Vísir - 16.09.1974, Page 10

Vísir - 16.09.1974, Page 10
Vísir. Mánudagur 16. september 1974. Visir. Mánudagur 16. september 1974. Umsjón: Hallur Símonarson Verða engir er- lendir þjálfarar hér nœsta sumar? Þá verður kostnaðurinn við hvern þjálfara ekki undir tveimur milljónum króna Flestir erlendu þjálfararnir, sem hér hafa starfað i sumar með 1. og 2. deildar- liðunum i knattspyrnu, eru nú farnir heim aftur. Þeir siðustu, Kirby, sem var með Akranesliðið og Sanders, sem var með Vikingana, halda utan i þessari viku, og eru þeir þá allir farnir. Þeir hafa flestir fengið eitt- hvert starf við knattspyrnu i sin- um heimalöndum, t.d. mun Sanders taka aftur við þjálfun Altringham FC, sem er eitthvert bezta lið Englands, sem leikur Róku Israel úr Asíusambandinu A þingi knattspyrnusambands Asíu i Teheran á laugardag var samþykkt tillaga frá Kuwait þess efnis, að Israel yrði i fram- tiðinni útilokað frá öllum knatt- spyrnumótum sambandsins — svo og aö haida mót á vegum þess. Þessi tiliaga var sam- þykkt með 17 atkvæðum gegn 13 — en fulltrúar sex landa voru fjarverandi. Fyrr á þinginu var fellt — einnig að tillögu Kuwait — að veita Astraliu aðild að Asiusambandinu. Hins vegar var sú tillaga samþykkt, að Kina tæki sæti Taiwan (For- mósu) í Asiusambandinu. 1 gær var keppt til úrslita i knattspyrnunni á sjöundu Asiu- leikunum. Þar kom á óvart, að íran sigraði Israel með 1-0 i úr- slitaleiknum til mikillar gleði fyrir 100 þúsund áhorfendur á leikvanginum i Teheran. Eina mark leiksins var sjálfsmark israelska varnarmannsins Itzhak Shum. íran hafði yfir- burði I leiknum, en gekk illa að skora — og lið ísrael fékk ekki nema eitt tækifæri i leiknum, sem var misnotað. Israel fékk nokkra sárabót i gær, þegar lið þess sigraði i körfuknattleik leikanna, og Esther Rot vann þriðju gullverðlaun sin i frjáls- um iþróttum. Sigraði þá I 100 metra hlaupinu. Keppt var til úrslita i borð- tennis i gær og Kina hlaut þar sex gullverðlaun af sjö mögu- legum. Vann i báðum einliða- leikjunum — Liang Ke-liang i karlaflokki og Chang Li i kvennaflokki. Leikunum verður slitið i dag — lokakeppnin var i gær. Japan hlaut flest verðlaun — 75 gull, 50 silfur og 51 brons, en það er mun minna en Japan hlaut á Asíu- leikunum fyrir fjórum árum i Bangkok. Iran var i öðru sæti hvað verðlaunapeningum við- kom — og sigraði i mestu ,,sýn- ingargreininni” — knattspyrn- unni. I þriðja sæti kom Kina, sem nú tók þátt i alþjóðakeppni I iþróttum I fyrsta skipti i rúm tuttugu ár. Borðtennis, badmin- ton og fimleikar voru aðalgrein- ar kinverska iþróttafólksins. utan deildanna, og heyrzt hefur að Kirby fái góða stöðu hjá ein- hverju þekktu liði i Englandi. Enginn erlendu þjálfaranna, sem hér vöru i sumar, hafa gert nýja samninga við islenzk félög, enda er vafasamt að nokkurt þeirra hafi efni á þvi að hafa er- lendan þjálfara næsta ár. Eftir gengishækkunina á dögunum hefur allur kostnaður við að hafa erlendan þjálfara rokið upp úr öllu valdi, og er að- eins á færi þeirra fjársterkustu, að leggja út i slikt. Þegar þeir voru ráðnir hingað s.l. vetur, var sterlingspundið á um 190 krónur — allir samningar voru þá miðaðir við þann gjald- miðil — og nú er pundið komið upp I um 270 krónur, og einnig orðið dýrara að halda þeim uppi með fæði og húsnæði, þar sem kostnaður allur hefur aukizt. Er ekki fjarri lagi að áætla, að það kosti hvert félag a.m.k. tvær milljónir að hafa erlendan þjálfara næsta ár, og eru knatt- spyrnulið með slika fjármuni á reiöum höndum hér heima ekki mörg. -klp- Lið Ásgeirs sigraði 1 sjöttu umferð belgisku deilda- kcppninnar i knattspyrnu vann Standard Liege — liöið, sem As- geir Sigurvinsson lcikur með — góðan sigur á heimavelli.Vann þá Charleroi með 3-1. Antweroen og Anderlecht gerðu jafntefli án þess mark væri skorað i leiknum. 