Tíminn - 06.03.1966, Blaðsíða 14
14_____________ ___________TlMINN
SUNNUDAGUR 6, marz 1966
Sötustaðir: Kaupfélögin um land allt og SlS Austurstræti
Hjúskaparmiðlun
\
Tvær þýzkar stúlkur 25 og 27 ára gamlar, sem
hafa áhuga á sveitastörfum, vilja kynnast mynd-
arlegum og regliésömum íslenzkum bændum
Tilboð sendist i pósthólf 1279, merkt
„Hjúskaparmiðlun.“
ÍSÍ
Framhald af 16. síðu.
íþróttamiðstöðin fyrir vetrar-
íþróttir hefur þegar verið ákveðin
og verður staðsett á Akureyri.
Liggja margar ástæður til þeirr
ar ákvörðunar ma. hið mikla fram
tak Akureyringa með byggingu
hins glæsilega skíðahótels í Hlíð
arfjalli og allfa þeirra mannvirkja
sem því fylgja, svo og góðar sam
göngur við Akureyri, og að við
vskíðahótelið eða í nágrenni þess
er ávallt nægur snjór vetaranmán
uðina að því viðbættu, að Akureyr
ingar hafa um langan tíma verið
þeir einu, sem haldið hafa uppi
skauta-iðkunum að staðaldri. Þá
kemur einnig til álit viðkomandi
sérsambands, þ. e. SKÍ.
Stuðningur íþróttasambandsins
við að koma upp íþróttamiðstöð
fyrir vetraríþróttir á Akureyri,
verður m. a. fjárhagslegur.
Á fundi framkvæmdastjórnar
ÍSÍ var samlþykkt að lána úr fram
kvæmdasjóði ÍSÍ kr. 500.000.00 til
framkvæmda, við að koma upp
skiðalyftu við skíðahótelið í Hlið
arfjalli, enda náist samkomulag
milli íþróttanefndar rílcisins og
Akureyringa um gerð skiðalyftunn
ar.
Þessi lánveiting er gerð í fuliu
samráði við íþróttabandalag Akur
eyrar, íþróttaráð og Bæjarstjórann
á Akureyri.
Þótt Íþróttasambandið styrki
þessar framkvæmdir á þann veg
sem hér er lýst, mun það eigi að
neinu leyti sjá um rekstur þessar
ar íþróttamiðstöðvar. Það er að
sjálfsögðu verkefni Akureyringa
sjálfra.
En þar sem hér er um að ræða
íþróttamiðstöð, mun ÍSÍ í samráði
við íþróttabandalag Akureyrar og
Skíðasamband fslands, stuðla að
námskeiðahaldi í vetraríþróttum
og vonar að geta styrkt slík nám
skeið fjárhagslega, svo og með þvf
að senda norður í samráði við
SKÍ, úrvalskennara og stuðla þanh
ig að því, að á Akureyri verði
raunveruleg íþróttamiðstöð fyrir
vetraríþróttir.
Væntir framkvæmdastjórnin
þess, að með þessari ákvörðun
sinni, hafi hún létt undir með
fþróttasamtökunum á Akureyri, til
þess að skapa þá aðstöðu, sem nú-
tíminn krefst, varðandi skilyrði til
iðkunar skíðaíþróttarinnar.
GIN oa KLAUFAVEIKI
Framhald af bls. 1.
10.000 dýr. Verður bóluefni þetta
keypt á Ítalíu. Það er faraldurinn
í Danmörku, sem veldur þessum
ráðstöfunum sænskra yfirvalda.
Eins og sézt hefur í blöðum hef-
ur landbúnaðarráðherra. Ingólfur
Jónsson, vakið athygli á því, að
stranglega beri að fylgja reglum
um varnir gegn gin- og klaufaveiki.
Birzt hefur auglýsing um þetta, og
segir þar m. a.:
„Tekið skal fram, að samkvæmt
téðum lögum og auglýsingu þess-
ari er bannaður með öllu innflutn-
ingur á heyi, hálmi, alidýraáburði,
sláturafurðum hvers konar, húð-
um, mjólk og mjólkurafurðum
sem og eggjum.
Stórgripahúðir, sem nota þarf
við togveiðar hér við land, má þó
flytja inn, enda hafi þær sannan-
lega verið sótthreinsaðar erlendis.
Enn fremur er bannaður inn-
flutningur á lifandi jurtum, trjám.
trjágreinum og könglum, græn-
meti og hvers konar garðávöxtum.
Farþegar og áhafnir farartækja
skulu að viðlögðum drengskap
gefa yfirlýsingu um dvöl sína er-
lendis, strax og þau koma til ís-
lands“.
MENN OG MÁLEFNI
Framhald aí 9 síðu
við stuðning og framlög, sem rík
ið á að sjálfsögðu að veita til
listastarfsemi.
Að reglurnar segi sjálfar til,
þegar auka þarf fé til listlauna.
Að listlaunin verði engin ölm-
usa heldur votti þau þann skiln-
ing, að listirnar séu eins og Ein-
ar Benediktsson komst að orði:
„lífsins langferðanesti.“ Hann
sagði um gildi Ijóðlistarinnar:
„Hve oft varð ein hending
svalandi skál
og lífsins langferðanesti."
