Vísir - 09.10.1974, Side 5
5
Visir. Miövikudagur 9. október 1974.
ap/UntEbR IMORGUN UTLONDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón Guðmundur Petursson
Verkamannaflokknum spáð
MO/ imaLm fw|#|| Lokadagur kosningabaráttunnar í dag
/ O III11 U I W I yj I — gengið að kjörborðinu á morgun
í dag er siðasti dagur kosninga-
baráttu i Bretlandi, og eru þá
horfurnar Verkamannaflokknum
mjög i vil.
Siðustu skoðanakannanir, sem
birtust i Daily Mail i morgun,
gefa til kynna, að Verkamanna-
flokkurinn hafi 14 1/2% meira
fylgi en íhaldsflokkurinn.
Samkvæmt henni ætluðu 45,5%
að kjósa Vekamannaflokkinn,
31% Ihaldsflokkinn og 19,5%
Frjálslynda flokkinn.
„Hugsið ekki um skoðana-
kannanirnar. Þær hafa reynzt
rangar fyrr, og við höfum ekki
efni á þvi, að neinn sitji heima,”
sagði Wilson, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, i ávarpi til kjós-
enda sinna.
Skoðanakannanir síðustu
tveggja kosninga reyndust ekki
gefa rétta mynd af úrslitum
kosninganna og við það binda
ihaldsmenn traust sitt að þessu
sinni. —Auk þess er óvissan i
stjórnmálalifi landsins slik, að
ekkert verður séð fyrir með
neinni vissu um, hvernig fara
muni.
Heath leiðtogi Ihaldsflokksins,
hefur - i viðleitni sinni til að snúa
horfunum — boðað, að hann muni
stefna að myndun þriggja flokka
stjórnar að kosningunum
afstöðnum. Hét hann þvi, að kalla
hina tvo flokksleiðtogana, Wilson
og Thorpe, saman til fundar
næsta laugardag um leiðir til
lausnar þjóðarvandanum, ef
hann næði kjöri.
I kvöld munu Edward Heath,
Jeremy Thorpe og James Callag-
han (fyrir Verkamannafl.) koma
fram i sjónvarpi og flytja loka-
ávörp til kjósenda.
Nú er að biða og sjá til, hvernig
málin æxlast. Leiðtogarnir þrir,
Wilson, Thorpe og Heath, eru
þungt hugsi i óvissunni i stjórn-
málum landsins.
GLISTRUP FYRIR DÓM
Stuðningsmenn Mogens Glistrups sættu ákúrum dómarans I
gær, þegar hann varð að þagga niður I þeim til þess að tryggja
saksóknaranum gott hljóð.
Höfðu þeir marggripið fram I fyrir saksóknaranum, er hann
var að iesa upp ákæruatriðin gegn Glistrup, en þau eru alls um
3000 að tölu. Var þetta annar dagur upplestrarins.
„France"kemur
loks til hafnar
illar bifur ó 200
Lúxusfarþegaskipið „France”
mun nú snúa aftur til hafnar með
áhöfn sina alla i verkfalli eftir 4
vikna útivist, en samkomulag
hefur náðst milli stjórnvalda og
sjómannasamtakanna.
900 manna áhöfn skipsins yfir-
tók stjórn „France” 11. sept. og
varpaði akkerum i innsiglingu Le
Havre til að mótmæla fyrirmæl-
unum um að leggja skipinu. Siðan
flutti áhöfnin skipið i var undir
Cherbourg, þegar þvi var ekki
óhætt veðurs vegna að liggja við
Le Havre.
1 þvi samkomulagi, sem loks
hefur náöst, er ósagt látið, hvort
skipið verði tekið úr umferð.
Snúast samningarnir aðallega
um, að ekki komi til neinnar
refsingar gegn skipverjum fyrir
þetta tiltæki þeirra. — Áður höfðu
yfirvöld verið búin að lofa að út-
vega hverjum manni vinnu, sem
sagt yrði upp á „France”.
Yfirmaður sameiginlegs her-
ráðs flota, flug- og landhers USA
sagði i gær, að hernaðarmáttur
Bandarikjanna mundi biða skað
af — og til árekstra mundi koma
við önnur riki — ef Bandarlkin
færðu landheigi sina úr 12 mílum i
200 mflur.
George Brown hershöfðingi i
flughernum hvatti varnarmála-
nefnd öldungadeildarinnar til að
greiða atkvæði gegn lagafrum-
varpi, sem legið hefur fyrir þing-
inu og felur i sér slika útvikkun
landhelginnar.
Verzlunarnefnd þingsins hefur
nýlega samþykkt að vikka út
landhelgina til verndar fiskistofn-
um á grunnslóðum.
Brown hershöfðingi varaði
þingmennina við þvi, að önnur
riki mundu að öllum likindum
Larsen
orðinn
efstur
Bent Larsen komst i efsta sætið
á Marlboro-mótinu I Maniia I gær
með þvi að sigra stórmeistara
þeirra Filippseyinga, Eugene
Torre, i biðskák, sem þeir áttu. —
Tefldi Larsen Sikileyjarvörn,
sem hann hefur verið sparsamur
á, siðan Fischer lék hann hvað
verst i einviginu I áskorenda-
mótinu forðum.
