Tíminn - 17.03.1966, Side 14
14
TÍMINN
Dúnsæng
er fermingar-
gjöfin
Ávallt fyrirliggjandi:
Æðardúnssængur
Koddar, lök,
sængurver misi.,
hvítt damask.
og silkidamask.
FERMINGARFÖT
af öllum stærðum,
terriJín og ulL
Jakkaföt - Matrosföt
Fermingarskyrtur
PATTONSGARNIÐ
ný komiS allir iitir og
grófleikar.
Póstsendum.
Vesturgötu 12, sími 13570
Bílaleigan
VAKUR
Sundlaugaveg 12.
Sími 35135 oe eftir lokun
símar 34936 og 36217.
Daggjald kr. 300,00
og Kr. 3,00 pr. km.
LAUGAVEGI 90-92
Stærsta úrval bifreiSa á
einum staS. — Salan er
örugg hjá okkur.
FRÍMERKI
FVrir bvert islenzkt tri-
merki sem þer sendið méi
fáið þér 3 ^rlend. Sendið
minnst 36 stk
JÖN AGNARS
P O. Box 905.
Reykjavík.
ÞORSTEINN JÚLlUSSON
héraðsdómslögmaður,
Laugavegi 22
('rnng. Klapoarst.)
Sími 14045
rafái.
^uglýsið í Tímanum
PILTAR.
EFÞ10 EIGIP UNMUSTUNA
ÞÁ Á ÉG HRIN0ANA /
ELTA UPPI
Framhald af bls. 1.
hnötturinn var á svo til alveg
réttri braut — jarSfirð var 298
km en jarðnánd 287. Hin fyrirhug
aða braut var nákvæmlega 296 km
frá jörðu.
Gemini-8 komst á braut sína yf-
ir Bermudaeyjum og eltingarleik-
urinn hófst. Stefnumótið, og sam-
tengingin, er þó aðeins ein til-
raun af mörgum, sem geimfararn-
ir eiga að framkvæma. Annar þýð
ingarmesti atburðurinn verður
geimganga — eða geimsund rétt-
ara sagt — David Scotts geimfara,
en hann mun verða utan geimfars
ins í tvær og hálfa klukkustund.
Þetta mun eiga sér stað á fimmtu-
daginn. Á laugardag lenda geim-
fararnir síðan í Atlantshafi.
Mjög vel tókst að skjóta Gem-
ini-8 á loft. Eftir tvær mínútur
losaði Titan-eldflaugin sig við
fyrsta þrepið, og annað þrepið
varð samkvæmt áætlun óvirkt
fimm mínútum og 41 sekúndu eft-
ir skotið. Á því augnabliki var
Gemini-8 komið á hina fyrirhug-
uðu braut umhverfis jörðu um
1920 km frá Agena-gervihnettin-
um. Gemini-8 mun síðan fara fjóra
hringi umhverfis jörðu og gera
ýmiss konar stefnubreytingar,
þannig að eftir fjóra hringi hafi
geimfarið náð Agena-eldflauginni.
Því næst verða geimförin tengd
saman. Agena-gervihnötturinn er
búinn sérstökum búnaði, sem
gerir Gemini-8 mögulegt að festa
sig við hann. Mun Gemini-8 koma
innyfir gervihnöttinn og því næst
snúa framnefinu að honum. Verð-
ur Gemini-8 þvínæst stjórnað fast
að gervihnettinum og tengjast
þeir saman eins og tveir vagnar
væru tengdir saman. Þetta eiga
geimfararnir að framkvæma fjór-
um sinnum, svo að þeir fái næga
æfingu.
Lyndon Johnson Bandaríkjafor-
seti sagði eftir geimskotið, að
Bandaríkin væru ákveðin í að
verða fyrst til að senda mannað
geimfar til tunglsins, og að þetta
myndi eiga sér stað fyrir árið
1970.
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartans þakMr til allra, sem glöddu mig með gjöfum,
skeytum og heimsóknum á sextugsafmæli mínu.
Sigmar Brynjólfsson,
Lundi, Eyrarbakka.
Útför
Magnúsar Auðunssonar
Sóiheimum i Landbroti,
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 18. marz, kl. 10.30 f. h.
Athöfninni veröur útvarpað.
Krlstiana Jónsdóttir, börn og aðrlr vandamenn.
Móðlr okkar,
Guðrún Ólafsdóttir
lézt á Sólvangi f Hafnarfirði að morgni 16. marz.
Axel Kristjánsson,
Georg Kristjánsson,
Ólafur Kristjánsson.
Útför eiginkonu minnar og móður okkar,
Lovisu Samúelsson, fædd Möller
fer fram frá Fossvogskirkju, laugardaginn þann 19. marz n. k.
kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent
á félög til heilbrigðismála.
Slgurður Samúelsson læknir og börn.
BÚNAÐARÞING
Framhald af 1. síðu.
