Vísir - 12.10.1974, Síða 17
Vísir. Laugardagur 12. október 1974.
17
í KVOLD Q □AG | D KVÖLD
- vB
Gústaf þriðji var hlynntur alþýðunni og hér sjáum við hann I veizlu er hann bauð fólki úr öllum stéttum
til.
Gústaf III ú sunnudag kl. 21.00 í sjónvarpinu:
TOPPLAUSA TÍZKAN
FRÁ 1789
„Það er eiginiega mjög vill-
andi að vera að setja svona
mynd með kynningunni á þess-
um þætti,” sagði Dóra Haf-
steinsdóttir, er hún frétti, hvaða
mynd við ætluðum að setja með
kynningunni okkar á þættinum
Gústaf III, sem sýndur verður I
sjónvarpinu á sunnudagskvöld-
ið!
Ef vel er rýnt á myndina má
sjá að topplausu tizkuna má
rekja allt til ársins 1789. Þetta
glaumatriði tekur þó ekki nema
tæpa minútu af 100 minútum
verksins. Veizlu þessa heldur
Gústaf III fyrir alþýðuna, en
Gústaf var mjög frjálslyndur
maður og vildi bæta kjör alþýð-
unnar jafnvel það mikið að hann
og aðallinn voru orðnir frjáls-
lyndari en alþýðan sjálf.
Myndin um Gústaf byggist á
sögulegum heimildum, en fer þó
nokkuð létt með þær. Leikurinn
er frekar þungt stykki og mjög
mikið talað.
„Það verður að fylgjast vel
með þvi sem sagt er til að hafa
gaman af verkinu,” segir Dóra
Hafsteinsdóttir, og hún ætti að
vita það, þar sem hún hefur þýtt
textann við myndina.
— JB.
Útvarp á sunnudag:
Dagskrórstjóri í eina klukkustund:
RÁÐHERRA
SPREYTIR SIG Á
DAGSKRÁRSTJÓRN
,,Ég hafði litinn tíma til að
velja efni I þennan þátt. Ég
valdi þvi efni, sem mér er næst,
réttara sagt efni frá Austfjörð-
um,” sagði menntamálaráð-
herrann, Vilhjálmur Hjálmars-
son, sem verða mun dagskrár-
stjóri i eina klukkustund I út-
varpinu á sunnudaginn.
„Þetta er aðallega tal, en þó
nokkrir tónar inn á milli. Allt er
efnið tengt Austurlandi og sumt
flutt af Austfirðingum. Ég hef
tekið til frásagnar bæði úr þjóð-
sögum og öðrum ritum, og þétta
lesa öskar Halldórsson, Ævar
Kvaran, Baldvin Halldórsson,
Herdls Þorvaldsdóttir og Þor-
bergur Þórðarson.”
Reyndar er Hjálmar enginn
nýgræðingur i dagskrárstjórn.
Hann byrjaöi að setja saman
dagskrár fyrir einum 40 árum á
skólasamkomum fyrir austan,
og það er ekki lengra en 10 ár
slðan hann hætti þeirri iðju.
— JB.
Vilhjálmur Hjálmarsson
ráðherra býður upp á efni að
austan i þætti sinum á
sunnudaginn.
„Arfleifð í tónum" í útvarpinu,
laugardaginn kl. 2
Baldur Pálmason minnist
nýlátinna tónlistarmanna
Baldur Pálntason útvarps-
maður dustar á laugardaginn
rykið af plötum nokkurra þeirra
listamanna á tónlistarsviðinu,
sem létust árið 1972.
Tónlistarmenn eru ekki
ódauðlegri en hver annar, en
tónlistin lifir gjarnan lengi eftir
þeirra dag.
Baldur hefur á undanförnum
árum tekið saman þætti um
tónlistarmenn, sem létust á
árinu, og á laugardaginn kl. 14
heyrum við einn þessara þátta.
Þátturinn féll þó niður I fyrra
og þvl tekur Baldur sig til nú og
segir frá frægum listamönnum,
sem féllu frá á árinu 1972. I
næstu viku má svo vænta
annars sliks þáttar og þá verður
tekið fyrir árið 1973.
„Það vill oft fara fram hjá
mönnum hverjir falla frá af
þekktum tónlistarmönnum, og
ég hef nokkuð reynt að fylgjast
með þvi”, sagði Baldur.
„Það verða alls 12-13 nöfn,
sem koma við sögu i þættinum.
Við getum þar nefnt tvo ágæta
jassista sem fram koma, þá
Mezzrow, sem var hvitur
klarinettuleikari, en taldi sig þó
eiginlega til svarta stofnsins.
Hinn jassmaðurinn er Jimmy
Rushing. Mahilia Jackson féll
einnig frá á þessu ári.
öperuhöfundarins Rudolphs
Riml er minnzt, hann var Tékki
en búsettur I Ameriku. Mest er
fjallað um söngvara I þættinum
og heyrum við meðal annarra I
söngkonunni Ernu Sack.”
-K-K-k-k-k-k-k-k-k-K-k-K-k-k-k-k-K-k-kJt-K-k-k-k-k-k-K-K-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-K-k-k*-
Spáin gildir fyrir sunnudaginn 13. okt.
