Tíminn - 17.03.1966, Page 11
FIMMTUDAGUR 17. marz 1966
TÍMLNN
n
TOM TULLETT
17
á „varningnum“ sem til umræðu var. Cusack var gagnkunn-
ugur þessu efni, því hann hafði árum saman fengizt við eit-
urlyfjasala.
Þeir hittust nokkrum sinnum, og loks voru áþreifingar á .
enda. Bergeret virtist ánægður með Bandarikjamanninn og
komst í geðshræringu, þegar Cusack hafði orð á að vinum
hans léki hugur á hvorki meira né minna en fimmtíu kílóum
af heróíni. Fleiri fundir áttu sér stað, Cusack var kynntur
nokkrum mönnum öðrum og loks skýrt frá að hann ætti
að fá að hitta Marius Ansaldi, sem fær væri um að láta
í té allt það magn eiturlyfja sem Cusack vildi kaupa.
Samningaumleitanirnar höfðu tekið marga daga, og allan
þann tíma varð Cusack, sem stóð í sambandi við eiturlyfja-
deild frönsku ríkislögreglunnar, að gæta sín. Minnsta skyssa
gat orðið til að hann fengi hníf í bakið eða lenti í Signu,
sem tekið hefur á móti svo mörgum hnýsnum lagavörðum.
Tengiliður hans við frönsku ríkislögregluna var Edmund
Bailleul lögregluforingi, sem lengi hafði grunað að Ansaldi
væri aðalmaður í umfangsmi-klum hring alþjóðlegra eitur-
lyfjásala og var sannfærður um að hann réði yfir vinnslustöð.
Cusack hélt sig í nánd við hótelið, og loks símaði Bergeret
og stefndi honum til veitingahúss í einu úthverfi Parísar.
Þeir áttu að hittant klukkan átta um kvöldið. Hann var lát-
inn vita að nú myndi Ansaldi koma að finna hann og sagt að
taka með sér peningana.
Franska lögreglan lá í leyni og Ousack sat við borð og
beið. Umhverfis hann voru venjulegir kvöldgestir, ung pör
sem héldust í hendur, og gítartónar bárust um veitingasal-
inn. Cusack drakk bjór í rólegheitum og horfði á fólkið, en
skimaði svo lítið bar á eftir Antoine Bergeret.
Glæpamennirnir sem fást við jafn háskalegan leik og eitur-
lyfjasölu eru engir viðvaningar, og eins og allir snjallir
kaupsýslumenn eru þeir stundvísir. Þegar klukkutími var
-kominn fram yfir tilsettan tíma, var Cusack orðið ljóst, að
eitthvað alvarlegt hafði komið fyrir. HÖfðu þeir komizt á
snoðir um hver hann var? Hafði einhver borið kennsl á
hann? Hann fór í næsta símaklefa og hringdi til Antoine.
Þar var engar fréttir að fá. Honum var sagt að Antione
hefði farið að heiman snemma morguns og ekki látið vita
hvert hann ætlaði. ,
Fyrirætlunin um að hremma Ansaldi var farin út um
þúfur. Einhver hafði með einhverju móti orðið þess áskynja
hver Cusack var, og nú þýddi ekki að reyna að halda rann-
sókninni áfram. Þegar hann fór upp í flugvélina á heimleið,
velti hann því fyrir sér hvort hann kæmist nokkru sinni
að því hvað gerzt hefði. Misseri leið áður en hann varð
nokkurs vísari.
Þá bar svo við að leynilögreglumenn frönsku ríkislögregl-
unnar handsömuðu hóp peningafalsara í Orlóans. Þegar geng
ið hafði verið frá kærum á hendur öllum bófunum, gaf einn
til kynna að hann væri fús til að leysa frá skjóðunni, vafa-
laust í von um að hann hlyti í staðinn vægan dóm. Hann
skýrði leynilögreglumönnunum frá að tveir lyfjafræðingar
rækju leynilega eiturlyfjaverksmiðju þar sem þeir ynnu
heróín úr morfíni. Hann skýrði einnig frá að það hefði verið
hann sem bar kennsl á Cusack á einum fundi þeirra Bergerets.
