Tíminn - 21.05.1966, Side 3
LAUGARDAGUR 21. maí 1966
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
15
TÍMINN
Kemur Hermann
nógu snemma?
Valur og KR leika á mánudagskvöid.
Liðin, sem léku til úrslita í
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu
í fyrra, KR og Valur, leiða sam-
an hesta sína n.k. mánudagskvöld.
Þrátt fyrir, að Þróttur hafi mesta
möguleika til sigurs í mótinu, get-
ur þessi leikur engu að síður haft
mikil áhrif, tapi Þróttur stigi eða
stigum á móti Fram.
Vals-liðinu hefur gengið illa að
skora eftir að Hermann Gunnars-
son hvarf úr framlínunni, en hann
er um þessar mundir í keppnisför
í Bandaríkjunum með landsliðinu
í handknattleik. Og nú vona Vals-
menn, að Hermann verði kominn
heim í tæka tíð til að leika með
gegn KR. Áætlað er, að landslið-
ið komi heim einhvern tímann
á mánudag, en auðvitað getur orð-
ið um seinkun að ræða, svo engu
má muna, hvort Valsmenn fá
þennan skæða sóknarmann í fram
línuna.
Annað kvöld, sunnudagskvöld,
leika Fram og Víkingur, en þessi
lið reka lestina í Rvíkurmótinu,
bæði með 1 stig, en Fram hefur
leikið einum leik færra. Það er svo
á miðvikudaginn, sem síðasti leik-
ur mótsins fer fram, þ.e. leikur
Fram og Þróttar cn sá leikur hef-
ur úrslitaþýðingu.
Eyleifur í hópi aðdáenda eftir leikinn gegn Keflavík.
(Tímamynd BB).
Skagamaöurinn skoraöi sigur-
mark Reykjavíkur gegn Keflavík
Ungt Reykjavíkurlið sigraði Keflavík í bæjakeppninni með 1:0
Alf-Reykjavík. — Aðeins eitt
mark var skorað í bæjakeppni
Keflavíkur og Reykjavíkur, sem
háð var á Melavellinum í fyrra-
kvöld, og það var hvorki skorað
af Reykvíking né Keflvíking held-
ur Skagamanninum Eyleifi Haf-
steinssyni, sem þarna lék sinn
fyrsta leik fyrir Reykjavík. Markið
skoraði Eyleifur á 23. mínútu fyrri
hálfleiks eftir ágæta sendingu
hægri framvarðar Rvíkur, Ómars
Magnússonar, fram miðjuna. Ey-
leifur hljóp áfram, með þrjá Kefl-
víkinga á hælunum og tókst þrátt
fyrir erfiða aðstöðu, að lauma
knettinum framhjá Kjartani Sig-
tryggssyni, Keflavíkur-markverði.
Þrátt fyrir mörg tækifæri á báða
bóga, urðu mörkin í leiknum ekki
fleiri, en hurð skall hættulega
nærri hælum við Keflavíkurmark-
ið, þegar tvær mínútur voru eft
ir af leiknum, en þá skaut Er-
lendur Magnússon, vinstri útherji
Rvíkur, hörkuskoti í þverslá.
Lið Reykjavíkur, sem lék gegn
baráttuglöðum Keflvíkingum, var
mestmegnis skipað ungum leik-
mönnum, flestum um tvítugt, og
er ég efins í því, að Reykjavík
hafi teflt fram jafn ungu liði í
bæjakeppni áður Piltamir stóðu
sig vel og náðu ágætum leikköfl-
um. Sérstaka athygli vakti mark-
vörðurinn, Guðmundur Pétursson,
KR, sem varði Rvíkur-markið af
stakri prýði. Þrátt fyrir, að Guð-
mundur sé ungur að árum og leiki
nú í fyrsta skipti með meistara-
flokki, getur svo farið, að hann
keppni um landsliðssæti í sumar.
Hinir gamalkunnu og traustu
landsliðsmarkverðir okkar síðustu
ár, Heimir Guðjónsson og Helgi
Daníelsson, hafa hvorugir verið á
sviðinu í vor. Helgi er að sögn
hættur, en Heimir hefur átt við
meiðsli að stríða. Og þá eru að-
eins eftir ungir markverðir, og af
islandsmeistarar Ármanns í sundknattleik
fslandsmeistarar í sundknatt-
leik 1966, lið Ármanns, fremri röð
frá vinstri, Siggeir Siggeirsson.
Pétur Kristjánsson, Sigurjón Guð
jónsson. fyrirl. Sæmundur Sigur-
óteinsson og Ragnar Vignir.
