Vísir - 16.09.1974, Blaðsíða 9

Vísir - 16.09.1974, Blaðsíða 9
Vlsir. Mánudagur 16. september 1974. 9 Valsmenn leika í York — eftir leikinn við Portadown í UEFA-keppninni Fyrri leikur Vals og irska liðsins Portadown i UEFA keppninni fer fram á Laugardalsvellinum á morgun og hefst kl. 17,30. Síðari leikur liðanna fer svo fram ytra þriðjudag- inn 1. október og eru Vals- menn þegar farnir að undirbúa þá ferð. Þeir hafa haft samband við Ýork City, sem leikur i 2. deild á Englandi og var hér i heimsókn i boði Vals og Þróttar i vor. Buðu Jórvikurbúarnir þeim að leika við þá aukaleik, þegar þeir koma frá leiknum á Norður-trlandi. Vilja þeir með þvi endurgjalda móttökurnar sem þeir fengu hér á landi, en þeir áttu ekki nokkur orð til að lýsa ánægju sinni með allt, sem fyrir þá var gert hér. Mun sá leikur fara fram á aðal- leikvelli York City mánudaginn 7. október, en daginn eftir munu svo Valsmenn horfa á viðureign Manchesterliðanna — City og United i deildabikarkeppninni. — klp — Náttúrulega C vítamín! í öllum appelsínum er C-vitamín, þess vegna er mikið af C-vifamín í Tropicana. í Tropicana eru aðeins notaðar ferskar appelsínur ræktaðar í Flórída. í hverju glasi (200 gr.) af Tropicana eru 400 alþjóðaeiningar af A-vitamíni, 80 mg. af C-vitamíni og ekki meira en 100 hitaeiningar. Drottmngarhesturinn bróst eiginmanni prinsessunnar! Kapteinn Mark Phillips, Bret- landi, — eiginmaður önnu prin- sessu — varð af gullverðlaunun- um í heimsmeistarakeppninni i reiðmennsku, þegar hestur hans, Columbus, tognaði á fæti og var ekki keppnisfær siðasta daginn. Keppnin — þriggja daga mót — var háð i Burghley á Engiandi og lauk i gær með sigri Bandarikja- manns, Bruce Davidson frá West- port i Massachusetts. Mark Phillips hafði góða for- ustu eftir keppniná á laugardag — sýndi þá afburðahæfni i viða- vangshlaupi. Hann þurfti ekki nema sæmilega frammistöðu i stökksýningunni I gær til að hljóta sigurlaunin. En hestur Elizabetar drottning- ar, Columbus, var óhæfur til reið- ar vegna tognunarinnar — og hin öruggu gullverðlaun, Marks urðu að cngu. Afstaða drottningarinn- ar réð þar úrslitum — hún vildi ekki, að hesturinn héldi áfram i keppninni, þar sem hin erfiða stökkkeppni hefði getað riðið hon- um að fullu. Gullið féll þvi I skaut hins 24ra ára Davidson og annar varð Michael Plumb, USA. Sam- an unnu þeir sveitakeppnina. Anna prinsessa var meðal þátt- takenda og varð í 12. sæti. Það leynir sér ekki Q) —s CQ C co sólargeislinn frá Florida skólaórið er að hefjast. Það hefst d hverju hausti hjó okkur eins og hjd ykkur. Hjd ykkur: Nýjar nómsgreinar, nýjar bækur, ný óhöld. Hjó okkur: Nýjar sendingar af gömlu góðu skólavörunum og nýjungum í meira úrvali en nokkru sinni fyrr. Ein ferð í einhverja af þrem verzlunum Pennans nægir, — þar fdst allar skólavörurnar, sem þið þurfið að taka með í skólann, — og meira til! Hafnarstræti 18 Laugavegi 84 Laugavegi 178 ■ ■■ —i ■ ■ Fengu 250 þúsund Hreppsnefnd Ólafsvikur færði sigurvegurunum i 3. deild — Ungmennafél. Vikingi i óiafsvik — nýlega 250 þúsund kr. sem þakk- lætisvott fyrir sigurinn og þann áhuga, sem hann hefur skapað I byggðarlaginu. Þetta kemur sér vel fyrir Vikinga, þegar þeir keppa i 2. deildinni næsta sumar. Nýlega er lokið Bikar- keppni Snæfellsness, svo og héraðsmótinu þar i knatt- spyrnu. Vikingur sigraði I báðum mótunum — meira að segja i öllum flokkum hér- aðsmótsins, en úrslitaleikur inn I 5. flokki hefur þó enn ekki verið háður. Árangur þjálfarans frá Selfossi, Gylfa Þ. Gislasonar, hefur verið mikill i Ólafsvlk — og það er nú ákveðið að hann verði þjálfari þar áfram næsta sumar. -hslm.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.