Vísir - 21.09.1974, Blaðsíða 4
4
Vlsir. Laugardagur 21. september 1974.
^mSjÓ/7;
Meistaraverkið er
alltaf að breytast
Dularfullt málverk sem hefur valdið miklum heilabrotum
Gnski listmálarinn Robert
Evans hefur selt 800 málverk
um dagana og hefur ekki undan
að mála fyrir fólk, sem er hrifið
af málverkum hans. Gn i fórum
hans er mynd sem margir vilja
eiga, en hana segist hann ekki
láta fyrir nokkurn pening.
Það sem er óvenjulegt viö
þessa mynd, sem er af sjóslysi,
er að hún er alltaf að breytast —
án þess að nokkur komi nálægt
henni — og ýmsir undarlegir
hlutir að koma fram I henni á
hverri viku.
Hundruö manna, listagagn-
rýnendur, prestar og sér-
fræöingar á öllum sviðum hafa
skoðað þessa mynd Evans, sem
hann málaði fyrir þrem árum,
ogenginngetur gefið skýringu á
þessu fyrirbæri.
Myndin sem ber nafnið „The
Saviour” eraf skipsflaki og sjó-
mönnum að berjast i miklum
sjó og snjóstormi við að komast
frá sökkvandi skipinu i björgun-
arbát.
Morguninn eftir að Evans
málaði myndina, tók hann eftir
þvi að andlit á konu var að koma
fram i henni. Hann hélt fyrst, að
þetta væri vegna þess að mynd-
in væri enn ekki orðin þurr og lét
þetta þvi afskiptalaust.
En löngu eftir að málningin
var þornuð, héldu torkennilegir
hlutir áfram að koma fram I
henni. Annað konuandlit birtist,
maður á hesti, Kristur á kross-
inum og nú siðast er að koma I
ljós hauskúpa.
Sérfræðingar geta ekki gefið
nokkra skýringu á þessu, en
myndin hefur bæði verið
rannsökuð i Englandi og Ame-
riku, þar sem Evans voru boðin
2000 sterlingspund i hana.
En hann vill ekki selja og
segir...,,Ég er hjátrúarfullur
og óttast, að ég missi hæfileika
mina sem listmálari ef ég læt
hana frá mér.”
—klp—
meðal sérfrœðinga báðum megin Atlantshafsins
Listmálarinn Robert Evans með listaverkið duiarfulla, sem undarlegustu hlutir eru aðkoma fram I þrem árum eftir að hann málaði myndina.
5 MILLJON
LÍTRAR AF
BJÓR FARA
í SVALLVEIZL-
UNA MIKLU
Nú geta bjórdrykkjumenn
hópazt til þeirrar miklu bjór-
drykkjuborgar Miinchen i
Þýzkalandi. Þar hefst i dag
mesta drykkjuveizla ársins.
bjórhátiðin mikla. Undir-
búningur að þessari árlegu
hátíð hefur staðið yfir lengi.
Dag eftir dag hefur mátt sjá
hesta spennta fyrir bjórvagna á
strætum MUnchen á leiö til
engisins, þar sem halda á
svaliið mikla.
Þar verður komið fyrir
tjöldum þær tvær vikur, sem
hátíðin stendur. Þar inni munu
þorstlátarkverkar væta sig með
sterkum bjór á meðan leiknar
og sungnar eru drykkjuvlsur.
Einnig fá gestirnir, sem koma
hvaðanæva að úr heiminum,
að gæða sér á hjörð af steiktum
nautum, hálfri milljón glóðar-
steiktra kjúklinga og fjórum
milljónum af pylsum.
En bjórnum, sem er aðal-
atriði hátiðarinnar, verða gerð
heldur betur skil. Búizt er við,
að þegar svallinu lýkur að tveim
vikum liðnum, hafi 5 milljónir
lltra verið drukknar.
Hátið þessi hefur allt frá árinu
1810 verið árlegur viðburður I
Múnchen og aldrei fallið niður,
nema þegar strið eða sjálf
plágan tók I taumana.
Eins og vanalega verður sér-
stakur hópur manna til taks
meö hjólbörur til að aka þeim,
sem fengið hafa nóg, til sérstaks
afvötnunartjalds, fyllt
dúnmjúku heyi.
—JB
'
.
HANN ER
HÆTTULEGUR
HANN STÓRI
HEIMUR!
Það er stundum erfitt aö vera
litill, sérstaklega þegar maður
er ekki nema nokkurra daga
gamall og vill skoða sig um I
heiminum. Það fékk þessi litli
hænuungi að finna, er hann fór á
flakk I Sherwood dýragarðinum
I Englandi, þar sem hann á
heima.
Hann mætti hverri risaskepn-
unni á fætur annarri og sumar
voru svo stórar, að hann sá ekki
framan I þær, hvernig sem hann
teygði sig. Og þegar þessi voða-
legi risi á fjórum fótum kom
arkandi, svo að jörðin skalf og
nötraði, lokaði sá litli augunum.
En þetta var bara hún Emily,
er engum gerir mein, sérstak-
lega ekki litlum hænuungum,
sem eru að hlaupa frá henni
mömmu sinni. En henni þótti
tilvalið að hræða þennan með
þvl að setja einn af sinum
fjórum stóru fótum á kollinn á
honum, svona til að hann myndi
það betur, ef ætlaði sér að
hlaupa aftur að heima.