Vísir - 09.10.1974, Page 9
Vísir. Miðvikudagur 9. október 1974.
Visir. Miðvikudagur 9. október 1974.
Þessi skemmtilega mynd að ofan er af einum
af beztu blakmönnum Sovétrikjanna, Boris
Buranov, og er tekin i úrslitaleik i meistara-
móti Sovétrikjanna i ár á milii stúdentaiiða
frá Moskvu og Riga.
Sá norski hélt
EM-titlinum í
hnefaleikum!
Norðmaðurinn Sven Erik Poulsen hélt
Evrópumeistaratitli sinum i léttvigt i hnefa-
leikum, þegar hann sigraði Giovanni Gir-
gente, Itaiiu, I fimmtán lotu ieik I Osló i
gærkvöldi.
Þrátt fyrir þaö voru 6000 áhorfendur á
stundum óánægðir með frammistöðu Poul-
sens. Þeir voru aö vonast eftir, aö eitthvað
mundi „ske” — það er að Norðmaðurinn
kæmi rothöggi á mótherja sinn, en itaiinn
var of sniöugur og fljótur — að þvi er norska
fréttastofan NTB segir — tii þess að sá norski
kæmi inn sínum hættulegu hægri krosshögg-
um eða vinstra húkki. Sikileyjarbúinn hafði
aðeins betur framan af keppninni — en um
miðjan leikinn fór „bein vinstri” hjá þeim
norska að segja til sín. Stigin féllu til hans og
I lokin stóð Poulsen, sem er frá Þrándheimi,
uppi sem sigurvegari.
HM í blaki
í Mexikó!
í dag hefst i Mexfkó 25. heimsmeistara-
keppnin i blaki. Keppt verður bæöi I karla- og
kvennaflokki og taka 24 liö frá öllum heims-
áifum þátt I þessum móti.
Sovétrikin eru talin einna sigur'strang-
legust I báðum flokkum, enda frábærum
liðum úr að velja I Sovétríkjunum, þar sem
5,2 milijónir manna æfa þessa skemmtilegu
iþrótt.
Hér á eftir fer stutt viðtal sem APN frétta-
stofan átti við forseta Blaksambands Sovét-
rlkjanna, V. Savvin, um sovézku liðin og
heimsmeistarakeppnina I Mexikó.
ALLT MINNA EN 4-0
ER TAP FYRIR OKKIIR
— segja dönsku leikmennirnir og blöðin um landsleikinn í Álaborg í kvöld
Frá Kjartani L. Pálssyni, Ála-
borg i morgun:
Það er mikil kokhreysti I Dön-
um i sambandi við landsleik Dan-
merkur og tslands I knattspyrn-
unni hér i Álaborg i kvöid. Allt
minna en 4-0 er tap fyrir okkur,
segja dönsku blööin — og leik-
menn danska liðsins eru sama
sinnis. Danir muna vel eftir 14-2
sigrinum fræga og hafa mikinn
áhuga á að minnast á þann leik.
Björn Lárusson, sem er eini leik-
maður tslands nú, sem var með i
þeim leik, hefur verið mjög I
sviðsljósinu —og þaðhafa birzt af
honum myndir Í blöðum og höfð
við hann viðtöl.
A blaðamannafundi lækkaði
Henning Enoksen, sá frægi
danski leikmaður, sem var lands-
liösþjálfari hjá okkur i fyrra,
nokkuð rostann I blaðamönnum,
þegar hann minntist á það, að ís-
lenzka landsliðið hefði nýlega
gert jafntefli við Finna, jafnframt
sem hann sagöi, að það hefði
Dönum ekki tekizt. Enoksen sagöi
ennfremur, að þvi, sem islenzku
leikmennina skorti á i tækni á við
þá dönsku, næðu þeir upp með út-
haldi og vilja.
í danska liðinu i kvöld verða
fjórir atvinnumenn, sem leika
með belgiskum og svissneskum
liðum, en hins vegar fengu Danir
ekki lausa þá atvinnumenn sina,
sem leika i Vestur-Þýzkalandi og
Austurriki. Hinir flestir tóku þátt
I landsleiknum við Spán á dögun-
um — en þó eru þrir nýliöar i
danska liðinu I kvöld. Leikmenn
liösins lita á leikinn við ísland
sem æfingu fyrir átökin viö
Rúmeniu næsta sunnudag — en sá
leikur er liður i Evrópukeppni
landsliða. t danska liðinu eru
fjórir þeirra leikmanna, sem léku
i Kaupmannahafnarúrvalinu
heima á íslandi i sumar — og úr-
valslið Reykjavikur sigraði.
