Tíminn - 17.03.1966, Qupperneq 5

Tíminn - 17.03.1966, Qupperneq 5
5 FIMMTUDAGUR 17. marz 1966 Otgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján BenedOrtsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson. Aug- lýsingastj.: Steingrfmur Gislason. Ritstj.skrifstofur I Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti 7. Af- greiðSlusfmi 12323. Auglýsingasimi 19523. Aðrar skrifstofur, simi 18300. Áskriftargjald kr. 95.00 á mán. lnnanlands — í lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA hJ. Látum þjóðina dæma Sú tillaga miSstjórnar Framsóknarflokksins að efnt verði til þingrofs og kosninga hið allra fyrsta og áður en tekin er endanleg afstaða til samninganna við sviss- neska álhringinn, hefur hvarvetna fengið góðar undir tekör, nema í innsta hring stjórnarflokkanna. Bökin fyrir þingrofskröfunni eru svo augljós, að eðli- legt er, að hún hljóti öflugar undirtektir þjóðarinnar. Tæp þrjú ár eru liðin frá seinustu þingkosningum. Að- alloforð stjórnarflokkanna fyrir þær kosningar var sfcöðvun verðbólgunnar. Því var réttilega lýst yfir, að yrði því marki ekki náð, væri allt unnið fyrir gíg. Meiri- hluti kjósenda treysti Þessu loforði og stjórnarflokkarnir héldu meirMuta sínum. Efndirnar eftir þriggja ára stjóm blasa nú við. Aldrei hefur verðbólguvöxturinn ver-- ið ferlegri. Stjórnarblöðin segja, að hann hafi verið mik- íll í tíð vinstri stjórnarinnar. Jafnvel útreikningar Gylfa Þ. Gíslasonar sýna þó, að hann hafi verið smávægilegur , þá í samanburði við það, sem hann hefur orðið seinustu þrjú árin. En þó er ekki ætlun ríkisstjórnarinnar að nema hér staðar. Hvergi bólar á neinni viðleitni hjá henni í þá átt. Þvert á móti er hún í þann veginn að á- kveða að leyfa hér erlendar stórframkvæmdir, álbræðslu í Straumsvík og herstöð í Hvalfirði, er mundi stórauka þensluna og verðbólguna frá því, sem nú er. Framsóknarflokkurinn segir, að hér sé svo stórlega vikið frá loforðum stjómarflokkanna fyrir seinustu kosn- ingar, að það eigi að láta þjóðina sjálfa dæma að nýju áður en lengra er haldið. Framsóknarflokkurinn segir, að hættan, sem þjóðinni stáfi nú af verðbólguvextinum, sé svo gífurleg, að það eigi að gefa henni kost á að bregða við fæti og breyta um vinnubrögð áður en lengra er stefnt út í ófæruna. Þetta tækifæri vill þjóðin líka fá. Þessvegna fær þingrofskrafa Framsóknarflokksins hvarvetna góðar undirtektir, nema í innsta hring stjórnarflokkanna. Þar em auðsjáanlega hræddir menn, sem ekki vilja leggja málin undir dóm þjóðarinnar í tæka tíð. Sá ótti styrkir þingrofskröfuna meira en nokkuð annað. Eina leiðin Andstæðingablöð Framsóknarmanna reyna að snúa út úr þeim orðum Helga Bergs á miðstjórnarfundi Fram- sóknarflokksins, að ekki sé til nema ein leið, og það sé hin leiðin. Ekki stafar þetta þó af því, að blöðin skilji ekki, hvað Helgi á við. Sú leið, sem nú er farin af ríkis- stjórninni í efnahagsmálunum, er raunverulega engin leið. Stjórnin ræður ekki neitt við vandann, sem við er að fást, reynir heldur ekki til þess og hefur það eitt markmið að hanga. Afleiðingin verður sívaxandi glundr- oði, sívaxandi verðbólga, sívaxandi dýrtíð. Ritstjórar stjórnarblaðanna geta vitanlega