Honum var engin vorkunn að þekkja Bandaríkjamanninn,
vitnisburður hans hafði eitt sinn tryggt honum fangelsisdóm.
Þarna var loksins fengin ný vísbending um hvemig unnt
væri að klófesta Marius Ansaldi og bófaflokk hans. Vitnið
sagði að eiturlyfjaverksmiðjan væri í París, einhvers staðar
í grennd við Montgeron, en hann gat ekki vísað nánar á
staðinn. Bailleul lögregluforingi sendi snjöllustu menn sína
út af örkinni til að hafa upp á Antoine Bergeret, því hann
grunaði fastlega að hann hefði enn samband við Ansaldi.
Tvær vikur tók að finna hann, og þá kom í ljós að hann
gekk nú undir nafninu Boldoni.
Þegar hann var loks fundinn, var honum veitt eftirför
dag og nótt. Stundum elti hann hjárænulegur götusöngvari,
stundum betlari og stundum götulögregluþjónn, því meiri-
háttar glæpamönnum kemur aldrei til hugar að þeim geti
stafað hætta af einkennisbúnum lögreglumanni. Hópurinn
kortlagði allar lífsvenjur Bergeret, hvar hann matqðist, hvar
hann keypti sér tóbak og blöð og hverja hann hitti.
Morgun nokkurn. sat hann á bekk við Avenue Ivlébert
andspænis Sigurboganum. Á næstu grösum var leynilög-
reglumaður í hlutverki skemmtiferðamanns, sem renndi kvik-
myndatökuvélinni yfir umhverfið. Allt í einu tók lítill Peugeot
UNG STÚLKA í RIGNINGU
GEORGES SIMENON
Það er viðvíkjandi leigj-
11
Hún gekk að dyrunum, senni
lega til að laga sig dálítið. Þegar
hún kom aftur, var fótatak henn-
ar öðru vísi, líklega hafði hún
farið í skó í staðinn fyrir flóka
inniskóna, sem hún hafði haft á
fótunum. Hún opnaði dyrnar og
horfði á þá með litlum, ptrðum
augum.
— Gerið svo vel. Ég er ekkt bú-
in að hreingera.
Hún var samt klædd í snotran
svartan . kjól og var vendilega
greidd og snyrt. Hún var ein-
hvers staðar nálægt sjötugs aldri,
lítil og horuð, en furðanlega
spræk og lífleg.
— Hafið þér skilríki?
Maigret sýndi henni skjöl sín
og hún horfði athugul á þau.
— Þér eruð sem sagt Maigret
lögregluforingi?
Hún vísaði þeim inn i dagstofu,
sem var allstór en svo hlaðin
húsgögnum og smádóti, að varla
var hægt að þverfóta þar.
— Gerið svo vel að fá ykkur
sæti. Hvað viljið þér?
— Sjálf settist hún líka og hún
lagði sig sýnilega fram um að
koma virðulega fram, en hún gat
ekki leynt því, að hún gat ekki
haldið höndunum í ró.
anda yðar.
— Ég hef engan leigjanda. Ef
ég einstaka sinnum tek á móti
stúlkum og leyfi þeim að búa
hérna . ..
— Við þekkjum alla málavöxtu
frú.
Hún hélt stillingu sinni, en leit
á fulltrúann með svip, sem sýndi
að hún skildi, hvað hann átti við.
— Þekkið hvað?
— Við vitum allt. Við heyrum
ekki undir skattalögregluna og
það sem þér skrifið á skattaskýrsl
una yðar er ekki okkar mál.
Það var ekkert blað i stofunni.
Maigret tók upp mynd af hinni
óþekktu stúlku.
— Þekkið þér hana?
— Hún hefur búið hjá mér
nokkra daga.
— Nokkra daga?
— Við skuium segja nokkr
ar vikur.
— Ættum við ekki fremur að
segja tvo og hálfan mánuð?