Meðal þeirra er aðalmarka-
skorari Dana nú — Holmström
hjá KB, sem hefur skorað 20 mörk
i 1. deildinni, 12 meira en sá,sem
er næstmarkhæstur. Holström er
i miklu uppáhaldi hjá Dönum og
það kom þvi ekki vel við dönsku
blaöamennina, þegar fyrirliði
islenzka liðsins, Jóhannes Eð-
valdsson, sagði aö Holmström
hefði ekkert getað á tslandi I
sumar. „Hann má þá vera orðinn
góöur, ef hann á að geta eitthvað
gegn okkur i kvöld”, sagði Jó-
hannes.
Leikurinn verður háður i Aal-
borg-stadium — glæsilegum leik-
vangi, sem rúmar 20 þúsund
áhorfendur. Danir reikna með
milli 10-12 þúsund áhorfendum,
þótt veðurútlit sé slæmt. Ekta
islenzkt veðurfar — rok og
rigning. Leikið verður I flóðljós-
um og leiknum veröur sjónvarpað
beint. íslenzka landsliðið mun
klæðast nýjum landsliðsbúningi i
leiknum — hvitar peysur, hvitir
sokkar og bláar buxur meö
tveimur rauðum röndum.
Islenzku leikmennirnir æfðu á
leikvellinum i gærkvöldi og einnig
I morgun og eru mjög hrifnir af
honum. Þeir voru þar allir —
nema þeir tveir, sem koma i dag, I
Þorsteinn Ólafsson að heiman og
Asgeir Sigurvinsson frá Belgiu,
en hann hefur fengið leyfi hjá |
félagi sinu, Standard Liege, til að
leika i kvöld eins og dönsku
atvinnumennirnir hjá belglsku
iiðunum.
Ein breyting á
ísl. landsliðinu
Matthías Hallgrímsson kemur
Karls Hermannssonar
stað
Frá Kjartani L. Pálssyni,
Álaborg i morgun:
— Ég er ekki of bjartsýnn á
úrslitin I kvöld I landsleiknum.
Strákarnir hafa tekiö lifinu of
róiega siðan ég hætti að þjálfa
þá eftir landsleikinn við Belgiu.
Þar spila feröalög þeirra
með félögum sinum „út um
allan heim" lika inn i, sagði
landsliðsþjálfarinn Tony Knapp
I morgun.
— En við gefum heldur ekkert
eftir, sagði Tony ennfremur, og
þó að Danir séu að reyna að
hræða okkur, hefur það engin
áhrif. Það eru bara gamlir
draugar.
Landsliðið verður ekki gefið
upp fyrr en rétt fyrir leikinn i
kvöld, en mér tókst „að pina”
það út úr landsliðsþjálfaranum.
Ein breyting veröur á Islenzka
liðinu — Matthias Hailgrimsson j
kemur inn sem miðherji, en'
Ásgeir Sigurvinsson tekur stöðu i
Karls Hermannssonar sem"
framvörður. Liðið verðuri
annars þannig skipað."
Þorsteinn ólafsson, Keflavik,
Gisli Torfason, Keflavik.l
Jóhannes Eðvaldsson, Val.i
Marteinn Geirsson, Fram, Jón"
Pétursson, Fram, Guðgeiri
Leifsson, Fram, Ásgeir Elias-'
son, Fram, Ásgeir Sigurvins-i
son, Standard, Grétar Magnús-'
son, Keflavik, Matthiasj
Hallgrimsson, Akranes, og'
Teitur Þórðarson, Akranes. —i
Varamenn eru Magnús'
Guðmundsson, KR, Eirikuri
Þorsteinsson, Viking, Björn
Lárusson, Akranes, Jón/
Gunnlaugsson, Akranes, og'
Karl Hermannsson, Keflavik. j
Vonum að það verði brœla
segja ísl. sjómennirnir á síldarskipunum og þá œtla þeir að fjölmenna á landsleikinn
Frá Kjartani L. Pálssyni,
Álaborg I morgun:
Við vonum bara að það verði
bræia á sildarmiðunum i kvöld —
þá munum y^ið heldur betur
fjöimenna á landsleikinn og
hvetja islenzku strákana, sögðu
islenzku sildarsjómennirnir, sem
I sumar hafa verið I fangbrögðum
við sildina I Norðursjónum. Ég
held aö islenzku landsliðs-
mennirnir voni einnig að það
verði bræla — alltaf gott að heyra
hvatningarhróp af áhorfenda-
svæðunum. Og islenzkir sildar-
sjómenn geta vissulega látið i sér
heyra.
