Vísir - 08.11.1974, Page 16
vísir
Föstudagur 8. nóvember 1974
Kennar-
y
arnir fa
sopann
sinn,
nemend-
urnir
ekki
Dagskrárstjórn yrði að
velja handa okkur efnið
— jafnvel þótt móttökustöðvar yrðu svo ódýrar sem spóð er
Aöur en langt um líður mun
væntanlega hefjast 1 Bandarikj-
unum f jöldaframleiösla á
einföldum móttökustöövum
fyrir sjónvarpsmyndir frá
gervihnöttum, sem yröu þaö
ódýrar, aö sérhver sjónvarps-
notandi ætti aö ráöa viö kaup á
sliku tæki. Er búizt viö aö hvert
móttökutæki komi til meö aö
kosta rétt liölega 20 þúsund
krónur Islenzkar.
Frá þessari tækninýjung er
skýrt i timaritinu „Electronics
Weekly”, en þar er sagt, að það
séu vlsindamenn við Stanford-
háskóla I Kaliforniu sem hafi
fundið upp tæki þetta. Móttöku-
skermirinn, sem er innifalinn i
ofangreindu verði, er um 1,80
metrar i þvermál.
Stillingar tækisins eru mjög
einfaldar, en móttökustöðin tek-
ur á móti gervihnattarmerkjum
með mjög hárri tiöni. Fara þau
fyrst i gegnum svokallaðan
„Schottky-barrier”, sem reynzt
hefur mjög vel til að eyða trufl-
unum. Þvi næst tekur magnari
við merkjunum og framleiðir
bylgjur af þeirri tiðni, sem
venjuleg sjónvarpstæki geta
nýtt sér.
Kemur i stað móttöku-
tækja, sem mundu
kosta hundruð milljóna
Tæki þetta á að geta tekið á
móti sjónvarpsmyndum milli-
liðalaust frá gervihnöttum.
Móttökustöð á borö við þá sem
getið var um i frétt I Visi i gær
og kostar nokkur hundruð mill-
jónir, yrði þannig óþörf hvað
sjónvarpssendingum viðkemur.
Samkvæmt upplýsingum
bandariska tækniritsins getur
eitt tæki ,þjónaö' mörgum sjón-
varpstækjum. Nokkur fjölbýlis-
hús eða jafnvel einbýlishúsa-
hverfi geta þannig lagt saman i
kaup á einu sliku tæki.
Vitað er, að visindamenn i
Japan og sömuleiðis á Formósu,
eru að vinna að gerð móttöku-
tækja af þessu tagi. Þeir munu
þó enn skammt á veg komnir i
tilraunum sinum og ekki vera
farnir að sjá fram á fjöldafram-
leiðslu móttökustöðva, sem gæti
verið eins ódýr og þær banda-
risku.
Þá má einnig geta hér um
skólasjónvarp, sem gefizt hefur
vel i Indlandi. Þar er sá háttur-
inn hafður á, að sjónvarpsefnið
er sent til gervihnattar, sem svo
aftur endurvarpar sendingun-
um um landið vitt og breitt, en I
hverjum skóla eru sérstök mót-
tökutæki svipaðrar gerðar og
fyrr er frá sagt.
En ekki allt fengið með
tækjunum einum
Að lokum má minna á það, að
þó að islenzkir sjónvarps-
notendur komi til með að setja
upp móttökustöðvar af þessu
tagi, geta þeir ekki valiö úr
sjónvarpssendingum gervi-
hnattarins að vild sinni. Hér
þyrfti méð öðrum orðum að
vera eins konar „dagskrár-
stjórn”, sem semdi um kaup á
þvi efni, sem hingað ætti að
endurvarpa. Viðgætum þvi ekki
fengið að horfa á „ensku knatt-
spyrnuna” i beinni sendingu
með aðstoð gervihnattar, fyrr
en samið hefur verið um
greiðslu fyrir geislann.
— ÞJM.
Ýmsum foreidrum, sem eiga
börn sin I Fossvogsskóia, hefur
þótt óþægilegt að mega ekki
senda börn sin með drykkjar-
föng I skólann.
