Vísir - 21.09.1974, Blaðsíða 9
9
Vísir. Laugardagur 21. september 1974.
ÚRSUT í
MEISTARAMOTI
REYKJAVÍKUR
HEFJAST Á
MÁNUDAGINN
tirslit i eins kvölds
tvimenningskeppni Bridge-
félags Reykjavikur s.l.
miðvikudagskvöld voru þessi:
A-riðill:
1. Gunngeir Pétursson —
örn Guðmundsson 193
2. Einar Þorfinnsson —
Hjalti Eliasson 191
3. Guðlaugur Jóhannsson —
örn Arnþórsson 188
B-riðill
1. Hallur Simonarson —
Þórir Sigurðsson 201
2. Egill Guðjohnsen —
Jóngeir Hlynason 191
3. Guðmundur Pétursson —
Karl Sigurhjartars. 182
Meðalskor var 156.
Næsta miðvikudagskvöld
hefst meistarakeppni félagsins i
tvimenning og verður hún sex
umferðir. Væntanlegir þátt-
takendur eru beðnir að tilkynna
þátttöku sem allra fyrst til
stjórnarinnar, þar eð hugsan-
lega verður að takmarka þátt-
töku aö einhverju leyti vegna
keppnisformsins.
Orslit i meistaramóti Reykja-
vikur i sveitakeppni verða
spiluð mánudaginn 23. septem-
ber kl. 20 og sunnudaginn 29.
september kl. 13.30. Fjórar
sveitir spila til úrslita um
meistaratitilinn og er mótið út-
sláttarkeppni. Sveit Þóris Sig-
urðssonar sem vann undan-
keppnina, mun velja sér and-
stæðing úr eftirtöldum sveitum:
Sveit Hjalta Eliassonar
Sveit Hannesar Jónss.
Sveit Gylfa Baldurssonar.
Allar eru þessar sveitir frá
Bridgefélagi Reykjavikur.
,,Bláa sveitin”
Mikið er búið að skrifa um
frammistöðu og frægð hinnar
heimsfrægu „bláu sveitar” frá
ttaliu. Fyrirliði þeirra um
árabil, Carl Alberto Perroux,
hefur nú nýlega skrifað bók,
sem heitir á frummálinu „II
Blue Team (Mursia, Milan)”,
og fer vel á þvi, að hann sem
stjórnaði hinu heimsfræga liði
frá þvi aö það var óþekkt og þar
til það öðlaðist heimsfrægð,
skuli skrá sögu sveitarinnar.
Fjoldi skemmtilegra gaman-
sagna er i bókinni ásamt per-
sónulegum endurminningum
Perroux. Þótt þetta sé ekki
bridgebók eins og þær gerast
flestar, þá eru samt nokkur spil
i henni og auðvitað leikur
meistari meistaranna Georgio
Belladonna, aðalhlutverkið.
Hér er spil frá heims-
meistarakeppninni 1959.
Húsnœði óskast
Danskur verkfræðingur óskar eftir að
taka á leigu hús eða ibúð búna húsgögnum
i átta mánuði frá miðjum október. í
heimili eru tveir fullorðnir og einn hundur.
Vinsamlegast snúið yður til Iðnþróunar-
nefndar, Lækjargötu 12, R — simar 16299
og 16377.
A A
V D-G-7-5
♦ 6-5
4, A-K-D-9-8-4
A 10-9-5-3 ♦ 8-4
V 9-4-2 V A-10-3
/K7 ífi*10-4'3-2
♦ K-D-G-7-6-2
V K-8-6
♦ A-9
♦ 3-2
í öðrum salnum spiluðu
Bandarikjamennirnir fjóra
spaða og unnu fimm.
í hinum, þar sem Avarelli og
Belladonna sátu n-s, varð loka-
samningurinn sex hjörtu, eftir
að austur hafði opnað á tveimur
tiglum, veikum.
Tigulútspilið virðist dæma
slemmuna til dauða, en eftir að
Belladonna hefur farið höndum
um hana, þá virðist aldrei nein
hætta hafa verið á ferðum.
Hann drepur á tigulás, spilar
spaöa á ásinn og siðan þremur
hæstu laufunum. Austur
trompar þriðja laufið með
tiunni og Belladonna trompar
yfir með kóngnum. Hann kastar
nú tigli i spaðakóng og spilar
siðan hjartasexi og svinar.
Einfalt.
Meistari meistarunna, Georgio
Beiladonna.
CDansskóíi yCermanns O^agnars
Innritun daglega í síma 72122
Kennt verður á eftirtöldum stöðum:
Tónabæ við Skaftahlið (Miklubraut).
Fellahelli, Breiðholti.
Skúlagötu 32-34.
Kennum börnum, unglingum, ungu fólki og fullorðnum barnadansa,
táningadansa, gamla og nýja samkvæmisdansa.
Jassdans fyrir börn.
mánudaginn 7. október
Danskennarasamband
9
Islands
Dregid
um leí
105 VINNINGAR
ad verðmæti 4o.ooo.kr. kver.
Söngfólk
Getum bætt við fáeinum góðum kvenna-
og karlaröddum i kór Neskirkju.
Hafið samband við söngstjórann, Reyni
Jónasson, i kirkjunni, sunnudag,
mánudag eða þriðjudag kl. 6-7 e.h.
í söluturnum borgarinnar
eru enn fóanlegir miðar
í smómiðahappdrættinu
LEITIÐ MERKISINS - FREISTIÐ GÆFUNNAR