Tíminn - 25.05.1966, Síða 2
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 25. maí 1966
Denni dæmalausi á sína föstu
iesendur ekki síður en annað efni
rímans. — Þessi snáði hér á
nyndinni heitir Skúli og á heima
vestast á Ásvallagötunni. Hann
lefur klippt Denna úr Tímanum
undanfarið og límt inn í sérstaka
bók er hann kallar Dennabókina.
Núna eru komnar yfir 40 myndir
í bókina og fjölgar með degi hverj-
um, því að sjaldan lætur Denni
sig vanta í blaðinu, þótt kosning-
ar og pólitík þrengi nú að hon-
um. Annað hefti bókarinnar mun
koma út í sumar.
(Ljósmynd: Þorvaldur Óskarss.)
Náðum meirihluta
tlííí:
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Framsóknarmenn unnu mjög á
bæjarstjórnarkosningunum í Vest
mannaeyjum, bættu við sig 98 at-
kvæðum og einum bæjarfulltrúa.
Er því fallinn meirihluti Sjálfstæð
; ismanna þar í bæjarstjórninni.
Blaðið hafði í dag samband við
Sigurgeir Kristjánsson, efsta
mann á lista Framsóknarflokksins
í Eyjum, og ræddi við hann um
úrslit kosninganna þar.
— Við Framsóknarmenn erum
ánægðir með úrslitin, — sagði Sig-
urgeir. — Við bættum við okkur
tæplega 100 atkvæðum, og erum
nú orðnir Yast að því hálfdrætt-
ingar við Sjálfstæðisflokkinn, sem
um langan tíma hefur verið hér
lang stærsti flokkurinn. Það mun-
aði aðeins einu atkvæði síðast, að
við næðum meirihlutanum af Sjálf
stæðisflokknum, og nú tókst okk-
ur þetta óneitanlega með nokkr-
um glæsibrag.
— Um hvað var einkum deilt
í kosningabaráttunni?
— Við deildum að sjálfsögðu á
meirihlutann fyrir skipulagsleysi
í framkvæmdamálum og fjármálá-
stjórn bæjarins, og það hefur
sýnt sig, að eftir átta ára stjórn
Norræna bridgemótiö
Sigurgeír Krkfiiftssttn
Sjálfstæðisflokksins í bænum í
miklu góðæri, hefur fólk verið far-
ið að þreytast á flokknum og vilj-
að breyta til. Og við höfðum byr
inn með okkur og náðum meiri-
hlutanum af Sjálfstæðisflokknum.
Auðvitað spilar svo óánægja með
stjórn landsins einnig sitt hlut-
verk, en sú óánægja hefur hér,
sem einnig víða annars staðar,
komið sérstaklega niður á Sjálf-
stæðisflokknum, en Alþýðuflokk-
urinn hefur hér haldið sínu, og
meira að segja bætt við sig.
— Hafa einhverjar viðræður haf
izt um myndun bæjarstjórnarmeiri
hluta?
— Nei, menn eru svona að jafna
sig eftir kosningabaráttuna. Við
Framsóknarmenn höfum lagt á það
sérstaká áherzlu, að sem bæjar-
stjóri yrði fenginn maður, sem
gæti helgað sig að því starfi ein-
göngu, en væri ekki leiðtogi í nein
um pólitísku flokkanna. Við vilj-
um fá óháðan mann í það starf.
Annars myndaðist töluverð sam-
staða milíi okkar, sem vorum í
! minnihluta síðasta kjörtímabil,
gegn Sjál&tæðisflokknum og gæti
ég vel hugsað mér heilshugar sam-
starf við þá vinstri menn, sem nú
eru, ásamt Framsóknarflokknum,
i meirihluta. Hins vegar get ég
ekki neitað því, að meðai bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðismanna eru líka
álitlegir menn, sem • hafa sína
kosti, og við Framsóknarmenn telj
um, að skynsamlegt sé að ná sam-
stöðu á sem breiðustum grund-
velli — ekki sízt vegna þeirra
geysilegu verkefna, sem framund-
an eru, og sem eru að miklu leyti
óleyst. Á ég þar alveg sérstak-
lega við vatnslögnina frá landi
hingað til Eyja. — En ekkert hef-
ur sem sagt enn verið rætt um
myrjdun meirihluta.
Ég vil svo að lokum, — sagði
Sigurgeir, — þakka öllu því fólki,
sem vann að sigri okkar í kosn-
ingunum. Ég er því fólki ákaflega
þakklátur, og eins þeim mörgu,
sem studdu okkur, og gerðu þenn-
an sigur okkar mögulegan.
HZ-Reykjavík, þriðjudag.
Norræna bridgemótinu var hald
ið áfram í gærkvöldi. Spiluð var
3. umferð í opna flokknum. Úr-
slit urðu sem hér segir:
Finnland n-fsland I 2—4
Svíþjóð I-Noregur I 0—6
Svíþjóð II-Danmörk I 5—1
ísland n-Finnland II 4—2
Frönsk herskip í
Reykjavík
Dagana 27. til 31. maí n.k. heim-
sækja Reykjavík þrjú frönsk her-
skip undir stjórn Salmons aðmír-
áls Skip þessi eru frá franska sjó-
hernum, „Marine Nationale Fran
caise.“
Nöfn skipanna eru: „Surcouf,"
Bouvet“ og ,Le Picard."