Börn, sem eru annaðhvort i
skólanum frá þvl snemma á
morgnana til hádegis eða frá
hádegi til tæplega fimm fá ekki
að hafa með sér mjólk eöa
ávaxtasafa, heldur aðeins ávöxt
eða brauö.
Bréf var sent til foreldra
barnanna um það, að ekki væri
heimilt að senda þau með
drykkjarföng með sér. Ef
krakkarnir vilja þvi fá sér
eitthvað að drekka með nestinu
er ekki annað i boði en vatn úr
krana. Kennararnir hafa aftur á
móti kaffiaöstöðu. Aslaug
Brynjólfsdóttir, skólastjóri,
sagði, að lagzt hefði verið gegn
drykkjarföngum vegna þess hve
oft væri illa um þau búið. Það
hefði nokkrum sinnum komið
fyrir, að mjólkurhyrnur eða
plastilát hefðu sprungið i
töskunni og eyðilagt mikla
vinnu barnanna.
„Krakkarnir hafa fariö að
gráta, þegar bækurnar
eyðileggjast þannig og þvi
mæltumst viö frekar til þess viö
foreldrana, að börnin hefðu
aöeins ávexti meö sér I nesti.
Það er aftur á móti aðeins
gosið, sem er algjörlega
bannað.”
Fossvogsskólinn er nýr og
glæsilegur skóli með teppi út i
horn, en skólastjórinn vildi taka
þaö skýrt fram að það væri ekki
vegna skólans sjálfs, sem lagzt
væri gegn drykkjarföngunum.
„Viö teljum bara drykkjar-
föng ekki nauösynleg á svona
stuttum tima,” sagði skóla-
stjórinn. „En ef vel er um þau
búiö, látum viö það þó kyrrt
liggja.”
—JB
Ýmsar
breytingar
í Glœsibœ:
KJOTDEILDIN MALUÐ
í KÖLDUM BLÁUM LIT
Stœrsta matvöruverzlunin opnuð aftur
„ViO erum vitanlega mjög
ánægðir meö aO vera komnir i
þessa nýju verzlun”, sagöi Guö-
jón Guðjónsson, verzlunarstjóri
Sláturfélagsbúöarinnar i Glæsi-
bæ I morgun. Verzlunin var opn-
uö I morgun, eftir aö miklar
sviptingar höföu oröiö um hana
um siðustu helgi.
„Það er margt ógert ennþá”,
sagði Guðjón. „Við eigum til
dæmis mikinn lager úti i bæ,
sem við munum aka hingaö eftir
helgina. Við það eykst vöruúr-
valið enn meira”.
-Verzlunin hefur nú verið
máluð I appelsinugulum lit. „Ég
sá þennan lit I verzlun úti I Höfn
fyrir skömmu og þótti hann
mjög smekklegur. Svo höfum
við lika málað kjötdeildina I
köldum bláum lit eins og vera
ber”, sagði Guðjón.
Vörum verzlunarinnar hefur
verið raðað upp á nýtt i hillur.
Þetta er gert til að koma
skyldum vörum sem mest
saman á einn stað. Mjólkin er
við hliðina á kaffinu, brauð og
kökur við hliðina á kexinu og
svo framvegis. Hvort tekin yröi
upp sala á nýjum matvöruflokk-
um I þessari stærstu matvöru-
verzlun landsins, kvað Guðjón
enn óráðið.
—JB
Fyrsti viöskiptavinurinn I morgun fékk konfektkassa frá verzlunar-
stjóranum, Guöjóni Guöjónssyni. Ljósm. Bj.Bj.
ENN HAFA SVR EKKI GETAÐ
LEYST ÚT STRÆTISVAGNANA
— fimm vagnar hafa beðið þess síðan í sumar, að verða
leystir út Tíu til viðbótar vœntanlegir ó nœstu mónuðum
Strætisvögnum Reykjavikur
hefur enn ekki tekizt aö útvega
fé til aö ieysa út þá fimm vagna,
sem komu til iandsins fyrir um
hálfu ári. Von er á fimm til
landsins I viöbót fyrir áramót
og svo aftur öörum fimm á
næsta sumri.
