Tíminn - 27.02.1966, Síða 16
ÍWIMI
Sunnudagur 27. febrúar 1966
50. arg.
48. tbl.
Skoðanakönnun /
Verzlunarskólanum
SJ—Reykjavik,
Nýlega fór fram skoðanakönmin
meðal nemenda Verzlunarskólans
og eru niðurstöður hennar birtar
í Verzlunarskólablaðinu. Allir nem
endur skólans tóku þátt í skoðana
könnuninni (13. jan.) og fengu
þeir 15 mínútur til að leysa verk
efnið af hendi.
Varðandi skólamálin er afstaða
nemenda skýr með eða á móti
(86% eru t. d. með því að fella nið
ur kennslu á laugardögum m>:ð
því skilyrði að kennsla fari fram
6 tíma aðra daga), en þegar kem
ur að spurningum um heimsmál
in fjölgar þeim sem enga afstöðu
hafa. Skoðanakönnun þessi er nokk
uð forvitnileg, en sumar spurnng
arnar hefðu mátt vera með öðru
orðalagi til að fá fram forvitnilegri
svör (sbr. Telur þú að heiminum
stafi hætta af Kína? Ennfremur
má ætla að skoðanakönnun, sem
gerð er í Verzlunarskólanum, verði
nokkuð einhliða vegna líkra póli-
tískra skoðana alls þorra nemenda,
og hefði t. d, verið forvitnilegt að
sjá svör menntaskóla- og kenn-
araskólanemenda við sömu spum
ingum.
Þjóðmálin:
1. sp. Telur þú að lækka beii
hinn almenna kosningaaldur úr
21 ári niður í t. d. 18 ár? Já: 12%
Nei: 72% Engin afstaða: 16%.
2. sp. Telur þú að óregla ungi-
inga varðandi áfengi ykist, ef sa!a
Svíar bjóða
Laxness á
ráðstefnu
SJ—Reykjavík laugardag.
Berlingske Tidende skýrði ný-
lega frá því, að ýmsum fremstu
rithöfundum Evrópu hefði verið
boðið að sitja ráðstefnu í Stokk-
hólmi dagana lo.—21. maí. Blaðið
nefnir sérstaklega Halldór Kiljan
Laxness, Jean Paul Sartre og Al-
berto Moravia og ennfremur er
gert ráð fyrir, að um 60 þekktir
rithöfundar a Norðurlöndum
sitji ráðstefnuna.
Eitt aðalumræðuefnið verður
Um sænskar nutíma bókmenntir.
ÞJOFNAÐIR
í KÓPAVOGI
HZ-Reykjavík, laugardag.
Undanfarið hefur nokkuð borið
á þjófnuðum og rupli í Kópa-
vogi. Virðist sem um unglinga
sé að ræða. Einna mest hefur
borið á stuldi í banraskólanum og
annars staðar hafa verið gerðar
tilraunir til þess að ná pening
um.
Allir þeir, sem í Kópavogi búa,
eru beðnir um að vera á varð
bergi og aðstoða lögregluna við
að ná tangarhaldi á þessum ódæð
ismönnum.
áfengs öls yrði leyfð? Já: 27%
Nei: 66% Engin afstaða: 7%.
3. sp. Telur þú, að það sé hætivi
legt íslenzkri menningu, að í land
inu skuli vera erlent herlið eins
og nú er? Já: 19% Nei: 63% Eng
in afstaða: 18%.
4. sp. Telur þú tímabært fyrir
íslendinga að ráðast út í stofnun
og rekstur sjónvarpsstöðvar? Já:
65% Nei: 25% Engin afstaða: 10%
5. sp. Telur þú að Danir hafi
sýnt íslendingum mikla góðvild
og híýhug, með því að afhenda
okkur handritin? Já: 29% Nei:
51% Engin afstaða: 20%.
6. sp. Telur þú æskilegt að
loka sjónvarpsstöðinni á Keflavík
urflugvelli? Já; 11% Nei: 80%
Engin afstaða: 9%.
7. sp. Telur þú áfengisneyziu
unglinga þjóðfélagslegt vandamáí?
Já: 47% Nei: 40% Engin afstaða
13%.
8. sp. Telur þú rétt að flytja
Framhald á 14. síðu.
Drukkinn maður
ætlaði að stela
strætisvagni
HZ-Reykjavik, laugardag.
f nótt sem leið varð vaktmað
ur hjá Strætisvögnum Reykja
víkur á Kirkjusandi var við
mann, sem ætlaði að fá sér bíl
túr í einum strætisvagninum.
Tókst honum að góma manninn
og flytja hann á lögreglustöð
ina. Reyndist maðurinn vera
undir áhrifum áfengis.
fM
KT-Reykjavik, laugardag.
í gærkvöld kom hingað
til lands Asíumeistarinn í
Judo, Kisaburo Watanabe.
Hann kemur hingað á veg
um hins nýstofnaða félags,
Judokan, en formaður þess
er Sigurður Jóhannsson.
Átti Tíminn í dag stutt sam
tal við Sigurð um komu
glímumeistarans.
Sigurður sagði m. a. að
Watanabe kæmi hingað frá
London, en þar starfaði
hann um þessar mundir við
að þjálfa landslið Breta
í Judo. Kisaburo Watanabe
hefði orðið Tókíómeistari í
F'ramna n a : 14.
Meðfylgjandi mynd var
tekin, er Sigurður Jóhanns
son tók á móti Asíumeistar
anum í Judo á Reykjavíkur
flugvelli.
170 bílfarmar af heyi
fluttír úr Rangárþingi
PJ—Hvolsvelli, laugardag.
