Tíminn - 05.03.1966, Blaðsíða 16
53. tbl. — Laugardagur 5. marz 1966 —
HVERS VEGNA GREIÐUM
VIÐ MEIRA UNDIR BREE?
NOKKUR DÆMI UM ÓHAGSTÆÐ PÓSTBURÐARGJÖLD
f
Um siðustu helgi fór Hópur manna á jeppabifrelðum að Hagavatnl undir Langjökli. Óku þeir alla leið
að vatninu og út á ísinn. Færð var hin bezta alla leiðina. Meðfylgandl mynd tók Pétur Þorleifsson af
bifreiðunum á ísnum á Hagavatni.
ísjSíss
HilSxpwwS|Pw
Sex stoíur í nýja mennta-
skólanum / notkun / haust
GÞE—Revkiavík. föstudaa.
Vel miðar nú áfram með fyrstu
álmu hins nýja menntaskóla við
Hamrahlið, og verða teknar í notk
un 6 kennslustofur á hausti kom
andi. Mjög bráðlega mun annar
áfangi verða boðinn út, en hann
er u.þ.b. tvisvar sinnum stærri
en sá fyrsti og verður jafnframt
dýrasti hluti skólahússins, því að
þar verða sérstakar kennslustof-
ur fyrir eðlis- og efnafræði svo
og náttúruvísindi.
í stuttu viðtali við Tímann í
dag sagði Guðmundur Amlaugs-
son, rektor, að framkvæmdir við
fyrsta áfanga hefðu gengið nokkuð
lengur fyrir sig en áætlað hafði
verið, og þar aðallega verið óhag
stæðu veðurfari um að kenna.
Hins vegar væri það alveg ör-
uggt, að hann yrði fullbúinn fyrir
haustið. Álman, sem tekin verð-
ur í notkun í haiust, verður %
hluti menntaskólans. Hún er ein-
lyft með kjallara, en þar á að
vera matsalur. Svo sem fyrr seg
ir, verður annar áfangi allt að
helmingi stærri en sá fyrsti og að
nokkru leyti verður hann á tveirc
ur hæðum. Ef allt fer samkvæmt
áætlun verður sá áfangi fullbú-
inn haustið 1967.
SJ—Reykjavík, fimmtudag.
Menn hafa komið að máii við
blaðið og bent á þann mikla mis-
mun, sem er á póstburðargjaldi
héðan til útlanda og frá útlönd-
um hingað. Það kostar nú kr. 6.50
að senda einfalt bréf flugleiðis til
Danmerkur, en Danir borga aftur
á móti 50 aura danska undir bréf
hingað. eGngi dönsku krónunnar
er nú kr. 6.26 ísl. og greiðum við
Hafnfírðingar selja
Reykvíkingum
og kaffi
HZ—Reykjavík, föstudag.
Kaupmenn í Hafnarfirði verzl-
uðu af fullum krafti í dag, enda
nær verkfallið í Reykjavík og ná-
grenni ekki til þeirra. Blaðið
hringdi í nokkrar verzlanir í Firð
inum og aflaði sér upplýsinga um
söluna þar.
í verzlun Halla Sigurjóns og
verzl. Jóns Mathiesen hafði sama
og ekkert komið af Reykvíkingum
en í Kaupfélag Hafnfirðinga og
Stebbabúð hafði komið reytingur
af fólki úr Reykjavík, sennilega
það, sem ekki sá sig um hönd i
tíma. Einnig hafði fólk beðið um
að fá vörurnar sendar í Reykja-
vík, en það var ekki tekið í mál.
Þó tók Stefán, eigandi Stebba-
búðar, til vörur fyrir þá Reykvík
inga, sem síðan ætluðu að sækja
þær suður eftir. Aðallega voru
seldar kjötvönu- og aðrar nauð-
synjavörur, eins og t.d. kaffi.
Blaðið reyndi að afla sér upp-
lýsinga um það, hvort nokkrar ný
lenduvöru og kjötverzlanir hefðu
haft búðirnar opnar í dag. Eina
Framhald á 14. síðu.
því rúmlega helming: meira und
ir bréf en Danir.
Þá hefur venð bent á, að það
kostar það sama að senda opið
bréf milli húsa hér í bænum og
að senda það til Ástralíu!
Ennfremur er það mjög athygl
isvert, að bandariska vikublaðið
Newsweek býður hér þriggja ára
áskrift fyrir um 970 krónur, en
nú kostar kr. 4.90 (5 kr. frímerki
er sett á umslagið) að senda á-
skrifendunum blaðið frá Inn-
kaupasambandi bóksala. Að ó-
breyttu verðlagi næstu þrjú árin
(sem má víst heita óhugsanlegt)
greiðir Newsweek um 780 kr fyr
ir póstburðargjöld hér innanlands
+ fragt til landsins + umboðs-
laun til Innkaupasambandsins. Út
koman hlýtur að verða talsvert
tap.
Tíminn ræddi þetta mál við
Innkaupasamband bóksala og fékk
þau svör, að Innkaupasambandið
hefði bent útgefendum News-
Framhald á 14. síðu.
