Tíminn - 19.05.1966, Page 5

Tíminn - 19.05.1966, Page 5
FHlMTUBAGm 19. maf 1966 Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Krlstján BenedLktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þóraiinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriðl 6. Þorstebisson. FnUtrúl ritstjómar: Tótnas Karlsson. Aug- íýsingastj.: Steingrímur Qfslason. Ritstj.skrifstofur f Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti 7. Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Askriftargjald kr. 95.00 á mán. innanlands — í lausasöhi kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA hj. Eflum sterkan flokk gegn íhaldinu Frá þeim tíma, er kommúnistar klufu Alþýðuflokk- inn og hindruðu með því áframíhaldandi samstarf hans og Frams^marflokksins, hafa völd Sjálfstæðisflokksins byggzt á sundrungu flialdsandstæðinga. Einkum hefur þessá sundrung verið mikil í Reykjavík og skapað íhald- inu möguleíka til að hampa þar sundurleysisgrýlunni. Vegna sundurlyndis andstæðinganna hefur íhaldið haft óeðlilega miMl völd og m. a.. notað þau til að láta verðbólguna vera óbeizlaða, því að ekkert hent- ar betur hinum fámenna gæðingahópi þess. Á síðari árum hafa fleiri og fleiri menn gert sér Ijóst, að til þess að binda endi á þetta ófremdarástand ís- lenzkra stjórnmáia, ber öðru fremur að efla einn sterk- an frjálslyndan og þjóðlegan flokk gegn íhaldinu. Fram- sóknarflokkurinn hefur af eðlilegum ástæðum orðið fyr- ir valínu. Hann var fyrir stærsti andstöðuflokkur íhalds- ins. Hann hefur yfirleitt reynzt íhaldinu sigursælli á þeim stöðum, þar sem þessir flokkar hafa átzt tveir við Ffcmn fyfgir stefnu, sem fellur frjálslyndu og umbóta- SHHruðu fðlki vél í geð. Hann styður ekki aðeins laun- þegasamtökin eindregið, heldur vill jafnhliða veita at- vimmrekendum stuðning til að treysta rekstur þeirra. Tfemn er sá flokkur, sem eindregnast styður íslenzkt framtak og þjóðiega stefnu. í seinustu kosningum til bæjarstjóma og þings hefur FramsóknarflokkurBin verið eini flokkurinn, sem hefur eflzt að fylgi í kaupstöðum og kauptúnum. Hann reynd- ist næststærsti flokkurinn þar í seinustu sveitar- og bæj- arstjómarkosningum. Hann styrkti þar enn aðstöðu sína í þingkosningunum, sem fóru fram ári síðar. Hvarvetna ríkir nú sú skoðun, að ,hann muni efla vemlega fylgi sitt á sunnudaginn kemur. Þetta er hin heilbrigða þróun í íslenzkum stjórnmál- um. íhaldsandstæðmgar og umhótamenn þurfa að fylkja sér sem mest um eiim flokk. Þá mun draga úr hinum óeðlilega miklu völdum íhaldsins. Þá mun margt breyt- ast til batnaðar frá því, sem nú er. Sunnudagurinn kemur þyrfti að vera tímamótadagur í íslenzkum stjórnmálum. Það myndi hann verða, ef 1- haldsandstæðingar og umbótafólk gerði sigur Fram- sóknarflokksins glæsilegan. Um það þurfa þeir að sam- einast í lokaþætti kosningabaráttunnar. Ótti íhaldsins Það kom greinilega fram í útvarpsumræðunum, eins og það hefur áðúr komið fram í Morgunblaðinu og Vísi, að íhaldið óttast Framsóknarflokkinn mest andstæðinga sinna. Þess vegna beinir það skeytum sínum fyrst og fremst gegn honum. Það er ljóst af þessu, hvað ríksstjórnin myndi telja mesta áminmngu. Það væri efling Framsóknarflokksins. Það myndi sanna henni, að fólk vill betri ríkisstjórn og betri borgarstjórn. Það myndi gera stjórnina ragari við að halda áfram dýrtíðarstefnunni. Það myndi verða í- íhaldsmeirihlutanum í borgarstjórninni mest aðhald. Ótti íhaldsins er bezta vísbendingin um, hvernig bezt- um árangri verður náð. Honum verður bezt náð með