Tíminn - 18.05.1966, Blaðsíða 10

Tíminn - 18.05.1966, Blaðsíða 10
22 TÍMINN MIÐVIKUDAGUR 18. maí 1966 NÝ VERZLUN OPNUÐ í DAG . ' W' : * KT—Rey'kjavík, þriðjudag. Á morgun, miðvikudag opnar Tóm stundabúðin í Reykjavík nýja verzlunardeild, þar sem seldar verða alls konar ferða- viðlegu- og sportvörur. Þessi deild er í Skipholti 21, annarri hæð, en í því húsi hefur Tómstundahúðin rekið fram að þessu verzlun með allskonar leikföng og tómstunda vörur. Blaðamönnum var í dag hoðið að skoða hina nýju verzlunardeild, en þar hefur verið stillt upp 10 ólíkum gerðum af tjöldum í öllum stærðum og gerðum. Þessi tjöld eru flutt inn frá Póllandi og hafa verið reynd hér á landi um nokk urt skeið. Sögðu forráðamenn verzlunarinnar, að tjöldin hefðu reynzt prýðiletga í alla staði. Aufc tjalda hefur verzlunin á boðstólum alls konar ferðavörur, svo sem svefnpoka, hitunartæki, mataráhöld og margt fleira. Þes'si nýja verzlunardeild á, að sögn forráðamanna, að verða fyrsti á- fangi í fullkominni sérverzlun fyr ir íþrótta- og útilíf. og síldarafurða, og 0,3% á fob- verð útflutts síldarmjöls. Skipuð var nefnd til þess að semja frumvarp, og var Jakob for- maður hennar, en aðrir í nefnd- inni Sveinn Benediktsson frá Síld- arverksmiðjum ríkisins, Kristján Ragnarsson, LÍÚ, Guðmundur H. Oddsson, form. Farmanna og fiski mannasambaindsins og Jón Arn- alds frá ráðuneytinu Eins og kunngt er var síðan frumvarp um þetta samþykkt á síðasta alþingi. Nefnd þessi kynnti sér einnig samningstilboð, og var niðurstað- an sú, að tekið var boði Brooke Marine Ltd. Jakob Jakobsson sagði blaða- mönnum, að hefja ætti smíði skips- ins nú þegar, og væri smíðatími 13 mánuðir. Skipið væri 440 brútto lestir að stærð, og mjög sérhæft. Hefði mjög mikil áherzla verið lögð á það, að gæði leitartækjanna nytu sín sem bezt í skipinu, og miklu fé varið í að draga úr, eða eyða, öllum truflunum frá vél og skrúfu Hann sagði, að það hefði stytt mjög undirbúning að smíði skips- ins, að þetta fyrirtæki væri að Ijúka smíði nákvæmlega eins skips fyrir brezku leitarþjónustuna, og hefðu íslendingar notið mikils af þeim undirbúningi. í skipinu verða beztu leitar- tæki, sem völ er á, og verða þau öll ný. Er ekki lokið við smíði þeirra allra. Þá sagði hann, að skipið gæti stundað tilraunatogveiðar, og væri um skuttog að ræða Einnig væri útbúnaður fyrir tilraunaveiðar með herpinót. Þetta væri oft nauð- synlegt. Þá yrði einnig aðstaða um borð í skipinu til að framkvæma brýn- ustu rannsóknir í sambandi við síldarleitina, og væru tvær rann- sóknarstofur í skipinu í þeim til- gangi. Hann kvaðst vona að skipshöfn- in yrði elkki nema 11—12 menn, og aðstöðu fyrir allt að fimm fiski- fræðinga vera fyrir hendi. f skipinu verða tvær MAN-vél- ar, þýzkar að gerð, hvor um sig 500 hestöfl, en hámarkshraði skips ins er áætlaður 12.5 mílur. Fyrir hönd brezka fyrirtækisins undirritaði framkvæmdastjórinn, Prouten, samninginn Að lokum sagði Jakob Jakobs- son, að hann vildi færa þakkir öll- um þeim, sem unnið hefðu að skjútri afgreiðslu þessa máls — bæði stjórnvöldum, útvegsmönn- um, sjómönnum og síldarkaupend- um. Mynd þessi var tekin fyrir skemmstu í Þaralátursfirði á Ströndum af bjarnbýri því, se mþar fannst. Eins og skýrt hefur verið frá í blaðinu álíta þeir, sem fundu dýrið, að það hafi legið þarna á annan mánuð. VÉLAHREiNGERNING Vanir menn. Þaegileg fljótleg, vönduð vinna PRiF- símar 41957 og 33049 xB SÍLDARLEITARSKIP Framhald af bls. 1. boðist til að standa undir kostn- aði við smíði þess, ef leyfilegt yrði í því sambandi að leggja 0.2% gjald á fob-verð útfluttrar síldar KOSNINGASJÓÐUR x B Stuðningsmenn B-listans- Tekið er | á skrifstofu Frams óknarflokksins á móti framlögum i kosningasjóf Tjarnargötu 26, opió ;iá 9—22. ÍÞRÓTTIR Framhald af bls. 13. geti fullnumið kerfið á nokkrum vikum, það er af og frá, því að slíkt getur tekið heilt keppnis- i tímabil. En nóg um það, víkjum nánar að gangi leiksins. Framarar voru heldur sterkari aðilinn í annars jöfnum jeik og þegar á