kemur Þessi fyrir
tæki eru:
Almennar tryggingar h. f.
Belgjagerðin
Dagblaðið Vísir
Ferðaskrifstofan Landsýn
Framhaid a bls. 14.
ALF-Reykjavík, þriðjudag.
Vals-liðið i handknattleik er
stóra spurningarmerkið i yfir-
standandi 1. deildar keppni í
handknattleik. Allar líkur eru tjl
þess, að Valsmenn muni blanda
sér í úrslitabaráttuna a.m.k. gefa
leikir liðsins til þessa slíkt til
kynna, sérstaklega síðasti leikur
Iiðsins, sem var gegn KR s. 1.
mánudagskvöld, en þá sökktu
Valsmenn KR auðveldlega og
sigruðu með 34:25.
Þrír leikmenn Vals-liðsins
stálu senunni að Hálogalandi á
mánudaginn. Bergur Guðnason,
Hermann Gunnarsson og áigurð
ur Dagsson, en þeir voru algerrir
ofjarlar KR-varnarinnar, sem þó
lætur sér ekki allt fyrir orjósti
brenna Aftur og aftur dundu
hörkuskoi þeirra i KR-markinu
Þannig skoraði Bergur 12 mörk.
Hermann 8 os ájgurður Dagsson
6 mörk
En það voru ekki aðeins hörku
skot peirra fé.aga sem vöktu að-
dáun aö Hálogaiandi. þvi línu
sendingai þeirrs voru oft á tíð
um afbragðsgóðar og urðu upp
baf að mörgum mörkum Vals.
En þrátt fyrir yfirburði í sóknar
leik verða Valsmenn einnig að
leggja áherzlu á varnarleikinn.
Framhald a bls. 14.
Meistararn-
ir enn í
erfiðleikum
Alf—Reykjavík, þriðjudag.
íslandsmeistararnir frá Hafnarf.,
FH eru farnir að haga sér eins
og stórlið, sem hér hafa gist,
sýna agæta leiki í stórum sal, en
koma fyrir sjónii eins og hvert
annað miðlungslið i Hálogalands
salnun. petta ei sjálfsagt ekki
nema fyllsta samræmi við stór
hug þeirra FH-inga litli salurinn
er ekki samboðinn þeim lengur.
Á mánudagskvöld átti FH í vök
Framhald á bls. 14.
Sigra Danir í