huggað sig við það að kalla þetta leið, en vissulega er hún engin. Eina færa leiðin út úr öngþveitinu, er leiðin, sem Framsóknarmenn hafa bent á, og hlotið hefur nafnið hin leiðin. Hún er fólgin í því að raða verkefnum skynsamlega, eins og góður atvinnurekandi gerir í atvinnurekstri sínum, og tryggí3 þannig jafnvægi og framfarir. Með rökum geta andstæðingarnir ekki haggað því, að þetta er eina færa leiðin, sem bent hefur verið á. Þess vegna er gripið til útúrsnúninga og hártogana. Það vitnar bezt um mái staðinn. TÍMIWW Walter Lippmann ritar um alþjóðamál; Styrjöld, sem ekki er hægt að vinna, styrkir ekki frelsið Söguleg ummæli MacArfhurs við John Foster Dulles Bandarískur flóttamaður aðstoðar flóttakonu frá Vietnam. FORSETINN hélt fyrir skömmu ræðu í síðdegisveizlu í New York. Þar tók hann lil meðferðar spurninguna, sem veldur mestum kvíða manna og þyngstum áhyggjum út af gangi stríðsins í Víetnam. „Sumir spyrja“, sagði John son forseti, „um hættuna á víð tækari styrjöld, ef til vill gegn hinum feikilega fjölmenna landher Rauða-Kína. Og svarið við þessari spurningu er einn- ig neitandi. Við gerum aldrei neitt, sem til þessa geti leitt og á því er ekki hætta, meðan enn leynist snefill af sikynsemi bak við stóru orðin í Peking”. Þetta væri vitanlega fullnað arúrskurður, ef málið snerist um það eitt, hvað forsetinn ætlaðist sjálfur fyrir. Vitan- lega lætur hann ekki visvitandi eða af ásettu ráði ráðast á Kínverja eða erta þá íil átaka. Hvers vegna er þá efi..n að læðast um og áhyggjurnar á sveimi. Jú, auðvitað vegna þess að enn muna margir Kóreu-styrj- öldina. Menn hafa ekki gleymt þvf, að Truman forseti hafði ekki á prjónunum neinar fyrir ætlanir um að berjast við Rauða-Kína eða erta Kínverja til átaka. Og McArthur hers- höfðingi fullvissaði hann um, að Kinverjar gætu eski tekið neinn virkan þátt í atökunum í Kóreu, en þrátt fyrir þetta var hann kominn í styrjold við Kínverja um leið og hann hélt her sínum til kínversku landa- mæranna. ÖLDUNGADEILDARMENN- INA, sem eru á öndverðum meiði við forsetann, grunar alls ekki, að hann vilji stríð við Kínverja. En þeir eru hræddir um, að stefna hans muni leiða til árekstra við Kín verja, enda þótt hann ætli alls efekl í styrjöld við þá. Vitanlega hefur það marga ókosti í för með sér að rök- ræða þessa spumingu opinbei lega. Og fæstum okkar, sem í deilunum taka þátt, eru þær ánægjuefni. Ekki ber að efa, að opinber ágreiningu- milli forsetans og leiðtoga flokss hans, bæði í öldungadeildinní og meðal þjóðarinnar, er mjög hughreystandi og uppörvandi fyrir þá, sem eru að berjast gegn okkur. Hann eykur vitan- lega baráttukjark þeirra og ari en ella um skilmála fyrir umsömdum friði. En á hitt er einnig að u j að óvinurinn er hvergi nærri á næstu grösum. Ekki verður komið auga á neina fjandmenn i augsýn frá bandarísku landi. Öryggi Bandarfkjanna er því ekki í neinni hættu, iafnvel þó ag ágreiningurinn og rökræð- urnar kunni að auka stríðs- mönnum í Hanoi og Peking kjark. Ástæðurnar eru oú allt aðr ar en þær voru, þegar ráðizt var á bandaríska flotann i bandarískri höfn ávið 1941. Okkur er því leyfilegt að rök ræða atferli okkar og aðferð ir í styrjöldinni, sem