Háfermdir heyflutningabílar
hafa í haust og vetur sett svip á
umferðina hér á Suðurlandi, á-
vöxtur góðs sumars og arðnr auk
innar ræktunar. Er gott til þess
að vita, að bændur hér um slóðir
skuli vera svo aflögufærir og geta
hjálpað stéttarbræðrum sínum á
Austurlandi.
Um 70 bílförmum hefur verið
ekið héðan úr Rangárþingi og á
hverjum bíl er nálægt 6 tonn af
heyi. Þrátt fyrir þetta auka
menn búskap sinn og ætla hveij
um grip meira fóður en áður tið
kaðist. Þetta sýnir ljóslega hvað
ræktað land hefur stækkað. Þegar
Hekla gaus árið 1957 þurftu marg
ir þeirra bænda, sem fengu ösk
una og vikurinn yfir ábýlisjarðir
sínar, að fá hey að. Þá varð að
flytja allt hey úr öðru héraði hing
að austur.
Heyflutningabílarnir aka með
heyfarminn ýmist til Þorlákshafn
ar eða Reykjavíkur um borð í skip
er sigla með heyið til hafna á
Austurlandi.
Tíminn hafði samband við Vig
fús bónda á Húsatóftum á Skeiðum
og innti hann eftir heyflutning
um úr Árnessýslu. Hann hafði eng
ar tölur á reiðum höndum, en
bjóst við að eitthvað minna rnagn
hefði verið flutt úr sýslunni. Hey
flutningunum úr Árnessýslu er nú
lokið, en leitað hefur verið eftir
meira heyi.
Vigfús sagði, að flestir bændur
hefðu verið birgir af heyjum, en
veturinn hefði verið harðari en
bændur hafa almennt átt að venj
ast. Ekki hefur snjóað svo mikið
heldur má heita að það hafi verið
endalaus kuldi, frost og rok. Auk
bænda á Austurlandi hefur hesta
mannafélagið Fákur fengið hey úr
Árnessýslu.
JARÐSKJÁLFTAKIPPIRNIR
k TAKMÖRKUÐU SVÆÐI
GÞE—Reykjavík, iaugardag.
Starfsmenn Jarðfræðideildar
Veðurstofunnar hafa nú fengið í
hendur Iínurit frá jarðskjálfta-
mælinum á Akureyri og við sam-
anburð hefur komið í ljós, að
jarðhrærmgarnar eiga up^tök sín
á Mýrdalsjökulssvæðinu, en ekki
á Torfajökulssvæðinu. eins og
haldið vai.
Enn mæiast jarðhræringar á
svæðinu 145 km aust-suð-austur
af Reykjavík og varð síðasti kipp
urinn, sem vitað er um kl. 4 í
nótt. Kippirnir :ru sem fyrr frem
ur litlir og haía aðeins komið
fram = þessu takmarkaða svæði
enn sem kormð er.
Hafa nú mælzt um það bil 15
jarðskjálftakippir á þessu svæði
frá því kl. 23.15 á miðvikudags-
kvöld hafa þeir verið mjög mis-
jafnlega snarpn og sumir vart
teljandi Svo sem áður hefur kom
ið fram í blaðinu, varð Sigurður
Tómasson, bóndi og oddviti á
Barkarstöðum i Fljótshlíg fyrstur
manna vai við þessar hræringar,
en fólk á þremur bæjum í Vestur
Álftaveri, Hrífunesi í Skaftár
tmngu og Heiðarseli á Síðu hefuf
einnig tilkynnt, að það hafi orðið
vart við kippin? á miðvikudags-
kvöld.
Myndin hér að ofan er frá danssýningu Þjóðdansafélags Reykjavíkur
s. I. sunnudag, en hún verður endurtekin í dag. ViS þetta tækifæri koma
fram hátt á annað hundrað manns og sýna dansa frá ýmsum löndum
heims svo sem Spáni, Portúgai, Þýzkalandi, Tékkóslóvakiu og vfðar.
Klæðist sýningarfólkið þjóðbúningum frá viðkomandi löndum, meðan á
þjóðdönsunum stendur. 17. júnf, n. k. á Þjóðdansafélag Reykjavíkur 15
ára afmæli og mun við það tækifæri verða sýningarflokkur frá félaginu
á Norðurlandamót. Mun flokkurlnn aðeins sýna íslenzxa dansa.
Tlmamynd G E.
ÚTLENDINGAR KQMA TIL
AÐ KANNA SKEMMDIRNAR
SJ-Reykjavík, laugardag.
Bráðabirgðaviðgerðin á Jókui-
fellinu hefur reynzt erfiðari en
í fyrstu var áætlað og skemmdirn
ar meiri. Skipið er vart væntan
legt til Reykjavíkur fyrr en
eftir helgi.
Menn frá erlendum skipasmíða
stöðvum eru væntanlegir hingað
til að kanna skemmdirnar og
bjóða í viðgerðina, en það er
erfitt verk, þar sem ekki er hægt
að taka skipið í slipp til athugun
ar.
Tafsamt reyndist að losa fisk
birgðirnar úr skipinu, og enn
fremur þurfti að rífa mikið
af einangrun til að komast að
þeim stöðum þar sem viðgerðar
er þörf.
SÍÐASTI DAGUR
í dag, sunnudag, eru síðustu
forvoð til að sjá sýningu mennta
skólanema á verkum Snorra Arin
bjarnar listmálara. Sýningin sem
er í kjallara hins nýja mennta-
skólahúss, hefur staðið yfir síð
an í síðustu viku, og hefur að-
sókn verið ágæt.