Tíminn - 06.03.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.03.1966, Blaðsíða 3
SIWNTJDAGCR 6. marz 1966 TÍMINN_________ a f SPEGLITÍMANS Fyrir skömmu síðan átti að fara að loka smáskemmtistað í Liverpool, þar sem eigandi hans skuldaði 10.000 pund og átti að selja staðinn á upp- boði en ekkert boð fékkst hærra en 1500 pund. Þegar táningar í Liverpool fréttu að loka ætti staðnum flykktust þeir þangað og í þrjá kl. vörn uðu þeir þvi að lögreglan ★ Eins og kunnugt er af frétt- um steyptu Ghanabúar styttu, af Nkrumah forseta Ghana. Stytta þessi var á fjölförnu torgi í höfuðborg Ghana, og er nú orðin aðalleikfang barna £ Ghana . kæmist inn. Allan þann tíma spiluðu þeir bítlamúsik. Ástæð an til þessarar hegðunar ungl- inganna var sú að þessi skemmtistaður var einmitt sá ¥ Bandaríski kvikmyndaleikar inn Gary Grant, sem nú er 62 ára, er nú orðinn faðir í fyrsta -skipti. Kona hans, sem er 28 ára gömul, fæddi dóttur á spítala í Los Angeles. Þetta er fjórða kona Garys. Áður var hann kvæntur Betsy Drake. Viriginia Cherril og milljónamæringnum Barböru Hutton. ★ staður þar sem The Beatles þófu frægðarferil sinn. Eigand- inn greiddi bítlunum þá 6 pund á kvöldi. Myndin sýnir unglingana í bardagaham. Beatrix krónprinsessa Hol- lands fær stöðugt nýjar og nýj- ar áhyggjur í sambandi við hið væntanlega brúðkaup. Fyrir skemmstu neitaði starfsfólk á símstöð nokkurri að gefa pen’ inga í brúðargjöf handa henni og þrír þulir við hollenzka sjón varpið hafa farið þess á leit, að þeir þurfi ekki að lýsa brúð- kaupinu í sjónvarpið. Spánskt vikublað „Semana“ birti fyrir skömmu viðtal við hertogann af Windsor. Sagði hann blaðamanni blaðsins, að hann ætti aðeins tvenn föt. — Eg á aðeins tvenn föt. Önnur eru þau sem ég er í og hin hanga heima í skáp. Ég held maður þurfi ekki að eiga mik- ið af fötum til þess að vera glæsilega klæddur. Glæsileiki er kominn undir persónuleika manna en ekki hve marga jakka þeir eiga. Annars kæri ég mig kollóttan um tízkuna eins og hún er í dag. Ef ég gerði það ætti ég kannski fleiri föt. Hertoginn var klæddur þykkum köflóttum jakka, sem var mjög krumpinn að sögn spánska blaðsins og buxurnar hans voru með breiðu uppbroti. — Lítið á þennan jakka, sagði hertoginn. Ég var í þessum jakka, þegar ég kom hingað fyrir viku síðan og enn er ég í honum. Hvers vegna ætti maður að skipta um föt dag- lega? Finnst yður þetta ekki falleg föt? Til allrar hamingju slapp blaðamaðurinn við að svara. ★ Frá því að John Glenn varð fyrsti geimfari Bandarikjanna þann 20. febrúar 1962 og fram á þennan dag hefur hann fengið 792.144 ástarbréf frá konum á öllum aldri og nú hyggst hann gefa út úrval þessara bréfa í bók. Meðal þeirra, sem hugsa sér að hljóta vinsældir af bók- inni eru nokkur hundruð kon- ur, sem skrifuðu honum og hafa nú stofnað samtök til þess að fara fram á það að þær fái að njóta heiðursins af bókinni. ★ Tízkuteiknarinn Courreges, maðurinn, sem átti frumkvæð- ið að stuttu kjólunum, hefur boðið The Beatles í kvöldverð í París. Ef þeir þiggja boðið, ætlar hann að teikna með eig- in hendi regnkápur handa þeim. ★

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.