Tíminn - 17.03.1966, Side 9

Tíminn - 17.03.1966, Side 9
FIMMTUDAGUR 17. marz 1966 TÍMINN» Bréf til Matthíasar hversu mikið afl þarf til þess að hreyfa hlutinn. Visindaínenn vita ekki enn hversu áreiðan- leg þessi aðferð er. Þá verða mældir geimgeislar. Einnig verða gerðar athuganir á því, hversu mikið dregur úr styrk- leika radíómerkja, er þau fara í gegnum andrúmsloft jarðar. Til þesisa verður notað sér- stakt senditæki, sem fest verð ur ofan á geimfarið og mun senda merki á tveim bylgjum — últra-hárri tíðni (UHF) og mjög hárri tíðni (VHF). Athyglisverð tilraun verður gerð með sjónvarpsmyndatöku að næturlagi. Verður athugað, hvort hægt sé að nota sjónvarps myndir af jörðinni að nætur- lagi, þegar allt er dimmt. Verð ur notuð sérstök sjónvarps- myndavél, sem fest er aftan á geknfarið. Aðrar myndatökur munu einnig eiga sér stað. M. a. er þar um að ræða mynda- töku af skýjunum, en það er liður í tilraunum til þess að geta sagt sem fyrst fyrir mn óveður og storma og er tengd tilraunum með Essna-veðurat- hugunar gervihnettina. Að sjálfsögðu mun einnig fara fram að venju rannsóknir á líðan geimfaranna og hugsan legum breytingum á heilbrigði þeirra. Ferð Gemini-8 er ein af m'örgum ferðum geimfara af þessari gerð, sem ráðgerðar eru á næstunni. Síðar í sumar er ætlunin að senda á loft Gem- ini-9, en geimfararnir um borð í því geimfari verða þeir Eug ene Oeman og Thomas Stafford — en sá fyrmefndi kom hingað til lands s. 1. sumar til æfinga. Annar þeirra mun fara út íir geimfarinu, en dvelja þar leng ur en Scott, eða tvær hringferð ir um jörðu. Þá er einnig áætl- að að skjóta Gemini-10 á loft á þessu ári, og enn mun einn geimfari fara út úr geimfarinu og dvelja þar um tíma. í þessum geimferðum verða ýmsar athuganir gerðar, og nokkrar þeirra sem Gemini-8 á að framkvæma, verða endur- teknar og fullkomnari upplýs- ingum safnað. Atlas-Agena eldflaugin. Heiðraði ritstjóri. Ég hefi ekki í annað hús að venda en að skrifa þér, þar sem Sigurður er í Þinginu og Eyjólfur Konráð allur í alúmíninu. En ég skrifa með hálfum huga og get jafnvel búizt við að þú skiljir mig illa. Ég get sem sé ekki fléttað inn í þetta neinum æskuminningum úr Vesturbænum, hefi aldrei leikið mér á Landakotstúninu, hvað þá farið í siglingar á Fossi á unglings árum. Ég hefi ekki einu sinni átt heima fyrir vestan Læk. Og ég er heldur ekki skáld, hvort sem um er að kenna hæfileikaskorti eða hinni vöntuninni, að hafa farið á mis við stórkostleg uppeldisáhrif Hólavalla og Landakots. Ég skal nú reyna að fara að komast að efninu. í gær fletti ég Lesbók Morgunblaðsins og ætlaði að gá að rabbinu hans SAM. Þeir geta verið svo Ijómandi skemmti- legir stundum þessir reiðu, ungu menn, sem sum blöðin eru farin að hafa á sínum snærum til að láta gjamma við og við, svo að fólk geti séð svart á hvítu, hve frjálslynd þau eru. En nú brá svo við, að ég sá ekkert rabb eftir SAM. í þess stað var kominn annar maður, einhver Magnús Þórðarson, og þeytti lúður „frelsisins“ af slíku afli, að allt ætlaði að rifna. Fyrr mátti nú vera vindauðgi. Segja mætti mér, að hann væri alinn upp allt vestur undir Gróttu. Lagið, sem þessi mikli lúður- þeytari lék, var um sjónvarpið. Eftir að hafa hlýtt á það til enda urðu mér stórum Ijósari en áður ýmsir