— Það getur verið. Á mínum
aldri skiptir tíminn ekki höfuð-
máli. Þér getið ekki ímyndað yð-
ur, hvað dagarnir eru fljótir að
líða fyrir mér.
— Hvað hét hún?
— Louise Laboine.
— Var það nafnið á nafnskír-
teini hennar?
— Ég sá ekki kortið hennar.
Það var nafnið, sem hún gaf upp.
Og þér vitið ekki, hvort það
er hennar rétta.
— Ég hafði enga ástæðu til
að tortryggja hana.
— Sá hún auglýsingu frá yður?
— Hafið þér talað við húsvörð-
inn?
— Það skiptir engu máii, frú
Cremieux. Við skulum engum
tíma eyða. Og gerið yður ijóst,
að það er ég sem spyr.
Hún ansaði mjög virðulega:
— Gott og vel. Spyrjið bara.
— Svaraði Louise Laboine aug
lýsingu yðar?
— Hún hringdi til að spyrja
um verðið. ún spurði svo hvort
ég vildi lækka mig dálítið og ég
sagði henni, að hún yrði að koma
og tala við mig.
— Samþykktuð þér að lækka
leiguna?
— Já.
— Hvers vegna?
— Ég er svo áhrifagjörn.
Hvað eigið þér við?
— Þegar þær koma hingað
fyrst, þá eru þær auðrnýktin og
þakklætið uppmálað. Ég spurði
hana, hvort hún væri mikið úti
á kvöldin. og hún kvað nei við
því.
— Vitið þér, hvar hún vann?
— Ég held hún hafi unnið á
einhvers konar skrifstofu. Það var
ekki fyrr en eftir nokkra daga,
að það rann upp fyrir mér, hvern
mann hún hafði að geyma.
— Hvernig þá?
— Mjög einræn og dul.
— Og þér vitið ekkert um
hana? Sagði hún yður ekkert?
— Eins lítið og unnt var. Hún
hélt auðsjáanlega, að þetta væri
hótel. Hún fór á morgnana og
rétt bauð mér góðan dag, ef ég
varð á vegi hennar.
— Fór hún alltaf á sama tíma?
— Nei, mér til stórrar undrun-
ar, þá fór hún að fara á öðrum
tímum og ég spurði hana, hvort
hún hefði fengið nýtt starf.
— Og hverju svaraði hún?
— Hún svaraði engu. Svona var
hún. Þegar spurning kom henni
í vanda þóttist hún ekkert heyra.
Á kvöldin forðaðist hún mig eins
og heitan eldinn.
— Hún varð að ganga í gegn-
um dagstofuna til þess að komast
inn í herbergi sitt.
— Já, ég held mig venjulega
hér. Ég hvatti hana til að setjast
niður og fá sér kaffibolla. Að-
eins í eitt skipti lét hún svo lítið
að þiggja það og það toguðust
varla úr henni tíu orð í það skipt
ið.
— Hvað töluðuð þér um við
hana?
— Nú, allt milli himins og jarð
ar. Ég reyndi að fá einhverja
vitneskju um hana.
— Hvers konar vitneskju?
— Hver hún var, hvaðan hún
kæmi, hvar hún hefði búið áður . .
— Og urðuð þér einskis vísari?
— Ég fékk bara að vita, að hún
er kunnug í Suður-Frakklandi.
Ég talaði um Nice, þar sem ég og
maðurinn minn dvöldumst venju
lega tvær vikur á hverju ári, og
mér skildist, hún hefði einnig ver
ið þar. Þegar ég spurði um for-
eldra hennar, varð hún fjarlæg á
svpi. Hefðuð þér séð hana í þess-
um ham, þá hefðuð þér engu síð-
ur en ég orðið argur.
— Hvar borðaði hún?
— Úti. Ég harðbanna alla mat
seid inni í herberginu vegna
brunahættu. ÞaS er engum get-
um að því að leiða, hvað getur
komið fyrir, þegar þær byrja að
bauka með prímusana sína, svo
ekki sé talað um, hvernig það fer
með húsgögnin, hér eru dýrmæt
ÚTVARPIÐ
í dag
Fimmtudagur 17. marz.
