Vísir - 09.10.1974, Blaðsíða 16

Vísir - 09.10.1974, Blaðsíða 16
VÍSIR Miðvikudagur 9. október 1974. Klemmdist milli 11 tonno ólbarra Vinnuslys varð I Laxfossi i morgun, þar sem skipið lá i Straumsvikurhöfn. Tveir kranar voru að slaka „álbarra”, niður I lest skipsins en það er ellefu og hálfs tonna stykki. Maður, sem er nýbyrjaður að vinna við höfnina, stöð niðri I lestinni, þegar málmstykkið slðst til hliðar. Maðurinn klemmdist á milli og meiddist nokkuð á mjöðm. Ekki var fullkunnugt i morgun, hvort hann hefði hlotið meiriháttar meiðsli. —ÓH Frekar undir brúna en yfir Bíll, sem var á leið um Grafar- voginn á leið I Gufunes, fór út af veginum um tiuleytið I gærkvöldi. Bílstjórinn virðist hafa misst vald á bilnum, þannig að hann fór út af veginum. Utan vegar ók blll- inn síðan góða vegalengd, þar til hann hafnaði á brúarstólpa. Meðfram veginum er sléttlendi og þvi ekkert til hindrunar. Bill- inn stanzaði ekki fyrr en 20 metr- um frá þeim stað, þar sem hann ók út af, og má vera að bllstjórinn hafi ekki áttað sig á útafakstrin- um fyrr en hann lenti á stólpan- um. Bíllinn skemmdist nokkuð að framan, en bilstjórinn slapp ómeiddur. Hann er grunaður um að hafa fengið sér einn léttan eöa fleiri. Ekkert vatn rennur undir brúna á þessum árstlma, svo ekki hindraði það bllinn I að aka frekar undir brúna en yfir. —JB LeigubíSstjórinn mátti ekki neita áfengisleit saksóknari vísar frá kœru á hendur lögreglunni Saksóknari rikisins úrskurðaði fyrir nokkru, að máli, þar sem leigubilstjóri i Keflavík kærði lög- reglu og bæjarfógeta þar fyrir dómsmála- ráðuneytinu, skyldi visað frá. Málið kærði leigubil- stjórinn, eftir að lög- reglan hafði gert áfengisleit i bil hans og skemmt bilinn nokkuð við leitina. Atburðurinn gerðist I júni 1973 og olli nokkrum blaöaskrifum. Lögreglan stöðvaði leigubil- stjórann á bil sinum i Keflavlk og bað um að fá að leita að áfengi I bilnum. Leigubilstjór- inn neitaði að láta leita I bil sin- um, nema að undangengnum fó- getaúrskurði. Fulltrúi fógeta neitaði að kveða upp úrskurð og kvað fulla lagaheimild fyrir leitinni. Þá læsti leigubilstjórinn bilnum. Lögregluþjónar ollu nokkrum skemmdum á bilnum, þvi að þeir þurftu að brjóta upp hurðir og kistulok, til þess að geta leitað. Þess má geta, að ekkert áfengi fannst. Eftir að bflstjórinn kærði aðfarir lögreglunnar, var Sverrir Einarsson sakadómari úr Reykjavlk skipaður setu- dómari, þar sem bilstjórinn taldi málið of skylt fógetaemb- ættinu. 1 forsendum frávlsunarinnar hjá saksóknara segir, að sam- kvæmt áfengislögum hafi ekki þurft fógetaúrskurðar með til þess að leita I bflnum. Þvl hafi lögregluþjónarnir verið I fullum rétti, og leigubflstjórinn beri einn ábyrgð á skemmdunum. —ÓH Hann var heldur betur á rangri leiö þessi Volkswagen, sem ætlaöi aö skjóta sér undir brúna I staö yfir. Ljósm. Jón B. Aðsópsmiklir lögtaksmenn! „Viö erum komnir til aö gera lögtak,” tilkynntu embættis- mennirnir valdsmannslega og stilltu sér upp fyrir framan lækni I Keflavik i miöjum annatima dagsins. Það voru tiu eða tólf manns, sem sátu i biðstofunni og orö lögtaksmannanna og brugðið I brún. „Skyldu þeir innsigla okkur?” gæti þeim hafa dottið I hug, sjúklingunum, sem biðu eftir við- tali við lækninn sinn. En ótti þeirra var ástæðulaus: Hér reyndist vera um mistök að ræða. Læknirinn var skuldlaus við inn- heimtuna og til aðgerða kom þvi ekki Var honum borið á brýn, að hafa ekki greitt eyri af lögboðinni fyrirframgreiðslu til skattsins og átti þvl að grlpa til lögtaksað- gerða. Á meðan læknirinn skauzt með lögtaksmönnum yfir •.