Tíminn - 13.03.1966, Side 9

Tíminn - 13.03.1966, Side 9
SUNNUDAGUR 13. ma<! 1966 0 Þorsteinn ekur olíubílnum tröðina helm að Eiðum með skafla jafn- háa bílnum á báða bóga. Snjóbíllinn. enda þröngur stakkur skorinn því að skólinn ætti ekki enn sem komið væri neinn samkomusal, skemmtanir yrði að halda í matsal skólans, sem væri afar óhentugl. En í álmu nýbyggingar, sem væri í smíð- um og vonandi yrði haldið áfram með í ár, ættu að verða salarkynni fyrir samkomur og skemmtanir nemenda. Það var nokkur eftirvænting meðal nemenda, og ástæðan var sú, að um næstu helgi átti að halda árshátíð skólans. Þessi stóri mannvænlegi hópur bar það ekki með sér, að hafa verið án vegasambands nokkra hríð. TÍMINN 5 ÞÁTTUR KIRKJUNNAR HELGISÝNINGAR Nú er tími hins talaða orðs ekki sízt í predikunum presta liðinn hjá í bili. Það mætti segja, að þrátt fyrir snilld ræðumanna drukkni orð í orð um, síðan útvarpið ber svo margt að eyrum fólks. Því vex meira vald þess, sem augun sjá, og helzt þarf það, sem nema skal til áhrifa að taka bæði til augna og eyrna í senn. Þar er nú sjónvarpið á tindi í augum fólks og efst á óskalista margra. Þetta er tákn þeirra tíma, sem við lifum á. Hvort sem ljúft er eða leitt, skiptir ekki máli. Engum tjáir að spyrna gegn broddunum. Það er því ein af starfsað- ferðum miðaldakirkjunnar, sem nú er að koma aftur í nýrri mynd, samt eða breyttri. En það er helgileikir eða helgisýningar. •. Þær hafa raunar alltaf lifað einhvers staðar innan kirkj- unnar, svo sem áhrifamikil að ferð til tjáningar, t.d. píslar- leikirnir í Ober-Emmargau í Þýzkalandi. En nú hefur heimssamband, sem raunar var aðeins fá- mennt félag áhugafólks í Eng landi tekið útbreiðslu þessar ar fornu starfsaðferðar á sína arma að meira eða minna leyti. Nefnist það Religiös Drama Society og hefur skrif- stofu sína í Lundúnaborg. Langholtssöfnuður í Reykja vík vildi gjarnan verða meðal hinna fyrstu stofnana á ís- landi, sem reyndi að endur- lífga þessar fornu helgisýn- ingar, sem raunar hafa ildrei náð fótfestu hérlendis, nema, ef nefna mætti að Herranótt Menntaskólans eigi til þeirra upphaf sitt að rekja. Það mætti og geta þess, að undanfarin jól hefur Voga- skólinn sýnt helgisýningu í'rá fæðingu Krists, bæði í skól- anum og safnaðarheimilinu í Hálogalandskirkju. En það er vel fallið til slíkra helgileikja. Ennfremur skal þess minnzt að dr. Jakob Jónsson, hef- ur skrifað eða samið helgileik sem heitir „Bartemeus blindi“, og var hann sýndur í Bessa- staðakirkju af leikurum Þjóð- leikhússins fyrir nokkrum ár- um. Jólablaðið Hálogaland í Langholtssöfnuði í Reykjavík, birtir nú helgileik stuttan, sem sr. Árelíus Nielsson hefur stælt úr ensku, en fleira af slíku tagi er í uppsiglingu og von andi á söfnuðurinn eftir að bera þetta málefni fram til sigurs. Það er nóbelsverðlauna- skáloið enska T. E. Eliot, sem hefur ef svo mætti segja, end- urvakið þessa listgrein, helgi- leikina í list þessarar aldar. Sameinar hann bæði orðlist, tónlist og leiklist í helgileikj um sínum á snjallan hátt. Megi íslenzka kirkjan bera gæfu til þess að glæða og vekja þessa fornfrægu aðferð til að flytja boðskap Krists og gróðursetja kenningar hans í hjörtum manna. Árelíus Níelsson. Bréf til Búnaðarþings Við setningu Búnaðarþings um daginn gat fonmaður Búnaðarfé- lags íslands tveggja mála sérstak- lega. Frumvarps til laga um Bjarg ráðasjóð og frumvarps til laga um skyldutryggingu búfjár. Hann bar þá strax töluvert mál í þau og mátti af orðum hans ráða, að hann efaðist um málstað sinn gagnvart bændum. Þessi mál hljóta að vekja furðu og gremju starfandi bænda. Þau fela bæði í sér beinan skatt á þurftarlaun þeirra. Mér virðist ráðamenn stétt arinnar gætu fundið sér annað til dundurs en finna upp nýja skatta á sama tíma og talað er um sölu- tregðu afurða og því opinber- lega gert á fæturna að bændur nái ekki lögákveðnu kaupi. Þessu tryggingafargani hefur skotið upp öðru hverju en alltaf verið hafnað af bændum. Þetta virðist spretta upp hjá mönnum, sem ganga með landsföðurþanka í höfðinu og ætla svo að caka heila stétt manna á hné sér og troða sínum hugmyndum upp á hana. Þvi skýtur upp hjá mönnum, sem stunda innivinnu í bæjunum, hafa ofninn við bakið (horfa á veröldina út um tvöfalt gler), að þeir vorkenna okkur þessum fáu náttúrubörnum, sem enn glímum við veður og vind til sjós og lands. Leggjum fjármuni og lífsafkomu undir duttlungum náttúruafla, sól og regn, síld og þorsk. En