>*í
Nfc
★
★
★
★
í
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
í
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
*
*
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
í
l
I
*
*
I
i
m
&
-s •
Ilrúturinn, 21. marz-20. april. Þú færð tækifæri
til að gera einhverjum greiða og öðlast vináttu
hans I staðinn. Þú ættir ekki að finna að hlutun-
um i dag. Hjálpaðu maka þlnum að leysa úr
vandamáli.
Nautið, 21. apríl-21. mai. Smávegis ræktarsemi
við ástvini tengir þig viö þá sterkari böndum.
Láttu yngri kynslóöina njóta reynslu þinnar.
Gefðu sköpunarþörfinni lausan tauminn.
Tvlburarnir, 22. mai-21. júni.Þetta er hálfdauf-
ur dagur. Taktu bara hlutunum eins og þeir
koma fyrir án þess að vera nokkuð að æsa þig yf-
ir þeim. Þú gætir orðið leiður á þessari allsherj-
ar deyfö.
Krabbinn, 22. júni-23. júll. Þú ættir að bregöa
þér bæjarleiö til að lyfta skapinu aöeins upp.
Mundu að maginn þarf sitt. Vertu alúðlegur við
nágrannana.
Ljónið, 24. júli-23. ágúst.Þú geturbreytt hlutum
sem þú átt þannig, að þeir öðlist meira gildi.
Smágjöf til vinar getur haft góö áhrif á gang
mála seinna meir.
Meyjan, 24. ágúst-23. sept. Haltu þér i forminu,
sjarmi þinn er I hápunkti. Þaö er nóg til að gera
og fjöldi fólks til aö rabba við. Hafðu ekki
áhyggjur af útlitinu.
Vogin, 24. sept. — 23. okt. Einhverjir trúarlegir
eða andlegir kraftar ýta undir hugrekki þitt I
dag. Þú ættir að reyna aö rannsaka sjálfan þig
niður i kjölinn. Kvöldið verður sérlega ánægju-
legt.
Drekinn, 24. okt.-22. nóv.Vertu þar sem þú sést
og getur séð aðra. Þvi fleira fólk sem er I kring-
um þig þvibetra. Þú ættir að hugsa meira um
opinber málefni en þin eigin.
Bogmaðurinn, 23. nóv.-21. des.Þessi dagur mun
draga athygli þina aö hlut (bæði andlega og
iikamlega) sem þú ert fær um að nota þér til
góðs. Reyndu að vera léttur i viöræðum.
Steingeitin, 22. des.-20. jan.Leitaðu i dag á náöir
einhvers sem hefur áður haft góð áhrif á sálarlif
þitt. Kynntu þér greinar um heilsufar, þú ættir
að reyna að skreppa út úr bænum.
Vatnsberinn, 21. jan.-19. feb.Mundu að það þarf
góðan stjórnanda til að fara með peninga á rétt-
an hátt. Reyndu að vera sjálfur þinn stjórnandi.
Gáfurnar hafa alltaf sitt að segja.
Fiskarnir, 20. feb.-20. marz. Þetta er góður dag-
ur til hvers konar samninga. Taktu vel eftir hug-
myndum annarra og haföu reynslu þeirra I
huga.
Tíu á toppnum" vœri réttar nefndur:
W W
„TIU A
FERÐINNI
#/
Kannski væri réttara að
breyta um nafn á dægurlaga-
þættinum „TIu á toppnum” og
kalla hann „TIu á ferðinni”. örn
Petersen, stjórnandi þáttarins,
var á slnum tlma óhress mjög,
er þátturinn hans var fluttur af
laugardeginum yfir á sunnu-
daginn, en nú eru allar likur á
þvi að hann fái ekki heldur að
vera I friði þar.
Það er sem sagt komiö haust
og þá fara fyrstu dropar jóla-
bókaflóðsins aö falla. Nú er viss
pressa að koma lestri úr nýjum
bókum inn á einn vinsælasta út-
varpstimann og ráðageröir eru
uppi um það að láta „TIu á
toppnum” vikja fyrir nýju bók-
unum.
Hvað þá veröur veit nú eng-
inn, vandi er um slikt að spá, en
þeirri hugmynd hefur verið
fleygt (vonandi fyrir borð), að
tónlistaþátturinn „Áfangar”
verði látinn vikja af föstudegin-
um og jafnframt alveg af dag-
skránni.
Eins hefur ómar Valdimars-
son tekið upp 10 þætti fyrir út-
varpið, þar sem hann rekur ævi
og tónlist Bob nokkurs Dylans
niður i kjöiinn.
Örn Petersen
Nú er vandkvæðum bundiö að
koma þessum þætti að lika,
þannig að öll spjót beinast að
Afangamönnum. Hafa þeir
jafnvel veriö beðnir um aö taka
sér 10 mánaða fri, sem þeir eru
þó langt frá þvi ánægðir með.
Þeir segjast vilja annaðhvort
stjórna þessum þætti eða ekki,
en ekki vera einhverjir ihlaupa-
menn sem hægt sé að hringja i
þegar gat er i dagskránni.
—JB
•^k-k-k-k-k-k-kk-k-k-kk-k-k-k-k-k-k-k-k-K-k-k-k-k-k-k-kk-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-fc-k-k-k-k-k-*************************************************