Vísir - 21.10.1974, Page 10
10
Bœði spjöldin
óloft í fyrsta
leiknum!
Körfuknattleiksmenn hafa
tekið upp þá nýbreytni nú i
sambandi við islandsmótið i
körfuknattleik að iáta
dómarana fá gui og rauð
spjöld til að nota á sama hátt
og dómarar i knattspyrnu.
Er þetta gert til aö reyna
að stemma stigu við
óiþróttamanniegni fram-
komu körfuknattleiks-
manna, en þeir hafa til þessa
verið ósparir á að láta
dómarana heyra I sér og þá
ekki sparað þeim kveðjurnar
frekar en aðrir.
Það þurfti heidur ekki
lengi að biða eftir þvi, að
fyrstu spjöidin færu á loft i
islandsmótinu. Strax eftir
leik Ármanns og UMFN,
sem var fyrsti leikur
mótsins, fékk þjálfari Njarö-
víkinganna að sjá spjöldin.
Fyrst fékk hann það gula, og
siðan það rauða strax á eftir.
Aganefnd KKÍ fær öll
„spjaidamál” til meðferðar
og mun dæma eftir svipuðum
reglum og Aganefnd knatt-
spyrnusambandsins. Þrjú
gul spjöld þýðir einn leikur I
keppnisbann og sömuleiðis
eitt rautt spjald. Með öðrum
orðum þýðir þetta fyrir
þjálfarann hjá UMFN, að
hann fær ekki að stjórna liöi
sinu i næsta leik. —klp
Frásögn íslendings,
sem lék í kvikmynd,
þar sem
Burt Lancaster
lék Móses...
„PJÖTLURNAR"
•
CHANGE
HEIMSÓTTIR
SAMÚEL í SOHO
•
SAMÚEL Á
ÓLAFSVÖKU
ÍR í vandrœðum með ný-
liðana fró Snœfellsnesi
Annars fátt um merkileg úrslit í fyrstu leikjunum
í Íslandsmótinu í körfuknattleik 1975
Stefán Bjarkason fyrrum leik-
maður mcð Val en nú leikmaður
með Njarðvlkum, skoraði fyrstu
stigin i islandsmótinu i körfu-
knattleik 1975. Þau skoraði hann i
fyrsta leik mótsins, sem var á
milli UMFN og Armanns, sem
fram fór i iþróttahúsinu i Njarð-
vikum á laugardaginn.
Mótið var sett með ræðu for-
manns KKl, Einars Bollasonar,
en áður höfðu bæði liðin gengið
inn á leikvöllinn og fór fremstur
Ármenningurinn Birgir örn
Birgis með islenzka fánann. Þetta
er 18. keppnisár Birgis i körfu-
knattleik, en hann hóf að leika
með meistaraflokki Armanns
aðeins 15 ára gamall, og 16 ára
gamall lék hann sinn fyrsta a-
landsleik.
Þrátt fyrir fyrstu körfuna
nægði hún Njarðvikingunum
skammt i leiknum við Ármann.
Reykjavikurliðið, sem margir
telja að verði íslandsmeistari i ár.
náði fljótlega yfirhöndinni og
sigraði i leiknum með 16 stiga
mun — 78:62.
öllu meiri spenna var i leiknum
á eftir, en þar áttust við nýlið-
arnir i deildinni, Snæfell, sem er
eins og nafnið bendir' til af
Snæfellsnesinu, og 1R. Snæfell-
ingarnir stóðu vel i ÍR-ingunum,
sem mega muna fifil sinn fegurri
i 1. deild. Þeir höfðu það samt af
að sigra nýliðana, þótt ekki væri á
sem glæsilegastan hátt, eða
aðeins með 5 stigum — 66:61.
Snæfellingarnir léku aftur i
deildinni i gær, og mættu þá 1S i
Iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi.
Þar tókst þeim ekki eins vel upp
og á móti 1R — stúdentarnir
sigruðu með 21 stigs mun — 70:49.
Fjórði leikurinn i 1. deild um
helgina var leikur Vals og HSK og
lauk honum með stórsigri Vals-
manna, sem skoruðu 80 stig á
móti 54 stigum Skarphéðins-
manna.
Áttunda liðið i 1. deild — KR —
átti fri um þessa helgi, og einnig i
kvöld, en þá verður leikið i
Reykjavikurmótinu i Laugar-
dalshöllinni. Eigast þá m.a. við
Armann og 1S.
Einn mikilvægur leikur fór
fram i 2. deild um helgina. Fram,
sem sigraði i 3. deild i fyrra, lék
við Borgarnes, sem féll úr 1.
deild. Þeim leik lauk með fjögra
stiga sigri Borgnesinganna.
