Tíminn - 05.03.1966, Page 8

Tíminn - 05.03.1966, Page 8
VETTVANGUR TÍMINN ÆSKUNNAR LAUGARDAGUR 5. marz 1966 ÖRVÆNTINGARFULLIR ALBARONAR Hvatningargreinin Kallið er komið olli miklum úlfaþyt oe ngg í höll álbarónanna vi3 Aðalstræti. f leiðara Morgunblaðs- ins síðasta fimmtudag birtist vesældarlegt fimbulfamb, sem átti víst að heita svar við umræddum Ármannspistli. f örvænt- ingu reyndu ritstjórar blaðsins að telja sjálfum sér og lesend- um sínum trú um, að hin nýja þjóðfélagsstefna Framsóknar- flokksins væri hjóm eitt, því aldrei hefðu ungir i ienn skipað sér í framkvæmdasveit flokksins og aldrei hefði flokkurinn beitt sér fyrir framförum. Ömurleg er vörnin og varla ættu leiðara- höfundar stærsta stjórnmálablaðs á íslandi að gera sig bera að slíkri vanþekkingu og það í augsýn alþjóðar. En kannski vita þeir betur. Kannski er þeim fullkunnugt, að enginn íslenzk- ur stjórnmálaflokkur hefur falið jafn upgum mönnum forystu og enginn hefiár á þessari öld átt Framsóknarflokknnm ríkari þátt í uppbyggingu efnahagslífsins og eflingu íslenzkrar menn- ingar. Leigupennar rikisstjórnarinnar mega ekki láta flokks- þjónustuna leiða sig svo langt, að þeir virði sannleikann að vettugi og beri blygðunarlaust blekkingar á borð. Framsólcnarflokkurinn var stofnaður af forystumönnum fjöl- mennustu og áhrifaríkustu æskulýðssamtaka í sögu íslands. Fyrstu útgefendur og ritstjórar Tímans voru rétt þrítugir. Af fjórum forsætisráðherrum Framsóknarflokksins voru þrír tutt- ugu árum yngri en núverandi landsfaðir íhaldsunglinganna. Hermann Jónasson var yngsti forsætisráðherra veraldar. Eysteinn Jónsson var aðeins 27 ára, þegar Framsóknarflokkurinn fól honum að gegna ráðherrastörfum. Enginn íslenzkur stjórn- málaflokkur hefur sýnt jafn ungum manni slíkan sóma. Ásgeir Ásgeirsson var rúmlega þrítugur, þegar hann stýrði Alþingis- hátíð á Þingvöllum. Saga Framsóknarflokksins er samfelld lýsing á afrekum ungra manna. Þeir hafa verið í fararbroddi á flcstum sviðum. Endursköpun íslenzkrar verzlunar á fyrstu áratugum þessarar aldar miðaði að upprætingu arðráns, sem erlendir og íslenzkir kaupmenn stunduðu f skjóli dáðlítilla íhaldsráðherra. Vöxtur og viðgangur samvinnuhreyfingarinnar tryggði, að alþýða til sjávar og sveita fékk sannvirði fyrir vinnu sína. Jarðræktarlög, ræktunarsjóðir, Búnaðarbanki og fjölmargar umbætur í þágu Iandbúnaðar gerðu bændum kleift að auka svo framleiðslu sína, að kaupstaðir og kauptún gátu vaxið án skorts á neyzluvörum. í skjóli framfara landbúnaðarins myndaðist þéttbýli, höfuðstöðvar sjávarútvegs og iðnaðar. Bygging frystihúsa, kaup á kæliskipum, fjölgun sfldarverk- smiðja, skreiðarverkun, karfaveiðar, söltun sfldar og aðrar byltingar í íslenzkum fiskiðnaði voru allar framkvæmdar í stjórnartíð Framsóknarflokksins. Án þessara byltinga væru íslendingar enn fátæk og vanþróuð þjóð. Framfarir síðustu ára- tuga, velsæld almennings og aukning þjóðarauðs hvfla allar á stoðum, sem reistar voru í hinum umfangsmiklu byltingum í matvælaiðnaðinum. Efling íslenzks iðnaðar hefur ávallt verið stefnumál Fram- sóknarflokksins. Þar hefur ekki verið setið við orðin tóm. Áburðarverksmiðja, Sementsverksmiðja og ótal önnur fyrirtæki sýna hug flokksins í verki. f helzta iðnaðarbæ á fslandi, Akur- eyri, hefur flokkurinn ávallt ve"!?t ráðandi framkvæmdaafL Mestu mennta- og menningarstoínanir þjóðarinnar eiga reisn sína og tilveru Framsóknarflokknum að þakka. Hann beitti sér fyrir stofnun og byggingu Þjóðleikhúss. Byggingar Háskóla fs- lands munu um ókomnar aldir sýna stórhug forystusveitar flokksins. Menntaskólarnir á Akureyri og Laugarvatni eru