Tíminn - 13.03.1966, Síða 16

Tíminn - 13.03.1966, Síða 16
. Framsóknarmenn, Hafnarfirði Framsóknarfélag Hafnarfjarðar heldur aðalfund sinn næst kom- andi mánudagskvöld í Góðtempl- arahúsinu uppi kl. 8.30 síðdegis. Dagskrá: Venjul. aðalfundarstörf- Önnur mál. Framsóknarkonur Félag Framsoknarkvenna held ur fund í Tjarnargötu 26 næst- komanoi miðvikudag kl. 8.30. Elsa Guðjónsson safnvörður flytur er indi um þjóðlegan útsaum og sýn ir skuggamyndir Ýmislegt annað verður á dagskrá. 60. fbl. — Simnudagur 13. marz 1966 — 50. árg. Skátasambandið sækir um lóðir undir þrjú hús 3 nýir námsflokkar eru að hyrja í bréfaskéla SÍS ogASÍ GÞE-Reykjavík, laugardag. f Bréfaskóla SÍS og ASÍ er nú verið að undirbúa þrjá nýja námsflokka, sem tilbúnir verða innan skamms. Eru þetta námsflokkar í vinnuhagræð- ingu og bókhaldi verkalýðsfé- laga, og verða þeir báðir á vegum ASÍ, en þriðji flokkur- inn er á vegum SÍS og þar mun verða fjallað um kjörbúð arstörf. Einnig er verið að undirbúa fjóra aðra flokka og fjallar sá fyrsti um vinnulöggjöf, annar um sögu verkalýðshreyfingar- innar og sá þriðji um deildar- stjórn og sá fjórði um búðar- störf, en undirbúningur þess ara flokka er enn á byrjunar- stigi og ekki er enn hægt að segja, hvenær þeir taka til starfa. Svo sem kunnugt er, sam- einuðust Samband íslenzkra samvinnufélaga og Alþýðusam band íslands um rekstur Bréfa skólans ekki alls fyrir iöngu, en enn sem komið er hefur enginn námsflokkur tekið til starfa á vegum ASÍ, og verða því þessir tveir er hefjast í vor, hinir fyrstu. Á vegum bréfaskólans eru nú 30 námsflokkar, en sífellt er ver ið að bæta við þá og aðsóknin að skólanum er mjög góð, og í sífelldri aukningu. FB-Reykjavík, laugardag. Skátasamband Reykjavíkur sótti nýlega um þrjár lóðir hjá Borg- Leitaö eftir kaupendum að Akraborg inni erlendis FB-Reykjavík laugardag. Snemma í febrúar var aug lýst til sölu Akraborgin, sem siglt hefur milli Reykjavík- ur, Akraness og Borgarness allmörg undanfarin ár. Sam- kvæmt upplýsingum, sem blaðið hefur fengið hefur enginn innlendur kaupandi koimið fram enn, en nú er verið að leita eftir kaup- endum að skipinu erlendis. Akraborgin er nýkomin úr klössun, og umgengni prýðileg, að því er sagði í auglýsingunni, þegar skipið var auglýst til sölu. Skipið hefur haldið uppi föstum áætlunarferðum til Akra- ness og Borgarness, en nú í seinni tíð hefur rekstur- inn gengið illa, þar sem mik ið af vöruflutningum til þessara staða fer nú fram með flutningabílum, og menn velja nú æ oftar þann kostinn að aka sjálfir, ef þeir ætla til höfuðborgarinn ar, í stað þess að taka sér far með skipinu. arráði, en á þessum lóðum hefur Skátasambandið í hyggju að reisa lítil hús, sem síðan eiga að verða eins konar hverfismiðstöðvar fyr- ir skátastarfið. Miklum erfiðleik- um er nú bundið, að stefna ung- um börnum til skátastarfs niður í Skátaheimilið við Snorrabraut, því mörg barnanna eiga nú orðið langt að sækja, þar sem borgin stækkar stöðugt. Er því brýn nauð- syn, að skátarnir fái aðstöðu til þess að efla starfsemi sína í út- hverfum borgarinnar, að því Guð- laugur Hjörleifsson formaður bygg inganefndar Skátasambandsins sagði, í stuttu viðtali við blaðið. Skátaheimilið við Snorrabraut er nú að verða bæði allt of lítið fyrir hið mikla skátastarf, sem rækt er í borginni, og auk þess er það að verða úr sér gengið og allt of dýrt í rekstri til þess að heppilegt megi teljast að halda þar áfram. Skátunum hefur verið heimilað að byggja nýtt skátaheim ili á þessum sama stað, en það er ekki hægt að gera fyrr en starfseminni hefur verið komið á fastan grundvöll annars staðar, því að sjálfsögðu væri ekki hægt að rífa gamla heimilið og eiga svo hvergi