4KRANES
Framsóknarfélag Akraness held-
ur skemmtisamkomu í Félags-
heimili sínu að Sunnubraut 21,
sunnudaginn 6. marz kl. 8.30 síð-
degis. Til skemmtunar verður
framsóknarvist og kvikmyndasýn-
ing. Öllum heimill aðgangur með-
an húsrúm leyfir.
SIGLA MEÐ LOÐNU TIL BOLUNGARVÍKUR
SJ—Reykjavik, föstudag.
Þegar Tíminn hafði samband
við Grandaradíó í dag var komin
bræla úti á miðunum, en bátar,
sem höfðu fiskað loðnu við Jökul
og lengra vestur, voru á leið með
afla sinn til Bolungavíkur, þar
sem engin móttaka er á nærliggj
andi höfnum.
Helga frá Reykjavík er með
mestac afla þeirra báta,
sem stunda netaveiðar, hún kom
til Reykjaví'kur í dag með 60
tonn og 59 tonn á þriðjudag. Yf-
irleitt er netaveiðin mjög treg, og
veiðin misjöfn Breiðafirðinum.
Aðalfundur mið-
stjórnar Fram-
sóknarfloksins
hefst 11. marz
að Tjarnargötu 26 kl. 2 e.
h. Auk aðalmanna í mið-
stjóm er ætlazt til, að for.
menn kjördæmissamband-
anna »g ritstjórar hinna
ýmsu flokksblaða sitji fund
inn. Þeir aðalmenn f mið-
stjóm, sem ekki geta komið
því við að mæta á fundin-
um, era vinsamlega beðnir
að boða viðkomandi vara-
mann : sinn stað. Reiknað
er meö að fundurinn standi
i 3 daga.
Stjórnarmonn á A-lista uppstillingarnefndar. F. v. Jón Snorri Þorleifsson, formaSur, Benedfkt Davíðsson, vara-
formaður, Sigurjón Pétursson, ritari, Páll R. Magnússon, vararitari og Magnús Guðlaugsson, gjaldkerl.
Trésmiöir kjósa
f dag og á morgun fer fram
stjómarkosning i Trésmíðafélagi
Reykjavíkur. Kosið verður á skrif
stofu félagsins að Laufásvegi 8,
og stendur kosning yfir í dag frá
kl. 14—22 og á morgun, sunnu-
dag, frá kl. 19—12 og kl. 13—22.
Tveir Iistar era í kjöri
Listi uppstillingarnefndar fé-
lagsins, A-listinn, er skipaður
þeim mönnum, sem undanfarin
ár hafa veitt málefnum félagsins
traiusta forustu og sameinað félags
menn til átaka fyrir framgangi
þeirra.
Hins vegar er svo listi Valhall
armanna, svonefndir lýðræðis-
sinnar, secn vakna upp, þegar líð
ur að kosningum, en sofa algjör
um þymirósarsvefni þess á milli
Kom það glöggt í ljós á félags-
fundinum í síðustu viku, að áhugi
þeirra á málefnum félagsins var
aukaatriði, því að aðalatriðið var
misheppnað nið um núverandi for
mann félagsins. Stuðningsmenn
A-listans vilja eindregið hvetja
alla félagsmenn til að taka þátt
í stjórnarkjörinu og sýna þeim
utanaðkomandi öflum, sem vilja
efna til innbyrðis flokkadrátta í
félaginu, að slikt er ekki gert í
anda félagsmanna.
Kosningaskrifstofa A-listans er
í Aðalstrætd 12, sími 19240.
Þangað era allir félagsmenn vel
komnir, sem vilja stuðla að ein-
ingu félagsins með glæstum sigri
A-listans. Framhald á 14. síðu.
ÍHALDIÐ FÆRIR FRAM-
SÓKN DRJÚGAN LIÐSAFLA
AK—Reykjavík, föstudag.
Þau cíðindi gerðust á borg
arstjórnarfundi í Reykjavík í
gærkveldi, eftir að Kristján
Benediktsson hafði rakið vitn
isburði manna eins og And-
résar Finnbogasonar, Lofts
Bjamasonar, Tryggva Ófeigs-
sonar og fleiri yfirlýstra Sjálf
stæðismanna um erfiðleika þá
sem útgerðin á nú í af völdum
stjómaraðgerða og borgar-
stjómarráðsmennsku, og einn-
ig minnt á ályktun frystihúsa-
eigenda um hið sama, þá reis
upp borgarfulltrúi íhaldsins og
sagði, að petta væri aðeins
manna. og þeirra venjulegi
móðuharðmdatal Framsóknar-
söngur um, að útgerðin væri á
heljarþröm og stjórnarvöld
væra að knésetja atvinnuveg-
ina. Sýndist mönnum sem
Framsóknarflokknum hefði
bætzt þarna álitlegur liðsauki
manna, ef stimpla skyldi þann-
ig alla, sem gagnrýna viðhorf
stjómarvaldanna til undirstöðu
atvinnuveganna.