Vísir


Vísir - 08.11.1974, Qupperneq 5

Vísir - 08.11.1974, Qupperneq 5
Vlsir. Föstudagur 8. nóvember 1974 RFUTER A P UTLÖNDI MORGUN UTLOND I MORGUN UTLÓND Umsjón Haukur Helgason GRAFA LIKIN I MORGUNSÁRIÐ Hundruð þúsunda skjól- og matarlítil fórnarlömb borgarastríðsins í írak llundruð þúsund flóttamanna af þjóöerni Kúrda verða að mæta vetri að heita má skjóliaus , við litinn mat og lyf og varnarlaus gagnvart borgarastyrjöld, sem geisar i Norður-írak milli Kúrda og stjórnarhersins. Vetur er genginn í garð, og hann hefur þegar grandað mörgum börnum og gamal- mennum, sem urðu að hirast undir teppum á bergangi. Hittinn fer niður fyrir frostmark á nóttunni. Rigningar eru miklar á daginn. Á hverjum morgni fara menn og grafa þá, er látizt hafa um nóttina, i flótamannabúðum I Omran skammt frá landamærum írlands og fraks. Allt að 20 hafa látizt á einni nóttu. Læknar telja að daglega kunni mörg hundruð að deyja, þegar veturinn skellur á af hörku. Búðirnar eru einar af mörgum, sem eru á við og dreif á þvi svæði, er uppreisnarmenn stjórna. Þeir lúta stjórn 71 árs hershöfðingja, Mullah Mustafa Barzanis, og berjast fyrir sjálfstæði. Sagt er, að ástandið sé enn verra i sumum öðrum flótta- mannabúðum. „Okkur skortir mjög mat föt, tjöld og lyf. Um lif og dauða er að tefla”, segir Mohsen Dizayi, fyrr- verandi ráðherra i stjórn fraks og nú „innanrikisráðherra”, i stjórn uppreisnarmanna Kúrda. „Við gerum okkar bezta til að annast flóttafólkið, en við getum ekki gert allt. Við biðjum hjálpar- stofnanir um allan heim um hjálp, en til þessa hefur hún aðeins borizt frá Iran, Hollandi og Sviþjóð. Það er ekki nóg”, segir hann. íran er eina rikið, sem hefur veitt verulega aðstoð. transtjórn hefur gengizt fyrir umönnun 150 þúsund flóttamanna nálægt landamærum írans og traks. Rauði krossinn i tran hefur reist sex flóttamannabúðir,og fleiri eru ráðgerðar, i Suður-íran, þar sem vetrarveður er betra en á svæðum Kúrda i írak. Hins vegar treysta íranir sér ekki til að taka að sér allan fjölda flóttafólks, sem flýr bardagana i trak. Bardagar eru harðir. Þessi lota i langvinnri borgarastyrjöld hófst i marz, þegar Kúrdar lýstu þvi yfir.aðriTcisstjórn traks i Bagdad hefði ekki staðið við skuldbind- ingar sinar samkvæmt samn- ingum frá 1970. Þá hafði Kúrdum verið lofað sjálfstæði. Forseti Bólivlu, Hugo Banzer, barði I gær niður byitingatilraun Bardagar urðu I borginni Santa Cruz, I austurhluta landsins. Svona var aðkoman eftir sprenginguna I King’s Arms kránni. Munkur jótar 45 ára munkur úr reglu Benedikts hefur játað að hafa smyglaö vopnum til fanganna, sem gerðu uppreisn I Scheveningenfangelsinu I Hol- landi fyrir skömmu. Talsmaður dómsmálaráöu- neytisins i Hollandi sagöi I gær- kvöldi, aö munkurinn, sem er bara kallaður Matthías, hefði játað aö hafa látið einn af föng- unum fjórum fá vopn! Munkurinn vann að endurhæfingu fanga i fangelsinu. Hann hefur veriö handtekinn. Fangarnir höfðu, aö sögn hol- lenzkra blaða, fjögurra skota skammbyssur. Þeir héldu 22 gislum, en uppreisninni lauk giftusamlega, er sjóliöar gerðu árás á kapelluna, sem fangarnir héldu, og handtðku þá. „UNGUR MAÐUR MEÐ GAT Á MAGANUM" Sprenging varð í gær- kvöld í krá i Suðaustur- Londori/ þar sem hermenn