Tíminn - 05.03.1966, Side 1

Tíminn - 05.03.1966, Side 1
J----------------------------- Auglýsing i Tímanum kemur daglega t'yrir augu 80—100 þúsund lesenda Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið i síma 12323. Flogmaðurinn, Sævar Pétursson. Miðstjórn ASÍ um fyrirhugaða alumínsamninga: Ný og hættuleg stefna í íslenzkum atvinnumálum ----------------- EJ—Reykjavík, föstudag. Plper Colt flugvélin á hvolfi á Keldnaholti. Flugvélinni hvolfdi - flug- maðurinn slapp ómeiddur Miðstjórn Alþýðusambands íslands gerði á fundi sínum í gær ályktun um stóriðju og alúmínmálið, þar sem segir m. a„ að mið- stjórnin telji, „að hugsanieg samþykkt í fyrirhuguðum samningi fs- lenzka ríkisins og Swiss-Aluminium um stofnun aluminumverksmiðju hér á landi mundi marka nýja og hættulega stefnu í íslenzkum atvinnu- málum,“ og beinir miðstjórnin „sterkum aðvörunarorðum sínum til allrar alþýðu, til þjóðarinnar og til löggjafarvaldsins gegn þessari grundvallarstefnubreytingu í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar og lýsir eindreginni andstöðu sinni gegn henni.“ Ályktun miðstjórnar ASÍ er svohljóðandi: KT-Reykjavík, föstudag. I morgun varð flugvél af gerð- inni Piper Colt að nauðlenda á Kcldnaholti nálægt tilraunastöð- inni að Keldum. Flugvélin er tal in gjörónýt eftir þetta atvik, en flugmaðurinn, Sævar Pétursson, slapp algerlega ómeiddur. Flugvél- in var í eigu Flugsýnar. Flugmaðurinn á Flugsýnarvél- inni, sem nauðlenti á Keldnaholti í morgun, Sævar Pétursson, sagði í viðtali við Tímann í dag, að mestu mildi mætti telja, að hann hafi sloppið ómeiddur úr lending- unni, en stórgrýtt væri á þeim stað, sem hann nauðlenti. Sævar sagðist hafa verið að búa sig undir að endurnýja einkaflug- mannsréttindi sín, en þau hefðu fallið úr gildi fyrir nokkru. Sagð- ist hann hafa verið á flugi yfir Árbæjarhverfinu nýja, er hreyfill- inn hefði misst afl og flugvélin farið að missa hæð. Til þess að forðast að lenda í byggðinni, hefði hann reynt að ná túni, sem hann sá nálægt Korpúlfsstöðum, en ekki náð því. Hann.hefði því orð- ið að nauðlenda á Keldnaholti, sem er grýtt og óslétt. Um lendinguna sagði Sævar, að hún hefði tekizt með ágætum. Það hefði orðið sér til bjargar, að tekizt hefði að forða því, að nef- hjól flugvélarinnar kæmi fyrst nið ur, en ef svo hefði farið mætti búast við því, að flugvélinni hefði hvolft á þeim hraða, sem hún var á. Sagði Sævar, að flugvélin hefði runnið 30—40 metra áður en nef- hjólið snerti jörðina, en þá brotn- aði það af og flugvélin valt fram yfir sig. „Þetta fór betur en á horfðist," sagði Sævar. „Ég komst tafarlaust út úr flakinu og hefði ekki mátt vera að því að verða hræddur.“ Sævar reyndi að ná sambandi •♦■•'amndir • - • „Miðstjórn Alþýðusambands fs- lands telur, að hugsanleg sam- þykkt á fyrirhuguðum samningi íslenzka ríkisins og Sviss-Alumini- um um stofnun aluminiumverk- smiðju hér á landi mundi marka nýja og hættulega stefnu f Ísleník- um atvinnumálum, þar sem horfið yrði í ríkum mæli frá þeim skráðu og óskráðu lögmálum, sem fylgt hefur verið fram til þessa — að íslenzk a tvinnufyrirtæki • væru byggð á íslenzku framtaki, fjár- magni í eign íslendinga eða und- ir þeirra ráðstöfunarvaldi, og að öllu á íslenzkum lagagrundvelli — en horfið að því að veita erlend- um aðilum óskoruð yfirráð yfir stórfyrirtækjum á íslenzkri grund og gera útlendinga þannig að sterkum áhrifaaðila i atvinnulífi þjóðarinnar og efnahagsþróun landsins og veita þessum aðilum að auki margskonar og mikilvæg forréttindi umfram íslenzka at- vinnurekendur og jafnvel undan- þiggja þá í mikilvægum greinum íslenzkri lögsögu. Vill miðstjórn Alþýðusambands íslands beina sterkum aðvörunar- orðum sínum til allrar alþýðu, til þjóðarinnar og til löggjafarvalds- ins gegn þessari grundvallar- stefnubreytingu í atvinnu- og efna hagsmálum þjóðarinnar og lýsir eindreginni andstöðu sinni gegn henni. Með tilvísun til þeirrar túlkun- ar, sem frammi er höfð af for- vígismönnum hinnar erlendu stór- iðju, þeirri, að með samningum við Sviss-Aluminium sé aðeins um að ræða upphaf annarra og meiri framkvæmda, sem í sömu átt stefna, er því ekki aðeins um að ræða einangraða framkvæmd, held ur fyrsta spor í þá átt að skorða efnahagslegt sjálfsforræði þjóðar- innar með vaxandi erlendri fhlut- un í atvinnulífinu. H'ramhaid a ois z Wilson hefur 11% meira fylgi en ihaldsmenn NTB-London, föstudag. Verkamannaflokkurinn hefur í dag 11% meira fylgi en íhalds- flokkurinn, meðal brezkra kjós- enda, og ef þetta hlutfall helzt fram til kosningadagsins, 31. marz, mun stjórnarflokkurinn sigra kosningarnar og fá ca. 167 fleiri þingsæti. en íhaldsflokkur- inn. Þetta er niðurstaða Gallup- rannsóknar, sem birt var f dag Framhald á 14. síðu. Jökulfellið sneri aftur SJ-Reykjavík, laugardag. Á miðvikudagskvöld lagði Jök- ulfellið af stað til Þýzkalands eft- ir að bráðabirgðaviðgerð var lokið i Vestmannaeyjum. Eftir tíu tfma siglingu var ákveðið að snúa aftur við til Vestmannaeyja, þar sem sjór var kominn í lest og ekki þótti þorandi annað en að snúa við. í Vestmannaeyjum verður reynt að ráða bót á lekanum, en ekki er hægt að segja um að svo stöddu hvort skipið siglir til Reykjavík- ur, eða hvort reynt verður aftur að sigla því til Þýzkalands. Læknar reyna að bjarga fveim krabbameinssjúkingum: Reyna ai fíytja vírus úr öðrum sjúklingnum í hinn Teletype 11 cis GK NTB-Buffalo, föstudag. Læknar við sjúkrahús eitt í Buffalo í New York ríki, ákváðu í dag að reyna að bjarga lífi tveggja krabba- meinssjúklinga með því að flytja krabbameinsvírus úr einum í annan og láta vfrus- ana þannig eigast við í líköm- um sjúklinganna. Sjúklingarnir tveir, Roboyt Allen, sem er 28 ára og þriggja barna faðir, og Harry Griffith sem er 63 ára, þjást af illkynj um beinkrabba. Talið er, að þeir muni einungis lifa í tvo mánuði, ef ekkert verður að gert. Þessi einstæða aðgerð, sem Framhald a bls V

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.