Tíminn - 17.03.1966, Side 1

Tíminn - 17.03.1966, Side 1
 ÉÍIMI ^ 1 \ J ] ' ■* % <• ■ t í Eltu uppi gervi- hnött á 28 þús- kílómetra hraða NTB—Kennedyhöfða, mið- vikudag. Lengsfa og hraðasta „veiði- HZ-Reykjavík, miðvikudag. Það voru margir sem not- færðu sér blíðskaparveðrið í dag. Meðal þeirra sem það gerðu voru um 60 hestakonur, sem létu húsverkin bíða en brugðu sér á hestbak. Ljós- myndari og blaðamaður Tim- ans hittu þennan stóra og föngulega hóp að máli er hann var skammt fyrir ofan borgina. í Ijós kom að för þeirra var heitið upp að Engi, en Helga húsfreyja hafði boðið þeim í síðdegiskaffi. Hestakonurnar, sem voru á öllum aldri allt frá 13 ára til sjötugsaldurs, Ijóm- uðu bókstaflega af kátínu og gleði. Hestarnir, loðnir og feit- ir, voru ekki síður fullir af ærslum. Flestar höfðukonurnar einn hest til reiðar, en nokkrar höfðu tvo til reiðar. Ein var meira að segja með þrjá til reiðar. Er við inntum hestakonurn- ar eftir því hvort þær væru félagar í Fáki, var okkur svar- að því til að svo væri en auk þess væru nokkrir gestir með í förinni. í kvöld ætla þær að koma saman hér í borginni og spila félagsvist. Vonandi verða stól- seturnar ekki harðar! Efri myndin er af stórum hluta hópsins, en sú neðri af þrem- ur konum með hesta á áninga- stað. (Tímamynd G.E.) ferð" sögunnar hófst kl. 15.41 í dag að íslenzkum tíma, þeg ar Armstrong og David Scott var skotið á loft frá Kennedy- höfða í geimfarinu Gemini-8 í því skyni að elta uppi og tengjast við Agena-gervihnött er skotið hafði verið á loft 1 klukkustund og 41 mínútu áður. Geimfararnir verða að fara 160 þúsund kílómetra leið á 28.157 kílómetra hraða á klukkustund, áður en þeir ná gervihnettinum, en þetta atriði hefur mjög mikla þýðingu í kapphlaupinu um það, hver verður fyrstur til tunglsins. . Bæði gervihnötturinn og geim- skipið komust á rétta braut. Bandaríska geimvísindastofnunin NASA, tilkynnti í dag, að jarð- firð Gemini-8, sem Armstrong stjórnar, sé 271 km frá jörðu, en jarðnánd 160 km. Þegar Agena-gervihnettinum var skotið á loft, sátu geimfararn- ir í geimfari sínu og horfðu á at- burðinn í sjónvarpi. 10 mínútum síðar var Agena kominn á braut. Þúsundir tækja hófu þegar að finna út nákvæm- lega hver braut gervihnattarins yrði, en mjög þýðingarmikið var, að hann væri á nákvæmlega réttri braut. Ef Agena hefði farið of langt út í geiminn — eða verið of nærri jörðinni — hefði Gemini-8 ekki verið skotið á loft, þar sem stefnumótið hefði ekki verið fram kvæmanlegt vegna skorts á nægi- legu eldsneyti til stefnubreyting- anna. En brátt var Upplýst, að gervi- Framhald á 14. síðu. Meirí áherilu þarf a5 leggja á framleiðslu kjöts en mjólkur HZ-Reykjavík, miðvikudag. Á Búnaðarþingi í dag flutti for- maður Stéttarsambands bænda, Gunnar Guðbjartsson, ítarlegt er indi um stöðu landbúnaðarins í dag, þegar fóðurvöruskattur var á dagskrá. Helzta málið að áliti Stéttarsambandsins og framleiðslu- ráðsins kvað hann vera þörf á framleiðsluþreytingu í landbúnað- inum, þannig að lögð verði meira áherzla á framleiðslu kjötafurða en mjólkurafurða. Gunnar hóf ræðu sína með því að skýra frá aukningu mjólkur og kjöts frá fyrra ári. Árið 1964 var kjötframleiðslan 10.15 milljónir kílóa en árið 1965 var hún 11,36 milljónir kílóa, þannig að aukn-llítra í 106 millj. lítra frá fyrra I framleiðsluna og mjólkurafurðir. ingin var um 12.5%. ári eða um 6.0%. Smjörframleiðslan óx á s. 1. ári Mjólkurmagnið óx úr 100 millj. I Næst talaði hann um smjör-l Framhald á 14. síðu. SÍÐUSTU FRÉTTIR í gærkvöldi kl. 10.15 að íslenzk um tíma var tilkynnt, að íekizt hefði að tengja Gemini-8 við Ag- ena-eldflaugina. Vakti þetta mik- inn fögnuð á Kennedy-höfða, og er þetta mikill sigur fyrir banda- ríska vísindamenn. Armstrong til kynnti, að geimfarið og gervihnött urinn væru bæði mjög stöðug. 87% AF FISKI SEM VEIDDIST I LOÐNUNÓT TALINN ÓÞROSKA AS-Ólafsvík, miðvikudag. Hér á víkinni er fjöldi loðnu- báta, sem moka upp smáfiski, mest undir málsfiski í tugum og hundruðum tonna. Eru þessir bát- ar sagðir á loðnuveiðum en þeir liggja upp í flutningaskipið Sfld- ina, sem liggur hér á Ólafsvík. Loðnan hefur gengið upp á grunn ið. Fylgir henni óhemju smáfisks- ganga, sem þessi stórvirku veiði- tæki moka nú upp. Reykjaborgin landaði hér 30 tonnum í gær- kvöldi. Er sorglegt að horfa á smáfisk þannig drepinn, allt nið- ur í smásfli, sem hlýtur að hafa alvarlegustu afleiðingar. En afli þessara báta mun vera um 4—500 tonn á sólarhring af smáfiski. Þessi veiði hefur vakið almenna gremju hér vestra og krefjasl menn þess, að veiðarnar verði stöðvaðar tafarlaust. Framhald á 14. síðu

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.