þeir þurfa bara ekkert að vor kenna okkur. Við værum ekkert að þessu frekar en þeir ef við hefðum ekki ánægju af þessari glímu og hvar er ekki áhætta, er ekki lífið sjálft tóm áhætta? Og því vilja þeir tryggja okkur í bak og fyrir hverja kú og kind. Lítum nú á Bjargráðasjóð. í greinargerð frumvarpsins fyrir hann segir að þessi rúmlega fimm- tuga stofnun hafi aldrei gegnt sínu ætlunarverki vegna fjárskorts, en um leið skýrt frá að ríkið hafi jafnan hlaupið undir bagga pegar á hefur þurft að halda. Og það hefur það vissulega gert og jafn- an reynzt vel. Því þá ekki að leggja Bjargráðasjón niður og láta tekjur bænda í friði? í greinargerðinni er töluvert mál borið í starfsemi sjóðsins í rosanum 1955. Þá lánaði ríkið fé, sem frægt er enn þá. Bjargráða- sjóði var síðan gefið féð sem úti stóð hjá bændum. Þár með varð sjóðurinn einn af fáum, sem græddi á rosanum, ef ekki sá eini. Mörgum bændum hefur þótt hörð innheimta sjóðsins á fé þessu því í gjafabréfi ríkisins til sjóðs- ins segir, að stjórn Bjargráðasjóðs veiti þeim lántakendum, er þess óska ívilnanir um greiðslu vaxta og afborgana af lánum sínum, svo sem með því að lækka eða fella niður vexti, lengja lánstímann eða gefa lánin eftir að einhverju eða öllu leyti, ef sjóðstjórnin tel- ur þess þörf að fengnu áliti hlut- aðeigandi sveitastjórnar. Sveit- ungi minn, fátækur, sagði um daginn, er þetta bar á góma, ,mér væri bezt að ég hefði aldrei heyrt Bjargráðasjóð nefndan, þó ekki væri nema vegna þeirrar skap raunar, sem þetta lán frá 1955 hefur valdið mér. Það var að vísu gott að fá aurana á sínum tíma. Ég sótti um eftirgjöf, var tekið líklega, en í haust var mér svo stefnt vegna þessa, í fyrsta skipti í 25 ára búskap. Þessi mikli rosi 1955 sló á menn ótta um mjólkurskort í bæjunum. En úr þessu rættist furðu vel. Bændum gekk mun betur að fóðra á hrakningi, blautu vorheyi og fóðurbæti en fræðimenn gerðu ráð fyrir. Ef tekið hefði verið á mál- inu af svolítið meiri víðsýni og raunvevulegri hjaipsemi við fjár- hag bænda hefði féð átt að fara til að greiða niður verð á fóður- bæti. r innig got komið til greina að hækka svolítið verð á mjólk og kjöti fyrir auknum kostnaði vegná fóðurkaupa. Þannig hefði féð nýzt bændum betur en í kassa Bjargráðasjóðs. Afurðatjón varð sára lítið þetta ár. Innvegin mjólk í M.B.F. var árið 1954 23 millj. 746 þús. lítrar árið 1955 23 millj. 889 þús. 1. og árið 1956 25 millj. lítrar. Afurðir af sauðfé voru góðar, hafa oft verið lakari síðan. í nýja frumvarpinu f. sjóðinn er gert ráð fyvu afurðatjónadeild er bæti bændum afurðatjón. Eftir þes - um tölum frá M.B.F. hefði bæn um því ekkert borið úr þeim ný Bjargráðasjóði Þorsteins á Vati leysu árið 1955. En fengið : borga honum djrúgan skatt a sínum hröktu heyjum. Þá er talað um tjón af völdur: skitupestar í kúm, sem er nokku Ekki getur það talizt svo tilfin anlegt að taki að tryggja fyn því. í frumvarpinu er gert r fyrir að leggja á bændur nýj launashatt %% af kjöti og mjó ' 3.5 millj. á ári í ár, en fljótt hæl. ar það eins og nú horfir. Þá i borið mál í að ríkið leggi fé ; móti, talað um þörf Austfirðin; Eiga sunnlenzkir bændur þá a greiða heyið, sem þeir „seldu" i Austurlands í haust? Var ekki g nokkuð að geta látið það og 1. það fyrir lágt verð? Hvert æt Bjarráðasjóður að sækja hey fyi : aurana okkar í næsta stórrosa Suðurlandi? Ætli við björgr okkur ekki bezt sjálfir. Kalnei hefur lýst því yfir, að svona hc flutningar, sem í haust séu hre neyðarúrræði og verði ekki leyr ir aftur. Er ekki bezt að rii Ijúki þessari tilraun og borgi ha- Þá gerir nýja frumvarpið ráS i ir lánum til sveitarfélaga. En ■ er einmitt verið að stofna U*< sjóð sveitarfélaga. Hvers vey að hafa þá tvo? Meiri skriffinns. • fleiri í stjórn, ekkert annað. f-n hætta vofir yfir svona sjóðum a ráðamenn þeirra fari að lána í a mögulegt — leika bankastjóra þeir hafa aura en hallæri ek vio hendina. Ég vil því spyrja hverju voru peningar Bjargrá? sjóðs fastir í haust? Var það a í hallærislánuro? Þá komum við að hinu frir varpinu — skyldutryggingu b. fjár. Það er komið frá Alþin flutt þar af bændum og svei'; þingmönnum. Þeir hefðu gjarn. getað látið kyrrt liggja. Eiga ;■ vita okkar bændanna vilja. \ . viljum nefnilega ekkert með þei hafa nú frekar en áður. Svoi trygging verður dýr 1—2 þúsui krónur á vísitölubúið segir í fru varpinu. Hækkaði sennilega flj Framhaid á bls. 1_

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.