Vísir - 21.10.1974, Side 9
Happa-
Það voru margir, sem
horfðu á leik FH og SAAB á
laugardaginn, sem tóku eftir
þvi, að Geir Hallstcinsson
var ekki i sömu FH-peysunni
og hann var vanur að leika i
— eða peysu með númer 10 á
bakinu.
Þar sem Geir, eins og
margir aðrir iþróttamenn, er
hjátrúafullur — eitt dæmi
um það er að hann hefur
alltaf leikið i peysu númer 10
hjá FH og landsliðinu lék
okkur forvitni á að vita,. hvað
hefði gerzt.
Geir sagði okkur, að þetta
hafi ekki verið með vilja
gert. Gamla peysan sin
fyndist hvergi, sama hvar
væri leitað.
Hann hefði þvi orðið að
fara i peysu númer 2, en það
væri gamla númerið hans
Birgis Björnssonar, sem
hann hefði notað i öllum
sinum leikjum með FH. Væri
ágætt að vera i henni, en þó
vildi hann fá sina gömlu
peysu aftur, ef hún fyndist þá
nokkurn timann.
—klp
Moskva?
Á þingi alþjóða-olympíu-
nefndarinnar, sem hefst i
Vinarborg i dag verður úr
þvi skoriði' hvort Olympiu-
leikarnir 1980 verða i
Moskvu eða Los Angeles.
Allt bendir til Moskvu — full-
trúar Evrópu, Afriku og Suð-
ur-Ameriku hafa lýst yfir
stuðningi við Moskvuborg.
Fulltrúar 131 lands sækja
þingið. Eitt af aðalmálunum
verður að létta mjög á regl-
um i sambandi við áhuga-
menn — fclla niður þá grein,
að iþróttamenn, sem tekið
hafa þátt I keppni með at-
vinnumönnum, megi ekki
taka þátt i Olympíuleikum.
ALLAR STÆRÐIR
VERÐ FRÁ KR.
1.748,-
PÓSTSENDUM
Sportvöruverzlun
Ingólfa OgkartHonar
44 - 84»i II7H - EUytWft
Landsliðið stóðst
ekki lokaprófið!
— Tapaði fyrir pressuliði i
Laugardalshöllinni í gœrkvöldi
tslenzka landsliðið i handbolta,
sem heldur til Sviss i keppnisför
eftir nokkra daga, stóðst ekki
lokaprófið i gærkvöldi — féll fyrir
pressuliði. Að visu með minnsta
mun 22-21. Þó vantaði þá leik-
menn, sem mestu var búizt við af
i pressuliðinu. Geir Hallsteinsson,
Björgvin Björgvinsson og Gunn-
steinn Skúlason. Þegar á það er
litið verður fall landsliðsins
meira. En vonandi sannast hið
fornkveðna. Fall er fararheill, þó
svo greinilega hafi komið fram i
lciknum i gærkvöldi, að sú
gagnrýni, sem komið hefur fram
á landsliðsval Birgis Björnsson-
ar, hefur við rök að styðjast.
Það ■ er auðveldlega hægt að
skipa landsliðið betur en nú er —
sumir hinna yngri manna eru enn
ekki komnir svo langt að hafa
getu til að leika i landsliði. A það
bættist, að nokkrir hinna leik-
reyndu manna liðsins brugðust .1
gærkvöldi. Engir þó meir en
markverðirnir — Hjalti, Birgir
Finnbogason og Guðjón Erlends-
son voru beinlinis lélegir.
Kannski skiljanlegt með FH-ing-
ana eftir átökin við Saab deginum
áður — en það er lika eina afsök-
unin, sem landsliðið hefur. Mark-
varzla pressuliðsins, þar sem
Ólafur Benediktsson átti stór-
góðan leik, svo og Gunnar
Einarsson, Haukum, var i allt
öðrum gæðaflokki og lagði grunn-
inn að sigri pressunnar.
En nokkrir aðrir leikmenn
pressuliðsins eiga þó mikið hrós
skilið. Ungi, örvhenti Vikingur-
inn, Stefán Halldórsson, ,,sló i
gegn” —var maðurinn bak við
spil pressunnar ásamt Hilmari
Björnssyni, dreif upp hraðann og
skoraði falleg mörk, auk þess
sem hann lék samherja sina hvað
eftir annað fria og þeiiskoruðu.
Já, gamli landsliðsþjálfarinn
Hilmar kann sitt fag! — en skotin
hefðu mátt vera betri. Þar bætti
Brynjólfur Markússon um —
skoraði flest mörk allra, þó svo
hann væri þungur i spilinu.
„Gömlu landsliðsjaxlarnir”
Stefán Gunnarsson og Stefán
Jónsson stóðu að venju fyrir sinu
— og Gróttumaðurinn Árni
Indriðason var góður i vörn og
skoraði fallega af linu.