Aftari röð frá v. Þorsteinn Ing
ólfsson, Ingvar Sigfússon, Einar
Kristinsson. Stefán Ingólfsson,
Guðmundur fngólfsson og Gunnar
Hjartarson. Þjálfari Ármenninga
er Einar Hjartarson.
I Ármann vann KR i úrslitaleik
mótsins með 5 gegn 3 og fór leik
! urinn fram í Sundhöll Reykjavík-
ur s.l. miðvikudagskvöld Aðrir
leikir mótsins fóru þannig: Ár-
mannxÆgir 11:2 og KRxÆgir
113:x6
þeim finnst mér Guðmundur lík-
legastur til að erfa landsliðssætið.
Af öðrum leikmönnum Rvíkur,
sem stóðu sig vel í fyrrakvöld,
má nefna Anton Bjarnason, sem
lék prýðilega, einkum þegar líða
tók á leikínn, en í upphafi átti
hann í nokkrum erfiðleikum með
Jón Jóhannsson, sem gerði mik
inn usla. Báðir bakverðirnir Jó-
hannes og Þorsteinn komu nokk-
uð sæmilega frá leiknum en fram
verðirnir, Ómar og Halldór Ein-
arsson, voru með daufara móti.
í framlínunni var Eyleifur drýgst-
ur og Reynir Jónsson gerði margt
gott. Axel Axelsson lék í fyrri
hálfleik, en varð að fara út af,
og kom Erlendur Magnússon
Fram, í hans stað.
Ekki verður annað sagt en Kefla
víkurliðið hafi komið á óvart. Ég
hef séð liðið leika nokkra leiki
snemma í vor, og var það þá væg-
ast sagt lélegt, en núna sýndi lið-
ið mikinn baráttuhug og barðist
vasklega allt til síðustu mínútu.
Ég hygg, að Keflvíkingar geti orð-
ið sterkir í 1. deild í sumar með
sama áframhaldi. Mesta athygli
vakti Magnús Torfason, framvörð-
ur, sem lék skínandi vel. Eins og
kunnugt er, lenti Magnús í bíl
slysi snemma í fyrravor og lék
ekkert með Keflavík á síðasta
keppnistímabili. Magnús hefur fyr
ir nokkru náð sér eftir þetta
óhapp og æft manna bezt. Magnús
er líklegur landsliðskandidat í
framvarðarstöðu. — Nokkrar
breytingar voru á Keflavíkur-lið-
inu frá síðasta keppnistímabili, t.
d .lék nú Sigurður Albertsson í
miðvarðarstöðu í stað Högna Gunn
laugssonar, og skilaði Sigurður
hlutverkj sínu vel. Liðið er með
nýja útherja, Einar Gunnarsson
og Svein Pétursson en Jón Ólafur
er kominn í innherjastöðu og
Rúnar „bítill“ lék ekki með. Jón
Jóhannsson í miðherjastöðunni
var ágætur til að byrja meö, en
átti í miklum erfiðleikum að kom-
ast framhjá Antoni.
Baldur Þórðarson dæmdi leik-
inn og gerði það prýðilega.
Veður var ágætt til keppni og
áhorfendur allmargir.
Hafnarfjörður
og Akranes
leika í dag
Ákveðið hefur verið að hefja
síðari umferð Litlu bikarkeppn-
innar, en venjulega er hún leik-
in á haustin. Er þetta gert m.a.
vegna þess, að oft hefur verið erf-
itt að koma leikjum fyrir á haust-
in, sbr. að ekki tókst að Ijúka
síðustu keppni.
f dag fer fyrsti leikur síðari
umferðar fram f Hafnarfirði og
leika heimamenn gegn Skaga
mönnum Hefst leikurinn kl. 16.30.
r ............. ■■
Úrslitaleikur / dag
Síðustu leikirnir í Reykja-
víkurmóti 1. flokks í knatt
ipyrnu fara fram á Melavell-
inum í dag. Fyrst leika Fram
og KR og er það úrslitaleikur
nótsins. Nægir fram jafntefli
til að sigra í mótinu, en tapi
Fram hins vegar, verður að
leika upp að nýju. Að aflokn-
•m leik Fram og KR leika Val-
ur og Þróttur.
Úrsiit i leikjum hafa orðið
þau, að Valur sigraði KR í
fyrsta leik með 2:1, en síðan
vann Fram Val með 3:2. KR
sigraði Þrótt með 9:1 og Fram
sigraði Þrótt með 6:0. Rekur
Þróttur því lestina, en KR og
Valur eru bæði með 2 stig.
Vinni bæði KR og Valur í dag,
verða þrjú lið að leika að nýju,
Fram. Valur og KR.
Fyrri leikur í dag hefst kl. 2.