Vísir - 09.10.1974, Blaðsíða 3

Vísir - 09.10.1974, Blaðsíða 3
Visir. MiOvikudagur 9. október 1974. 3 „Starfsaðstaða óviðunandi og neyðarástand vegna fámennis," segja bifreiðaeftirlitsmenn méM&hzSmk • .•*• ■ ■ •■■■-. - sí4íi»i mennirnir hér að skriða undir bilana úti við i misjöfnum veðrum. Fundurinn taldi auk þess, að neyðarástand væri að skapast, þar eð ekki hefði fjölgað jafn- mikið i stéttinni og verkefna- aukningin gæfi tilefni til. í Reykjavik er nú verið að taka i notkun nýja tölvuspjald- skrá við skráningu bifreiða og sagði Sigurbergur Þórarinsson, að sérþjálfuðu fólki við þessi tæki væri hreint og beint ekki bjóðandi upp á það húsnæði, sem þvi væri nú troðið i. „Það sér það hver maður að þetta húsnæði er óviðunandi. Við höfum sent bænaskrár til Táðuneytisins árum saman um úrbætur en án árangurs.” Bifreiðaeftirlitið hefur nú fyrir sitt leyti gengið frá tillög- um um nýtt númerakerfi á bila og á dómsmálaráðuneytið næsta skrefið i málinu. Guðni Karlsson forstöðumað- ur bifreiðaeftirlitsins var spurð- ur um nýja kerfið. „Við gerum tillögur um kerfi númera með tvo bókstafi og þrjár tölur. Slíkt kerfi rúmar um 600 þúsund bila. Þetta kerfi þarf að hljóta samþykki Alþingis áður en það kemst i notkun. Nú þegar eru nýir bilar skráðir i spjaldskrám á slik númer og einnig er unnið við að merkja bila i Reykjavikur- spjaldskránni þannig. Þetta kerfi gerir ráð fyrir þvi að hver bill hafi eitt númer frá fyrstu skráningu þar til hann fer úr umferð og ekki skiptir þá máli, hvaðan af landinu hann er. Slikt kerfi sparar mikla skriffinnsku við umskráningu.” Guðni kvaðst ekki geta sagt fyrir um útlit nýju númeranna, um það yrði dómsmálaráðu- neytið að setja reglugerð. Guðni tjáði blaðinu þó að Umferðar- ráð, sem hann á raunar sæti i hafi orðið sammála um að endurskoða þyrfti gerð númera- spjaldanna og jafnframt hefði ráðið skorað á dómsmálaráðu- neytið að setja reglugerð um að merkin yrðu endurskinsmerki. Tveir möguleikar væru fyrir hendi. Annar að láta númerin vera hvit og endurskinandi á svörtum fleti og hinn, að láta flötinn vera sjálfan hvítan og endurskinandi og númerin- svört. Væri siðari lausn mál- anna mjög sennileg. Með tilkomu nýju númeranna sést á númerinu sjálfu, hvaðan af landinu viðkomandi bill er. BB 653 Þannig gætu nýju númerin litið út. Svartar tölur á hvitum endurskinsfleti. Guðni sagði, að ekki hefði enn verið neitt ákveðið i sambandi við auðkenni er kæmi i stað nú- verandi bæjarbókstafs. Þó væri vel hugsanlegt að litlu merki er segði til um sýslu yrði lætt ein- hvers staðar á númerið eða jafnvel i rúðu. Þetta væru þó að- eins hugdettur, en ekkert hefði verið lagt fram i þessu tilliti ennþá. _ jb Fiskkapphlaupið í USA: Japanir þutu fram úr — og nú eru Kóreumenn orðnir skœðir keppinautar okkar ó markaðnum Kóreumenn hafa auk- ið fiskinnflutning sinn til Bandarikjanna i 13.804.000 ensk pund á sjö fyrstu mánuðum þessa árs, úr 100 þús. enskum pundum sama tima árið 1973. Japanir juku sölu sina úr 34.750.000 enskum pund- um i 67.277.000. Sam- bærilegar tölur fyrir sölu á islenzkum fiski eru 33.515.000 fyrstu sjö •• ENGAR KROFUR— BARA UPPSAGNIR Yfirgnæfandi meirihluti laun- þega I landinu, I 60-65 verkaiýðs- félögum, hefur nú samþykkt að segja upp gildandi kjara- samningum. Eru þá sumir með lausa samninga frá 1. nóvember, en uppsögn annarra tekur gildi fyrstu daga nóvembermánaðar. Við spurðum Björn Jónsson, forseta Alþýðusambands Islands, hvort það þýddi, að boða mætti verkföll frá og með þeim tima, sem uppsögn tekur gildi. „Samkvæmt lagabókstafnum er það,” svaraði hann. „En við verðum aö muna það, að fordæmi er fyrir, að samningar hafi verið lausir lengi, allt upp i ár, án þess að gripið hafi verið til verkfaila. Það væri óvenjulegt að boða til verkfalla, án þess að settar hefðu verið fram kröfur og leitað samninga áður”. Ekki er vitað, hvenær setzt verður að samningaborði til að ræða þau mál, sem verkalýös- félögin eru nú að undirstrika með uppsögnum sinum. — SH „Snyrtilegir" innbrotsþjófar ó ferð við Þingvallavatn Óvenju „snyrtilegir ” inn- brotsþjófar voru á ferð við Þing- vallavatn einhvern timann I síð- ustu viku. A sunnudag kom einn eigenda sumarbústaða, sem standa við vatnið vestan við Valhöll, að bústað sinum, þar sem gluggi hafði verið brotinn. Leit út sem farið