Vísir - 21.09.1974, Blaðsíða 20
VÍSIR
Laugardagur 21. september 1974.
REKSTRAR-
LÁNIN
HÆKKUÐU
í GÆR
Viðskiptabankar
sjávarútvegsins
hækkuðu i gær
rekstrarlán til út-
gerðarinnar um 50%.
Matthias Bjarnason sjávar-
útvegsráöherra hefur undan-
fariö átt viöræöur við banka-
stjóra Seölabankans, Lands-
bankans og Útvegsbankans
um hækkun rekstrarlána til
útgerðarinnar. Niöurstaða
þeirra viöræðna er sú sem að
framan greinir.
Siöan 1. jan. 1969 hafa lánin
hækkað einu sinni áður. 1. jan.
1973 voru þau hækkuð um 50%.
—SH
EKKI FJÁRMÁLA-
RÁÐUNEYTIÐ
Sú misritun varð i frétt blaðsins
I gær um sparifé, að fjármála-
ráðuneytið hefði gert athugun þá,
er leiddi i ljós skekkju i
útreikningum á sparifé. Hið rétta
er, að það var félagsmálaráðu-
neytið, sem gerði athugunina.
sgy..,‘.. Kvaðst vero frcendi
forsœtisróðherra ó íslondi
„Þegar hann frétti, að festa kaup á gisti-
að við værum að reyna heimilinu, varð hann
Mér fannst strax eitthvaö kynlegt við þennan „Islending
Jolanta Tjelie, sem sést hér með eiginmanni slnum.
mjög rausnarlegur og
bauðst til að útvega 250
þúsund krónur (4 mill-
jónir islenzkar), þar
sem islenzki forsætis-
ráðherrann væri frændi
hans og hann hefði þvi
gnægð af sambönd-
um.”
Það skal tekið fram, að ekki
er vitaö, hvaða forsætisráð-
herra svindlarinn hafi átt við,
eða hvort hann yfirleitt hafi
haft hugmynd um nafnið þegar
hann lét sér fyrrnefnd orð um
munn fara.
Þetta er frásögn Jolanta
Tjelle, sem ásamt manni sinum
rekur gistiheimili i Tinnsjö I
Noregi. Siðastliðinn sunnudag
kom hún þvi til leiöar, að norska
lögreglan handsamaði marg-
eftirlýstan svindlara, sem ferð-
azt hefur um alla Skandinaviu
og vlða um Evrópu og hefur
skilið eftir sig langa lista af alls
kyns fölsunum og svindli.
Hann hefur gengið undir ýms-
um nöfnum, en eftir siðustu
yfirheyrslur er talið sennileg-
ast, að hann heiti Luis Rudolp
Barron og hafi fyrst komiö til
Noregs 1961. önnur nöfn sem
hann hefur notað eru t.d. Rick
Hansen og Flemming Berner
von Hollstein heimspekingur.
Hann hefur borið 10 önnur nöfn
að þvi er vitað er og verið kenn-
ari, prestur og kvikmyndafram-
leiðandi.
Eftir aö lögreglan komst I
máliö i Noregi hefur verið reynt
að tina öll hans afrek saman, en
það er erfitt verk.
Vlsir hafði samband við út-
lendingaeftirlitiö I gær og
spurði, hvort kannazt væri viö
þennan mann. Grétar Norðfjörð
sagði, að manninn hefði ekki
rekið á þeirra fjörur.
„En það hafa komið hingað
menn, sem viö höfum snúið við,
og hann gæti vel veriö einn af
þeim. Viö gerum það að kröfu
að þeir, sem hingað koma, hafi
nægilegt fé til að sjá sér
farborða þann tima, sem áætlað
er að dveljast hér og séu auk
þess með farmiða úr landi.
Þetta fyrirkomulag hefur
sparað okkur alls konar
vandræði og skattborgurunum
mikið fé, þvi áður þurfti rikið að
sjá um aö . koma vand-
ræðamönnum úr landi.
Góð samvinna við hin Norður-
löndin hefur einnig hjálpað okk-
ur mikið. Útlendingar vita, aö ef
þeir valda hér vandræðum og
eru reknir úr landi, eru þeir þar
með burtreknir úr allri
Skandinaviu”.
JB
Brjóta gamla hefð:
Brúðkaupsveizla á sundunum
með rokki og sinfóníuleik!
— Leigja Akra-
borgina undír
brúðkaupsgesti
sína og sigla með
þá um sundin
Harla óvenjuleg brúðkaups-
veizla — eöa öllu heldur brúö-
kuupsferð — stcndur fyrir
dyrum. Iteykvlskt par, sem
ætlar að gifta sig I dag, hefur
leigt Akraborgina til að sigla
með sig og brúðkaupsgestina
um sundin á meðan skáiað er i
kampavini og brauði
sporðrennt.
„Jú, þetta er rétt með farið”,
viðurkenndi Baldvin Björnsson
auglýsingateiknari, er Visir
vildi fá þessar fregnir stað-
festar. „Mér fannst það illa
gert gagnvart vinum og
ættmennum að bjóða til hefð-
bundinnar brúðkaupsveizlu, þar
sem þeim yrði gert að mæta i
sparifötunum og vera þving-
aðir”, útskýrði Baldvin.
Og hann kvaðst einnig hafa
sýnt þessu fólki þá tillitssemi að
bjóða þvi ekki til vigslu-
athafnarinnar.
„Hjónavigslan fer fram i
Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðar-
strönd”, sagði Baldvin „Þeir
fáu, sem munu verða viðstaddir
vigsluna, leggja af stað i
áætlunarbil frá Miklatorgi
klukkan eitt til Saurbæjar Allir
hinir leggja af stað með Akra-
borginni úr Reykjavikurhöfn
klukkan hálfþrjú og sækja
okkur á Akranes.”
