Tíminn - 29.03.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 29.03.1966, Blaðsíða 3
MirflJUDAGUR 29. marz 1966 TÍMINN 1£ Björn Sveinbjörnsson: IDNADUR A TIMAMOTUM Góðir áheyrendur! Ég vil pakRa forráðamönnum þesa félags fyrir að gefa mér tækifæri til að koma hér fram og hefja máls um þann atvinnu- 'veg okkar íslendinga, sem ég hef nú starfað við í hartnær 15 ár, eða óslitið síðan ég kom heim frá námi. Jafnframt vil ég lýsa ánægju minni yfir því að stjórn- málafélög taka nú í vaxandi mæli upp þann hátt að gefa ópólitísk- um aðilum, en ég tel mig í hópi þeirra, kost á að koma fram skoð- unnun sínum og reynslu á fund- um sínum. Er ósennilegt að þess- ir tveir aðilar séu ávallt sammála nm einstök málefni, þar sem lík- legt er að álit þeirra er hafa (stjómmálaáhuga mótist að nokkru af því. Má því búast við að þeir, sem hér heyra mál mitt í kvöld verði ekki allir mér sam- mála, enda væri slíkt með ólík- indum og ekki að lasta, og vona ég að hér á eftir hefjist hinar fjðrugustu umræður er allir megi nokkurt gagn af hafa. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Skúli fógeti gerði Mna fyrstu tilraun til verksmiðju- iðnaðar hérlendis með Innrétting- unum frægu. Sú tilraun mistókst því miður, en sagan vill kenna það dreifingaraðiljum, en ekki vörunni sjálfri né framleiðslu hennar. Þótt ýmsum hafi sjálfsagt fallizt hugur við þau endalok og eigi hugað innlendri iðnaðarfram- leiðslu neina framtíð, varð þó svo er líða tók á öldina okkar, að ýmsir einstaklingar og félög létu sér reynslu Skúla fógeta sem vind um eyru þjóta og hófu ýmiskon- ar framleiðslu á iðnvarningi þótt í smáum stil væri. Hin erfiðu ár eftir 1930 urðu til þess að knýja fram athuganir á enn fleiri teg- undum framleiðslu, fyrst og fremst til að skapa atvinnu, sem þá var mjög af skornum skammti, og árangurinn var stofnun nokk- urra nýrra iðnfyrirtækja, sem mörg hver í dag eru orðin hin myndarlegustu að stærð og bún- aði. Þau fyrirtæki sem þá urðu til og fyrir voru réttlættu fljótt til- vist sína ekki aðeins með minnk- andi atvinnuleysi, heldur með starfsemi sinni á styrjaldarárun um. Mörg þeirra gátu þá fengið hráefni til framleiðslu sinnar þótt varan í fullunnu formi væri ófáan- leg erlendis frá. Er öruggt að ekki hefði hér verið svo tiltölu- lega auðvelt að lifa þessi erfiðu ár ef þeirra hefði ekki notið við og vil ég fullyrða að t.d. innlend ar byggingaframkvæmdir hefðu alveg stöðvazt. í kjölfar styrjald- aráranna fylgdi gjaldeyrisskortur og tilheyrandi takmarkanir á öll- um sviðum innflutnings og af- leiddi það ýmsa iðnaðarstarfsemi sem vafasöm má teljast, enda mörg sú starfsemi nú liðin tið. Hin síðustu ár hafa verið þjóð- inni hafstæð gjaldeyrislega séð og stöðugt rýmkandi innflutningur er á margan hátt lyftistöng þessa nú stærsta atvinnuvegar okkar. Nú getur iðnaðurinn sem aðnr atvinnuvegir flutt inn vélar, tæki og hráefni þaðan sem hagkvæm- ast er, en á tímum haftanna og gjaldeyrisskortsins háði það oft gæðum og magni iðnaðarfram- leiðslunnar að það var ekki hægt. Ef allt væri með felldu ætti hér nú að ríkja blómaskeið í íslenzk- um iðnaði. En því miður _ er ekki svo á mörgum sviðum. Ástæður þess eru margar og vil ég nú reyna að rekja þær helztu. Þar tel ég fremsta í flokki vera fjármagns- skortinn. Það er ekki nóg að hafa beztu fáanleg tæki, starfsfólk og jafnvel hið ákjósanlegasta hús- næði, fjármagn bæði til fjárfest- ingar og reksturs er jafnnauðsyn- legt. Mörg íslenzk iðnfyrirtaeki hafa byggt upp á óeðlilegan hátt vegna þessa, húsnæði hefur orðið að notast við