En það verða þó nokkrir Is-
lendingar á leiknum. Þeir hafa
komið viða að úr Danmörku
siðustu daga, og margir koma I
dag. Það er áhugi á leiknum,
greinilega.
Islenzku landsliðsmennirnir
búa á gömlum sveitabæ rétt utan
Alaborgar, sem hefur verið
breytt I gististað, vinalegt þar.
Ég hitti einn dönsku landsliðs-
mannanna I gærkvöldi — Ulrich
Le Fevre, sem um skeið var at-
vinnumaður með Borussia
Mönchengladbach i Vestur-
Þýzkalandi. Hann kemur nú aftur
i danska landsliðið eftir langt hlé.
Fyrsti landsleikur hans var
einmitt sá frægi — 14:2 leikurinn
á . Idretsparken, sællar
minningar, þegar danska lands-
liöið lék sér að þvi islenzka.
Ulrich sagði. — Ég hef litið
fylgzt með islenzkri knattspyrnu
siöustu árin, en ég veit þó, að
ykkur hefur farið fram. Við
sigrum i leiknum i Álaborg, þó sá
sigur verði ekki eins stór og i
Kaupmannahöfn forðum. Dönsku
leikmennirnir hafa svo mikla
leikreynslu að það kemur ekki
fyrir þá, að lenda i vandræðum
með „litla Islands”. Við erum
betri og getum ekki einu sinni
„misst” leikinn niður I jafntefli.
Tveir landsliðsmiðherjar
skoruðu þrisvar [ Newcastle unnu stórsigrq |
Tveir miðherjar enska
landsliðsins i knatt-
spyrnunni, Mike Chann-
on, Southampton, og
Malcolm MacDonald,
Newcastle, voru heldur
betur i stuði, þegar 3.
umferð deildabikarsins
hófst i gærkvöldi.
Channon skoraði þrennu
i 5-0 sigri liðs sins gegn
Derby — og sá sigur
kom heldur betur á
óvart — og MacDonald
var einnig með þrjú
mörk, þegar Newcastle
lék sé að QPR i
Lundúnum. Lokatölur 0-
4.
Annars urðu úrslit þessi i 3.
umferð deildabikarsins kvöldi. i gær-
Bristol City-Liverpool 0-0
Fulham-West Ham 2-1
Ipswich-Hereford 4-1
Middlesbro-Leicester 1-0
QPR-Newcastle 0-4
Sheff.Utd.-Luton 2-0
Southampton-Derby 5-0
1 3ju deild urðu úrslit þessi:
Grimsby-Brighton 3-2
Walsall-Port Vale 0-0
Malcolm MacDonald var ekki
lengi að finna leiðina i mark QPR
— eftir aöeins 13 sekúndur sendi
hann knöttinn i fyrsta skipti i
netmöskva Lundúnaiiðsins.
Leikmenn QPR, sem unnu efsta
lið 1. deildar, Ipswich, sl.
laugardag, náðu sér aldrei á strik
I leiknum og stórsigur Newcastle
varð staðreynd.
Niður á suðurströndinni var
Mike Channon alveg óstöðvandi
fyrir Southampton gegn Derby,
þar sem hann lék landsliðsfélaga
sina, Todd og Nish, grátt. Chann-
on skoraði þrjú mörk i hinum
óvænta sigri Southampton, sem
nú er meðal neðstu liða 2. deildar.
Ipswich var heldur ekki lengi
að koma knettinum i mark
Hereford úr 3. deild. David
Johnson skoraði eftir 89 sekúndur
og Ipswich-liðið réð alveg gangi
leiksins eftir það. Bikarmeistarar
Liverpool náðu ekki nema jafn-
tefli i Bristol gegn City. Þar var
mesti áhorfendafjöldi kvöldsins
— 25.573 og litlu munaði að Bristol
City færi með sigur af hólmi. Tiu
min. fyrir leikslok átti Trevor
Tainton hörkuskot af 20 metra
færi, og knötturinn sleikti þverslá
Liverpoolmarksins. Þá kom
einnig talsvert á óvart, að
Fulham úr 2. deild sigraði bezta
liö Lundúnaborgar nú, West
Ham. Þar með var sigurganga
West Ham rofin — en hún hefur
staðið i fimm leiki, sem gefið hafa
22 mörk. Stöðva varð leikinn i 28
min. vegna bilunar i flóðljósum
Santos
var ekki
SANTOS!
