Vísir - 09.10.1974, Side 1

Vísir - 09.10.1974, Side 1
64. árg. — Miðvikudagur 9. október 1974 —196. tbl. „ALLT MINNA EN 4-0 ER TAP FYRIR OKKUR" — segja dönsku blöðin og dönsku landsliðsmennirnir um landsleikinn í Álaborg í kvöld. Blaðamaður Vísis, Kjartan L. Pólsson, segir fró undirbúningi leiksins í íþróttaopnunni í dag. Áfengisleit gerð fjórum sinnum ón órangurs í sömu bifreiðl MiM kart til réflumytlt- Krtrflit ntwfómoni| Lögreglan var í fullum rétti að skemma leigubílinn — baksíða Bílastœði handa r Islendingum fyrir 19 milliónir í Norfolk — baksíða Japanir þjóta fram úr okkur — og Kóreumenn hœttulegir keppinautar — bls. 3 Lögfrœðingar i vanda: Erfitt að útvega löggiltan skjalapappír - bls. 3 „Neyðar- óstand," segja starfsmenn „Þröngsýni," segja viðskiptavinir Bif reiðaef tirlit ríkisins i deiglunni á bls. 2-3 Ný bilnúmer bls. 2- 3 „KERFIÐ" GETUR VERIÐ FURÐU ÞRJÓZKT: Vildi gera mann að bíleiganda — hvað sem tautaði og raulaði „Ég hef verið billaus i tvö til þrjú ár, og það kom mér þvi óneitan- lega á óvart, þegar ég fékk i júli skipun frá lög- reglustjóra um að greiða stöðumælasekt, ’ ’ sagði Guðmundur Steinsson prentari i við- tali við Visi i morgun. „A kröfunni, sem ég fékk senda heim, var nafn mitt, heimilisfang og nafnnúmer rétt skráð, en bil- númerið kannaðist ég ekki við. Þetta var ekki númerið á gamla bflnum minum eins og kannski hefði getað verið,” hélt Guð- mundur áfram. „Þeir á lögreglustöðinni kunnu engar skýringar á þessari furðu- legu kröfu, þegar ég vildi koma henni af mér. Og ekki var neinar skýringar að fá heldur hjá Bif- reiðaeftirlitinu, en þar reyndist ég vera skráður eigandi að 74 módelinu af Fiat 127.” Og Guðmundur heldur áfram frásögu sinni: „í Bifreiðaeftirlitinu hétu þeir þvi að kippa málinu i lag — og ég fór heim I þeirri von, að ég væri ekki lengur skráður bileigandi að ósekju. En viti menn, aðeins nokkrum dögum siðar fékk ég tilkynningu um það, að ég ætti að borga bif- reiðaskatt af „bilnum minum”. Ég anzaði þessari kröfu tollstjór- ans engu, þar sem ég hélt, að hún yrði úr sögunni, þegar Bifreiða- eftirlitið væri búið að leiðrétta spjaldskrána.” Og Guðmundur hefur ekki lokið sögu sinni: „Eftir að hafa haft frið fyrir „kerfinu” i þrjá mánuði, fékk ég i fyrradag tilkynningu um það, að gert yrði uppboð hjá mér vegna bifreiða- skatts, sem ég ætti eftir að greiða.” Guðmundur fór enn á stjá og I gær upplýstist loksins, að hinn rétti eigandi bflsins er alnafni Guðmundar og af þvi hafa mistökin i spjaldskránni sjálfsagt stafað. „Ég vona bara, að þetta sé endirinn á þessu máli.” sagði Guðmundur loks. „Þetta er i sjálfu sér meinlaust. En það hefði getað haft afdrifarikari af- leiðingar, ef t.d. það hefði skeð, að þessi bfll hefði valdið mikLu tjóni og siðan fundizt mannlaus Við handtöku hefði það sjálfsagt þótt dulitið undarlegt, ef ég hefði viljað halda þvi fram, að ég ætti ekki umræddan bfl......” ÞJM Sovézkir aðilar hafa nú skilað því til ritstjóra tímaritsins Skákar, að Podgorny, forseti Sovét- ríkjanna, neiti að taka á móti glæsilegri bók sem hefur inni að halda einvígisútgáfu tímarits- ins. Á meðan á skákeinvigi Fischers og Spasskys stóð I Reykjavik, gaf Skák út blað eftir hverja skák og vakti það mikla athygli viða um heim. I ritið skrifaði fjöldi þekktra manna og sérfræðinga um skák. Jóhann Þórir Jónsson lét útbúa sérstakar útgáfur blaðsins og var eitt afhent forseta tslands, annað forseta Bandarikjanna og þá þriöju átti Podgorny að fá. „Sovézku aðilarnir tala um, að þeir geti ekki veitt bókinni viðtöku vegna áróðurs, sem i henni er. Ég hef rætt þetta mál við Arna Bergmann, sem þýddi textann yfir á rússnesku, og hann og ég finnum ekki neitt, sem þessi umsögn gæti átt við. Sennilega er áróðurinn bara sú staðreynd, að Spassky tapaöi, en ekki vann og hann þvi ekki vinsæll meðal æðstu manna.” Þessi bók, sem Jóhann Þórir situr uppi meö, er eins og hinar bækurnar tvær hin vandaðasta. Hún er bundin inn i kiðlinga- skinn og með glæsilegri titilsiðu. Venjulegar innbundnar bækur, með allri einvigisútgáfu blaðsins, munu nú kosta 25 þúsund krónur, en blöðin sjálf eru uppseld. Jóhann Þórir hyggst setja bókina, sem Sovétmenn höfnuðu á listmunauppboð i London, og yrði lágmarkstilboð 100 þúsund Jóhann Þórir Jónsson, ritstjóri timaritsins Skák ar, sýnir okkur þarna bókina, sem Podgorny afþakkaöi og er nú föl á 12 milijónir. Ljósm. Bj.Bj. dollarar eða nær 12 milljónir islenzkar. Jóhann sagði, að jafnvel stæði til að veita Slater forkaupsrétt að bókinni. Slater þessi, eins og menn muna, átti mikinn þátt i þvi, að Fischer fékkst til einvigisins á sinum tima, þar sem hann lagði 125 þúsund dollara aukalega i verðlauna- pottinn. —JB

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.