þótt óhentugt væri reksturslega og viðbyggingar orð- ið til í smástökkum. Mér er kunn- ugt um fyrirtæki, þar sem auka mætti framleiðni um 20—30% án þess að auka vélakost eða fjölda starfsfólks, ef hentugt húsnæði fengist, þar sem framleiðslurás og fyrirkomulag véla og verksvæða væri hægt að hafa á hinn hag- kvæmasta hátt. Ennfremur hefur oft orðið að notast við gamlar og úreltar vélar, þar sem fjár- magnsskortur háir endurnýjun og kemur þetta niður á framleiðsl- unni, bæði gæðalega og fram- leiðslulega séð. Þá er enn einn Þrándur í Götu vegna fjármagnsskortsins, en það eru innkaup hráefna. Oft er hægt að ná hagkvæmari innkaup- um á hráefnum ef keypt er mik- ið magn í einu, en ef handbært fé er ekki fyrir hendi þegar að greiðslu kemur, er til lítils unn- ið að seilast eftir því. Auk þess getur það verið tvíeggjað að binda mikið fjármagn í hráefnum eins og vöxtum er nú háttað. Greiðslufrestur hjálpar ætið nokk- uð þó kostnaðarsamur sé því ætíð líður lengri og skemmri tími frá móttöku hráefnis þar til það er orðið að fullunninni vöru er get- ur farið að skila því fé, er til framleiðslu hennar var lagt. End- urkaup vöruvixla, sem aðrir at- vinnuvegir hafa aðgang að, gætu hér mikið hjálpað. Enn er eitt og ekki hvað sízt, sem gerir fjármagnsaðstöðu iðn- fyrirtækja erfiða, en það er álagn- ing hinna opinberu gjalda. Ég hlýt að fullyrða, að í engu sið- uðu þjóðfélagi öðru geti pað átt sér stað að opinber gjöld af rekstri fyrirtækis fari fram úr hagnaðin- um, en þetta á sér stað á hverju ári hjá fjölmörgum fyrirtækjmn. Það getur ekki talizt rétt ne sann- gjarnt að vissir liðir opinberra gjalda ársins áður séu skoðaðir sem tekjur á rekstur næsta árs, né heldur vissir liðir sem lagðir eru á án nokkurs tillits til hvern- ig reksturinn gengur. Eðlilega há- ir þetta allri fjármagnsmyndun rekstursfjár auk þess sem verð- bólgan og minnkandi kaupmáttur krónunnar gerir það litla rekturs- fé, sem fyrir er, ennþá minna virkt. Kemur þetta harðast niður á smærri fyrirtækjum þar sem óbeinn kostnaður er oft hlutfalls- lega hærri en hjá þeim stærri, og verður til þess að þau hjakka í sama farinu, þróast ekki, eða jafnvel dragast saman. En erfiðleikar iðnaðarins eru ekki aðeins á fjármagnssviðinu, sem þó er grundvallarsvið, held- ur og á sviði starfskrafta. Mikill skortur er á æfðu og hæfu starfs- fólki í iðnaðinum og allt of mik- ill dýrmætur framleiðslutími fer í þjálfun þess og æfingu sem svo því miður of oft nýtur ekki nema stutt. Sífelldar kröfur um aukin laun og fríðindi eru gerðar til at- vinnuveitenda, en fátt boðið á móti, og engin trygging er það fyrir atvinnuveitanda þótt maður sé fastráðinn. Jafnvel þótt hann mæti til vinnu í upphafi, sem ekki er alltaf, getur hann verið og er oft horfinn án nokkurrar viðvör- unar einn góðan veðurdag. Mér er kunnugt um allstórt fyrirtæki þar sem mannaskipti eru nokkuð tíð, að þegar auglýst er eftir starfsfólki berst mikið af fyrir- spurnum og umsóknum. Oft er fyrsta spurningin ekki hve hátt kaup sé greitt, heldur hve mikið Björn Sveinbjörnsson. sé ekki gefið upp til skatts, og þeg ar upplýsist að ekki sé um slikt að ræða, er áhuginn búinn. Þetta fyrirtæki fastræður oft allt að 10 manns, er hefja eiga störf á ákveðnum degi. Er sá dagur renn- ur upp hafa aðeins 5 mætt til starfa og eftir 2—3 vikur eru varla meir en 1—2 enn að störf- um, sem þá gjarnan ílendast nokk urn tíma. Hinar gífurlegu kauphækkanir s.l. ár, hafa ekki aðeins verið krónulegar, heldur og í formi vinnutímastyttingar, sem í sjálfu sér þyngir ekki pyngju