hefði verið inn um gluggann og um allan bústaðinn. Hins veg- ar var engu stolið og ekkert skemmt. Við nánari athugun kom i ljós, að samtals var farið inn I sex sumarbústaði, sem standa nálægt hver öðrum. A flestum bústöðunum var útihurðin brotin upp. Einhver virtist hafa farið inn i alla bústaðina. Þar var þó alls staðar sömu sögu að segja, ekkert skemmt og engu stolið. Þó var viðast hvar rótað til i skúffum og skápum. —ÓII mánuði ársins 11973 en 20.201.000 ensk pund 1974. Svipaður samdráttur hefur orð- ið hjá sölu Kanadamanna og Is- lendinga, eða úr 28.715.000 ensk- um pundum i fyrra i 16.344.000 i ár. Norðmenn seldu 22.502.000 ensk pund fyrstu sjö mánuði 1973, en 17.610.000 I ár. Megnið af fisksölu Kóreu- manna til Bandarikjanna i júli siöastliðnum er flatfiskur, en einnig nokkuð af Alaska-ufsa. Hjá Japönum er mest af ufsa. Frá Islandi og Kanada er mest af þorski, en Norðmenn eru með svipað magn af þorski og ýsu. Japanir og Kóreumenn selja fisk sinn á lægra verði en við, og eru gæði fisksins talin heldur lé- leg. —SH VERÐUR HLE Á GERÐ LÖGGILTRA SKJALA? Er orðinn tilf innanlegur skortur á löggiltum skjala- pappir? — Nokkuð hefur verið kvartað undan þvi upp á sið- kastið, að örðugt væri að útvega þcnnan nauðsynlega pappir, sem er ein forsenda þess, að skuldabréf og önnur viðlika plögg fáist þinglýst. Einkum munu ýmsir lögfræðingar hafa orðið óþyrmilega varir við þennan skort, en bankar munu fremur vera sæmilega búnir með birgðir. „Þetta er alheimsmál i raun og veru,” sagði Ragnar Þ. Guðmundsson, forstjóri rikis- prentsmiðjunnar Gutenberg, sem hefur flutt inn mikið af þessari pappirstegund. „Það er ákaflega erfitt að fá pappir, jafnvel frá fyrirtækjum, sem lengi hefur verið skipt við. Ég hafði gert ráðstafanir til að fá sendingu I marz, en hún er ekki komin enn. Ég hef beðið umboðsmanninn að reyna að fá svör um, hvenær við fáum sendinguna, en ég þrefaldaði pöntunina, þegar mér urðu ljósir þessir erfiðleikar, til þess að lenda ekki i sama stappinu á hverju ári. Það er að sjálfsögðu orku- skorturinn, sem veldur þessu að nokkru, en lika þverrandi hráefni til pappírsgerðar samfara sivaxandi notkun á pappir. Löggiltur skjalapappir er ekkert sérdæmi um örðugleika við pappirsútvegun, þetta á við um allan pappir: Erfitt að fá hann, langur afgreiðslutimi og gifurleg verðhækkun.” Þá kom það einnig fram, að sá pappir, sem væntanlegur er, mun vera hvitur, en ekki gul- leitur, eins og sá sem tiðkazt hefur. I dómsmálaráðuneytinu fengum við þær upplýsingar, að vatnsmerkið i pappirnum og stærð hans myndi skipta meginmáli, fremur en litur hans. Baldur Möller, ráðu- neytisstjóri, sagði: „Það er einfaldlega skylda að hafa plögg, sem varða fjárskipti manna á traustum og góðum pappir, og eins er mikilvægt að þau plögg, sem eiga að vera i vörzlum opinberra aðila séu samræmd að stærð og aðgengi- leg i skjalaröðum, og þvi var löggildingin bundin við þessa pappirsgerð”. Ekki hefur Visi tekizt að fá úr þvi skorið, hvað það er annað en stærðin og vatnsmerkið, sem i pappírinn er þrykkt, sem gerir það að verkum, að hann er svo miklu merkilegri en annar góður pappir, að hann einan má nota á þau plögg, sem þinglýst er. En meðan sú skylda er samkvæmt lögum, er hætt við, að erfitt verði að ganga frá skjölum til þinglýsingar ef það dregst mikið lengur, að pappir- inn komi, en hann er keyptur i gegnum brezkt pappirsfirma. —SH Nýr stjórn- arformaður Kassagerð- arinnar Svanbjörn Frimannsson, fyrrverandi bankastjóri Seölabankans, var fyrir skömmu kjörinn stjórnarfor- maður Kassageröar Reykjavikur, og tekur hann viö starfinu af Guölaugi Þor- lákssyni, sem lézt fyrir skömmu. Svanbjörn er fæddur á Akureyri árið 1903 og hefur starfað við banka frá þvi hann Svanbjörn Frímannsson, ný- kjörinn formaður stjórnar Kassagerðar Reykjavikur, og Agnar Kristjánsson, forstjóri fyrirtækisins. lauk gagnfræöaskóla, siðast bankastjóri Landsbankans frá 1957 og Seölabankans frá 1971 og lét af þvi starfi um siðustu áramót. —SH íslandsheimsókn sænsku snillinganna HELLAS í kvöld: VALUR Johan Fischerström í Laugardalsltöll kl. 20.30 Dómarar: Jón Friösteinsson, Kristján örn Ingibergsson. Forleikur Valur—Fram 2. fl. kvenna kl. 20. Komiö og sjáið spennandi leik Gunnsteinn Skúlason. H.K.R.R.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.