—klp
NYTT TOLUBLAÐ
KEMUR ÚT í DAG
EFNI M.A.:
Visir. Mánudagur 21. október 1974.
Visir. Mánudagur 21. október 1974.
FH hafði það - komst í
2. lotu Evrópumótsins!
FH hafði það af að
merja sigur gegn sænsku
meisturunum SAAB í síð-
ari leik liðanna í Evrópu-
keppninni í handknattleilo
sem fram fór í Laugar-
dalshöllinni á laugardag-
inn. Munurinn í þeim leik
var tvö mörk og nægðu
þessi tvö mörk FH-ingum
til að komast áfram í
keppninni með saman-
lagða markatölu 36:35.
Það hefði nægt þeim að sigra
með einu marki i siðari leiknum
— þá hefðu þeir komizt áfram á
betri markatölu, eða fleiri mörk-
um skoruðum á útivelli, en ef
jafntefli hefði orðið i þessum leik
hefði SAAB komizt áfram.
Leikur FH var langt frá þvi að
vera glæsilegur og litið var það
betra hjá Sviunum, sem voru meö
hálft lið að þeirra eigin sögn.
Varnarleikur FH var langt frá þvi
að vera góður — markvarzlan litil
sem engin, nema á fyrstu minút-
unum — og sóknin einhæf.
FH-ingar skoruðu 16 mörk i
Hann er hátt yfir öllum, hann Geir Hallsteinsson, þegar hann lætur þetta skot riöa af á SAAB-markiö I
Evrópulciknum á laugardaginn. Sviarnir voru sammála um, aö þeir hefðu leikið sér að FH I báðum
leikjunum, ef Geir hefði ekki leikið með — hann hefði komiö FH áfram. Ljósmyndir Bj. Bj....
Dómarafundur
Handknattleiksdómarafélag
Reykjavíkur heldur aðalfund sinn
i Valsheimilinu i kvöld og hefst
hann kl. 20.30.
Stjórnin.
leiknum — Sviarnir 14 — og af
þessum 16 mörkum skoruðu þeir
Geir Hallsteinsson og Viðar
Simonarson 14 mörk, eða 7 mörk
hvor. Hin tvö mörkin skoruðu þeir
Jón Gestur og Sæmundur
Stefánsson.
Fleiri voru um bitann hjá SAAB
og þar var markvarzlan i allt öðr-
um gæðaflokki en hjá FH. 1
markinu stóð Hans Jonsson, sem
varði meistaralega hvað eftir
annað og var ásamt Geir bezti
maður leiksins.
Menn bjuggust við miklum
slagsmálum I þessum leik, eins
og I fyrri leiknum, en mjög góðir
dómarar — Norðmennirnir John
Hugo Larsen og öivind Bolstad —
héldu leikmönnum i skefjum með
ákveðnum dómum og brottrekstri
af velli. Alls visuðu þeir 4 FH-ing-
um út af fyrir grófan leik, en 3
Sviar fengu að kæla sig.
Leikurinn var harður, en ekki
teljandi grófur. FH-ingarnir voru
harðari af sér og brutu oft hálf
klaufalega á mótherjunum, sem
kunnu betur að brjóta „pent”.
Aftur á móti kunnu Hafnfirðing-
arnir betur að hemja skapið og
græddu tvimælalaust þessi tvö
mörk, sem þeir þurftu, á því. Svi-
arnir voru meö eilifar kvartanir
og hefur það trúlega kostað þá
sigurinn — eða a .m .k. jafntefli — I
þessum mikilvæga leik.
Geir Hallsteinsson skoraði
fyrsta mark leiksins, en heldur
var fátt um mörk fyrstu minút-
urnar — staðan var 2:2, þegar 17
minútur voru búnar af leiknum. A
siðustu minútum hálfleiksins
færðist svolitið fjör I markaskor-
unina, en þá breyttist staðan úr
5:5 I 9:6 fyrir FH.
Sviarnir skoruðu 3 fyrstu mörk-
in i siðari hálfleik og jöfnuðu þar
með i 9:9, en þeir Viðar og Geir
komu FH aftur yfir og sáu um
það, að sænsku meistararnir
næðu aldrei forustunni. Þeir náðu
að jafna 11:11 og 12:12, en FH
komst i 14:12 og svo 16:13. Sviarn-
ir áttu siðasta markiö i leiknum —
þeirra 14. mark — og á siðustu
sekúndunni áttu þeir gullið tæki-
færi, en Hjalti Einarsson, sem lék
sinn 400. leik með FH, varöi þá
glæsilega — og i eina skiptið i sið-
ari hálfleiknum.