starfs- mannsins en léttir pyngju vinnu- veitandans. Við íslendingar getum nú státað af því að hafa stytztan vinnutíma á Norðurlöndum og þó víðar væri leitað, sláum jafnvel Svíum við, sem eðlilegt er, þar sem þeirra iðnaður er ekki líkt því orðinn eins háþróaður og fuil- kominn og okkar, og ætla má að vinnutimi eigi að vera í réttu hlut- falli við þróunina. Hjá iðnverka- fólki er raunverulegur vinnutími nú 41 klst. á viku, þegar 12 20 mín. kaffitímar hafa verið dregn ir frá, en þannig er vinnutími reiknaður annars staðar. Greiddir eru 45 tímar, og jafnvel þótt ekki sé unnið á laugardögum, verður að greiða tvo laugardagskáffitíma, Þá eru hér ekki nema 13 lögskip- aðir og umsamdir frídagar á full- um launum og að viðbættu 21 dags orlofi er vinnutíminn þeirra, er ekki vinna á laugardögum orð- inn 260 dagar á ári. Ekki þarf neina sérfræðinga til að sjá hve hér er pottur brotinn. Enginn góður atvinnuveitandi vill ekki greiða starfsfólki sínu góð laun, en hann verður líka að 'aka tillit til þess hvað rekstur hans þolir á því sviði, því endalaust er ekki hægt að láta kauphækkanir koma niður á viðskiptavinum, án þess að úr sölu dragi. Eftir þessa raunarollu flýgur sjálfsagt mörgum í hug, hvort nokkurt vit sé í að reka iðnað hér við þessi skilyrði, og oft hafa heyrzt raddir, jafnvel á op- inberum vettvangi, um að iðnað- ur hér eigi engan rétt á sér og allt eigi að kaupa inn fullunnið. Til að svara þessu, verður að staldra eilítið við og líta í kring- um sig, bæði langt og skammt. Við íslendingar erum fámenn þjóð í hráefnasnauðu landi og okk- ar eina stóra auðlind, fiskimiðin í kringum landið, hefur gert okk- ur kleift að búa hér við sívaxandi velmegun og þægindi, þar sem aukin veiði með nýtízku tækjum afiar okkur svo til alls gjaldeyris okkar. Reynslan hefur sýnt að gjafmildi sjávarins er stopul og sífellt verða háværari raddir um ofveiði og rányrkju, og því rétt og viturlegt að vera ekki of háð einum atvinnuvegi. Gott er að afla gjaldeyris, en ekki er síðra að spara það, er af honum aflast og þar er eitt af hlutverkum iðnaðarins. Að vísu þurfa flestar greinar hans nokk- urn gjaldeyri til reksturs síns, en verðmætamyndun og aukning þjóðartekna er þar þyngra á met- unum. Hér að framan var minnst á hráefnasnautt land. Víst er svo, að landið okkar er hráefnasnautt, er borið er saman við mörg önn- pr lönd, en það þýðir ekki að 'við eigum engin hráeni. En þau fáu, sem við eigum, hvernig nýt- um við þau? Stærstur hluti út- flutnings okkar er hráefni. til frek- ari vinnslu og verðmætasköpunar annars staðar, saltsíldin, lýsið, mjölið o.m.fl. Frá landbúnaðinum eru fluttar út gærur og ull sem hráefni, þótt á því sviði vaxi notkun innlendrar framleiðslu á þeim vörum hröðum skrefum. Hér má mikið um bæta og tak- markið ætti að vera að engin hrá- efni væru flutt út, aðeins tilbúin vara til neytenda. • , Ein er sú auðlind íslenzk, sem lítt hefur enn verið ausið úr. Á ég þar við fallvötnin okkar, sem enn eru ekki nema að litlu leyti virkjuð, en hafa þó þegar gert núverandi iðnað mögulegan. Fyr- ir 10—15 árum var það álit margra að við hefðum misst af strætis- vagninum á sviði vatnsorkuvirkj- ana, því að á næsta leiti væri kjarnorkuframleidd raforka jafn ódýr eða ódýrari en raforka fram- leidd með fallvatnsorku. Reyndin hefur orðið sú að lækkun kjarn- orkurafmagns hefur orðið mun hægari en ætlað var, og 1 er því enn tækifærið að nýta þessar auð- lindir okkar, og það verður að gerast sem fyrst. Fjármagn til þess er vafalaust ekki til í land- inu, og er þá ekkert eðlilegra en