Tíminn - 05.03.1966, Qupperneq 10
w
'sjROTTÍR
ÍÞROTTÍR
FÖSTUI>AGUP 4. mar» Í96tí
Tveir landsleikir gegn heimsmeisturum um helgina
Baðir nýliðamir í ísL liðmu, Geir og Siguður Dagsson forfallaðir. Birgir og Þórarínn kotna
í þeirra stað. Furðulegt, að Páli Eríkssyni skuli haldið fyrír utan liðið. - Leikurinn I dag er kL 5
Alf—Reykjavík.
Tveir landsleikir í band
knattleik verða leiknir í
Laugardalshöllinni um
helgina. Mótherjar ísl. liðs
ins að þessu sinni veröa
ekki af verri endanum,
sjálfir heimsmeistararnir
frá Rúmeníu. Tvö forföll
eru í íslenzka liðinu, sem
letka á fyrri leikinn í dag,
en báðir nýliðarnir, Geir
Hallstemsson og Sigurður
Dagsson, treysta sér ekki
til að vera með vegna
meiðsla.
í þcirra stað koma þeir Birg
ir Björnss. og Þórarinn Ólafs-
son, báðir ágætir leikmenn, en
nokkra forðu hlýtur að vekja,
að Páli Eiríkssyni, FH, skuli
ekki vera gefið tækifæri til
að leika með liðinu. Undanfar
ið hefur Páll sýnt mjög góða
leiki með FH-Uðinu, og átt öðr
um fremur mestan þáttinn í
velgengni liðsins. Landsliðs-
nefnd veit fullvel, hvar hún
hefur Þórarin og Birgi, sem
báðir hafa fengið tækifæri
með landsliðinu á keppnistima
bflinu, en PáU hefur ekki feng
ið að reyna sig. Landsleikina
gegn Rúmenum verður fyrst
og fremst að lita á sem æfinga
leiki fyrir landsleikhm gegn
Dönum, og þess vegna sjálf-
sagt að reyna nýja menn. Birg
ir Björnsson var á sínum tíma
einn okkar snjallasti hand-
knattleiksmaður, og stýrði
landsUði okkar í mörgum sigur
leikjum, en Birgir býr ekki yf
ir sama kraftinum í dag, hann
er á leið með að hætta. En
kannski fær PáU tækifæri í síð
ari leiknum, sem háður verður
á sunnudaginn, því valið á lið
inu er eingöngu bundið við
leikinn í dag.
Engu skal spáð fyrir um úr-
sUt leikjanna, en auðvitað eru
heimsmeistararmr sigurstrang
legri. íslenzka landsliðið hefur
þó sýnt það að undanfömu að
það er mikið sterkara á heima
velli en útivelU og alls af því
að vænta. Að mínu áliti dregur
Rúmensku heimsmeistararnir á æfingu í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Þjálfarinn heimsfrægi, Kunst,
er lengst t. v. (Tímamynd ©E)
það nokkuð úr styrk ísl. lands er þannig leikmaður, að hann og línusendingar hans eru oft
Uðsins, að Ingólfur Óskarsson getur gert ótrúlegustu hluti á á tíðum frábærar. En ekki þýð
skuli ekki vera með. Ingólfiur þýðingarmiklum augnabUkum, Framhald á 14. síðu.
Körfuboltinn um helgina:
Tekst ÍR að sigra
Islandsmeistarana?
íslandsmótið í körfuknattleik
heldur áfram um helgina og verð
ur leikið að Hálogalandi bæði í
kvöld og annað kvöld. Annað
kvöld, sunnudagskvöld, leika ís-
landsmeistarar KR og ÍR. Og
spurningin er, tekst ÍR að stöðva
KR? KR-ingar hafa Ieikið þrjá
leiki og sigrað i öllum, en ÍR tap
aði fyrir Ármanni.
Örugglega verður um spennandi
keppni að ræða, eins og alltaf,
þegar pessir „erkióvinir” mætast.
Á sunnudagskvöld leika einnig í
2. deild SkaUagrímur og íþrótta-
félag stúdenta.
í kvöld leika í 2. deild Skalla-
grímur og Skarphéðinn og í 1.
deild KFR og íþróttafélag Kefla-
víkurflugvallar, en hvorugt þess
ara liða hefur hlotið stig í keppn
inni. — Fyrstu leikir bæði kvöld
hefjast M. 20.15.
Myndin að ofan er frá leik Englands
Sfiles, Manch. Utd. (í dökku peysunni)
íþróttablaðið komið út
og V-Þýzkalands á dögunum, en leikinn vann England 1:0. Hér sésf
í návígi við þýzkan varnarleikmann. Stiles skoraði eina mark leiksins.
