Vísir - 15.10.1974, Blaðsíða 1

Vísir - 15.10.1974, Blaðsíða 1
VÍSIR 64. árg. —Þriöjudagur 15. október 1974 — 201. tbl. RJÚPUR SÆKJA í GARÐANA í BREIÐHOLTI — baksíða B—aB msmmm Teygjubyssu- faraldur í Breiðholti: Skotið á glugga róður Fólk, sem býr i húsi nr. 36 viö Dvergabakka, heyröi i gærkvöldi háan smell I stofu- rúöunni. Þegar þaö leit út, var komiö gat I ytri rúöuna, likt og eftir byssuskot. tbúðin snýr út að Breiðholts- kjöri. Fólkið sá einhvern hverfa bak við búðina. Hús- bóndinn á heimilinu hljóp út og náði tveimur strákum stutt frá. Kom þá i ljós að þeir höfðu skotið stálkúlum úr kúlulegu með teygjubyssu á stofurúð- una. Þegar lögreglan kom á stað- inn, komu ibúar af næstu hæð fyrir ofan og skýrðu frá þvi að á föstudagskvöld heföi rúða brotnað á svipaðan hátt i ibúð þeirra. En i staðinn fyrir litið gat, sprakk öll rúðan. Hér er liklega komin skýring á öðru dularfullu rúðubroti, sem varö i húsi við Hjaltabakka á föstudags- kvöld. Þar leit út eins og skotið hefði verið úr byssu i rúðu á húsinu. Að sögn rannsóknarlögregl- unnar i Reykjavik, virðist teygjubyssufaraldur vera i Breiðholti. Nota krakkar mik- ið þessar stálkúlur sem skot- færi. Full ástæða er til að hvetja foreldra til þess að stemma stigu viö þessu, enda geta þessi áhöld verið hættuleg i meðförum, ef skot fer I andlit eða aðra viðkvæma staði. Rannsóknarlögreglan telur ekki, að skotárásin á hjónin á sunnudagskvöld sé i tengslum við þennan teygjubyssu- faraldur, heldur hafi þar verið um raunverulegt skotvopn að ræða. —ÓH Ellefu sinnum í landsliðinu — en alltaf á varamannabekknum — sjá íþróttir í opnu Krefjast afsagnar Heaths — sjá bls. 5 og 6 Stútur iðinn við stýrið — baksíða Rannsókn hafín á olíu- mengun í neyzluvatninu Vísir fékk óvenjulegt lán hjá Sparisjóðnum i Hafnarfiröi i siðustu viku. Við fengum lánaöa þar bankamær til að ljósmynda i Hellisgeröi. Stúikan heitir Sig- riður Björg Stefánsdóttir og hefur starfaö i tékkadeild Spari- sjóðsins i nokkrar vikur. ,,t sumar vann ég sem ganga- stúlka á Landspitalanum,” sagði Sigriður okkur. Og hún viðurkenndi, að henni likaði betur starfið i sparisjóðnum. Vaktavinnan á spitalanum hafi verið þreytandi til lengdar. Sigriður er 17 ára gömul og lauk hún gagnfræðaprófi i vor. ,,Ég tók það próf frá gagnfræða- skólanum á ólafsfirði.en annars stundaði ég skólanám mitt i skólunum hér i Hafnarfirði frá upphafi,” útskýrir Sigriður. Hún færðist undan þegar við spurðum hana, hvort henni hafi likað betur skólavistin i Olafs- firði eða i Flensborg. En svo svaraði hún þvi til, að sér hafi likað betur andinn á Ólafsfirði. ,,Það var fjörugra þar,” sagði Sigriður. Ekki kvaðst hún þó vilja flytjast þangað norður fyrir fullt og allt. „Það væri erfitt að yfirgefa höfuðborgar- svæöið og flytjast i svo litið pláss.er ég hrædd um.” Nú hafði ljósmyndarinn okkar, hann Bragi, lokið myndatökunniog lánsfresturinn útrunninn. Við þurftum