Franska liðið FC Rouen-
liðið sem Þórólfur Beck lék
eitt sinn meö — er nú I 2.
deild I Frakklandi og hefur
ekki vegnað sem bezt.
Fyrir skömmu ákváðu for-
ráöamenn þess að hressa
upp á áhugann hjá
stuöningsmönnum liðsins og
jafnframt áhuga gjaldker-
ans á starfi sinu, en hann
hefur heldur litið séð af
aurum undanfarna mánuöi.
Var gripið til þess ráðs að
skrifa til Brasiliu og bjóða
sjálfu stjörnuliðinu Santos að
koma i heimsókn, og var
tilboð um greiðslur og annaö
með I bréfinu.
Svar barst mjög fljótt og
vakti almenna ánægju i
Rouen búðunum, þvi Santos
sagðist mæta meö alit sitt lið
og bað jafnframt um, að
greiðslan yrði send i póstitil
félagsins.
Það var gert og slöan allt
undirbúið fyrir daginn stóra
— alit fágað og gert fint og
miðar seldir á leikinn svo
hundruðum skipti. Loks
kom að hinum stóra degi og
Santos mætti með allt sitt lið.
Menn teygðu álkuna og
leituðu að Peie og hinum
stjörnunum og þær sáust
hvergi.
Þegarsvo sjálfur leikurinn
hófst, urðu menn enn
meira undrandi að sjá til
Brassanna — þeir gátu bók-
staflega ekki neitt, og voru
leikmenn Rouen nánast
snillingar á við þá.
Þeir skoruðu hvert markið
á fætur öðru, og er yfir lauk.
stóð á markatöflunni FC
ROUEN 10 — SANTOS O.
Var nú farið að kanna
málið betur, og kom i ljós, að
boðsbréf Roucn hafði farið til
annars félags i Brasiliu, sem
einnig bar nafnið Santos.
Munurinn var bara sá, að
liðið sem Itouen var að
bjóða, lék I 1. deild,en þetta
var hverfalið úr borginni og
var ekki einu sinni i þeim
gæðaflokki að komast i 6. eða
7. deild þar i landi.
Finnar í
úrslitin
Finnar eru komnir í úrslit i
UEFA-keppni unglinga-
landsliöa í knattspyrnu eftir
sigur gegn Norömönnum, 1-
0, i Turku I gær. Finnsku
strákarnir leika þvi til úr-
slita I keppninni i Sviss næsta
vor, en þeir voru einnig i úr-
slitakeppninni I Sviþjóð sl.
vor og áttu þá efnilegu liði á
að skipa, að sögn Arna
Agústssonar, fyrrverandi
formanns islenzku unglinga-
nefndarinnar.
Fyrri leik landanna i Osló
siöast I september lauk án
þess mark væri skorað. t
leiknum i Turku I gærkvöldi
hafði norska liöiö yfirtökin i
fyrri hálfleiknum án þess þó
að nýta það I mörk. Eftir
leikhléið voru Finnar hins
vegar sprækari og Harry
Lindholm skoraði eina mark
leiksins.
Ómar Sigþórsson, Akranesi, kom einn innfyrir vörn íra I gærkvöldi—en var aðeins of seinn aö spyrna. Hinn frábæri miövörður tranna James
Hagan, tii vinstri, komst fyrir knöttinn og bjargaöi I horn. Ljósmynd Bjarnleifur.
UEFA-draumur strák-
anna slokknaði í lokin
írska unglingalandsliðið sigraði það ísl.í UEFA-keppninni á Melavelli í gœrkvöldi
og möguleikar íslands til að komast í úrslit 3ja árið í röð nánast úr sögunni
Sú von íslenzka
unglingalandsliðsins að
komast í úrslitakeppni
Evrópukeppninnar þriðja
árið í röð varð raunveru-
lega að engu þremur
mínútum fyrir leikslok i
leik íslands og Irlands á
Melavellinum í gærkvöldi.
