Vísir - 12.10.1974, Qupperneq 1
VISIR
64. árg. — Laugardagur 12. október 1974 —199. tbl.
Maí vinsœlastur
til barneigna
— baksíða
BÖRNIN,-
„negrarmr
okkar"
- leiðari á bls. 6
//
MINNST 6573 LIFA I
PIPARSTANDr
— konur í meirihluta í
Reykjavík, en karlar
úti á landi
„Ekkert
mark tekið
r
a
mótmœlum
FÍB"
— baksíða
Hœttu-
legur
leikur
barna í
Skerjafirði
— baksíða
Varð undir
1000 kílóa
glerkistu, en
meiddist lítið
— baksíða
Tœkni-
byltingin
Utan Reykjavíkur búa
4.420 f leiri karlar en konur.
Afturámóti eru konur í
Reykjavík 2.153 fleiri en
karlar, svo því má slá
föstu með öruggum líkum,
að að minnsta kosti 6573
manns lifi í „piparstandi"
á landinu!
Tölur þessar eru teknar úr ný-
útkomnu hefti Hagtiöinda og
miöaðar viö fyrsta desember
siöastliöinn. Þar kemur fram, aö
ibúar Reykjavikurborgar eru
84.333, þar af 41.095 karlar en
43.238 konur. I öörum kaupstöö-
um eru karlar 31.367 og konur
30.758, eöa 62.125 manns i allt. 1
sýslum utan kaupstaöa búa
35.426 karlar, en 31.615 konur, eöa
67.041. Ibúafjöldi alls landsins er
þá 213.499, svo þaö er tæpur
þriöjungur landsmanna, sem býr
utan kaupstaöa.
Fjölmennasti kaupstaöurinn er
Kópavogur, meö 11.636 íbúa.
Akureyri fylgir fast eftir, meö
11.484 ibúa. Hafnarf jöröur er litlu
fámennari, eöa meö 10.926 ibúa.
Fjöldi eftir kynjum á landinu er
þannig, aö konur eru 105.611, en
karlar 107.880, eöa 2.269 fleiri.
Lifandi fæddir sveinar áriö 1973
voru 2388, en meyjar 2186, eöa 202
færri. 183 fleiri karlar dóu þaö ár
en konur, eöa 829 á móti 646. And-
vana fæddir sveinar voru 22 á
móti 21 stúlkubarni, en af börn-
um, sem létust á fyrsta aldursári,
voru sveinar 26, en meyjar 18.
Af þeim 4574 börnum, sem
fæddust lifandi áriö 1973, voru
1554 fædd utan hjónabands. Þaö
er nærri 34% barnanna, en talan
fyrir 1972 var um 32%, og svipaö
áriö 1971. Meðaltal áranna 1951-70
var um 27%.
Hjónavlgslur áriö 1973 voru
1753 og haföi fjölgaö um 61 frá ár-
inu áöur. Hins vegar uröu
hjúskaparslit 946 og haföi fjölgað
um 35, svo hlutfalliö er áþekkt.
— SH
Dóra er hér við eitt hinna
gömlu húsa, sem varðveitt eru
I Arbæjarsafni. Falleg stúlka
og fallegur bakgrunnur —
Ljósm. Bragi.
inn í fram-
haldsskóla
— bls. 3
,ÍSJAKAR'
við
Skúlagötu
— bls. 3
LANGAR AFTUR TIL ÍSRAEL
— til að lœra tungumálið
Hún er kölluð Dóra, er 18 ára
að aldri og afgreiðir I tizku-
verzlun. ,,Ég er fædd i Keflavik,
en flutti fljótlega til Reykjavik-
ur,” sagði hún okkur til frekari
skýringar. Og þessi stúlka er sú
sjöunda I röðinni af stúlkunum,
sem taka þátt I samkeppninni
Um ferð með Útsýn til sólar-
stranda.
Ef svo færi, aö Halldóra
Emilsdóttir, en svo heitir stúlk-
an réttu nafni, ynni ferðina með
Útsýn til Spánar eöa Italiu vilj-
um viö vona, að það verði friö
sælli utanlandsferö en siöasta
utanferö hennar var.
,,Ég vann á samyrkjubúi I
ísrael þrjá mánuöi á siöasta
ári,” segir Dóra. „Þangað kom
ég I september og var þvi rétt
búin aö átta mig á lifinu þar,
þegar ísraelsmönnum og Aröb-
um lenti saman á landamærun-
um. Aö sjálfsögöu varð ég
skelkuð I fyrstu, en það kom
aldrei til, aö við á þvi samyrkju-
búi, sem ég vann við, þyrftum
aö flytjast á brott. En það var ó-
neitanlega óþægilegt að vita af
átökunum ekki langt undan, oft
þaö iskyggilega nærri, að okkur
var skipað aö hirast i loftvarna-
byrgjum á meðan mestu lætin
gengu yfir.”
Þrátt fyrir þessa reynslu sina
af Israel hefur Dóra ekki fengið
sig fullsadda af landi og þjóð:
„Ég hef mikinn áhuga á að
komast þangaö sem fyrst aftur.
Þá aöallega til aö læra tungu-
málið, en það er auövelt að
stunda skóla meö vinnu við
samyrkjubú,” segir hún.
Hvenær orðið getur af þessari
ferð veit hún ekki.
Enn eigum við eftir að
kynna nokkrar stúlkur til við-
bótar fyrir lesendum VIsis. Sú
næsta verður I blaðinu á þriðju-
dag, en þaö er stúlka úr Hafnar-
firöi. Þegar við höfum birt
myndir af öllum stúlkunum I lit,
birtum viö andlitsmyndir af
þeim öllum i einu blaði og gef-
um lesendum tækifæri til að
velja þá stúlku, sem hljóta skal
ferö með Útsýn til sólarstranda.
Þaö verður glæsileg ferð, en
stúlkan, sem verður númer eitt,
fær aö velja sér annaðhvort ferö
til Costa del Sol á Spáni eða til
Gullnu strandarinnar á Italiu.
Útsýn er með skipulagöar
hópferöir til þessara staöa og
býöur farþegum sinum upp á
fyrsta flokks hótel og spennandi
dægrastyttingu — aðra en þá, að
liggja I sólinni. Stúlkan okkar
getur valið sér ibúð eða hótel-
herbergi aö eigin geðþótta og
sömuleiöis tekiö þátt i öllum
skoöanaferðum Útsýnar sér að
kostnaöarlausu. — ÞJM.