því að efla Framsóknarflokkinn og gera sigur hans sem glæsilegastan á sunnudaginn. TÍMINN 5 Adolph Rastéin, fréttaritari „Politiken" í Bonn: Er Vestur-Þýzkaland á leið til einræðislegs stjórnarfars? Neyðariögin myndu veita stjórninni hættulega mikið vald VESTUR-ÞÝZKA ríkisstjóm in ætlar að leggja fyrir þingið í Bonn í þessum mánuði síð- ari hluta löggjafar, sem veitir ríkisvaldin-u umboð til að lýsa yfir neyðarástandi, afmá lýð- raeðislegt frelsi, sem stjórnar- skráin á að tryggja, og stjóma landinu samkvæmt heimildar- lögram. Þarna er um að ræða NOT STANIDGESETSE, sem mjög hefur verið deilt um og á að veita ríkinu öryggi gegn hætt- um, bæði utan að komandi og innan frá. En heimildarlögin veita svo víðtækt vald og ná til svo margra þátta í daglegu lífi fólks, að við.liggur í raun og vera að þau grafi undan eða þoki til hliðar lýðræðis- skipulagi ríkisins, sem þau eru sögð eiga að vernda og verja. í öðrum vestrænum löndum er ekki um nein samsvarandi ríkisverndarlög að ræða, — nema í einræðisríkjunum á Spáni og í Portúgal. Vestur- þýzku neyðarástandslögin veita ríkisvélinni í Bonn heimild til að lýsa yfir ófriðarástandi í öllu samhandslýðveldinu á frið artímum, — án þess að ófrið- arhætta þurfi endilega að vofa yfir, án þess að ríkisstjórnin þurfi að leita til þingsins og án þess að hún þurfi að gera þegnunum grein fyrir nauðsyn inni á að grípa til hei-mildar- ákvæðanna. ÞEGAR ríkisstjómin er bú- in að fá sína stjórnmálalegu akbraut lagða með samþykkt neyðarástandslaganna í þinginu (en jafnaðarmenn eiga enn kost á að breyta lagningu ak- brautarinnar), hefur hún í raun og veru öðlast óskorað vald til að stjórna landinu án aðhalds eða íhlutunar af þings- ins hálfu. Þá getur stjórnin teflt fram varnarsveitum ríkisins, lög- reglu og landamæravörðum gegn raunverulegum eða meint- um óeirðum í lafldinu eða verk-' föllum af stjórnmálaástæðum. Hún getur takmarkað og af- numið prentfrelsið, samtaka- og samkomufrelsið og málfrels ið. Hún getur haft friðhelgi heimilanna að engu, svo og vernd stjórnarskrárinnar gegn handtökum án dóms og laga. Hún getur sett þegnana í ferða bann og bannað þeim að breyta um vinnustað. Hún getur lagt vinnuskyldu á borgarana og af- máð leynd einkabréfa og póst sendinga. í sem fæztum orðum sagt getur ríkisstjórn Vestur- Þýzkalands lagt átthagafjötra á íbúa landsins. Og ríkisstjórnin getur gert allt þetta á friðartímum og flest nú þegar. Um er að ræða 12—14 heimildarlög, sem Not- istandsgesetze ríkisstjórnarinn ar nær til, og sjö þeirra er þegar búið að samþykkja. Það gerðist í fyrrasumar fyrir kosn ingar, og þar naut við íullting- is stjórnarflokkanna (kristi- legra demokrata og frjáls- lyndra demokrata) og jafnað- armanna. Einstakir bin^menn ERHARD í öUum flokkunum greiddu ým- is atkvæði gegn lögunum eða sátu hjá, þar sem fern af þess- um lögum raska verulega ákvæðum stjórnarskrárinnar, en vom lögð fram og sam- þykkt sem almenn lög. Þessi fern „almennu lög,“ sem stjórnmálasérfræðingar og lögfræðingar segja andstæð stjórnarskránni, veita ríkis- stjóminni vald yfir efnahags- Iífi landsmanna svo að segja á öllum sviðum með auknum heimildum til að gera kröfur og leggja hald á eigur, þrátt fyrir friðartíma. Hin lögin þrenn, sem þegar eru samþykkt, mæla fyrir um stofnun 380 þúsund manna vemdarsveita borgara . og skylda 30 mUljónir karla og kvenna til þjálfunar í sjálfs- vamaþjónustu, og heimila bygg ingu varnarstöðva- og stofnana og birgðastÖðva fyrir almenn- ar nauðsynjar. Auk þessa hef- ur