að skila Sigriði aftur i sparisjóðinn, þar sem vinnudegi var ekki að fullu lokið. Enn eigum við eftir að kynna nokkrar stúlkur fyrir lesendum Visis. Er fyrirhugað að ljúka þessari „kynningarstarfsemi” fyrir lok næstu viku og á fyrstu dögum vetrar verður lesendum svo gefið tækifæri til að greiða stúlkunum atkvæði, en sú hlutskarpasta fær að launum ferð með Útsýn til Spánar eða ttaliu að eigin vali. —ÞJM Heldur er nú gróöurinn f Hellisgeröi I Hafnarfiröi farinn aö láta á sjá. En þaö er minni hætta á aö hún Sigriöur tapi útliti sinu, þó aö veöriö fari aö veröa hráslagalegra. — Ljósm: Bragi. FENGIN AÐ LÁNI í SPARISJÓÐNUM Hafin er rannsókn á jarðvegi á vatnasvæði Keflavíkur. Rannsóknina annast Hei Ibrígðisef tirlít ríkisins/ fyrir milligöngu varnarmá ladeildar og heilbrigðisráðuneytisins. Jóhann Einvarðsson, bæjar- stjóri i Keflavik, sagði Visi, að i siðustu viku hefði bréf varnar- máladeildar til heilbrigðisráðu- neytisins verið til umræðu á bæjarstjórnarfundi, og kom þá fram það álit, að aðeins væri timaspursmál, hvenær oliumeng- un kæmi fram i neyzluvatni Kefl- vikinga. Jóhann og fleiri hafa lengi ósk- að eftir úttekt á oliumeðferð á vellinum. Vitað er, að slökkviliö vallarins hefur leyfi til að eyða oliuúrgangi með þvi að kveikja i honum i steyptri þró, en þrátt fyr- ir það geta alltaf orðið slys i þvi sambandi. Þá er vitað, að við áfyllingu á flugvellinum getur komið fyrir, að eldsneyti fari nið ur, og er þvi þá skolað út af braut- inni út á opinn jarðveg. Nýlega gerði Keflavfkurblaðiö Suðurnesjatiðindi hrið að þessum málum og óskaði eftir þvi að fá sjálft leyfi til að láta jarðfræðing kanna mengun á svæðinu. Þvi var synjað, en varnarmáladeild utan- rikisráðuneytisins sendi heil- brigðisráðuneytinu bréf og óskaði eftir slikri könnun. Jafnframt óskaöi bæjarstjórn eftir þvi, að hún fengi að fylgjast með slikri könnun, meðal annars meö tilliti til þess, hvar jarðvegssýni væru tekin. „Mér vitanlega hefur enginn orðið var við oliu i vatni hér,” sagði Jóhann. En vatnsrennsli á svæöinu hefur ekki verið kannað til hlitar, svo engin leið er að gera sér grein fyrir, hvar mengun kynni að koma fram. Auk þess vitum við litið, hvað kann að vera i jörð hér i grenndinni. Gera má ráð fyrir, aö i striðslokin hafi ver- ið grafið allskonar gamalt drasl, sem enginn veit um, þar á meðal kannski oliutunnur og annað slikt. Okkur er sagt, að til dæmis i Þýzkalandi sé að koma fram oliu- mengun núna, sem má rekja til siðari heimsstyrjaldarinnar. Ingimar Sigurðsson, fulltrúi i heilbrigðisráðuneytinu, sagði blaðinu, að varnarmáladeild hefði snúið sér til ráðuneytisins og beðið um rannsókn á oliu- mengun i Keflavik. Ráðuneytið sneri sér til Heilbrigðiseftirlits rikisins með þessa beiðni og það brást mjög vel við — rannsóknin er þegar hafin. —SH Fœr 500 þúsund vegno ólöglegrar uppsagnar — baksíða

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.