Þá lék írskri miðherjinn
hjá Tottenham, Noel
Brakerstone, á íslenzku
varnarmennina — eftir
misskilning þeirra — og
renndi knettinum í markið
framhjá hinum snjalla
markverði islands, Jóni
Þorbjörnssyni, Þrótti. Það
var sigurmark leiksins —
irar unnu 2-1 og næstum
öruggt, að þeir tryggðu sér
farseðla á UEFA-mótið í
Sviss í mai næstkomandi
þar með.
Sigur Irska liðsins var
verðskuldaður. Þaö lék mun betri
knattspyrnu en Islenzka
unglingalandsliðið — leikni hinna
smávöxnu Ira og hraði var meiri
en islenzku „risanna”.
Þó hefði islenzka liðið með
smáheppni getað náð 2-3 marka
forustu i byrjun siðari hálfleiks.
Þá lék það vel og strax á fyrstu
minútunni skoraði Guðmundur
Þorbjörnsson, Val, gott mark
eftir að hafa leikið á irskan
varnarmann. Þetta mark
„hristi” Irana. Rétt á eftir
lagði Guðmundur knöttinn fyrir
fætur Atla Eðvaldssonar i
„dauðafæri”. Atli spyrnti yfir
markmanninn, en knötturinn fór
lika yfir þverslána. Þá komst
miðherinn frá Akranesi, Ómar
Sigþórsson, fór innfyrir en var of
seinn að nýta hið góða færi. Mið-
herji Ira stýrði knettinum i horn.
Einnig björguðu trar á marklínu
eftir hornspyrnu — og svo kom
mesta óheppni leiksins. KR-ingur
inn Hálfdán örlygsson komst frir
að marki Ira — spyrnti knettinum
framhjá irska markverðinum og
boltinn small I stönginni fjær,
skoppaði siöan eftir allri marklin-
unni, lenti i hinni stöng marksins
og hrökk út!! Það var mikil
óheppni — jafnvel 2-0 á þessum
tima hefði getað bjargað sigri.
En lokakafla leiksins náðu
irsku strákarnir aftur yfirhönd-
inni eins og þeir höfðu haft allan
fyrri hálfleikinn David McCrerry
hjá Manch. Utd. jafnaði með
frábæru skoti innan á stöng og i
mark á 31. min. og siðan kom
sigurmark Tottenhamleik-
mannsins. Siðar i mánuðinum fer
siðari leikur landanna fram ytra
og á grasvelli hafa okkar menn
sénnilega litið i hina nettu Ira að
gera.
Það eru nokkrir sterkir
einstaklingar i islenzka liðinu, en
sáralitil knattspyrna öfugt viö
það, sem verið hefur hjá
unglingalandsliðunum undan-
farin ár. Samleikur sást varla —
en mikið sparkað og hlaupið,
nema kaflann fyrst i siðari hálf-
leik. Það eru miklir risar i
islenzka liöinu-meðalhæö
þar áreiðanlega mun meiri en hjá
1. deildarliðum okkar. Hæðinni
fylgir stundum stirðleiki — það er
erfiðara fyrir stóran mann aö
hemja knöttinn. Þá kom skipan
islenzka liðsins einnig á óvart —
einkum meðal þeirra, sem bezt til
þekkja. Enginn ieikmaður úr þvi
félagi, sem haft hefur mikla yfir-
burði i 2. aldursflokki i sumar.
Beztu menn islenzka liðsins
voru auk Jóns markvarðar
Sigurður Haildórsson (Sigur-
björnssonar, Akranesi, „Donna”)
og Magnús Bergs, Val. Mjög
sterkir leikmenn, sem flestar
sóknartilraunir Ira brotnuðu á.
Einnig vöktu athygli Magnús
Teitsson, Stjörnunni, Árni
Valgeirsson, Þrótti, og
Guðmundur og Hálfdán I framlin-
unni. Leikmenn liðsins eru ungir
að árum og það á þvi „framtið-
ina” fyrir sér. Ekki vantar
hraðann og kraftinn.
Mesta athygli i irska liðinu vakti
Simpson hjá Colraine — nr. 10,
leikmaðurinn, sem Feijenoord
vill fá. Stórsnjall leikmaður.
Einnig voru Manch. Utd.-leik-
mennirnir McKearn (nr. 2),
McCrerry og McRorr (nr. 6)
góöir að ógleymdum miöverð-
inum James Hagan, Larn.
Skozkur dómari dæmdi leikinn
vel. —hsim.
I