1 Vestur-Þýzkalandi eru Evrópume i s t arar Bayern Munchen — með sex heims- meisturum — að ná sér á strik eftir siæma byrjun. Bayern vann þá Köin með 6-3. Borussia Mönchengladback vann góðan sigur á útivelii — 3:1 gegn Kaiserslautern. 1 fyrsta sinn i 15 ára sögu Bikarkeppni KSt var svolftill hátiðarbiær yfir úrslita- leiknum i þessu mikia móti, sem nú fór Iannaösinn fram á Laugardaisvellinum. Fyrir leikinn lék lúðrasveit fyrir hina fjöimörgu áhorfendur og hélt einnig uppi skemmtun i hálfleik. Hún stóð vel fyrir sinu, þótt ólikt hefði það samt verið skemmtilegra, ef hljóðfæraleikarar hefðu gengið um vöilinn i stað þess að standa i sömu sporum á hlaupabrautinni allan timann. Eftir aö ieikmennirnir höfðu raðað sér upp fyrir leikinn, kom forsætísráðherra Geir Hallgrimsson, inn á völlinn og heiisaði öllum leikmönnunum, en sfðan var þjóðsöngurinn leikiun. i ieikslok afhenti forsætisráðherra ásamt varaformanni KSÍ, Jóni Magnússyni, Valsmönnum bikarinn og ieikmönnum beggja liða verðlaunapening til minningar um leikinn. Ahorfendur gerðu góðan róm aö þessari tilbreytingu, enda fór ailt mjög vel fram, nema hvað einn leikmanna Akranesliðsins tók tapinu illa og hijóp snúðugur inn f búningsklefa áður en afhendingin fór fram. Þótti mörgum af hinum dyggu aðdáend- um liðsins það heldur ófþróttamannslega gert af honum. -klp- Nú vor svipur ó úrslitaleiknum! Bikarmeistarar Vals 1974 ásamt Þórði formanm og Ilitchev þjálfara. Ljósmynd Bjarnleifur. Skagamenn töpuðu í sjötta sinn í úrslitum bikarsins Fengu rúmar 300 þús. fyrir leikinn! Valur og Akranes fengu dágóðan pening fyrir að komast I úrslit f bikar- keppninni að þessu sinni, enda sjaldan fleiri áhorfendur komið til að horfa á úr- slitaieik i þcssari keppni. Alls greiddu um 4500 manns aðgang að Laugardalsvellinum á laugardaginn og kom þvi góður peningur inn i að- gangseyri. Þar fyrir utan kom dágóö fúlga fyrir lýsingu á leiknum I útvarpi og sjónvarpskvikmynd sem tekin var af leiknum. Félögin skiptu með sér ágóðanum og var hann eftir að allur- kostnaður haföi verið greiddur- vallarleiga.skattar og ýmislegt annað sem tinist til — liðlega I þrjúhundruð þúsund krónur á félag. Þótt þetta sé ekki neitt sérlega mikið eftir allt erfiðið við að komast i úrslitin, eru þessir peningar örugglega vel þegnir af félögunum, sem örsjaldan sjá aðra eins upphæö fyrir einn leik. Allt rennur þetta til félagsstarfsins og veitir ekki af, en þeir sem sjá fyrir þessum krónum — þ.e.a.s. leikmennirnir sjálfir fá ekkert i sinn hlut nema ánægjuna og einn litinn verðlaunapening.... Sá er munurinn aö vera áhugamaður og at- vinnumaöur i iþróttinni. -klp- Leikur Víkings og Fram ólöglegur! I gær var kveðinn upp dómur i kæru Vfkings á hendur Fram vegna þátttöku Elmars Geirssonar i siðari leik liðanna i 1. deiid, sem fram fór i sumar. Vikingarnir kærðu tii knattspyrnudómstóls KRR, sem einnig dæmdi i kæru Vals fyrr i sumar, og oft hefur verið sagt frá i fréttum. Dómstóliinn kvaö upp nákvæmlega eins dóm og kveöinn var upp I kæru Vais eða að leikurinn væri ógiidur, og bæri að leika hann upp aftur. Auk þess var Fram dæmt til að greiöa smá fjársekt fyrir að nota ólöglegan mann i þessum lcik eins og i leikn- um gegn Val. > i dómstólnum sátu Bergur Guðnason, Vilberg Skarphéðinsson og Baldur Marias- son, og skiiaði Bergur sératkvæði. Þar segir m.a. að hann telji að kæra Vikings hafi komið of seint. Kærufresturinn sé 7 dagar en ekki 30 eins og aðrir hafi viljað túika