Tíminn - 03.04.1966, Qupperneq 3
í SPEGLITÍMANS
SUNNtTDACfUR 3. apríl 1966
TÍMINN
Enska hljómsveitin „Rolling
Stones" fór nýlega i hljóm
leikaför til Belgíu, og þegar
hún kom til Brussel hitnaði
heldur betur í glæðunum hjá
aðdáendum hennar. Hér sést
einum hljómsveitarmann-
anna komið inn í bifreið eftir
að hafa sloppið frá hinum blóð
heitu aðdáendum sínum.
Þegar Indira Gandhi, forsæt- kom í boðið ásamt dóttur sinni
isráðherra Indlands, var í Luci, sem fylgdi honum í stað
Washingíon á dögunum, hélt forsetafrúarinnar, sem var
hún samkvæmi fyrir ýmsa fyrir veik. Luci er lengst til vinstri
menn í indverska sendiráðinu og hjá henni sendiherrafrúin
í borginni. Johnson forseti indverska í Washington.
Philip prins, eiginmaður
Bretadrottningar, er nú kom-
inn heim úr tveggja vikna ferð
Kanada og Bandaríkjanna.
Þegar hann kom heim, hélt
hann fund með blaðamönnum
og hefur margt af því, sem
hann sagði þar komið Bretum
mjög á óvart, svo að ekki sé
sagt, að það hafi hneykslað þá.
Annars hefur hegðun prinsins
f ferðinni allri vakið allmikla
athygli. í Bandaríkjunum hafði
hann fund með sjónvarps- og
útvarpsmönnum og ræddi
hann þar ýmislegt á breiðum
grundvelli, en þegar því var
lokið, ræddi hann einslega við
mann nokkurn, sem þarna var
staddur. Útvarpsfréttamaður,
sem þarna var staddur, sá sér
leik á borði og kom hljóð-
nema fyrir í námunda við
prinsinn sem brást ofsareiður
við, þegar hann varð þess var,
og sagði: Þarna er eitt af þess
um fjandans tækjum enn.
Á blaðamannafundinum í
London átti hertoginn fyrst að
tala við fréttamenn frá BBC
sjónvarpinu, og siðan átti
hann að svara spunringum
blaðamanna og láta taka af sér
myndir. Þegar starfsmenn sjón
varpsins ætluðu að hefja störf
sín, bilaði ljósmyndavél BBC
og lét Philip prins þegar í stað
í ljósi óþolinmæði sína og
sagði: Eftir hverju erum við
að bíða? Því næst sagði hann,
að hann skyldi svara spurn-
ingum blaðamanna, og BBC
gæti beðið. Þegar blaðamenn-
irnir höfðu lokið við að tala
við hann, var honum sagt, að
blaðaljósmyndarar væru fyrir
utan og biðu eftir að fá að
taka af ‘honum myndir.
— Hvað í heitasta helvíti
hafa þeir verið að gera meðan
ég sat hér? spurði hann þá.
Ljósmyndararnir höfðu beðið
eftir að fá leyfi til þess að ljós
mynda eiginmann drottning-
arinnar, sem síðar kvartaði yf
ir því, að þeir vildu helzt taka
myndir af honum aftan frá.
Þess má einnig geta, að
danskir blaðamenn hafa einn
ig kynnzt þessari hlið Philips.
prins. Þegar hann var í Dan
mörku fyrir nokkrum árum
kom hann meðal annars í svína
tilraunabú. Ljósmyndararnir,
sem voru í fylgd með honum
báðu hann að taka lítinn grís
upp, svo að þeir gætu fengið
góða mynd af honum. Færðist
prinsinn í fyrstu undan því, en
tók að lokum einn grís upp
með mikilli fyrirlitningu og
sagði við ljósmyndarana: Hér
hafið þið einn af ykkar sauða
húsi.
¥
Ung frönsk saumakona, Aim
ee Quittay að nafni, er allt
í einu orðin milljónamæring
ur. Forsaga þess máls er sú,
að eitt sinn var hún gift bif-
reiðastjóra egypzku prins-
essunnar Kemel el Dine. Þegar
Aimee og maður hennar
skildu, kenndi prinsessan í
brjósti um hana og hún kom
oft í búð hennar og keypti
kjóla og eitt sinn sagði hún
Aimee, að hún skyldi muna eft
ir henni í erfðaskrá sinni. Aim
ee tók ekki mikið mark á þess
um orðum prinsessunnar og
hefur ekki séð hana oft nú sið
ustu árin.
En Kemal el Dine prinsessa
hafði ekki gleymt loforði sínu.
Þegar erfðaskrá hennar var
lesin, kom í ljós, að hún hafði
arfleitt frönsku saumakonuna
að 30 milljónum franka. (ca.
270 milljónir ísl. kr.)
Þetta er leikkonan Mollie
Peters, sem lék stórt hlut
verk í síðustu James Bond,
myndinni „Thunderball" stödd
á flugvellinum í Lundúnum og
bíður eftir flugvél, sem á að
flytja hana til Parísar, en þar
á hún að leika trúð í hring-
leikahúsi og ágóðinn
til góðgerðastarfsemi.
rennur
Það var ekki neinn venju-
legur búðarþjófur, sem kom
fyrir rétt í London fyrir
skemmstu og var dæmdur í sex
mánaða fangelsi fyrir að hafa
stolið postulíni súkkulaði og
matvörum fyrir 100 krónur.
í janúar sl. var hin fertuga
frú Sylvia Pearl ráðin sem
leynilögregla í stórbúð einni.
Sama dag og hún var ráðin,
stal hún áðurnefndum vörum,
eftir að hafa tekið fastar þrjár
manneskjur, sem stolið höfðu
úr búðinni.
Þegar dómur féll í þessu
máli, leið yfir eiginmann henn
ar og varð að bera hann út.
Lögreglumaður einn, sem
var viðstaddur réttarhöldin
sagði, að Sylvia hefði sagt við
lögregluna, þegar hún var tek
in föst: --- Þegar ég gekk um
verzlunina, sá ég, hve auðveld
lega aðrir komust frá þessu.
Hvers vegna ætti ég ekki íika
að gera þetta?