leita út fyrir landsteinana. Að því kemur að kjarnorkurafmagn verður ódýrara og þá verðum við að vera búnir að virkja sem mest af fallvötnum okkar. Tíminn er hér mikið atriði. En er þörf svo mikillar raf- orku? Vissulega^ Raforka er und- irstaða allrar framleiðslustarfsemi og áætlanir undanfarandi ára um orkuþörf þjóðarinnar hafa reynzt of varlegar. Auk þess gefur næg raforka nýjum iðnaði byr undir báða vængi, sér í lagi stóriðju, sem er eina líklega leiðin til út- flutnings iðnaðarframleiðslu. Allar þær þjóðir erlendar, sem teljast háþróaðar eiga háþróaðan iðnað. Þegar talað er um van- þróuð lönd er oftast átt við frum- stæðan iðnað, þótt einnig þá líka sé átt við landbúnað og fiskveið- ar. í augum útlendinga erum við oft talin vanþróuð þjóð, og ekki getur þá verið átt við landbúnað né fiskveiðar .Öllum hagvísinda- mönnum ber saman um, að til að tryggja sem mest jafnvægi í þjóð- arbúskap hvers lands, þurfi at.- vinnugreinarnar og framleiðslu- þættirnir að vera sem fjölbreytt- astir, og afkoma þjóðarbúsins byggist ekki aðallega á fáum ein- hliða atvinnuvegum. Enn er sú ástæða í gildi, að veita og skapa þurfi atvinnu. Kemur það spánskt fyrir, þegar alls staðar er skortur starfsfólks. En það hlýtur að vera tímabund- ið, vaxandi vélakostur og fram- leiðni eykur ekki starfsmannaþörf í sama hlutfalli og hvert eiga þau 2500 er nú bætast árlega við vinnu markað okkar að snúa sér? í dag stendur íslenzkur iðnaður á tímamótum. Vaxandi frelsi í ut- anríkisviðskiptum setur hann í að- stöðu, sem hann ekki hefur verið áður í, síðan honum fór að vaxa fiskur um hrygg. Hvernig hann bregzt við þeim vanda, er óséð enn, en búast má við að sums staðar þrengi að. Sá iðnaður er- lendur, sem notast við nýtízku fjölframleiðslutækni og notfær- ir sér hagræðingu og sjálfvirkni út í æsar, á auðvelt með að keppa hvar sem er. Því er okkur stakk- ur skorinn, sem framleiða fyrir innlendan markað eingöngu að nútíma framleiðslutækni verður ekki við komið, nema í smáum stíl. Öðru máli gegnir um stór- iðjuna. þar á að vera hægt að koma öllu hinu fullkomnasta við og bæta þannig samkeppnisað- stöðuna. Staðreyndin er sú, að eft- ir því sem virkjanirnar, flutninga- tækin og verksmiðjutækin verða stærri og afkastameiri, verður ein- ingarkostnaður lægri. Því ber okk- ur að hugsa stórt, sérstaklega á því sviði. Annað vegur nú að íslenzkum iðnaði, en það eru sí háværari raddir um þátttöku íslands í EFTA, fríverzlunarbandalagi Ev- rópu, með tilheyrandi niður fellingu tolla og útvíkkun mark- aða. Fyrir örfáum árum hefði sú ráðstöfun á margan hátt getað verið iðnaðinum nagstæð. en á skammri stundu skipast veður í lofti og í dag gæti það riðið ís- lenzkum iðnaði að fullu, eins og aðstæður eru. Heilbrigð sam- keppni á jafnréttisgrundvelli er holl og nauðsynleg hverri fram- leiðslu, en íslenzkur iðnaður er ekki í dag jafnréttur erlendum Ég hef nú stiklað á sjö mílna skóm um vitt efni. Vona ég að engin taki orð mín svo, að ég sé svartsýnn um framtíð íslenzks iðn aðar, eða jafnvel telji hann feig- an. Síður en svo. Ég hef reynt að benda á það sem miður er og hef fulla ástæðu til að vera bjart- sýnn um að það lagist. Eitt er það tæki, sem ég hef ekki minnst á, og verður allri íramleiðslustarf- semi lyftistöng til aukinna fram- leiðni, en það eru vinnurannsókn- ir og hagræðingarvísindi. Með virkri notkun og aðhæfingu þeirra er framtíð íslenzks iðnaðar trygg á sviði sjálfrar framleiðslunnar Ég gleðst yfir samningi þeim, sem Framhald á bls. 22. •*

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.