þættir þess merkilega máls. Ég hafði haft illan bifur á her- mannasjónvarpinu. Til dæmis hafði ég ímyndað mér, að dagskrá her- mannasjónvarps væri naumast góð til síns brúks, nema í hana væri ofið einhverju, sem snerti starf hermannanna, það er að segja af- lífunina. Og ég hafði heyrt börn í nágrenninu tala um eitthvað, sem héti Combat og í Geirsbók stend- ur að það þýði „bardagi“. Vitan- lega hefi ég aldrei þorað að líta á þetta, því að „mér er ekki mennt sú léð, mannsblóð hefi ég aldrei séð“, eins og stendur ein- hvers staðar í rímum. Annars hafði dagskráin ekki komið málinu við í mínum augum, nema þá að litlu leyti. Mér fannst valdhafarnir rétta fram opna sál þjóðaræskunnar eins og ílát handa hernum, þegar þeir leyfðu stækk- un sjónvarpsstöðvarinnar þarna syðra. Fannst þarna veittur meira en vafasamur einkaréttur (ekki frelsi), og almenningur gæti naum ast sætt sig við minna en að fá fram lokun stöðvarinnar, svona sem aðvörun til framtíðarvaldhafa um meiri gát í málum sem þess- um. Mig hafði furðað á, að „frelsis- hetjur“ sjónvarpsáhugamanna skyldu ekki fara þess á leit við sendiráð Rússa, að það setti hér upp sjónvarpsstöð, svona til að minnka áhallann og gefa kost á vali, sem ég hafði heyrt að ætti skylt við frelsi. Aðrir en Rússar voru varla líklegir til að leggja í slíkan áróðurskostnað. Til þessar- ar göngu í rússneska sendiráðið hafði ég í huganum kjörið sýslu- mann og æskulýðsleiðtoga þeirra þarna fyrir ofan Skarðsheiði. (Hann er þó ekki skyldur Magn- úsi þessum, eða alinn upp ámóta vestarlega í bænum, nema hvort tveggja sé?) Ég á við þennan, sem bjargaði heiðri þjóðarinnar og rétti við riðandi heimsmenn- inguna með símskeyti eitt sinn, þegar blásið var til fundar hér í Reykjavík. Ég bjóst þá og þá við að frétta $ um för sýslumanns og annarra frelsisþyrstra sálna í rússneska sendiráðið. Mér þótti þetta drag- ast furðulega, jafn skeleggir menn og þarna eiga hlut að máli. En nú sé ég þetta allt í öðru og efalaust miklu réttara Ijósi en áður, eftir að hafa notið hins hvin- mikla lúðurþyts Magnúsar. Ég trúi eins og nýju neti, að dagskrá- in sé foráttugóð. Og ég trúi hinu líka, að fullt frelsi felist í einka- rétti einnar erlendrar þjóðar al- veg sérstaklega þegar einkaréttur- inn ér einskorðaður við einn þátt í starfsemi þeirrar þjóðar, það er að segja herinn. Það auðveldar eðlilega meiri einbeitingu i frels- inu. Um tvennt er ég ekki enn sam- mála Magnúsi. Hann segir berum orðum, að kommúnistar geti ekki talizt heiðarlegir í neinni þjóð- málabaráttu. Heiðarleiki í þessu sambandi er að vísu ótrúlega loðið og afsleppt hugtak, ef ekki af- stætt. Og ég skal játa að komm- únistar eru margir lítils uppvaxt- ar, aldir upp í Þingholtunum, Skuggahverfinu, inn við Baróns- stig, ef ekki hreinlega utanbæjar sumir hverjir. Af þeim er því að sjálfsögðu ekki mikils að vænta. En ég hefi þekkt fáeina um æv- ina. Sumir þeirra voru eldheitir í sannfæringu sinni, fórnfúsir og trúir sinni köllun. Ég held enn, að þetta megi ef til vill meta til heiðarleika í þjóðmálabaráttu. Hitt atriðið er um innflutning á erlendum bókum. Ég er enn hálft um hálft þeirrar skoðunar, að fs- lendingar þyrftu að banna hann ef her einnar erlendrar þjóðar hefði á honum einkarétt og ein- ræði um val. Þú sérð sem sagt, Matthías minn, að þessir einu Fædd 7. 