lögin. Forráðamenn Fram lögðu fram i réttinum gögn frá þeim aöila, sem útbjó lögin á sinum tima en þar kemur skýrt fram hvernig kærufresturinn hafi veriö hugsaður þegar þau voru gerð, og byggði Bergur sératkvæði sitt á þeim upptýsingum. Framarar hafa enn ekkiáfrýjað fyrri dómnum til dómstóis ISÍ, en kærufresturinn rann út nú i siöustu viku. Sóttu þeir um viku frest, en urðu að fá samþykki Vals- manna til þess, og er ekki vitaö hvernig þvi máli reiddi af. Þá hefur hcyrzt að enn stærra kærumál sé I uppsiglingu i sambandi viö keppnina f 1. deild i sumar. Er hún frá Akureyringum, sem hafa hug á að kæra allt mótiö eins og það leggur sig!! Þvi þaö hafi veriö eintóm vitieysa frá upphafi til enda. Var haft eftir einum forráðamanni þeirra á dögunum, að Akureyringar væru búnir að fá sér hæstaréttarlögmann til að vinna að þessu máli og verja þeirra rétt. -klp- 100 með Flugleiðum ú leið til Zaire! Biöö og fréttastofur leggja mikið upp úr fréttum af leik Muhammed Ali og George Foreman um heimsmeistara- titilinn I þungavigt f hnefaleikum, sem verður i Zaire i Afriku 25. september. t morgun voru 100 bandarfskir biaða- menn á Keflavlkurflugvelli — 100 þekkt- ustu iþróttafréttamenn Bandarikjanna. Flugleiðir flugu þeim frá New York i nótt og eftir stutta viðkomu á Kefla- vfkurflugvellinum var haldiö áieiðis til Luxemborgar. Þaðan fljúga biaða- mennirnir svo til Zaire. Stærstu frétta- stofurnar eins og AP voru með fjöl- mennan hóp — átta fréttamenn. Samkvæmt frétt frá Nairobi f morgun verða yfir 300 eriendir blaðamenn viðstaddir keppnina i Kinshasa og mikill undirbúningur er þar fyrir þá, svo þeir geti sagt vel frá „bardaga aldarinnar” — og hvað annað geta menn kallaö væntanlega keppni þeirra Foreman, heimsmeistara, og Ali, fyrrum heims- meistara. VERZLIÐ ÞAR SEM VARAN ER GOÐ OG VERÐIÐ HAGSTÆTT Öll okkar mólning á verksmiðjuverði STJÖRNU ★ LITIR s/f Ármúla 36 Málningarverksmiðja Sími 8*47-80 — Valur sigraði íslandsmeistarana frá Akranesi í bráðskemmtilegum úrslitaleik með fjórum mörkum gegn einu á laugardag Það tók Valsmenn ekki nema tuttugu minútur að gera draum Skagamanna um að sigra i báð- um stærstu knattspyrnumótum landsins að engu á Laugardals- vellinum á laugardaginn. Þá voru þeir búnir að skora þrjú mörk hjá tslandsmeisturunum, sem ekki vissu hvað á sig stóð veðrið frekar en áhorfendurnir, sem höfðu búizt við allt öðru. Þar með sáu Skaga- menn sina sæng útbreidda þvi bikarinn var örugglega kominn i safnið að Hliðarenda, en ekki i bikarasafnið á Skipaskaga, þar sem rýmt hafði verið til fyrir hon- um. En þetta er ekki i fyrsta sinn, sem Skagamenn sjá á eftir þess- um eftirsótta bikar til einhvers annars liðs, þvi i þau fimmtán skipti, sem um hann hefur verið keppt, hafa Akurnesingar sex sinnum komizt i úrslit — og alltaf tapað! Aftur á móti var þetta i þriðja sinn, sem Valsmenn komust i úr- slit i bikarkeppninni, og i annað sinn sem þeir fá bikarinn- i fyrra skiptið var það 1965, er þeir sigr- uðu Akurnesinga með tveggja marka mun, en nú gerðu þeir enn betur og höfðu það þrjú mörk. Fyrsta mark þeirra kom þegar á annarri minútu leiksins og var það eins og köld vatnsgusa fram- an i Skagamenn og hina fjöl- mörgu aðdáendur þeirra. Grimur Sæmundsen, einn bezti maður Vals i þessum leik, lék þá upp að endamörkum og sendi á Hörð Hilmarsson, sem renndi knettin- um áfram á Kristin Björnsson, og þessi ungi leikmaður var eldfljót- ur að koma honum rétta leið — eða i bláhornið á markinu. Ragnar Magnússon linuvöröur ruglaði menn svolitið i riminu með þvi að veifa fyrst á rangstöðu á einn Valsmanninn, sem þó eng- in áhrif hafði á leikinn, en hann sá að sér á