Eins og fyrr segir skoruðu þeir
Geir og Viðar 14 af 16 mörkum FH
i leiknum. Skottilraunir þeirra
voru margar, sérstaklega þó hjá
Viðari, sem var með mjög slæma
útkomu — liklega þá verstu sem
hann hefur átt um dagana. Hann
hefur varla verið með undir 20
skottilraunir, þar af 4 viti, sem
gáfu 3 mörk.
1 vörninni bar Gils Stefánsson
af öðrum FH-ingum og notaði
hraustleg tök Svianna eins og I
fyrri leiknum. Voru þeir sýnilega
hálfhræddir við hann og vildu
helztvera á öðrum staö i vörninni
en þar sem hann var.
Mörk Svianna i þessum leik
skoruðu: Bo Lennart Persson 5,
Lars Jonsson, Per Ove Anders-
son, Greger Larsson og Jan Jons-
son 2 mörk hver og Jan-Ake
Fredrikson eitt mark. Mörk FH
Gaman vœri að fó
Árósa-KFUM nœst!
— segir Geir Hallsteinsson í sambandi við Evrópukeppnina
„Það var hálfgerð tauga-
veiklun I þessum leik hjá ðkkur,
og hann var langt frá þvi að
vera góður,” sagði Geir llall-
steinsson, er við töluðum við
hann eftir leikinn við SAAB.
„Við vorum hræddir, þegar
við sáum, að Gunnar Einarsson
gat ekki leikið vegna meiðsla,
sem hann hafði orðið fyrir
kvöldið fyrir ieikinn, og svo sló
markvörðurinn þeirra okkur al-
veg út af laginu með að verja ó-
trúlegustu skot.
Þeir spiluðu lika skynsamlega
með þennan litla mannskap,
sem þeir höfðu, og fengu ótrú-
lega mikið út úr honum. En
þetta er áð koma hjá okkur, og
við verðum sterkari og sterkari
með hverri viku.”
— Hvaða lið ég vildi helzt fá
sem mótherja I næstu umferð?
„Mér er sama hvað við fáum,
en þó held ég, að það gæti orðið
gaman að fá dönsku meistarana
Arhus KFUM.”
skoruöu: Geir Hallsteinsson 7,
Viðar Simonarson 7, Sæmundur
Stefánsson 1 og Jón Gestur 1.
-klp-
Haukar
í úrslit!
Haukar tryggðu sér rétt til að
leika til úrslita I meistaraflokki
karla I Reykjanesmótinu I hand-
knattleik með þvi að sigra Akur-
nesinga..þeir eru nú ekki af
Reykjanesinu! - 34:14 I slðasta
leik sinum I a-riðli mótsins, sem
fram fór I gær.
Önnur úrslit þá urðu þau, að FH
sigraði ÍBK 20:7 og Breiðablik
sigraði Stjörnuna 16:13. Ein
umferð er eftir I m.fl. — fyrir utan
úrslitaleikinn — og fer hún fram
n.k. sunnudag. Þá lcikur Grótta
við ÍBK i b-riðlinum, og ef Grótta
sigrar i þeim leik, verður úrslita-
leikurinn á milli Hauka og Gróttu,
en ekki Hauka og FII eins og allir
höfðu reiknað með.
—klp
Við erum
beztu vinir
„Ég hef aldrei heyrt um það
áður, að leikmenn i handknatt-
leik hafi verið dæmdir I keppn-
isbann af alþjóðasambandinu
fyrir grófan leik,” sagði sænski
leikmaðurinn Leif Olsson, sem
var ásamt Ólafi Einarssyni
dæmdur I keppnisbann fyrir sið-
ari leik FH og SAAB i Evrópu-
keppninni.
„Þetta var smáslagur á milii
okkar i fyrri leiknum og liklega
báðum að kenna. En hann gaf
samt ekki tilefni til að setja okk-
ur I leikbann, frekar en margt
annað, sem skeði I þeim leik og
öðrum leikjum, sem ég hef tekið
þátt I.
Við erum góðir vinir eftir
þetta — þekkjumst likiega enn
betur fyrir vikið og höfum báðir
gaman af þvi að hafa brotið
þetta blað i sögu handknatt-
leiksiþróttarinnar.