ávextir af langri baráttu Framsóknarflokksins fyrir jafnri að- stöðu æskufólks til skólagöngu. Héraðsskólar og gagnfræða- skólar um allt land eru einnig tákn um, hve árangursrík sú barátta var. Margar fleiri menningarstofnanir eru verk Fram- sóknarmanna: Ríkisútvarpið. Sundhöll Reykjavíkur. Fyrstu lög um rannsóknir í þágu atvinnuveganna voru sett að frum- kvæði Framsóknarflokksins. Hann virkjaði vísindamenn til þjóðarheilla. Verkamannabústaðir og byggingasamvinnufélög voru upphaf- ið að löggjafarstarfsemi til stuðnings íbúðarbyggingum í bæj- um. Ávallt og í sívaxandi mæli hefur Framsóknarflokkurinn stuðlaði að því, að sem flestir gætu eignazt eigin íbúð. Hinn mikli fjöldi efnahagslega sjálfstæðra íslendinga stendur f ómetanlegri þakkarskuld við brautryðjendastarf Framsóknar- flokksins. Og svona mætti lengi telja. Saga íslenzkra framfara er í senn saga Framsóknarflokksins. Flestar meginstoðir íslenzks þjóð- félags, athafnalífs og menningar, voru reistar af forystusveit flokksins. Sú framtíðarstefna, sem Framsóknarflokkurinn býður æsku íslands að framkvæma með sér, er rökrétt og eðlilegt framhald af hálfrar aldar æviferii. Ungir íslendingar sjá þetta og skilja. Þeir eru fúsir til að taka höndum saman við forystu flokksins. Þeir vita, að í höllum álbarónanna bíður þeirra ekkert annað en ömurleg þjónusta við erlenda auðmenn, gisti- vini barónanna á Álvöllum. Leiðari Morgunblaðsins færði æskumönnum enn einu sinni heim sanninn um, hve lítilmót- legt hlutskipti valdhafarnir ætla þeim. f stað þátttöku í hinni umfangsmiklu, fjölbreyttu og róttæku stefnuframkvæmd Fram- sóknarflokksins, býður Morgunblaðið æsku íslands aðeins eitt: erlendra áliðju. En sú kynslóð, sem nú haslar sér völl í íslenzkum þjóðmálum ætlar sér verðugra og reisulegra hlutskipti. Hún vísar gulli álbarónanna á bug. fslenzkir æskumenn verða aldrei hirðsveinar í höllum þeirra. Blekkingar, falsanir og útúrsnúningar stoða leiðarahöfunda Morgunblaðsins lítt, þegar þeir ávarpa menntuðustu kynslóð, sem ísland hefur alið. Ritstjórarnir hljóta vissulega að vera langt leiddir, ef þeir halda, að loddaraleikur og ritklækir muni einir nægja til að stöðva framsókn ungra íslendinga. Það þarf meira til. ÁRMANN. Fjölmenni á FUF-fagnaöi Félag ungra Framsókn- armanna i Reykjavík efndi til kvöfdskemmtunar aS Hótel Sögu fyrir skemmstu. Mjög var til skemmtunarinnar vandaS, enda var húr hin ánægju legasta í alla staöi. FormaS ur félagsins, Baldur Ósk- arsson bauS félagsmenn og gesti þeirra velkomna og stjórnaSi samkomunni. Einar Ágústsson, alþm. flutti snjallt ávarp. Skemmtikraftarnir Jón Gunnlaugssor og Ómar Ragnarsson fluttu gaman- þætti og hliómsveit Ragn ars Bjarnasonar lék fyrir dansi. Húsfyllir var og skemmti fólk sér hiS bezta. Næsta skemmtun félags- ins a8 Hóte! Sögu verSur haldin fvrsta maí VerSur hún nánar auglýst síSar. Áðalfundur sambandsráðs S.U.F. Svo sem áður hefir verið auglýsti daginn. Dagskrá fundarins er seni i 2. Skýrslur: a) formanns, verður aðalfundur Samhandsráðs hér segir: b) gjaldkera, c) erindreka S.U.F. haldinn dagana 9. og 10. Fyrri dagur: 3. Umræður. marz n. k. að Tjarnargötu 26 í 1. Fundurinn settur af Örlygi Seinni dagur: Reykjavík, og hefst kl. 5 e. h. fyrri I Hálfdanarsyni formanni S. U. F. I 1. Nefndarstörf fyrir hádegi. 12. Eftir hádegi flytur Eysteiiui i 3. Kvöldverður s ooð S.D.F. Jónsson, formaður Framsóknar- Sambandsráðsmenn eru hvatiir flokksins. ræðu, en síðan hefjast til að mæta timanle^a til f” "• umræður að ioknum skýrslum og tilkynna varamönnum sinutn. nefnda. I geti þeir ekki mætt.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.