höfði sínu að halla. Skátarnir hafa þegar fengið inni á nokkrum stöðum, t.d. í Haga- skóla, Hlíðarskóla og í Hallveig- arstöðum, en erfiðast hefur ástand ið verið í Laugarnesi, Vogunum og Bústaðahverfinu, og þar er nú sótt um lóðir fyrir lítil skátahús. Guðlaugur Hjörleifsson sagði, að gerð hefði verið lausleg skissa af húsi, eins Otg því, sem talið væri þörf á. Væri þar um að ræða 120—130 fermetra einnar hæða hús, með þrem til fjórum flokks- herbergjum og síðan einum stór- um samkomusal, sem allir flokk- arnir, sem þarna störfuðu hefðu sameiginlega. í húsinu ættu að geta starfað um 300 skátar, dreng Framhald á 14. síðu. ALFRÆÐIBOK MENNiNGARSJOÐS VERÐUR FULLBUIN HAUSTIÐ1967 ■MMSM I GÞE-Reykjavík, laugardag. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið fékk í gær hjá Gils Guð- mundssyni framkvæmdastjóra bókaútgáfu Menningarsjóðs, er gert ráð fyrir því, að alfræðibók sú, sem Menningarsjóður annast útgáfu á verði fullbúin haustið ! 1967. Verður bókin í tveimur bind I um, sem samtals verða 1500—1600 blaðsíður. , Verður alfræðibókin svipuð i sniðum og litlar alfræðibækur, sem algengar eru víða erlendis, en hér á landi hefur slíkar bæk- ur skort tilfinnanlega. Árið 1962 lögðu kennarasamtökin fram til- mæli til menntamálaráðs um að það hlulaðist til um útgáfu slíkr- ar bókar. Ákvörðun um þetta var þó ekki tekin fyrr en að tveim- ur árum liðnum, og var þá þegar hafizt handa um framkvæmdir. Ritstjórar bókarinnar eru þeir Árni Böðvarsson og Guðmundur Þorláksson, en auk þeirra hafa um 30—40 menn’starfað að samn- ingu bókarinnar. Þetta verður al- fræðiorðabók í orðsins fyllstu tnerkingu, fjallað verður um flest það sem máli skiptir og verður efnið bæði innlent og erlent, en hvert einstakt atriði verður af- greitt á mjög stuttan og laggóðín hátt, og ekki verður fjölyrt meir en brýnasta þörf krefur. Uppslátt- arorð í bókinni verða nokkuð mörg, en skýringar með þeim verða einnig mjög stuttar. í bókinni verður mjög lítið af myndum og skýringarteikningum, nema þar sem fjallað er um nátt- úrufræði, landafræði, tækni og þess háttar. Mannamyndir verða hins vegar fáar sem engar. Al- fræðibókin verður vafalaust mjög mikill fengur fyrir allan almenn- ing svo að ekki sé talað um náms- fólk. Frá FUF, Kópavogi Félag ungra Framsóknarmanna í Kópavogi mun efna til stjórnmála náimskeiðs. Námskeiðið hefst sunnudaginn 27. marz n. k. kl. 3 síðdeg.'s í félagsheimilinu Neðstu tröð 4. Væntanlegir þátttakendur snúi sér til fulltrúa stjórnarinnar, sem eru til viðtals í félagsheimil inu frá 8—10 þriðjudaga, miðviku daga og fimmtudaga. Veita þeir allar nánari upplýsingar. r Arnessýsla Aðalfundur Framsóknarfélagi Árnessýslu verður haldinn í san komusal KÁ á Selfossi fimmtudaj inn 17. marz og hefst kl. 9,30 síí degis. Dagskrá I. venjuleg aða fundarstörf. 2. Þingménn Fram sóknarflokksins í Suðurlandskjöi dæmi ræða um þjóðmálin. STJÓRN OG STOFNENDUR ASÍ í BOÐI HJÁ FORSETA ÍSLANDS SJ-Reykjavík, laugardag. Forseti fslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, bauð í morgun^ mið- stjórn og stofnendum ASÍ að Bessastöðum í tilefni 50 ára af- mælis samtakanna, og er myndin hér til hliðar tekin við það tæki- færi. Þegar þing ASÍ kemur saman í haust, er ráðgert að minnast afmælisins með hátíðahöldum, þar sem nú er erfiðleikum bund- ið að ná saman nema litlum hluta forystumanna samtak- anna. Eftir hálfan mánuð eða svo kemur út hátíðahefti Vinn- unnar, og hefur verið unnið að því undanfarnar vikur að eiga viðtöl við formenn félaganna er stofnuðu ASÍ. í þessu hefti verða einnig viðtöl við núverandi for menn félaganna, ásamt ágripi af sögu ASÍ. (Ljósmynd GE)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.