Þeir eru þvi orönir fimmtán
strætisvagnarnir, sem SVR þarf
að leysa út innan tiðar — þó
fjárhagurinn virðist ekki leyfa
slikt. „Það kemur dagur eftir
þennan dag. Hjóliö heldur alltaf
áfram aö snúast,” svaraði
Eirikur Asgeirsson, forstjóri
SVR, þegar Visir sp.urði
hann, hvort ekki væri erfitt
að standa i samningagerðum
vegna kaupa á nýjum vögnum,
á meðan ekki hefur reynzt unnt
að leysa út siöustu „sendingu”.
Þeir vagnar, sem komu
siöast á götuna, voru yfir-
byggður hjá Bilasmiðjunni, en
nokkur biö kann aö verða á þvi,
að vagnar verði yfirbyggðir þar
næst fyrir SVR. Vagnarnir, sem
komu til landsins i sumar og enn
á eftir að leysa út, komu hingaö
yfirbyggðir að utan. Þeir voru
yfirbyggðirhjá Mercedes Benz.
Næstu tiu vagnar verða svo
yfirbyggðir hjá Van Hool I
Belgiu. en Bilasmiðjan, sem
upphaflega hafði tekið að sér að
gera þær yfirbyggingar, óskað
eftir þvi að verða leyst undan
samning.
—ÞMJ
II
Grunnskólafrumvarpið í framkvœmd:
SKILYRDI AD
NtMCNDUR FÁI
MAT (SKÓLANUM
— segir frœðslustjóri Reykjavíkur
MI
Aöur en langt um Höur er
fyrirhugaö, aö dreifing á
matarpökkum til nemenda
skyldunáms I borginni, geti
hefizt. „Þaö er eitt frumskilyröi
þess, aö hægt sé aö halda uppi
samfelldri skóladvöl I samræmi
viö grunnskólafrumvarpiö, aö
nemendurnir fái næringu i mat,
á meöan þau sitja yfir skóla-
bókunum”, sagöi Kristján J.
Gunnarsson, fræöslustjóri I
viötali viö VIsi I morgun.
„Það er ekki enná hægt að
segja til um það hvenær þetta
atriði kemur til framkvæmda”,
hélt hann áfram, „en eins og
stendur vinna borgarlæknir og
skólayfirlæknir að þvi aö taka
það saman, hvað skólamáltið af
þessu tagi ætti aö innihalda”.
„Hér yröi um kalda máltið að
raéða”, sagði fræöslustjóri.
„Það yröi allt of kostnaðarsamt
að vera meö heitar máltiðir i
skólunum likt og Sviar gera.
Kaldar máltiðir hafa lika gefizt
ágætlega, eins og t.d. I Dan-
mörku og viöa I Noregi. En köld
máltiö mundi liklega vera ein-
faldur matarpakki, mjólk og
ávextir. Kostnaöinn af matar-
kaupunum mundu foreldrarnir
að öllum likindum þurfa að
bera, en kostnað af dreifingunni
bæru hins vegar riki og borg. En
svo yröi að sjálfsögðu einnig sá
möguleiki opinn, aö þeir, sem
þess óska, gætu haft með sér
sitt nesti að heiman”.
Kvað fræðslustjóri ýmsa aöila
hafa sýnt áhuga á aö taka að
sér að útbúa þessa matarpakka.
Eru það þá aðallega ýmis
sölusamtök landbúnaðarins.
Verkefnið yrði þó boöið út, ef til
kæmi.
„Það er rétt að þaö komi
skýrt fram, aö engar
ákvarðanir hafa verið teknar i
ráðuneyti eða borgarstjórn
ennþá, hvað matarpakkana
áhrærir”, sagöi fræöslustjóri
loks. „Það á ennþá eftir að
kanna þetta mál frá svo
mörgum hliðum. Ef það svo yrði
ákveðið að ráðast i framkvæmd
þess, gætu liöiö nokkur ár, þar
til málið væri komið til fullrar
framkvæmdar.”.
—ÞJM