BRIDGE
Eftir fimm umferðir á Reykja
víkurmótinu í bridge er sveit
Gunnars Guðmundssonar, BR,
efst með 27 stig. í öðru sæti er
svcit Halls Símonarsonar, BR
með 24 stig. í þriðja sæti er
sveit Ingibjargar Halldórsdótt
ur, BR með 21 stig. Nr. 4 er
sveit Eggrúnar Arnórsdóttur
BK, með 17 stig, nr. 5 sveit Ró
berts Sigmundssonar, BR, með
12 stig, nr. 6 sveit Jóns Stef-
ánssonar, BB, með 8 stig, nr.
7 sveit Ólafs Þorsteinssonar,
BR, með 7 stig, og nr. 8 sveit
Elínar Jónsdóttur %K, með 4
rtig.
Fyrir nokkru er lokið svteita
kepni Bridgefélags kvenna og
sigraði sveit Elínar Jónsdóttur,
hlaut 48 stig, og sigraði í öll
um sínum leikjum. f öðru sæti
varð sveit Eggrúnar Amórs-
dóttur með 40 stig. Níu sveit
ir tóku þátt i mótinu. f sveit
Elínar spiluðu auk sveitarfor-
ingjans þær Ása Jóhannsdóttir
Ásgerður Einarsdóttir, Laufey
Arnalds, Lilja Guðnadóttir og
Rósa Þorsteinsdóttir.
Tiu umferðum er nú lokið
af 13 í sveitakeppni Bridge-
deildar Breiðfirðinga, og eftir
þær er sveit Aðalsteins Snæ-
björnssonar efst með 49 stig.
í öðra sæti er sveit Þórarins
Sigurðssonar með 41 stig. f
3. sæti sveit Jóns Ásbjörnsson-
ar með 40 stig. f fjórða sæti
sveit fvars Andersen með 40
stig. í fimmta sæti sveit Þórar-
ins Alexanderssonar með 37
stig og í sjötta sæti sveit Dag
bjartar Bjarnadóttur með 36
stig (eftir níu leiki).
Tvehnur umferðum er nú
lokið af fjórum í tvenndar-
kcppni Bridgefélaganna i
Reykjavík. Efst eru Sigurbjörg
Ásbjömsdóttir og Ólafur Þor
steinsson með 362 stig. Nr. 2
—3 eru Eggrún Arnórsdóttir
og Þórður Elíasson og Ása Jó-
hannsdóttir og Hallur Símonar
son með 358 stig. í fjórða sæti
eru Ásta Flygenring og Lárus
Karlsson með 348 stig.
i Alf—Reykjavík, föstudag.
j íþróttablaðið, 1. tölublað þessa
! árs, er komið út. Sá háttur hefur
j verið hafður á að gcfa fyrsta
blað hvers árs út í ár-
bókarformi, og með því sniði er
blaðið, sem nú er komið út. í
því er að finna upplýsingar um
11 íþróttagreinar, árangur og af
rek í þeim árið 1965.
Blaðstjórn fþróttablaðsins boð-
aði blaðamenn á sinn fund í dag
og kynnti þeim efni blaðsins. Þor
steinn Einarsson, íþróttafulltrúi,
form. blaðstjórnai, hafði orð fyrir
henni, og gat þess, að blaðið að
þessu sinni væri það stærsta, sern
gefið hefur verið út hin síðari ár
en það er 72 síður.
í blaðinu eru yfirlitsgreinar
um eftirtaldar íþróttir: Knatt-
spyrnu handknattleik, sund, golf
badimintoi.. skíði. júdó, körfu-
knattleik .skotfimi og glímu. Þá
er og getið um starfsemi ÍSÍ á
síðasta ári.
Á forsíðu blaðsins er mynd af
íþróttahöllinn’ Laugardal. Urp
brot blaðsins er vel úr garði gert
og prýtt fjölda mynda. Eins og
kunnugt er, þá eru Hallur Símon
arson og Örn Eiðsson ritstjórar
íþróttablaðsins.
íþróttablaðið verður til sölu í
bókabúðum á næstunni og einn-
ig er meiningin að selja það í í-
þróttahöllinni í Laugardal um
helgina.
Handboltinn
um helgina
Þrátt fyrir landsleikinn
í dag verður leikið f fs-
landsmótinu í handknatt-
leik í kvöld. Leikið verður
í Valshúsinu og fara eftir
Framh. á bls. 2