á bæjar- skrifstofurnar til að sanna sitt mál, máttu sjúklingar biða á biðstofunni. Það tók tiltölulega stutta stund, en einhverjir höfðu samt yfirgefið biðstofuna á meðan læknirinn var I burtu. Ef til vill af fyrrgreindum ótta. —ÞJM Auðvelt að fá bíla- stœði í Norfolk? — Malbikað fyrir 19 milljónir fyrir Islandsbílana Þeir eru aö malbika I Norfolk I Bandarikjunum nærri átta- hundruö fermetra bilastæöi, sem á aö geyma bila, sem biöa þess aö komast til tslands. Verkiö kostar 160 milljónir doll- ara, 19 milljónir Isl. kr. Þetta kemur fram I frétta- blaði Virginiuhafnar, sem út kom I síðasta mánuði, og það fylgir fréttinni, að yfir 300 bflar hafi farið um höfnina til Islands „slðustu 30 dagana”, eins og þeir orða það, og fleiri blði skips. Þaö skyldi þó aldrei vera, að hægt yröi að finna laust blla- stæði á planinu þeirra um þess- ar mundir. Mikiðaf þeim bflum, sem hingað koma um Norfolk, eru notaðar bllar, og inn- flutningur þeirra mun hafa dregizt saman. Þá má benda á, að bilaflutningur til landsins frá Ameriku hefur færzt meira I það form að nota bllaflutningaskip, sem tekur farm sinn I Montreal I Kanada — og svo hafa bllar hækkað verulega I verði hér og seljast nú lakar en áður — svo ekki sé minnzt á benslnverðið. —SH Bilarnir biöa i rööum eftir þvi að komast til tslands. HEFUR STARFAÐ í ÁR - OPNAR Á MORGUN Norrœna eldfjallastöðin Siöan I október I fyrra hefur Norræna eldfjallastöðin verið starfandi, en hún verður form- lega opnuð á morgun. t tilefni af opnuninni hefur stööin boöið hingað til fyrirlestrahalds bandariskum doktor, Al- exander McBirney, sem er forstööumaður eldfjallastöövar i sinu heimalandi. Forstöðumaður Norrænu eld- fjallastöðvarinnar, dr. Guðmundur Sigvaldason, jarð- fræðingur, sagði Vísi, að á þessu ári, sem stöðin hefur starfað, hafi töluvert verið gert. Fyrst og fremst hefur starfsemin verið skipulögð, komið upp tekur formlega til starfa stjórnunarkerfi og ráðið starfsfólk. Við stöðina starfa auk Guðmundar dr. Karl Grönvold, jarðfræðingur, tveir tæknilegir aðstoðarmenn og skrifstofu- stjóri. Um næstu áramót bætist þriðji aðstoðarmaðurinn við, og slðar mun jarðeðlisfræðingur koma til starfa við stöðina. A þessu ári hafa fjórir norrænir styrkþegar starfað að skammtlmaverkefnum. Einn hefur verið með rannsóknir á öræfajökli, annar fjallað um jarð-og bergfræði á Jan Mayen, þriðji um jarð- og bergfræði Ubekennt eyjú við Grænland, og sá fjórði hefur unnið að rannsóknum á mjög fornu gosbergi I Noregi. Þá hefur verið unnið að langtimarannsókn á islenzku basalti og könnun á efnafræði þess með tilliti til kenninga um uppstreymi möttulefnis undir Islandi. Þetta verkefni er unnið I félagi við Raunvisinda- stofnunina og Háskóla íslands. Norræna eldfjallastöðin er til húsa I tveimur þriðju hlutum jarðfræðihúss háskólans, en hefur auk þess afnot af öllum tækjum jarðfræðistofu Raunvlsindastofnunarinnar og jarðfræðideildar háskólans og sameiginleg afnot af annarri aðstöðu, svo sem bókasafni. —SH Engin veira, Ekki hefur fundizt IPN veira I 49 sýnishornum, sem tekin voru af laxi og regnbogasilungi i Laxalóni hinn 19. september siðast liöinn, segir i bréfi, sem borizt hefur frá Statens Veterinære Serum- laboratorium I Álaborg. Þessi sýni voru tekin I fisk- eldisstöðinni að Laxalóni af hálfu fisksjúkdómanefndar og send rannsóknarstöðinni I Ala- borg, en hún hefur með segja Danir rannsóknir að gera fyrir fisk- sjúkdómanefnd. „Ætli við tökum ekki eitt sýni enn,” sagði Páll A. Pálsson, yfirdýralæknir, einn þriggja, sem á sæti I fisksjúkdómanefnd. „Verði það lika neikvætt, sem ég vona, verða þessi mál öll tekin til endurskoðunar um næstu áramót. En það er seint of varlega farið gagnvart þessum sjúkdómi, og þvi full ástæða til þess að flýta sér hægt.” —SH PBVJ/IJ 4. okt. 1974. Dr. IaXl A. Palaeon PJ oko J ukdonanofnd Box 11o Reykjavlk Ialand. Kare hr. Palsaon. Ved underaegeleen aí 49 stk. yngel og oattefiek (lake og regnbueerred) nodta- get fra Dem (Laxalon) d. 19.o9.74 er der ikke p&viet lafektlon med IPN virua. Med venlig hiloen P.K.Veaterg&rd Jergensen. cci Hr. 3kuli Paleson, Laxaloni, P.O.Box 924. Reykjavik, Ialand.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.