ríkisstjómin lýst yfir, að tvöfalda skuli 100 þúsund manna lögregluUð landsins og fjölga í landamæravarðsveitun um úr 20 þúsund manns í 50 þúsund manns. í varnarliði Sambandslýðveldisins era 500 þúsund hermenn og þar að auki er varnarlið sérsvæða, áUka mannmargt. Vestur-Þjóð- verjar verða á nýjan leik þjóð- •einkennisbúninga og stál- hjálma. HEIMILDARLÖG Bonn- stjóraarinnar eru miklu harðn- eskjulegri en undanþáguákvæð ið (48. greinin), sem heimil- aði forseta Veimarlýðveldisins að stjóma Þýzkalandi með til- skipunum. Andstæðingar stefnu ríkisstjórnarinnar í þess um málum segja NOTSTANDS GESETZE sama eðlis og ER- MÁOHTIGUN GSGE SETZE Hitlers, er einkenndust eink. af því að veita nazistum lagaheim- ild til að koma einræðinu á. Háskólakennarar, rithöfund ar, blaðamenn og verkalýðsleið togar hafa mótmælt hástöfum og dregið hættumerki að hún. Fast að 300 háskólakennarar lýsa yfir, að heimildarlögin nýju innleiði varanlegt stríðs- undirbúningsástand í sambands lýðveldinu. Menn eins og Karl Jasper prófessor og Marti Nie möller kirkjuhöfðingi lýs& NOTSTANDSGESETZE rík- isstjómarinnar sem óútfylltri en undirskrifaðri heimUd til að koma á einræði í Vestur-Þýzka- landi. Aðrir telja heimildarlög- in leið til „alræðis lýðræðis- ins.“ Verkalýðssamtökin hafa rætt um möguleika á gagnráð- stöfunum, sem ekkert hefur þó orðið úr til þessa. Flokkur jafnaðarmanna hefði getað hindrað samþykkt fyrstu heimildarlaganna með því að lýsa þau andstæð stjórnar- skránni, en í þess stað hugsa leiðtogar flokksins um flokks- hagsmunina og hafa á laun sam vinnu við samhand kristilegra demokrata. Heimildarlögin veita jafnaðarmönnum sem sé möguleika til að ná þráðu mark miði, eða að gerast þátttakend- ur í ríkisstjóminni í Bonn og verða aðilar að „binni miklu samsteypu“. EN TIL hvers eru Notstands gesetze eiginlega? Þegar Vestur-Þýzkaland var gert að fullvalda ríki árið 1955 og veitt aðild að NATO varð ríkisstjórn landsins að • skuld- binda sig til að koma á lögum, sem áttu að tryggja varðveizlu stjórnarskrár landsins og ■ vernda lýðveldið gegn „hætt- um, bæði innanfrá og utan að komandi." Þetta var skilyrði þess, að vestrænu hejmámsveld in veittu Vestur-Þjóðverjum fulla framkvæmd fullveldisins. Þar til slík Iöggjöf liggur fyr- ir eru það í raun og vem Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar, sem geta gert sínar ráðstafanir, ef „innri eða utan að komandi hættur“ vofa yfir Vestur-Þýzkalandi. Vitaskuld er Bonnstjórninni kappsmál að vera „húsbóndi á sínu heimili" í stað þess að eiga yfir höfði sér beitingu eftirstöðvanna af hernámsrétti vesturveldanna. En í stað þess að láta nægja fáeinar, einfaldar en fullnægj- andi breytingar á stjórnar- skránni eða ný ákvæði, hefur stjórnarvél ríkisins látið stjórn ast af tíðaranda hins herskáa skrifstofuvalds og kommúnista óttasótt kalda stríðsins og lagt fram risavaxið og þrauthugsað bákn heimildarlaga, í 12—14 Notstandsgesetze-bálkum, sem breyta um það bil 450 ákvæð- um stjórnarskrárinnar. Þetta er lagabákn, sem gerir kleift að breyta Vestur-Þýzkalandi úr þingræðisbundnu lýðræðisríki í valdastjórnarríki, eða Salazar- stjórn, eins og vestur-þýzkir verkalýðsleiðtogar hafa komizt að orði. ENGIN ríkisstjórn annars Vestur-Evrópuríkis norðan Pyr enneaskaga verður gædd jafn miklu framkvæmda- og tilskip- unarvaldi og vestur-þýzka- stjórnin. Og lykillinn að þessu mikla valdi felst í ákvæði, sem heimilar ríkisstjórninni að gefa I Framhald á bls. 11. I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.