hafa vanið komur sínar. Lögreglu- menn í Scotland Yard sögðu fyrst/ að fjórir hefðu beðið bana, en síðar var sagt, að 19 væru særðir, sumir alvarlega, en enginn hefði látizt. Lögreglan segir, að spreng- ingin hafi gereyðilagt King’s Arms krána, sem er aðeins nokkrum hundruö metrum frá búðum stórskotaliðsins i Wool- wich. Sprengjan sprakk rétt eftir klukkan tiu, þegar þröng var á þingi i kránni og menn sátu og stóöu við drykkju. Framhlið hússins sprakk i tætlur. Varnarmálaráðuneytiö segir, að nú verði tvimælalaust gerð gangskör að þvi að veita hermönnum, sem eru I leyfi, meiri vernd. Tilræðið i gærkvöldi fylgir i kjölfar sprengjutilræða i tveimur hermannakrám i Guil- fordhverfi i Suöur-Englandi, en i þau skipti fórust alls fimm. Sjónarvottar segjast hafa séð það, sem þeir töldu vera lík þakin ábreiðum fyrir utan King’s Arms krána eftir sprenginguna. En Scotland Yard sagði i morgun, að þetta hefðu verið særðir menn, sem hefðu verið fluttir i sjúkrahús. Meðal hinna særðu munu hafa verið stúlkur úr hernum. „Það varð ægilegur hvellur. Ég sá marga likama liggja á gólfinu. Ég veit ekki, hvort fólkið var lifandi eða látið”, sagði hermaðurinn Albert Hunter, sem var á leið út, þegar sprengjan sprakk. 1 sjúkrahúsinu var starfaö i öllum skurðstofum til að reyna að bjarga hinum særöu. Tilræðismenn gáfu enga aðvörun fyrirfram, en það hefur oft verið gert. Lögreglan telur, að sprengjan hafi sennilega verið falin i poka, sem skilinn hafi verið eftir undir borði eða stól i kránni. „Þarna var ungur maður með gat á maganum og aðrir með hræðileg sár á andliti og likama,” sagði sjónarvottur. VATN MENGAÐ Holiand kom I gærkvöldi I veg fyrir, að Efnahagsbandalagið samþykkti nýjar regiur til að vernda drykkjarvatn gegn meng- un. Afstaða Hollendinga kom á óvart. Búið var að ganga frá drögum að reglunum, sem flestir telja mjög mikilvægar. Hollenzki ráðherrann Laurens Brinkhorst sagðist hafa fellt til- lögurnar, af þvi að i þeim væri ekki nægilega vel tryggt, að vatn úr Rin yrði gott. Það berst til Hol- lands frá Vestur-Þýzkalandi. Ráðherrarnir höfðu áöur samþykkt reglur um viðtækar aðgerðir til að hindra mengun drykkjarvatns. Rikisstjórnir skyldu fá tvö ár til að gera nákvæmar áætlanir um hreinsun vatns, einkum úr stórfljótum. Nú er ekki vitað, hvað af þessu verður samþykkt eftir afstöðu Hollendinga. ÞAÐ HÓFST MEÐ SPRENGJU Tvær sprengjursprungu i sendi- ráði Bóliviu og menningarstofnun Brasiliu I gærkvöldi I Quito höfuð- borg Ekvadors. Þar er að hefjast fundur Amerlkurikja og er aðal- málið, hvort létta skuli viðskipta- banni af Kúbu og hefja að nýju stjórnmálaleg samskipti. Tugir sérþjálfaöra lögreglu- manna voru á verði á götum borgarinnar eftir sprengingarn ar. Utanrikisráðherrar i banda- lagi Amerikurlkja sem 23 riki eiga aðilda, að, hefja fund sinn á morgun. Fyrsta sprengingin eyöilagði húsakynni á tveimur hæðum i sendiráði Bóliviu. Dyravörður særðist. Sendiráðið er nálægt „löggjafarhöllinni”, þar sem fundurinn verður. Menningarstofnunin er skammt frá gistihúsi þar sem utanrikisráðherrarnir dveljast. Brasilia er talin munu sitja hjá við- atkvæðagreiðslu um af- stöðuna til Kúbu, og afstaða Bóli- viu er óljós.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.