Vísir - 12.10.1974, Síða 5
Vlsir. Laugardagur 12. október 1974.
5
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón: BB/GP
Slys í loftbelg
Mike Adams og félagi hans, Mike Sparks, veifa í
kveðjuskyni til kunningja og annarra áhorfenda úr
körfu loftbelgsins, þegar hann lyftist frá jörðu. Sú
flugferð var stutt og endaði hrapallega.
Aðeins nokkrum andartökum eftir flugtak voru
báðir mennirnir liðin lík.
Þeir ætluðu að f Ijúga loftbelgnum til þess að aug-
lýsa vörulyftarategund nokkra.
En þegar loftbelgurinn var kominn upp í tvö þús-
und feta hæð og sveif yfir skurði einum í bænum
Saltley á Englandi, hrapaði hann til jarðar. Létust
þeir félagarnir samstundis.
Ekki er vitað, hvað biluninni olli eða hví slysið
varð.
Fyrir ekki svo löngu vann Mike Adams flug-
keppni íloftbelg, þar sem var f jöldi þátttakenda frá
mörgum löndum.
Hér á myndinni fyrir neðan, sést, hvar lögregla,
sjúkraliðar og forvitnir áhorfendur hafa þyrpzt að
til að rannsaka körfuflakið.
Lögreglunni i Vlnarborg tókst
undir lokin aö yfirbuga flótta-
fangann Helmut Pflug núna I
vikunni, en hann hafði þó haldið
lögreglumönnunum I skefjum
með þvi að halda brugöinni
sveðju yfir glsl slnum 29 ára
gamalli stúlku, Margarethe
Schaefer að nafni. Skammbyssu
hafði hann I vinstri hendinni,
svona til þess að vera við öllu
búinn. Lögregian leitaði hans
vegna gruns um nauðgun. Pflug
gerði kröfu um 30 þúsund
skildinga lausnargjald, sem eru
tæpar 200 þúsund isienzkar, en
varð að láta sig.
Fimmburunum líður vel
Eins og frá var sagt i Visi eignaðist kona ein i Baitimore
fimmbura núna i vikunni, og herma siðustu fréttir, að þeim liði öll-
um sex vel — og ekki má gleyma þeim sjöunda, föðurnum, sem hér
sést á myndinni virða fyrir sér eina af systrunum fjórum, skömmu
eftir fæðinguna, en þá var litla skinnið i súrefniskassa.
LANGDRÆGT LABBRABB
Með þvi að nota labbrabbtæki og loftnet úr venjuiegri regn-
hllf tókst tæknifræðingnum Roy Anderson að senda skilaboð
frá Washington alla leið til til New York. Hann sendi um
gervihnött og vildi með þessu sýna geimferðastofnuninni,
hvað svona einfaldur útbúnaður gæti komiö sér vel við
hjálparleitir.