allt er litið, var jafnteflið sanngjörn úr- slit. Á allra síðustu sekúndunum munaði sáralitlu, að Fram tæk- jst að skora, en þá bjargaði Þor siteinn Friðþjófsson á línu. Það skemmtilegasta við leikinn voru tíð ejnvígi vinsfri útherja Fram, Elmars Geirssonar og Árna Njálssonar í Vals-liðinu. Mátti varla á mil|i sjá, hvor færi betur út úr þeim, en þó lék Elmar Árna í nokkur skipfi grátt. Vals-liðið varð nú enn að leika án Hermanns, og var það mikill skaði fyrir liðið. Fram-liðið lék nú mun betur en gegn KR á dög unum, allt frekar jafnt, Hreiðar Ársælsson dæmdi leikinn ágæt- ]ega. Eftir leikinn i gærkvöldi hafa enn fjögur lið möguleika á að vinna mótið, þ.e. Þróttur, Valur, KR og Fram. Sjá nánar töflu á íþróttasíðunnj. KOSNINGASKRIFSTOFUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS Sauðárkrókur — Suðurgata 3, sími 204. Kópavogur — Neðstatröð 4, sími 4-15-90. Hafnarfjörður — Norðurbraut 19, sími 5-18-19 — og Strandgötu 33, sími 5-21-19. Keflavík — Framnesvegur 12, sími 1740. Akureyrj — Hafnarstræti 95, sími 1-14-43 og 2-11-80. Vestmannaeyjar — Strandvegur 42, sími 1080. Garðahreppur — Goðatún 2, sími 52261, 52262 og 52263. Seltjarnarnes — Miðbraut 24, 3. hæð, sími 24210. Siglufjörður — Túngata 8, sími 716-53. Reykjavík — Tjarnargata 26, símar 1-29-42, 1-96-13. 1-26-64 og 2-38-32. Selfoss — Kaupfélagshús — sími 247. Akureyri — Langahlíð 2, sími 1-23-31. Frá B-listanum / Reykjavík Hafið samband við hverfaskrifstofumar. — Gefið upplýsingar um nýja kjósendur og kjósendur listans, sem eru fjarverandi eða verða fjarverandi á kjördag. Allir til starfa fyrir B-listann. Hverfaskrifstofur eru á þessum stöðum: Fyrir Melaskólann: Hringbraut 30 sími: 12942 Fyrir Miðbæjarskólann: Tjamargata 26 sími: 15564. Fyrir Austurbæjarskólann: Laugavegur 168 sími: 23519. Fyrir Sjómannaskólann: Laugavegur 168 sími: 23518. Fyrir Laugarnesskólann: Laugavegur 168 sími: 23517 Fyrir Álftamýrarskólann: Álftamýri 54 sími: 38548. Fyrir Breiðagerðisskólann: Búðargerði 7 simi: 38547. Fyrir Langholtsskólann: Langholtsvegur 91 símar: 38549 og 38550 Allar hverfa skrifstofurnar eru opnar frá kl. 2—7 og 8—10, nema hverfismiðstöðin að Laugavegi 168 sem er opin frá kl. 10—12 og 1—7 og 8—10. Sími 23499. K|örsl<rársímar. Upplýsingar um kjörskrár eru gefnar i símum 2-34-99 og 2-35-19. Sjálfboðaliðar. Stuðningsfólk B-Iistans, látið skrá ykkur til starf? og útvegið sem allra flesta til að vinna fyrir B-listann á kjördegi. Þeir sem vilja lána BÍLA Á KJÖRAG, eru vinsamlegast beðn- ir að tilkynna það skrifstofu flokksins Tiarnargötu 26. Símar: 16066, 15564, 12942 og 23757. VINNUM ÖLL AÐ GLÆSILEGUM SIGRl B LISTANS Utankjörstaðakosning. Allar upplýsingar varðandi utankjörfundarkosningu er hægt að fá á skrifstofu flokksins Tjarnargötu 26, símar: 19613 16066 — 15564 — 12942 og 23757. Kosning fer fram í Búnaðarfélags húsinu við Lækjargötu kl. 10—12, 2—6 og 8—10 alla virka daga. Sunnudaga kl. 2—6. Útvarpsumræður í Kópavogi Útvarpsumræður um bæj- armál í Kópavogi fara fram í kvöld, miðvikudag, kl. 20 á bylgjulengd 212 eða 1400 kílórið. LAUNÞEGAR Framhald af bls. 15. — Mundirðu að lokum, Ósk- ar vilja segja eitthvað í til- efni væntanlegra borgarstjórn arkosninga? — Ég held, að það þurfi að hrófla dálítið við íhaldinu. Sjálfstæðismenn hafa sýnt okkur það á undanförnum ár- um, að þeir eru hvorki færir um að fara með landsmál né borgarmál. Af minni reynslu tel ég, að Framsóknarflokkur- inn sé langsamlega líklegast- ur stjórnmálaflokkanna til að leysa þau vandamál, sem við er að etja á þessum sviðum. Ég hef aldrei getað skilið það, að verkamenn og iðnaðarmenn skuli geta stutt íhaldið. sem þó berst á móti hagsmunum þeirra í verki. Eins er furðulegt, að menn skuli gea fengið af sér að kjósa kratana, sem eru ekk- ert annað en bitlingalýður nú á tímum. Von mín er sú, að fólkið sé nú loksins að vakna til meiri meðvitundar, heldur en verið hefur um þessi efni, segir Óskar Sampsted að lok- um.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.