Baldvin segist hafa fylgzt með
veörinu af meiri athygli en
nokkru sinni áður. „Þeir voru
að segja mér á Veðurstofunni,
að lægðin væri að fara hjá og
búast mætti við bliðskaparveðri
á morgun”, sagði Baldvin,
þegar Visir talaði við hann seint
i gærdag.
Brúðurin heitir Helga
óskarsdóttir og er þekkt fyrir
fiðluleik með Sinfóniuhljóm-
sveitinni og sömuleiðis það, aö
hafa borið titilinn Fegurðar-
drottning Reykjavikur fyrir
tveim árum. Hún hefur boðið
nokkrum hljóöfæraleikurum úr
Sinfóniunni til brúðkaups-
veizlunnar og er ekki óliklegt,
að gripið verði til hljóðfæranna
meðan á siglingunni stendur.
Þá verða einnig um borð
nokkrir valinkunnir popp-
hljómlistarmenn, sem hafa
lofað að taka með sér hljóöfæri
og rokka Htilsháttar á bila-
þilfarinu á meðan Akraborgin
dólar á milli Viðeyjar og
Engeyjar. Nú, og svo verða lika
þeir grinistarnir Alli Rúts og
Karl Einarsson á meðal veizlu-
gesta.
„Akraborgin er tilvalin til
veizluhalda af þessu tagi”,
sagði Baldvin að lokum. „Þaö
eru tveir stórir salir uppi og svo
þægilegur bar undir þiljum. Og
hann stendur að sjálfsögðu
opinn meðan á ferðinni
stendur....”
Skipið leggst að i Reykja-
vikurhöfn klukkan sex og fer
stuttu siðar i sina áætlunarferð
upp á Skaga eins og ekkert hafi i
skorizt.
—ÞJM
„Ómögulegt að Picasso-
##
segir listasafnið
í Danmörku
verkið sé falsað
— DANSKA LÖGREGLAN LEITAR AÐ ÖÐRUM FÖLSUNUM SIGURÐAR ÞORLÁKSSONAR
„Við erum ekki f hinum
minnsta vafa um að verk þetta
er málaö af Picasso árið
1916” sagði okkur einn af for-
stöðumönnum rikislistasafnsins
i Kaupmannahöfn, er við
höfðum samband við hann i
gær. vegna fullyrðingar tsiend-
ingsins Sigurðar Þorlákssonar
um að hann hefði máiað
Picassoverk, sem á safninu er.
„Við höfum rakið feril þess
frá listamanninum sjálfum
fram til þess tlma er það kom
hingaö á listasafnið. Það var
danskur listaverkasafnari er
fékk listaverkið i safn sitt 1918.
Þaðan fór það i annað þekkt
danskt safn og siðan kom þetta
umrædda verk Picassos, sem
ber nafnið „Kúbistisk
kompósisjón”, hingað á safnið.
Siguröur Þorláksson segist hafa
málaö verkið 1952, en þá var
myndin á dönsku safni og barst
skömmu siðar hingað”. Saga
verksins er skýr og augljós”.
En hefur aldur verksins sem
hangir á safninu, verið visinda-
lega kannaður?
„Nei, við erum svo sannfæröir
um að Picasso hafi málað
verkið, að við höfum aldrei talið
þörf á slikri athugun”.
Var Picasso sjálfur nokkurn
tima eftir 1952 fenginn til að
athuga verkið?
„Nei, það hefur allan timann
veriö hér i Danmörku og ekki
komiö fyrir augu hans svo ég
viti.
Þegar Sigurður Þorláksson
hélt þessu fram, studdi hann
mál sitt með þvi að hann vissi,
að undir þessari mynd væri
önnur hálfkláruð. Við töldum
það þó litla sönnun, þar sem
vitað var um hina myndina
fyrir löngu, og kemur það bæði
fram I sýningarskrá og i sjón-
varpsþætti, sem sýndur var hér
I Danmörku fyrir hálfu ári og
milljón manna sáu.
Myndin sem er undir er
ókláruð mynd eftir Piccaso með
svipuðum dráttum og aðal-
myndin”.
Þess ber að gæta, þegar litiö
er á fullyrðingar Sigurðar
annars vegar og listasafnsins
hins vegar, aö Sigurður gæti
veriö að reyna að verða sér úti
um frægð með þvi aö koma
slikum'sögum á kreik, en safnið
myndi biða verulegan álits-
hnekki, ef það viðurkenndi að
myndin væri fölsuð, auk þess
sem verðmæti myndarinnar
minnkaði auðvitað verulega.
Sigurður Þorláksson hefur
verið yfirheyrður af dönsku lög-
reglunni vegna málsins, en þar
sem listasafnið fullyrðir að
sagan sé uppspuni, hefur ekkert
frekar verið aðhafzt i þvi máli.
A hinn bóginn kannar lögreglan
nú þá sögu Sigurðar, að hann
hafi um árabil falsað myndir
eftir hinn og þennan frægan
málara, sem nú hangi á söfnun i
Danmörku.
Siguröur er mjög snjall i
höndunum og hefur lent I úti-
stöðum á Islandi bæði vegna
peningafals og málverkafals.
Hann málaði meðal annars
Kjarvalsmálverk, sem var það
likt frummyndinni, að Kjarval
sjálfurvarfengim til að skera úr
um hvort væri fólsunin. Kjarval
skoðaöi myndirnar nákvæm-
lega nokkra stund og sagði
siðan: „Komið með þennan
mann, mig langar að taka I
höndina á honum. Hann er snill-
ingur”.