siðustu stundu og tók nið- ur flaggið. Valsmenn létu liða rétt átta minútur þar til þeir skoruðu aft- ur. I þetta sinn var það Atli Eö- valdsson, sem vann skemmtilegt kapphlaup við Davið Kristjáns- son markvörð Akurnesinga og sendi knöttinn fram hjá honum i markið. Þriðja markið — markið sem gerði draum Skagamanna að engu — kom svo á 20. minútu, er Kristinn Björnsson sendi skemmtilega á Jóhannes Eð- valdsson, og þessi frábæri leik- maður sneri sig i gegnum varnar- vegginn og skoraði með góðu og hnitmiðuðu skoti. Akurnesingar gáfust ekki upp við þetta — a.m.k. ekki framlinu- mennirnir, og áttu fram að hálf- leiknum nokkur tækifæri. en hin fjölmenna varnarsveit Vals og Sigurður Dagsson markvörður sáu um. að það urðu aldrei annað en tækifærin ein. Valsmenn bættu við fjórða markinu fyrir hálfleik, en það var dæmt af vegna rangstöðu, sem var heldur vafasamur dómur hjá linuverðinum, þvi að ekkert var athugavert við markið. Valsarar bættu þetta mark upp á 6. min. siðari hálfleiks með ein- hverju glæsilegasta marki, sem gert hefur verið á Laugardals- vellinum i langan tima. Hörður Hilmarsson var pottur- inn og pannan i þvi. Hann tók boltann á miðjunni, gaf út á Kristin Björnsson, sem óð upp að markinu og gaf þar fyrir á Hörð, sem hlaupið hafði upp með hon- um. Hörður skallaði boltann út til Bergsveins Alfonssonar, sem sendi hann viðstöðulaust i netið með þrumuskoti, sem Davið átti ekki nokkurn kost á að verja. Með þessi fjögur mörk sem bakhjarl fóru Valsmenn að slaka á og Skagamenn náðu meiri tök- um á leiknum — án þess þó að komast fram hjá Sigurði Dags- syni nema einu sinni.Jón Alfreðs- son gaf þá á Teit Þórðarson, sem kom á fullri ferð á móti boltanum og sendi hann upp i þaknetið af miklum krafti. Heldur lifnaði yfir Skagamönn- um viö þetta mark, en Sigurður var þeim erfiður og varði hvað eftir annað mjög vel. Valsmenn náðu einstaka upphlaupi og kom- ust þá auðveldlega i gegnum vörn Skagamanna, en tókst ekki að bæta við fleiri mörkum. Akranesliðið var alls ekki slakt i þessum leik, nema þá helzt varnarmennirnir fjórir, sem lengst af vissu varla i hvorn fót- inn þeir áttu að stiga og gáfu Valsframlinunni allt of mikið svigrúm til að leika sér. Aftur á móti gaf Valsvörnin, sem oft var anzi fjölmenn, engan höggstað á sér, og var fljót að snúa vörn i sókn með sendingum á næsta mann, en ekki landsend- ingum út i loftið eins og oft kom fyrir varnarmennina hinum meg- in. 1 Valsliðinu var enginn veikur hlekkur i þetta sinn — allir börð- ust vel og gerðu eins og þeir gátu með foringja sinn, Jóhannes Eð- valdsson, i fararbroddi. A miðj- unni var Hörður Hilmarsson oft einráður og byggði vel upp fyrir framlinuna, þar sem hver maður var öðrum friskari. Hjá Skagamönnum skar enginn sig sérlega úr — þeir voru flestir i skugga Valsmanna nema undir lokin. Helzt voru það þeir Jón Alfreðsson og Teitur Þórðarson, sem eitthvað kvað að, en oft hafa þeir þó verið betri en i þetta sinn. Þá barðist Benedikt Valtýsson að vanda eins og ljón en litið var út úr þvi að hafa annað en erfiðið. Guðmundur Haraldsson dæmdi leikinn og gerði það vel. En hann var ekkert öfundsverður af linu- vörðunum sinum, Ragnari Magnússyni og Rafni Hjaltalin, sem gerðu áberandi skyssur hvað eftir annað — skyssur, sem ekki eiga að koma fyrir menn, sem eiga að dæma erlendis eftir nokkra daga. — klp — <------------------m. Þeir höfðu ástæðu til að vera glaðir eftir úrsiitaleikinn — Ilit- chev, þjálfari Vals, Jóhannes Eð- vaidsson, fyrirliði, og Sigurður Dagsson, markvörður, sem varð bikarmeistari f annað sinn. Ljós- mynd Bjarnleifur.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.