geisar langt í burtu frá okkar eigin landi. VIÐ ERUM að rökræða, hvort við stefnum ekki i þessu stríði að markmiðum sem gætu ert Kínverja til átaka ef of langt væri gengið. Við erum einnig að ræða, hvort við ger- um allt, sem í okkar valdi stendur til þess að forðast i Asíu þann yfirgripsmikla land hemað, sem forsetinr, er svo ákveðið á móti. Yfirgripsmikil styrjöld á landi í Asíu hlyti ag vera af okkar hálfu örlagarík mistök þess háttar mistök, sem þjóðir ná sér aldrei til fulls eftir. Þetta væm söguleg mistök á við þau, sem Aþenumenn gerðu, þegar þeir lentu í styrj öld við við Syrakúsu, eða Napóleon varð á þegar hann réðist inn í Rússland, og Hitl er henti, þegar hann réðist síð ar einnig inn í Rússland, og Japanar gerðu sig seka um, þegar þeir réðust á Perluhöfn. Hver svo sem tilgangur og áætlun árásarmahnarna í þess um sögulegu átökum var á sinni tíð, hvort sem þeir börð ust af göfugum hvötam eða auvirðilegum, skiptir ekki meg inmáli, né heldur hitt, hvort við séum betri menn eða meiri menn en þeir voru. Aðalatrið- ið er, að til eru styrjaidir, sem komast verður hjá að heyja og forðast ber vegna þess, að þær leiða til eyðileggingar og.einsk is annars. RÖK ÞEIRRA, sem andstæð ir eru útbreiðslu styrjaldar innar í Víetnam, eru þau, að stríðið sé einmilt þess eðlis, að efling þess og utbreiðsla muni leiða til styrjaldar við Kína, en styrjöld við ICína væri háskalegt glapræði. Þessi af- staða andstöðunnar stafar hvorki af skyndilegu, yfirþyrm- andi friðsemdarkasti né vand- lætingaröfgum. Afstaðan á rætur sínar að rekja til þeirrar gömlu banda rísku hernaðarkenningtr, að forðast beri landsstyrjó'.d á meginlandi Asíu því að í henni sé ekki unnt að vinna sigur. Allt fram á veturinn 1965 höíð um við aðeins einu sinni breytt út af þessari reglu. Það var í Kóreustyrjöldinni óg vitanlega er sú styrjöld undantekaingin sem segja má, að sanui í höfuð atriðum réttmæti reglunnar. Bandaríkjamönnum tóikst að vísu að síðustu að verja Suð- ur-Kóreu, en þeir töpuðu styrj- öldinni í Norður-Kóreu. Vert er eftirtektar, að Suður-Kórea er skagi, sem við gátum náð til af hafi, en að Norður-Kór eu liggur meginland Asíu og þar nýtur við hins óhemjulega fjölmennis ICínverja í landhern aði. ALLIR forustumenn okkar í hemaði á síðari árum — Eis enhower, MacArthur, Bradley, Ridgway — hafa hvað eftir ann að varað okkur við að láta glepjast út í þátttöku í ófriði á meginlandinu. MacArthur sagði við John Foster Dulles, að hver sá forseti, sem sendi bandarískan her til landhern aðar á meginlandi Asíu, ætti að láta lækna athuga á sér höfuðið. í Vietnamstyrjöldinni hefir ekkert gerzt, sem afsanni þessa bandarísku kenningu um að við verðum að komast hjá þátttöku í landhernaði á meginlandinu, og við verðum að treysta á sjóhernað til þess að verja, vernda og efla bandaríska hags muni á Kyrrahafi og í Asíu. Af þessum ástæðum fæ ég ekki með nokkru móti skilið, iivern ig í ósköpunum eigi að heyja sigursælar styrjaldir fyrir „frelsi" og „sjálfsákvörðunar- rétti“ án tillits til þess, hvar styrjaldir þessar eru háðar cg þvert gegn margendurtekinni ? reynslu ofefcar sjálfra. t

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.