Tíminn - 19.05.1966, Blaðsíða 1

Tíminn - 19.05.1966, Blaðsíða 1
24 síður 112. tbl. — Fimmtudagur 19. maí 1966 — 50. árg. GEIR BODAR MINNKANDI FRAMKVÆMDIR í R-VÍK mifá ■ Þyrlan ífarþega flutningum HZ—Reykjavík. Þyrla Landhelgisgæzlunnar, TF-EIR, fékk í dag sérstætt verk efni, en þaS var að flytja farþega milli Egilsstaða og Seyðisfjarð- ar. Fór þyrlan tvær ferðir með farþega frá Seyðisfirði til Egils- staða í veg fyrir vél Flugfélags fs lands, og svo eina ferð með far þega úr þeirri vél til Seyðisfjarð ar. Gekk farþegaflug þetta að ósk um. Mun þyrla Landhelgisgæzl- unnar verða staðsett austur á Hér aði í nokkra daga við flutninga. Orsök þessa flugs er ófærð á Fjarðarheiði og svo bilun snjóbíls þess, sem undanfarið hefur verið í flutningum milli Héraðs og Seyð isfjarðar. Tíminn sneri sér til forstjóra Landhelgisgæzlunnar, Péturs Sig urðssonar og spurði um þessa nýju tilhögun: — Nokkrir Austfirðingar fóru þess á leit við Landhelgisgæzluna að hún flytti farþega og vörur fyr ir þá í nokkra daga á meðan sam göngur eru erfiðar. Helztu for I vígismenn um þessa tilraun eru Pétur Blöndal á Seyðisfirði og Jónas Pétursson. Samgöngurr.ar ganga mun fljótar fyrir sig með i þessu móti. Þyrlan flaug 4 tólf mínútum það, sem snjóbílinn tók 55 klukkustundir. Flugmaður á þyrlunni er Björn Jónsson, og auk þess er með honum vélamað- ur. í dag var send sjúkrakarfa austur, þannig að unnt væri að fara í sjúkraflug líka. TK—Reykjavík, miðvikudag. Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri, boðaSi í útvarpsræðu sinni minnkandi framkvæmd- ir á vegum borgarinnar, ef Sjálfstæðisflokkurinn héldi meirihluta sínum í borgar- stjórn. Kvaðst hann reyndar hafa haft af því mestar á- hyggjur, að borgin hefði stað ið fvrir of miklum fram- kvæmdum á kjörtímabilinu, sem nú er að Ijúka, enda var hann búinn að telja upp alla nýja Ijósastaura, sem settir höfðu verið upp í borginni á síðustu árum í ræðu sinni. Vit að er, að þessi stefna, sem borgarstjórinn boðaði — að vísu hóglega og með var- færnu orðalagi eins og hans var von og vísa — kemur frá ráðherrum Sjálfstæðisflokks- ins í ríkisstjórn. Þeir heimta, að það verði liðkað til fyrir út- lendingunum við Álverksmiðj una og hernaðarframkvæmd- unum í Hvalfirði. Þar má ekki skorta vinnuafl, og þeim fram <væmdum má ekki seinka. Ríkisstjórninni er nú Ijóst, að það rnuni ekki duga útlendingun- um, þótt enn verði hert reksturs fjárskrúfan á íslenzk fyrirtæki. Það verði líka að draga verulega úr opinberum framkvæmdum til almenningsþarfa og þá ekki sízt í Reykjavík, stærsta sveitarfélag- inu. TK—Reykjavík, miðvikudag. Það bar við í dag er tilboð voru opnuð í fyrsta áfanga Sundahafn arinnar í Reykjavík, að Birgir Frí mannsson, verkfræðingur, forstjóri Verks h. f. dró tilboð sitt til baka til að mótmæla því, að aðilar, sem unnið hefðu að útboðslýsingum, væri leyft að bjóða í verkið. Átti Birgir þar við, að Almenna bygg ingafélagið h. f- gerði útboðslýsing ar allar og rannsóknir á hafnar- stæðinu, en Almenna byggingafé- lagið hefur verið í nánu samstarfi við Phil og Sön, m. a. um Efra Fall, Þorlákshöfn, Njarðvíkurhöfn Ólafsvíkurenni, Strákagöng og Búrfellsvirkjun. Það mun vart þekkjast í hinum siðmenutaða heimi, að þeim aðila, sem útboðs lýsingar semur, sé heimilt að bjóða í verk, ef um