Tíminn - 18.02.1966, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 18. febrúar 1966
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Finnar hlutu fyrsta
heimsmeistaratitilinn
Mántyranta sigraði í 30 km göngu á HM
Sigurvegararnir i firmakeppni Tennis- og badmintonfélagsins, Árni Ferdinandsson og Kristján Benediktsson,
ásamt IndriSa G. Þorsteinssyni ritstjóra Tímans, sem heldur á verðlaunagripunum, sem um var keppt.
TÍMINN sigraði í firma-
keppninni í badminton
Heimsmeistarakeppnin í skíða-
íþróttum hófst í nágrenni Oslóar í
gær með keppni í 30 kílómetra
göngu, og hlutu Finnar sigur í
þessari fyrstu grein keppninnar,
en það var hinn margreyndi göngu
kappi þeirra, Eero Mantyranta,
sem kom fyrstur í mark. Hann
gekk vegalengdina á 1 klst. 37:26,
7 mín. Þetta er ekki fyrsti stórsig-
Mantyranta
ur Mantyranta, t. d. varð hann tvö
faldur Olympíumeistari á vetrar-
leikjunum í Innsbruck.
Strax eftir að ljóst var um sig-
ur Finnans, fékk hann heillaóska-
skeyti frá Kekkonen Finnlandsfor
seta, sem óskaði hónam til ham-
ingju með sigurinn.
Keppnin var allan tímann jöfn
og spennandi. Eftir fyrstú 5 km
var ítalinn Franco Nones með
beztan tíma, 16:46,0, en Mántyr-
anta var í öðru sæti með 16:57,0.
Eftir 10 km var Svíinn Bjarne And
erson með beztan tíma, 32:56,0, en
Mántyranta hélt öðru sæti, þrem-
ur sekúndubrotum á eftir. Og eft-
ir 20 km var Mántyranta orðinn
fremstur, en Svíinn í öðru sæti.
Landi Mántyranta, Kalevi Laurila,
var kominn í 3ja sæti eftir 20 km
en hann hreppti að lokum annað
sæti. Annars urðu úrslit þessi:
1. Eero Mántyranta, F. 1.37:26,7
2. Kalevi Laurila F. 1.38:11,3
3. Walter Demel, V-Þýzk. 1.38:11,6
4. I. Sandström, Svíþjóð 1.38:24,9
5. A. Akentjev, Sovét 1.38:32,3
6. Franco Nones, Ítalíu 1.38:53,5
7. Har. Grönningen, N. 1.38:53,8
8. L. Skjemstad, Noreg 1.38:54,5
Alf-Reykjavík, fimmtudag.
Hin árlega firmakeppni Tennis-
og badmintonfélagsins fór fram í
Valshúsinu s. 1. laugardag. Dagbl.
Tíminn sigraði í keppninni og svo
skemmtilega vildi til, að annar
keppandinn fyrir Tímann var
Kristján Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri blaðsins, en með-
spilari hans var Árni Ferdinands-
son. Léku þeir félagar til úrslita
gegn Jóhannesi Ágústssyni og
Ragnari Haraldssyni, sem kepptu
fyrir Jón Jóhannesson & Co.
Unnu Kristján og Árni fyrri
lotuna í úrslitaleiknum 15:13 og
þá síðari, 15:8. Alls tóku þátt í
keppninni 177 fyrirtæki og var
fyrst keppt í undanrásum (tvíliða-
leikur) og var um útsláttarkeppni
að ræða, þannig að fyrirtæki, sem
tapaði, var úr leik. Sextán fyrir-
tæki kepptu til úrslita á laugar-
daginn.
Að keppni lokinni á laugardag
efndi TBR til kvöldsekmmtunar I
Lindarbæ og voru þá afhent verð
laun, bæði fyrirtækjum og kepp-
endum. Þá afhenti formaður TBR
Kristján Benediktsson sjö félags-
mönnum gullmerki félagsins fyrir
mikil og farsæl störf í þágu þess.
Þeir, sem hlutu gullmerki, voru
Albert Guðmundsson, Árni Ferdi-
nandsson, Finnbjörn Þorvaldsson,
Guðlaugur Þorvaldsson, Ragnar
Haraldsson, Ragnar Thorsteinsson
og Lárus Guðmundsson.
„Eyleifur, Matthías og Guðjón
toppmenn í framlínunni okkar“
- segir Ríkharður Jónsson, sem þjálfar lið Akurnesinga í
Alf-Reykjavík. fimmtudag
Með hækkandi sól fara
ísl. knattspyrnumenn að
hugsa til hreyfings utan
húss og dusta rykið af
knattspyrnuskónum sem
hafa fengið að liggja ó-
hreyfðir frá því að síðasta
keppnistímabili lauk.