Þó mikill fjöldi áhorfenda hafi
orðið fyrir vonbrigðum með
landslið Birgis sýndu þó sumir
leikmenn þess allgóðan leik —
** •
einkum Viðar Simonarson i fyrri
hálfleik, siðan ólafur Einarsson
og Pálmi Pálmason. 1 sambandi
við Pálma er rétt að biðjast af-
sökunar á meinlegri prentvillu,
sem varð hér i blaðinu eftir leik
Fram og Hellas. Þar féll niður
kafli og nafn eins leikmanns
Fram, sem er i heldur litilli
æfingu, en prentvillupúkinn kom i
þess stað æfingaleysinu á Pálma.
Það hefur okkur aldrei dottið i
hug i sambandi við hann — þó á
stundum hafi okkur fundizt, að
Pálmi gæti beitt sér betur. Það
gerði hann i gærkvöldi og skoraði
falleg mörk — og getur, ef rétt er
á málum haldið, orðið einn af
máttarstólpum islenzka lands-
liðsins.
En þetta var nú úr vegi. Leikur-
inn i gærkvöldi var lengstum
mjög jafn. Landsliðið hafði ivið
betur i fyrri hálfleiknum, þegar
Viðar sendi knöttinn fimm sinn-
um i mark pressunnar, og það
lagði grunn að tveggja marka
forustu i hléi, 12-10 fyrir landslið-
ið. Eftir 11 min. i s.h. var staðan
orðin 18-14 fyrir landsliðið, en þá
tók pressan heldur betur sprett.
Jafnaði i 18-18. Eftir það var
baráttan i algleymingi — en
pressan hafði betur. Misnotaði þó
viti rétt fyrir lokin (Hilmar).
Mörk pressuliðsins skoruðu
Brynjólfur 7, Stefán Halldórsson
4, Stefán Gunnarsson 2, Stefán
Jónsson 2, Hilmar 2. Hörður Sig-
marsson 2, Árni Indriðason 2, og
Agúst Svavarsson 1. Fyrir lands-
liðið skoruðu Viðar 6, Pálmi 6 (1
víti), Ólafur Einarsson 5, Einar
Magnússon, Ólafur H. Jónsson,
Pétur Jóhannesson og Bjarni
Guðmundsson eitt hver. Leikinn
dæmdu Björn Kristjánsson og
Karl Jóhannsson. — hsim.
Hilmar fyrrum landsliðsþjálfari Björnsson skorar hjá landsliðinu — en hvar er landsliðsvörnin?? —
Ljósmynd Bjarnleifur.
Evrópumeistararnir
að nó sér ó strik!
Evrópumeistarar Bayern
Munchen unnu sigur á efsta liðinu
i 1. deildinni þýzku á laugardag,
2-1 gegn Eintracht Frankfurt I
Munchen. Við það galopnaðist
dcildin. Köln vann Schalke 4-2,
Hamborg van Wuppertaler 4-1,
og Offenbach vann Borussia
Mönchengladbach 4-3.
1 Belgiu var leikið i gær i 1.
deild. Standard Liege, liðið, sem
Ásgeir Sigurvinsson, leikur með
vann Lokeren 3-1, en Anderlecht
náði ekki nema jafntefli. Bering-
en 1 — Anderlecht 1. Stórliðin i
Hollandi sigruðu t.d. Graafschap
1 — Fejenoord 6. Eindhoven og
Ajax hafa 14 stig — Fejenoord 12,
eftir sjö umferðir.
1 Austur-Þýzkalandi vann
Magdeburg á heimavelli 3-1 gegn
Vorwaerts Stralsund. Dynamo
Berlin vann Leipzig 3-1, en Vor-
waerts Frankfurt tapaði á heima-
velli fyrir Dynamo Dresden 2-3.
PUMA
handboltaskór og
körfuboltaskór
alltaf!
Það ver ekki á milli mála —
þeir eru ósigrandi! Fyrir leik
landsliðsins og pressuliðsins I
Laugardalshöll léku iþrótta-
fréttamenn við stjórn HSÍ, sem
styrkti lið sitt á ýmsan hátt. Lét
m.a. Kalla Jó. leika í marki. Það
hafði ekkert að segja —ómar og
allir hinir fréttamennirnir unnu
stórsigur 6-5. Þeir skoruðu nær
allir nema Bjössi Blöndal, sem þó
hefði getað tvöfaldað markatölu
fréttamannanna ef þurft hefði
með. En þess þurfti ekki. Lands-
liðsein valdurinn Birgir var
drýgstur stjórnarmanna — enda
voru gárungarnir að tala um það
eftir á, að þar hefði hann eytt allri
sinni orku. Ekkert átt eftir handa
lansdsliðinu i siðari leiknum. Þá
var Stefán Ágústsson eins og
Gróttuviti — lýsti upp
stjórnarliðið og skoraði fallega úr
hornunum.
Ómar Ragnarsson að detta — og það var ráðið. Knötturinn hafnaði I
markistjórnar HSt.Jón Erlendsson horfir furðu lostinn á tækni Ómars.
Ljósmynd Bjarnleifur.