Hið sama gildir um aðrar list-
greinar, því „eilíf ráða listalög,
litum, svip og hljómi.“
Við, sem nú erum uppi og
viljum vernda íslenzkt þjóðerni
og þjóðmenningu, viljum gera
allt, sem við getum til þess að
þjóðin geti orðið langlíf í land-
inu, vinnuþjökun hverfi og efna
hagurinn verði sterkur, en við
verðum þá jafnframt að leit-
ast við að búa svo í haginn, að
listirnar geti orðið þjóðinni
„langferðanesti. Ef hún hefur
þær ekki í nesti, nýtur hún ekki
lífsins og þrýtur þá fyrr en var-
ir langferðaþróttinn. Svo mikil-
væg eru þessi málefni.“
124
Framhald af bls. 1.
Brezka flugvélin skall á skógi
vaxið svæði við rætur fjallsins að-
eins 12 mínútum eftir að hún fór
á loft kl. 03.58 að ísl. tíma í
nótt. Þotan átti að fara til Hong
Kong og kom til Japans í gær frá
San Francisco. í flugvélinni, sern
var á leið umhverfis jörðina, var
11 manna áhöfn. Þotan varð að
lenda í gær á Itazukes-flugvellin
uim suður á Kyushu-eyju, þar sem
þoka var í Tokyó. Hún millilent?
síðan í Tokyó áður en halda skyldi
til Hong Kong.
Síðast þegar fréttist höfðu 119
lík fundizt.
Japönsk flugyfirvöld tilkynntu í
dag, að meðal farþeganna hefðu
verið 85 Bandaríkjamenn, 12 Jap
anir, 3 Frakkar, 2 Bretar, og einn
af eftirtöldum þjóðernum: Kanda-
maður, Kínverji, Nýsjálendingur
og Suður-Kóreumaður. Ekki var
vitað um þjóðerni hinna farþeg-
anna, þegar síðast fréttist. Af á-
höfninni voru 10 Bretar, einn Jap
ani og einn Kínverji.
Japönsku veðurathugunarstöðv-
arnar sendu út aðvörun um óveð
ur upp til fjalla nákvæmlega á
þeirri stundu, 9em flugvélin hrap
aði. Þetta er fyrsta flugslys BOAC-
þotu í næstum 10 ár, að því er
talsmaður flugfélagsins í London
sagði í dag.
Forsætisráðherra Japans, Eisaku
Sáto, hefur sent samúðarskeyti til
Harold Wilsons, forsætisráðherra
Breta.
ÍSNUM SKOLAÐ , .
Framhald af bls. 1.
Það sem við þurfum mest að
glíma við, sagði dr. Gunnar, er
krapinn, sem myndast um leið og
kemur frost. Við höfum gert við-
tækar modelrannsóknir, sem- hafa
gefið góða raun. Og niðurstaðan
er sú, að ef ís er í ánni, þá höfum
við tvo möguleika. Annars vegar
að hleypa honum beint ófram nið-
ur Þjórsá, eða skola honum yfir
í þar til gerðan skurð, Bjarnalækj
arskurð, og veita ísnum eftir þess
um skurði, sem er sex metra breið
ur í botninn, og getur telcið vatns
magn, sem er svona álíka mikið og
Sogið, og síðan í Bjarnarlæk og
þaðan í Þjórsá aftur. Gert er ráö
fyrir þríþættu vatnsinntaki. Efst
er ísinn, í miðjunni er vatnið og
neðst er aur.
Dr. Gunnar sagði að lokum, að
erfiðleikar vegna íss væru ekkeit
einsdæmi hér. Flestir þyrftu meira
og minna við þetta að stríða. Model
rannsóknir, sem hér hefðu farið
fram á lausn þessa vanda, hefðu
gefið góða raun og þótt ekki væri
mikil reynd af slíkum rannsóknum
hér á landi, hefðu þær verið hafð
ar um hönd víða um lönd í ein
sextíu ár, og yfirleitt tekizt vel.
Áttræður í dag:
EGILL Þ0RLÁKSS0N,
kennari
Egill Þorláksson, kennari á
Akureyri er áttræður í dag.
Hann er fæddur að Þóroddstað í
Ljósavatnshreppi 6. marz 1886.
Egill hefur stundað barna- og
unglingakennslu i nær sex tugi
ára, lengst af á Húsavík og á
Akureyri, við alveg einstakar vin
sældir og frábæran árangur,
enda er það samdæmi þeirra,
sem kennslustörf hans þekkja, að
hann eigi fáa sína líka að kenn
arahæfileikum. Munu allir þeir
mörgu, sem setið hafa skólabekk
hans, telja það meöal mestu gæfu
stunda lífs síns og vildu sízt hafa
farið þess á mis. Egill er einstakt
valmenni, gáfaður. víðlesinn og
hagorður vel. Vinsæll er hann svo
af ber. Fyrir nokkrum missirum
heiðrað' bæjarstjórn Akureyrar
Egil með sérstökum heiðurslaun
um fyrir þjónustu hans við
yngstu borgarana.
Egill hefur átl við vanheilsu að
stríða í vetur og legið um skeið
á sjúkrahúsi. Egill er kvæntur
Aðalbjörgu Pálsdóttur, mikilli af-
bragðskonu.
GEVAPAN