meiriháttar fram- kvæmdir er að ræða. E. Phil og Sön var einn þeirra aðila, sem buðu í gerð fyrsta áfanga Sunda hafnar. Blaðið sneri sér til Birgis Frímannssonar og spurðist fyrir um, hverju það sætti, að hann hefði haft þennan fyrirvara á um tilboð Verk h. f. og dregið tilboð sitt til baka. Birgir kvaðst sem minnst vilja láta hafa eftir sér af þessu tilefni, en sagði, að Verk h. f. teldi með öllu óeðlilegt að Phil og Sön, Efra Fall eða Al- menna byggingafélagið byðu í þetta verk, þar sem á allra vitorði væri, að mjög náin samvinna væri milli þessara fyrirtækja en Al- menna byggingafélagið hefði gert útboðslýsingarnar. Meira vildi Birgir ekki segja. Almenna byggingafélagið eða að ilar í tengslum við það hefur feng ið nær öll meiriháttar verkefni til meðferðar hér á landi undanfarin ár, eins og getið var hér að fram an. Oft hafa þessir aðilar verið með lægstu tilb ^in í verkin. Ekki hafa þau tilboð þó alltaf staðizt í framkvæmd. Má þar til nefna, að Almenna byggingafélagið h. f. og Phil og Sön buðu 40 milljónir í Þorlákshöfn og var tiiboði þeirra tekið 1962. Var gert ráð fyrir, að verkinu yrði lokið 1964. Nú hefur þessum aðilum verið greíddar 60—70 milljónir króna og er þó enn tæpur helmingur verksins eftir og má búast við, að verkið muni kosta 130—140 milljónir þeg ar til kemur. 1959 skipaði ríkisstjórnin nefnd til að endurskoða lög og reglur um útboð, útboðslýsingar og til- boð. Ekíkert hefur heyrzt frá þess ari nefnd enn þótt liðin séu nær 7 ár, síðan hún tók til starfa, og er sagt, að vissir aðilar hafi haft áhuga á því, að nefndin væri ekki Framhald á bls. 22. í ræðu sinni í útvarpsumræðun um í gaarkvöldi gerði Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi, þenn an boðskap borgarstjórans að am talsefni. Fórust honum m.a. orð á þessa leið: „í Reykjavík blasa við hálfunn- ar framkvæmdir og algjör vöntun á nauðsynlegum þjónustufyrirtækj um, sem borginni ber skylda að sjá um. Svo kemur borgarstjórinn í útvarpið í gærkvöldi og lýsir yfir eftir að hafa tíundað fjölda ljósa peranna í borginni að draga verði úr framkvæmdum til að taka ekki Framhald á bls. 11. j FRÁBIÐJA SÉR HER- FLUTNINGA- VÉLARNAR | FB—Reykjavík, miðvikud. I Nokkur kurr er nú í ís- | lenzkum starfsmönnum hjá I varnarliðinu á Keflavíkur- | flugvelli, en þeir hafa und- anfarið verið látnir fara með herflugvélum, þegar þurft hefur að senda þá til Hornafjarðar eða Langa- ness á vegum varnarliðsins, og hafa þeir þá yfirleitt || ekki verið tryggðir eins og I aðrir farþegar í flugvélum g Flugfélagsins. Hafa þeir far 1 ið þess á leit við varnarlið 1 ið, að mega fljúga með flug I vélum Flugfélags íslands, en fengið ógreið svör við þeirri málaleitan. M.a. hef- ur varnarliðið látið í það skína, að það hafi ekki ráð á að láta starfsmennina fljúga með Flugfélagsvél- um. Herflugvélar eru ekki þægilegar til farþegaflutn- inga. í þeim er aðeins. einn járnbekkur meðfram ann- arri hlið vélarinnar, en hin um megin í henni er farang ur allur og flutningur sett ur. Ef flugveður er ekki því betra, getur svo farið, að flutningur vélarinnar fari af stað og er þá ekki sér- lega skemmtilegt að vera farþegi í vélinni. Þá eru þessar vélar heldur ekki upp Framhald á bls. 11. C,- M .■ ..................I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.