7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegis
útvarp.
13.00 A
_______________ frívaktinni
Eydís Eyþórsdóttir stjórnar óska
iagaþætti fyrir sjómenn. 14.40
Við, sem heima sitjum. Margrát
Bjarnason talar við Eyborgu Guð
mundsdóttur listmálara. 15.00
Miðdegisútvarp. 16.00 Síðdegisút
varp. 17.40 Þingfréttir. 18.00
Segðu mér sögu. Bergþóra Gúst-
afsdóttir og Sigríður Gunnlaugs-
dóttir stjórna þætti fyrir yngstu
hlustendurna. 18.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir. 20.00 Daglegt máL
Árni Böðvarsson talar. 20.05 Gest
úr í útvarpssal: Fredell Lack fiðlu
leikari frá Bandaríkjunum og
Árni Kristjánsson píanóleikari
flytja Sónötu í c-moll op. 30 nr.
2 eftir Beethoven. 20.35 Umferð-
arhindranir og endurhæfing fatl
aðra. Ólöf Ríkharðsdóttir flytur
erlndi að tilhlutan Sjáifsbjargar.
20.55 Kórsöngur: Norður-þýzki
kórinn syngur Mörike-söngva eft
ir Hugo Distler. 21.10 Bókaspjail.
21.45 „Cockaigne“, forleikur op.
40 eftir Elgar. Fílharmoníusveit
Lundúna leikur undir stjórn Ed-
uards van Beinum. 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. Lestur Passíu-
sálma (33) 22.20 „Heljarslóðaror-
usta“ eftir Benedikt Gröndal. Lár
us Pálsson ieikari les (2). 22.40
Djassþáttur: „Svo fögur þruma’*
Jón Múli Árnason kynnir. 13.15
Bridgeþáttur Hallur Símonarson
flytur. 23.40 Dagskrárlok.
Föstudagur 18. marz.
7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegis
útvarp. 13.15 Lesin dagskrá
næstu viku. 13.30 Við vinnuna:
Tónleikar.
14.40 Við, sem
heima sitjum.
Rósa Gestsdóttir les Minningar
Hortensu Hollandsdrottningar, í
þýðingu Áslaugar Árnadóttur (2).
15.00 Miðdegisútvarp. 16.00 Síð
degisútvarp. 17.00 Fréttir. 17.05
í veldi hljómanna. Jón örn Mar
inósson kynnir sígilda tónlist fyr
ir nngt fólk. 18.00 Sannar sögur
frá liðnum öldum, Alan Boucher
býr tU flutnings fyrir böm og
unglinga. Sverrir Hólmarsson les
söguna af bóndadótturinni, sem
gerðist hermaður. 18.20 Veður-
fregnir. 18.30 Tónleikar. 19.30
Fréttir. 20.00 Kvöldvaka. a. lestur
fornrita: Færeyinga saga. Ólafur
Halldórsson cand. mag ies. b.
Alþingiskosningar og alþingis-
menn f Árnessýslu. Jón Gíslason
póstfulltrúi flytur fyrsta erindi
sitt: Jón Jónsson frá Ámóti ____
Álaborgar-Jón. c. Tökum lagið!
d. Stefjamál. Helga Sigurðardótt
ir frá Hólmavík flytur frumort
kvæði og stökur. e. í slóð Seyni-
staðarbræðra. Andrés Björnsson
flytur þátt eftir Þormóð Sveins
son á Akureyri. 21.30 Útvarpssag
an: „Dagurinn og nóttin" eftir
Johan Bojer. Hjörtur Pálsson les.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
Lestur Passíusálma (34). 22.20 ís
lenzkt mál. Dr. Jakob Benedikts
son flytur þáttinn. 22.40 Nætur
hljómleikar: Tvö tónverk eftir
Haydn. 23.20 Dagskrárlok.
BtS