úr 1.54 millj. kílóa í 1.76 milljón
kílóa frá fyrri ári, eða um 220 tn.
Sala smjörs á innanlandsmarkaði
dróst saman Úr 1210 tonnum ár
ið 1964 niður í 1092 tonn árið
1965. Helztu ástæður taldi hann
vera: 1. Tal lækna og skrif um
hættu á hjartasjúkdómum af völd-
um smjöráts. 2. Hið háa verð á
smjöri. 3. Jurtasmjörlíkið, sem
hafið var að framleiða árið 1964,
en á s.l. ári hefðu verið seld af
því 260 tonn.
Ennfremur var ekki unnt að
selja smjör úr landi árið 1965,
þannig að smjörbirgðir í árslok
1965 voru 1168 tonn, eða 668
tonnum meira en árið áður. Með
svipuðu framhaldi má áætla að
smjörbirgðir 5 árslok 1966 verði
um 1500 tonn.
Til þess að nýta mjólkurafurð-
ir betur hafa mjólkurbú, sem
vinna mjólk, samþykkt að vinna
í stað smjörs, bæði osta og ný-
mjólkurduft úr nýmjólkinni, vegna
tilmæla framleiðsluráðs. Fram-
leiðsla á ostum og nýmjólkur-
dufti er mun hagstæðari en á
smjöri, en þó er sala á ostum og
nýmjólkurdufti ekki hagkvæm.
Tillaga Stéttarsambandsins í
þessum efnum var að hækka mjólk
urlítra um eina krónu og lækka
smjörkílóið niður í 65 krónur.
Þessi tillaga hefði mætt andstöðu
í verðlagsráði af þrem ástæðum:
1. Framkvæmd þessa myndi
hækka framfræslukostnað. 2.
Hækka vísitölu. 3. Ef salan ykist
þyrfti ríkissjóður að borga mikið
í niðurgreiðslur
Því væri skynsamlegt og nauð-
synlegt fyrir bændur og þjóðina
f heild að snúa sér að annarri
framleiðslu, sem sé sauðfjár- og
nauðgriparækt.
Kjötframleiðslan árið 1965 nam
11.36 milljónum ikílóa í stað 10.15
árið áður þ.e.a.s. aukningin varð
um 12,5%. Á síðastliðnu ári var
mest af kjöti á útlendan markað
selt til Bretlands, þar sem kjöt-
verðið var um 22 kr. kílóið og
til Noregs, en þar fékkst fyrir
kílóið um 36 krónur. Nú stendur
til að selja þriðjung kjötfram-
leiðslunnar til Norðurlanda eða
um 2500 tonn.
Einnig talaði hann um ull og
gærur, sem lækkað hafa í verði
á erlendum markaði, en samt
væru ull, gærur og kjöt miklu
betri útflutningsvörur en mjólk-
urafurðir og því bæri nausyn til
þess að beina framleiðslunni inn
á þessar brautir. f þessu sambandi
væri unnt að beina framleiðslunni
inn á aðrar brautir með því að
leggja á erlendar fóðurvörur.
87% AF FISKI
Framhald af bls. 1.
Við þessa frétt er því að bæta
að Hafrannsóknarstofnunin hefur
kynnt sér málið, og í blaðinu í
dag er auglýsing frá Sjávarútvegs-
málaráðuneytinu þar sem bent er
á boð og bönn varðandi veiði á
óþroska fiski.
Jón Jónsson fiskifræðingur,
sagði að samkvæmt sýnishornum
er Hafrannsóknarstofnunni hefði
borizt frá Skarðsvík og frá Ólafs-
vík væri hér um að ræða 3ja til
6 ára fisk, mest þó af 4ra ára
fiski. Meðallengd væri um 55 cm
og 87% teldist óþroska fiskur.
FRETTIR
Framhald af bls. 2.
lega þó. Dauft er yfir útgerðinni,
reytingsafli í net, en undirbúning-
ur hafinnn undir grásleppuveiðina.
Eins og skýrt hefur verið frá,
hefur færðin hér verið mjög slæm
og hafa börn úr sveitinni ekki
komizt til skólans síðan um mán-
aðamótin jan.-feb. Sökum um-
ferðaerfiðleika, hefur mjólk oft
verið hér af skornum skammti og
hefur nokkrum sinnum orðið að
skammta hana.
Lágheiði hefiir ekki verið farin
síðan fyrir jól og er mjög sjald-
gæft að hún sé lokuð svo lengi í
einu. Flóabáturinn Drangur er
eina samband okkar við umheim-
inn, en komið hefur fyrir, að
hann hafi ekki getað komið hér
við vegna þess, hve vont hefur
verið í sjóinn.
GE-Kárastöðum.
Þykkur ís er nú á Þingvalla-
vatni og hefur lækkað í þvi í
vetur á annan metra.
Engin rjúpa hefur sézt hér í
vetur síðan fyrir áramót, en þá
sást hún í geysistórum hópum.
