Tíminn - 03.04.1966, Síða 1
24 síður
Gerizt áskrifendur að
Tímamim.
Hringið í síma 12323.
HOFNUM OHAGSTÆÐUM
FORRÉTTINDASAMNINGI
„Með samningi þessum yrði hleypt inn í
landið sterku erlendu auðfélagi, sem
nyti mikilla sérréttinda umfram lands-
menn sjálfa," sagði Eysteinn Jónsson
formaður Framsóknarflokksins við
fyrstu umr. um álsamninginn á Alþ. í gær
AK—Reykfavík, laugardag.
Á fundi neðri deildar Alþingis kl. tvö í gær var frumvarp
ríkisstjórnarinnar um löggildingu samningsins við Swiss Al-
uminium um erlenda álbræðslu í Straumsvík við Swiss Al-
til hennar tekið til fyrstu umræðu, og fylgdi Jóhann Haf-
stein því úr hlaði með langri ræðu, þar sem hann gerði
grein fyrir aðalatriðum samninganna og taldi fram röksemd-
ir sínar fyrir þeim hag, sem hann teldi íslendinga hafa af
álbræðslunni með þeim kjörum, sem samið hefur verið um.
Lagði hann síðan til, að málinu yrði vísað til sérstakrar
nefndar, sem Alþingi mundi kjósa í málinu.
Næstur tók Eysteinn Jónsson til máls. Kvaðst hann fyrst
vitja gagnrýna |>ann hátt, sem ríkisstjórnin hefði á þessu
máli, að leggja fyrir Alþingi samning, sem hún hefði þegar
gert og undirritað. Með því væru þingmenn stjórnarflokk-
Eysteinn Jónsson tlytur ræSu sína á Alþingi í gær um álsamninginn.
Timamynd—GE.
KOMID ER HEITT
anna miklu háðari við fjöllun um málið, og þeim væri raun-
ar með þessu stillt upp að vegg og látnir standa frammi fyrir
gerðum hlut stjórnarinnar. Kvaðst Eysteinn telja þennan
hátt mjög ámælisverðan og mundi stjórnin gera þetta af
ákveðnum ástæðum.
f ræðu sinni benti Eysteinn m. a. á eftirfarandi staðreyndir.
kk Mörg þúsund millj. fjárfesting erlendra aðila verkar eins og olía
á verðbólgueldinn.
■A-A" Margar leiðir eru opnar til þess að gera atvínnulífið fjölbreyttara á
vegum fslendinga sjálfra og fæstu af því er hægt að koma í fram-
kvæmd vegna manneklu. Skortir því sízt verkefnin.
kk Hinar fyrirhuguðu stórframkvæmdir erlendra aðila ryðja til hliðar
íslenzkum atvinnurekstri og lífsnauðsynlegum opinberum franikvæmd
um landsmanna sjálfra.
ick Með samningi þessum yrði hleypt inn í landið sterku erlendu auð-
félagi, sem nyti fjölmargra sérréttinda um fram landsmenn sjálfra.
VATN A HÚSAVÍK
ÞJ—Húsavík, laugardag.
Merkur áfangi hefur nú náðst
í tilraunum Húsvíkinga til þess að
finna heitt vatn. Hafa nú fcngizt
að meðaltali 5.4 1. sek. af tæru
og lyktarlausu heitu vatni úr 1506
metra djúpri holu á Húsavíkur-
höfða. Má búast við, að með stór
virkari dælum megi fá úr holunni
um 8. l.sek. af heitu vatni, en
vatnið er 94 stiga heitt. Myndi
það magn fullnægja þörf bæjar
búa að fjórða hluta.
Undanfama daga hafa menn frá
Jarðborunardeild Raforkumála-
stjórnar verið að prufudæla stóru
borholuna á Húsavíkurhöfða, en
hún er 1506 m djúp. Dæla sú, sem
notuð er, getur dælt 5—6 sekúndu
lítrum. Síðan kl. 4 í gærdag haía
dælzt úr holunni 5.4 sekúndulítrnr
af 94 stiga heitu vatni. Virðist
rennsli stöðugt og má treysta því,
að dómi mælingamanna, að þetta
sé lágmarksdæling. Með stórvirk
ari dælu m.ætti fá meira magn
upp. Vatnið er hreint og lyktar-
laust.
Árið 1963 var boruð 1506 metra
djúp hola á þessum stað. Berg
hiti reyndist 94 gráður á um 300
m- dýpi, læikkaði lítið eitt niður
í 5—600 m dýpi, en hækkaði síð
an aftur og náði hámarki um 110
stig á 1100 m dýpi. Hitamæling
náði niður í 1300 m dýpi, en
líkur benda til þess, að bofcnhiti
holunnar sé um 100 stig C, en það
er um það bil eðlilegur hiti á
því dýpi. Líkur eru því á, að vatn
ið komi inn í holuna á innan við
300 m dýpi.
í samtali, sem blaðið átti við
Áskel Einarsson, bæjarstjóra á
Húsavjk, sagði hann, að samkvæmt
áætlunum Sigurðar Thoroddsen
frá 1958 væri gert ráð fyrir, að
Framhald á bls. 11.
ick Engar líkur eru til þess, að samningur þessi leiði til lægra raf-
orkuverðs í landinu, þegar fram í tímann er litið, og Búrfellsvirkjun
án alúmínvers er hagstæðasta virkjun sem fslendingar hafa nokkru
sinni átt kost á.
■kk Stórfelld erlend fjárfesting þar sem þenslan í landinu er mest,
magnar byggðavandamálið og gerir það hættulegra en nokkru sinni
fyrr. Breytir það ekki þessari staðreynd, þótt verja eigi nokkrum
milljónatugum árlega framvegis til framkvæmda út um land, en þær
ráðstafanir eru aðeins brot af því, sem gera hefði þurft, þótt engin
stóriðja á þéttbýlissvæðinu kæmi til.
kk Samningur þessi hefur inni að halda ákvæði, sem jafngildir niður
lægjandi vantrausti á íslenzkum dómstólum og íslenzkri réttargæzlu
og er því vansæmandi fyrir þjóðina. Framhald á 11. síðu
Sex læknar hættir
FB—Reykjavík, laugardag.
Fyrirsjáanlegt er, að mjög alvar
legt ástand verður orðið í lækna
málum ríkisspítalanna hér í
Reykjavík um miðjan aprilmánuð.
Nú hafa sex læknar sagt upp og
hætt störfum á aLndsspítalanum,
fæðingardeildinni og Rannsóknar
stofu Háskólans, og uppsagnir
nokkuð fleiri ganga í gildi fyrir
miðjan mánuðinn, en alls hafa 18
læknar sagt upp starfi hjá rikis
spítölunum.
Blaðið sneri sér í dag til Georgs
Lúðvíkssonar framkvæmdastjóra
Ríkisspítalanna, og sagði hann, að
í dag væri einn læknir hættur á
fæðingardeildinni, einn á Rann-
sóknarstofu Háskólans, tveir á
lyflæknisdeild Landsspítalaus og
tveir á handlæknisdeild. Næsta
uppsögn tekur gildi 7. apríl, og siS
an svo til hvern dag þar á eftir
fram að miðjum mánuði. Verður
þá stórt skarð höggvið í lið læikns
ríkisspítalaniia.
Fjörutíu læknar hafa verið sitart
andi á Landsspitalanum, en nú þeg
ar uppsagnir hafa tekið gildi, hef
Framhald á 11. síðu