Reyndar er þetta ekki al-
gild regla, þvi dæmi eru til
þess, að knattspyrnumenn
hafi æft utan húss í allan
vetur. í biaðinu á næst-
unni munum við ræða við
þjálfara 1. deildar liðanna
og spyrja þá um æfinga-
sóknina og sitt hvað fleira.
Og fyrstur til að svara
spurningum okkar er Rík-
harður Jónsson, þjálfari
Akurnesinga, en Ríkharð-
ur tók við þjálfarastöðunni
af Guðjóni Finnbogasyni,
sem æfði liðið með prýði-
legum árangri s.l. tvö ár.
— Þið eruð byrjaðir að æfa
Ríkharður?
— Já, það hefur verið æft
þrisvar i viku að undanfömu,
ar.
tvisvar innanhúss í leikfimi-
húsinu, en á þeim æfingum er
lögð áherzla á þrekið, og einu
sinni utan húss. á sandvellin-
um á Langasandi.
— Og eru æfingarnar vel
sóttar?
— Já, það er óhætt að segja
það. Það hafa mætt flestir
þeir, sem ég reikna með, að
verði í liðinu næsta keppnis-
tímabil, nema 2—3 leikmenn.
Eg er ánægður með. hve áhug-
Ríkharður Jónsson
inn hjá strákunum er mikill,
og býst við frekar góðri út-
komu.
— Heldurðu að miklar breyt
Framhald á bls. 12.
Nemendur báru
kennara ofurliði
íþróttakvöld MR heppnaðist vel.
íþróttafélag Menntaskólans í
Reykjavík hélt sína árlegu íþrótta
hátíð að Hálogalandi í fyrrakvöld
og heppnaðist hún í alla staði vel.
Hápunktur kvöldsins var að sjálf-
sögðu handboltakeppni kennara og
nemenda og urðu nú þau óvæntu
úrslit, að nemendur báru kennara
ofurliði, en leiknum lauk 8:6 nem
endum í hag.
Leikurinn var allan tímann jafn
og spennandi og i síðari hálfleik
leit út fyrir sigur kennara, sem
komust yfir, en góður endasprett-
ur nemenda samfara hörku gerði
út um leikinn. Eiga nemendur
sannarlega ekki von á góðu í næstu
tímum! Af einstökum leikmönn-
um kennara vöktu mesta athygli
j arðfræðingarnir Þorleifur Einars-
son, ÍR-kempa, Úlfur Árnason og
Guðmundur Sigvaldason, en ann-
ars var liðið nokkuð jafnt — og
eins og maður segir, enginn veik-
ur hlekkur.
Af öðrum kappleikjum, sem
fram fóru, má nefna innanhúss
knattspyrnu milli Menntaskólans í
Reykjavík og Verzlunarskólans.
Verzlunarskólanemar sigruðu með
9:2. Þá léku í handknattleik
kvenna Menntaskólinn í Reykja-
vík og Kennaraskólinn. Mennta-
skólastúlkurnar sigruðu með 6:2.
Þá var háð 'nýstárlég keppni, sem
ekki hefur áður verið háð á íþrótta
kvöldunum, nefnilega pokahlaup
milli máladeildar og stærðfræði-
deildar, og sigruðu „málaliðar".
Landsliðsmaðurinn fyrrverandi, Ottó Jónsson, kennari i MR, lék með
nemendum sínum gegn Verzlunarskólanum í innanhúss knattspyrnu.
Þarna hefur Ottó leikið mótherja og meðherja grátt og stefnir að
marki. (Ljósm.: Bjarnleifur).
Loks má geta um handbolta-
keppni Menntaskólans í Rvík og
Menntaskólans á Akureyri og
keppni í körfuknattleik milli MR
og Háskólans. Eins og fyrr segir
heppnaðist íþróttakvöldið vel og
ríkti mikil stemmning á áhorfenda
pöllunum.
Chelsea og
Leeds unnu
Hsím, fimmtudag.
Chelsea sigraði Milano í síðari
leik félaganna j borgakeppni Evr
ópu með 2:1 á Stamford Bridge á
miðvikudaginn. Þar sem Milano
sigraði í fyrri leiknum með sömú
markatölu, verða félögin að leika
þriðja leikinn. og var varpað um
það hiutkesti, hvar leikurinn fer
fram. Hlutur Milano kom upp og
verður leikurinn háður í Milano
hinn 3. marz.
Tveir aðrir leikir voru háðir í
borgakeppninni sama dag. í Val
encia á Spáni sigraði Leeds
heimalíðið með eina markinu sem
skorað var í leiknum, og heldur
því áfram í keppninni, þar sem
Ieiknum (slagsmálaleiknum
Framhald á bls. 12.