Ekki hefur heldur orðið vart við
tófu á þessum slóðum í vetur.
KBG-Stykkishólmi.
Þröngt er nú á Breiðafjarðar-
miðum vegna aðkomubáta. Flykkj-
ast bátar þangað hvaðanæva að af
landinu, af Vestfjörðum, Norður-
landi og nú er óvenju mikið af
sunnanbátum á miðunum.
Nokkur brögð eru að því, að
bátar hafi misst net sín í togar-
ana, t.d. missti einn bátur hálfa
aðra trossu fyrir skemmstu. Bát-
arnir stunda veiðar nálægt land-
helgislínu og aðeins fyrir utan og
þykir þeim þeir ekki hafa minni
rétt til þess að veiða þar en tog-
ararnir.
Nokkuð er veitt hér af loðnu en
það eru eingöngu aðkomubátar,
sem þær veiðar stunda.
Auglýsið í Tímanum
FIMMTUDAGUR 17. marz 19fif
FUNDUR
Fi-amhald af 16 síðu.
íslenzks iðnaðar í ört vaxandi sam
keppni við erlendar iðnaðarvörur
og sumir spyrja: Hvort er hag-
kvæmara frá þjóðhagslegu sjónar
miði að framleiða vöruna hér inn
anlands, eða flytja hana inn full-
unna? Þessu munu framsögumenn
fundarins svara, en þeir hafa all
ir um árabil stjórnað umfangsmikl
um iðnfyrirtækjum.
Fjölmennið og mætið stundvís-
lega. Stjórnin.
SAS OG LOFTLEIÐIR
Framhald af 16 síðu.
bandi og geti því boðið lægri far
gjöld. Það sé því að verða veru-
legur keppinautur SAS á leiðinni
yfir Atlantsihafið.
Fram að þessu hafa þessar Cana
dairvélar, er taka nú 189 farþega
ekki mátt lenda í Skandinavíu.
Þeir verða að fljúga til Kastrup-
flugvallarins í Danmörku á DC-
6 vélunum en þær stærri noti þeir
m. a. til Luxemborgarflugs.
Gera má ráð fyrir að með til-
komu þessarar nýju vélar fari
Loftleiðir fram á lendingarleyfi í
Kastrup og á norskum og sænsik
um flugvöllum.
í lok greinarinnar er skýrt
nokbuð frá nýju vélinni, flughraða
hennar, farþegatölu o. s. frv. Til
samanburðar er þess getið, að
stærstu flugvélar SAS, DC-8-55
taki í mesta lagi 148 farþega.
MINNING
Framhald af bls. 7
frá Moshlíð á Barðaströnd. Var
hún honum styrk stoð í ellinn)
og annaðist hann þangað til heilsa
hans var svo þrotin, að hann varU
að fara á hjúkrunarheimili.
Sveinn Jónsson var hinn gervL
legasti maður, tæpur meðalmaður
á hæð, en þrekinn vel, þykkur
undir hönd og bar sig vel. Skol-
hærður, bláeygður og bjartur yfir
litum. Gleðimaður við hóf og hafði
alla ævi yndi af að vera með ungu
fólki og sækja samkomur þess og
leiki. Hann var vinsæll maður.
Árdegis í dag kvöddu hann vin-
ir og gamlir samstarfsmenn í kap-
ellunni í Fossvogi. í kvöld siglir
hann í síðasta sinn vestur um
Bjarneyjaflóa í fylgd vaskra
drengja. Það er við hæfi. Og ef-
laust taka eyjarnar ekki verr á
móti honum nú en á morgni æv-
innar.
5. 3. 1966.
B. Sk.
Á VÍÐAVANGI
Framhald af bls. 3.
bræðslufyrirætlunum ríkis-
stjórnarinnar, og þetta stefnir
þjóðinni í geigvænlega hættu
og sjálfstæði hennar í bein
an voða.
Þetta er munurinn á ÍS-
LENZKRI stóriðju og ER-
LENDRI stóriðju, sem fórnað
er fslenzkum þjóðarréttindum
og hagsmunum og bætt ofan á
ærinni áhættu.
Rauð rós
Vegna þes að niður féll
kafli úr smáklausu með þessu
nafni hér í þættinnm í gær,
skal hún birt í heild á ný:
Hannes á horninu í Alþýðu
blaðinu rifjar í gær upp þá
sögu, að í kröfugöngu árið
1923 hafi ung og fátæk hús-
móðir gengið í veg fyrir Al-
þýðuflokksmerkisbera í farar
broddi og fest rauða rós á
barm hans. Þetta er falleg
minning, en ýmsir mnnu
spyrja hvað ung og fátæk hús
móðir muni nú verða til þess
að ganga fram og festa rauða
rós á barm Alþýðuflokksfor-
ingja i stjórnargöngunni með
íhaldinu.