Við I SAAB héldum, að við
kæmumst áfram, þegar viö
fréttum, að við ættum að leika
við FH I 1. umferð keppninnar,
en við verðum nú aö sætta okkur
við að vera slegnir út. Það hefði
aldrei gerzt, ef viö hefðum haft
fullt lið og jafnvel ekki, ef þiö
hefðuð ekki haft Geir Hall-
stcinsson. Hann sá um að koma
FH áfram og er þvi ekki neitt
undarlegt, þótt menn segi hann
einn bezta handknattleiksmann
heims —ég er a.m.k. sammála
þvi.”
Marði tveggja marka sigur gegn sœnsku meisturunum Saab — Viðar og Geir
skoruðu fjórtón af sextón mðrkum FH i leiknum
Nú var ólíkt
betur dœmt
„Þessi leikur var eins harður og fyrri leik-
urinn, en hann var bara ólikt betur dæmdur
af þessum norsku dómurum en af þessum
dönsku, sem við fengum þá”, sagði Birgir
Björnsson þjálfari FH eftir leikinn.
„Ég er ánægður meö að komast áfram en
ekki neitt sérlega ánægður með leikinn hjá
strákunum. en þetta er gott, þegar þess er
gætt, að við gátum ekki notaö bræöurna ólaf
og GunnarEinarssyni, en það var mikil blóö-
taka fyrir okkur.
Nú biður maður bara spenntur eftir þvl að
vita, hvaða lið við fáum I næstu umferð. Ég
vona, að það verði belglsku meistararnir, en
þeir fengu þá ensku I 1. umferð og hijóta að
hafa unnið þá. Lið úr austurblokkinni vildi ég
helzt ekki fá fyrr en I þriöju eða fjórðu um-
ferð, en þá verðum við llka komnir I gott
form”.
FH er allt of
einhœft lið!
„Þaö var meiri handbolti I þessum leik enl
þeim fyrri, sem var einn grófasti ieikur ,
sem ég hef séð um dagana” sagði bezti mað-
ur SAAB I leiknum á laugardaginn, mark-
vörðurinn Hans Jonsson, sem hefur lcikið 26
sinnum I sænska landsliðinu.
„En viö vorum aðeins með háift liö og get-
um ekkert þannig. Viö sýndum þaö I fyrri
leiknum, sem við áttum aö vinna með fimm
mörkum, ef allt heföi veriö I lagi; I þessum
leik og I fyrsta leiknum i deildinni um slðustu
helgi, en þá töpuðum við fyrir Hellas 17:12.
FH er ekki eins gott lið og ég reiknaöi með.
Við hefðum leikiö okkur að þvl með þessu
hálfa liöi ef það hefði ekki haft Geir Hall-
steinsson. Það hefur enga linumenn og mjög
slaka markmenn, en góðar skyttur fyrir ut-
an. Það er of einhæft I nútlma handknattleik.
Þessir dómarar voru betri en I fyrri leikn-
um —en samt ekki nógu góöir. Það er hart að
fá á sig 3—4 mörk, sem greinilega eru á llnu.
En ég kenni þeim samt ekki um tapið þvl að
þessu má maöur alltaf búast við. En það er
eitt, sem ég öfunda ykkur af hér á islandi,
það eru áhorfendurnir — þeir eru stórkost-
legir I einu orði sagt og þeir skemmtilegustu
sem maður spilar fyrir”.
Léku of mikið
með
munninum!
„Við höfðum frétt af fyrri leiknum og séö
fyrirsagnir úr sænskum blöðum I blöðunum
hér og bjuggumst þvi við hinu vcrsta” sögðu
norsku dómararnir John Hugo Larsen og öi-
vind Bolstad, sem báðir hafa margsinnis
dæmt áöur hér á landi.
„En þetta var ekki svo hroðalega erfitt,
þótt svo að hcitt hafi verið I kolunum. Við
reiknuðum með hörku og bjuggum okkur
undir það, en þetta var oft meiri leikaraskap-
ur en harka, sem menn voru aö sýna, eins og
t.d. á lokaminútunum.
Það var ekki mikill handbolti I þessum leik
— allt of mikið fum og læti til að hægt sé að
telja þetta góðan leik. En.islenzka liðið var
bctra og það hélt sér á mottunni nær allan
timann.
Það var ekki mcð ncitt röfl og aðfinnslur
eins og það sænska, sem spilaði meira með
munninum en höndunum og höföinu. Ef
sænsku leikmennirnir heföu hagað sér eins
og allir Islenzku leikmennirnir — ekki verið
að láta okkur fara i laugarnar á sér og kenna
okkur um það, sem miður fór — hefði það
sigrað i þcssum leik. Það einbeitti sér meir
að því en leiknum og féll á þvi.”