Tíminn - 22.05.1966, Síða 1
¥ííiVAVi
í ^ • ■•ívíX-V-/
l '
Þegar klukkan var níu, var margt manna samankomiS í MiSbæjarskólaportinu. ASaMega voru þaS eidri borgarar, sem tóku daginn snemma.
Sfá frétt inni í blaSinu. (Tímamynd KT).
BJARTSYN Á ÚRSLIT
Það var búið að opna aðaldyr
Sjómannaskólans klukkan
tuttngu mínútur fyrir níu I
morgun, er fréttamann Tímans
bar þar að. Starfsfólkið í kjör-
deildumim og fulltrúar flokk-
anna voru að koma sér fyrir,
en fyrir utan kjördeildirnar
höfðu árrisulir Reykvíkingar
stOlt sér upp í biðraðir.
ir að þau höfðu kosið, ræddi
fréttamaður við þau.
Einar Ágústsson, efsti maður
B-listans, varð fyrir svörum.
— Þetta leggst vel í mig í
dag. Ég er bjartsýnn á úrslitin,
sem byggist ekki hvað sízt á því
að velunnarar B-listans hafa
unnið mjög vel fyrir þessar
kosningar, og ég er þeim öllum
sérstaklega þakklátur fyrir.
Mér fannst kosningabaráttan
skemmtileg, og ég er viss um
að hún á eftir að bera góðan
árangur.
Ég vildi beina því til fólks
að kjósa eins snemma og mögu-
Framhald á 4. síðu.
Eysteinn Jónsson
Með þeim fyrstu
Meðal þeirra fyrstu, sem
komu á kjörstað í morgun í
Miðbæjarskólanum var Ey-
steinn Jónsson, formaður
Framsóknarflokksins.
— Hvað segir þú um
kosningarnar í dag, Ey-
steinn?
— Veðrið er dásamlegt.
Blessuð blíða og bjart og
úrslitin vona ég eftir því
fyrir þá, sem búa við bók-
stafinn B. Það þarf ekki að
hvetja Framsóknarfólk —
ég veit að það liggur ekki á
liði sínu. Vonandi verður
þetta góður dagur fyrir
Framsóknarflokkinn. Það
mundi verða stórfelldur
ávinningur fyrir Reykvík-
inga og aðra landsmenn að
áhrif hans færu vaxandi.
Þrír efstu frambjóðendur
B-listans í Reykjavík, þau Ein-
ar Ágústsson, Kristján Bene-
diktsson og Sigríður Thorlacius
voru öil mætt til að kjósa í Sjó
mannaskólanum um klukkan
níu með mökum sínum, og eft-
Einar Ágústsson og kona hans Þórunn SigurSardóttir í kjördejld
f morgun.
Á kjörstað í Sjómannaskólanum í morgun. Frá vlnstrl: Svanlaug Ermenreksdóttir og Kristján Bene.
diktsson og Birgir og Sigríður Thorlacius. — (Tímamyndir K.J.).