Fast á hæla Larsen eða hálfum
vinning á eftir eru þeir Vashiukov,
Ljubojevic og svo Petrosjan, sem
átti möguleika á að verða jafn
Larsen, ef hann hefði unnið skák
sina við Portish. En fljótlega I
miðtaflinu bauö Rússinn eitt af
þessum jafnteflum, sem hann er
frægur fyrir, en það þáði
Ungverjinn ekki. Ekki fyrr en I
56. leik, þegar Petrosjan hótaði
þráskák.
Quinteros, sem íslendingar
þekkja af heimsókn hingað, hefur
ekki nema 1/2 vinning og hefur
enda átt við erfiða andstæðinga
að etja. Tapaði hann I gær fyrir
Ljubojevic.
Sviinn Ulf Andersson vann
biðskák sina við Portish og er
kominn með 1 1/2 vinning.
fara að fordæmi USA og færa út
landhelgina lfka. „Afteiðing 200
milna landhelgi út af ströndum
margra landa heims mundi draga
mjög úr hreyfanleika hersins,”
sagði hann. Benti hann á, að
ameriskar flugvélar og kafbátar
yrðu þá bannaðir á 40% þess
svæðis, sem nú telst almennar
siglingaleiðir. — Nema þá að sér-
stakir samningar næðust.
Nefndi hershöfðinginn Miðjarð-
arhafið sem dæmi um það, að
flotinn yrði útilokaður frá at
hafnasvæði sinu. Allt Miðjarðar-
hafið yrði landhelgi aðliggjandi
landa.
Auk þess dregur Brown hers-
höfðingi i efa, að stærri
Nóbelsverðlaunanefnd norska
stórþingsins kom þeim Eisaku
Sato og Sean MacBride alveg að
óvörum, þegar hún veitti þeim
friðarverðlaun Nóbels 1974. —
Almenn viðbrögð við verðlauna-
veitingunni eru upp og ofan.
„Mjög svo á óvart, en þó
ánægjulega,” sagði Sato (73 ára),
sem fjórum sinnum var forsætis-
ráðherra Japans á árunum 1964
til 1972.
„Það kom eins og sprengi-
kúla....ég hafði ekki einu sinni
hugboð um, að ég kæmi til
greina,” sagði MacBride i New
York. — Þessi sjötugi starfs-
maöur Sameinuðu þjóðanna var
eitt sinn utanrlkisráðherra Irska
lýðveldisins.
Norsku blöðin voru flest á einu
máli um, að verðlaunaveitingin
kæmi flattupp á alla. Aftenposten
sagði, að svo sýndist sem
einhverjir vildu gagnrýna
veitinguna, og þá einkum draga i
efa, að Sato væri verðlaunanna
verður.
Nóbelsnefndin sagði, að Sato
væri einhver fremsti fulltrúi
alþjóðlegs samstarfs og friðar og
hefði statt og stöðugt verið
andvigur þvi, að Japan yrði sér
úti um kjarnorkuvopn. — Um
MacBride tók nefndin fram
honum til hróss, að hann sem
fulltrúi á vegum S.Þ. I Namibia
(SV-Afriku) hefði fengið miklu
áorkað gegn óréttlæti og til
aukinna mannréttinda.
mílum
siglingaþjóðir, sem stunda fisk-
veiðar undan Bandarikja-
ströndum, mundu viðurkenna
slika útfærslu — einkum þá Japan
og Sovétrikin.
Tók svo Brown hershöfðingi
sem sérstakt dæmi um hugsanleg
viðbrögð rikja við einhliða út-
færslu landhelginnar þorskastrið
Breta og Islendinga, þegar Bret-
ar létu herskip fylgja togurum
sinum á Islandsmið.
Brown mælti með þvi, að
Bandarikin störfuðu að þvi að
koma á samningum um hafrétt-
inn, þar sem gert yrði ráð fyrir
sérstökum undanþágum fyrir
t.d. flug herflugvéla eða siglingar
herskipa.
Þetta er i fyrsta sinn, sem
Japani og íri fá friðarverðlaun
Nóbels, og annað árið i röð, að
verðlaununum er skipt milli
tveggja manna. í fyrra voru það
þeir Henry Kissinger og Le Duc
Tho frá N-Vietnam, sem
verðlaunin hlutu.
Tók frjó-
semislyf-
eignaðist
fimmbura
Fimmburar, sem fæddust
fyrir timann i háskólasjúkra-
húsi Maryland, eru sagðir við
góða heilsu. Læknar höfðu
áður haft áhyggjur af öndun-
arerfiðleikum, sem tveir af
fimmburunum áttu við aö
striða, en sagt var I gær, að
það hefði lagazt. Móðir fimm-
buranna — en þeir eru 4 telpur
og 1 drengur — hafði tekið
frjósemislyf. Fimmburarnir
voru teknir með keisara-
skurði.
„Hafdi ekki hugboð um
að ég kœmi til greina"
sagði MacBride, er fékk friðarverðlaun á móti Sato