5. 1884 að Járngerðar- stöðum í Grindavík. Dáin 5. 2. 1966 í Reykjavík. Ennþá brotnar brim við kletta og björg um Reykjanes. Sjórinn liggur logntær stundum, — eða lyftir sér til kuls og hlés — Grindavík var gæfta verstöð, og golan úr flestum áttum blés. Þá var vænt að vera i blóma af vöskum drengjum eftirsótt. Þegar þeir að landi lögðu litlu skipi um miðja nótt. Færa bæði bros og bita að borðstokknum á smárri skeið. En það var fremur bros en biti, sem beindi drengjum fram á leið. \ Grindavíkur vona vor vakti lengi í sál, það gaf bæði giftu og þor og glæstust svör og mál. Frá bernsku og æsku lífsins, leikur ljós um stigin spor Þann 5. febr. s.i. andaðist að heimili dóttur sinnar Ingibjargar og manns hennar Andrésar að Rauðalæk 18 í Reykjavík Sigríður Tómasdóttir. Sigríður var fædd að Járngerðarstöðum í Grindavík 7. maí 1884, dóttir hjónanna þar Mar grétar Sæmundsdóttur og Tómasar Guðmundssonar. Þar ólst Sigríður upp á stóru og mannmörgu heim- ili í stórum systkinahópi . hljómleikar Magnúsar hafa ekki dugað til fulls á mig. Svona get- ur verið um fleiri. Heldurðu ekki að rétt væri að biðja hann að grípa „frelsislúðurinn" aftur við tækifæri og blása ögn meira, ha? Ef til vill þyrfti hann ekki, að leggja eins mikið að sér og í gær, væri jafnvel óhætt að draga dúlít- ið úr vindinum. En þú þarft ekki að taka þetta fjas mitt of hátíðlega, þar sem ég á heima langt fyrir innan Læk, alla leið inni í Kleppsholti. (Já, vel á minnzt. Hann skyldi þó ekki vera alinn upp einhvers staðar hér í nágrenninu hann SAM? Mér hefur stundum fundizt ég finna til andlegs skyldleika með honum). Hérna í nágrenninu er merk ríkisstofnun. Mér var einu sinni sögð sú saga, að tveir vistmenn af þeirri stofnun hefðu verið á gangi hér í Holtinu sér til hressingar. Þá spyr annar hinn allt í einu: „Hefir þú hún?“ ,,Nei, en ég á að fá hún hráð- um“, var svarið. Mér var sögð sú skýring á þessu samtali, að læsingar á her- bergjum væru þarna stundum með þeim hætti, að ekki væru notaðir lyklar, heldur væru húnarnir tekn ir úr hurðaskránum. Einstöku vist menn, sem væru mjög hæglátir og nytu fullsta trausts húsbænda, fengju svo að bera á sér hún. Og af því að ég sá ekkert rabb frá SAM í Lesbókinni í gær langar mig að spyrja, hvort þið séuð búnir að taka af honum „húninn“ fram yfir kosningar? 14.3. 1966. Með beztu kveðju tiI SAM. Kleppshyltingur. Járngerðarstaðir voru á þeim tíma eitt af höfuðbólum Grinda- víkur. Þar var rekin allmikill land búskapur, ásamt sjávarútgerð, og því ærið starf til sjós og lands. Á unglingsárum sínum stundaði Sigríður nám í Reykjavík, í Kvennaskólanum o.s.frv. og bjó á þeim misserum hjá móðurbróður sínum dr. Bjarna Sæmundssyni. Átti hún bjartar myndir frá þeim tima. Nítján ára gömul gekk hún að eiga Sigurþór Ólafsson frá Múla- koti f Fljótshlíð og fluttist með honum til búskapar austur þangað og bjó flest sín búskaparár að Kollabæ, eða hátt í 50 ár. Kolla- bæjarheimilið var nokkuð stórt, á húsbóndann hlóðust mörg opin ber störf, og gestastraumur alla tlð mikill. Húsmóðirinn hafði þvi Framhald á bls. 12 Myndin sýnir hvernig geimförin munu tengjast saman. Sigríöur Tómasdóttir Kollabæ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.