Tvö hin síðarnefndu eru tund-
urspillar 2.750 tn. 130 metrar á
lengd og 13 metrar á breidd.
,„Surcouf“ er sérstaklega útbúið
sem aðmírálsskip, og var tekið í
þjónustu flotans árið 1955. Skip-
ið er búið 6 127 m/m og 4 57
mm loftvarnabyssum, einnig
6 tundurskeytahlaupum sem beint
er gegn kafbátum.
„Bouvet," sem tekið var í þjón-
ustu 1956, er búið vopnakerfi bæði
til loftvarna og fyrir sjóorustur.
Auk þess hefur skipið stórskota-
útbúnað með 57 m/m byssum, 6
tundurskeytarör, og sexfalda
sprengjuvörpu gegn kafbátum.
„Le Picard" er hraðskreiður
tundurspillir, 1.290 tn og 100 m
á lengd og 10,30 m á breidd. Skip-
ið var tekið í þjónustu 1956 og
er búið 6 57 m/m loftvarnarbyss
um, 12 tundurskeytarörum og sex-
faldri eldflaugavörpu gegn kafbát-
um.
Áhafnir þessara þriggja skipa
eru samtals 821 maður.
„Surcouf“ dregur nafn sitt af
Robert Surcouf, sem er fæddur í
Saint Malo árið 1775 og dáinn
1827. Var hann frægur sægarpur
í styrjöldum Frönsku byltingarinn
ar og keisaratímabilsins.
Pierre Bouvet, þekktur aðmíráll
fæddur 1775 og dáinn 1860. Barð
ist einkum í Kyrrahafinu.
Almenningur mun fá tækifæri
til þess að skoða skipin „Bouvet“
og „Le Picard“ 28. o'g 29. maí
eftir hádegi báða dagana.
60 skip farin
til síldveiða
SJ—Reykjavik, þriðjudag.
Talið er a ðum 60 skip séu hald
in til síldveiða, en síldarleitarskip
ið Hafþór hefur ekki fundið telj
andi síldarmagn fyrir austan. f
kvöld hafði ekki frétzt af veiði,
en veður er gott á miðunum.
Síldarverksmiðjan á Vopnafirði
er tilbúin að taka á móti síld. Af-
köst verksmiðjunnar eru nú um
6000 mál á sólarhring og þróar
rými fyrir um 50 þúsund mál.
INNBROT
HZ—Reykjavík, þriðjudag.
í nótt var brotizt inn í Radíóver
s. f. á Skólavörðustíg 8. Stolið var
3 ferðaútvarpstækjum og einum
ferðaplötuspilara. Þjófurinn hafði
brotið rúðu til þess að komast inn.
Loktö var annari umferð kvenna
í dag. Úrslit urðu þau, að Svíþjóð
vann Danmörk 6—0 og Noregur
vann ísland 6—0.
4. umferð var spiluð í opna
flokknum í dag og urðu úrslit
þessi:
Sviþjóð I - Finnland II 6—0
Svíþjóð II-ísland I 0—6
fsland II-Noregur I 0—6
Noregur II-Danmörk I 0—6
Danmörk II - Finnland I 0—6
I
í kvöld verður lokið 3. umferð
í kvennaflokki og í opna flofekn
um verður spiluð 5. umferð. Sýnd-
ur verður leikur milli Danmörk II
og Noregur I á sýningartöflunni.
Leikir byrja kl. 8 í Súlnasal.
í gær var haldinn fundur og
mættu á honum fulltrúar allra
landa. Ákveðið var að halda næsta
Norðurlandamót í bridge í Svíþjóð
1968. Einnig var ákveðið að lækka
kostnað við mótin með því að
fella niður lokahófin.
Staðan í mótinu í opna flokkn-
um er þannig eftir 4 umferðir.
Noregur 40
Finnland 23
Svíþjóð 21
fsland 20
Danmörk 16
í kvennaflokki er staðan eftir
2 umferðir þannig:
Svíþjóð 11
Noregur 7
fsland 3
Finnland 3
Nefnd skipuð til að undirbúa
1100 ára afmæli isl.byggðar
Hinn 10. desember s.l. var sam-
þyfckt á Alþingi ályktun um að
kjósa sjö manna nefnd til að
íhuga og gera tillögur um, með
hverjum hætti minnast skuli á ár-
inu 1974, 1100 ára afmælis byggð-
ar á íslandi, en forsætisráðherra
skyldi skipa formann nefndarinn-
ar.,
Á fundi í sameinuðu þingi 5.
þ.m. voru kjörnir í nefndina Matt
hías Jóhannessen, ritstjóri, Gísli
Jónsson, ^ _ menntaskólakennari,
Höskuidur Ólafsson, bankastjóri,
Gunnar Eyjólfsson, leikari, Guð-
laugur Rósinkranz, þjóðleikhús-
stjóri, Indriði G. Þorsteinsson, rit-
höfundur, og Gils Guðmundsson,
alþingismaður.
Matthías Jóhannessen, ristjóri,
hefur verið skipaður formaður
nefndarinnar.
Forsætisráðuneytið 24. maí 1966.
KARLAKORINN VÍSIR HELD-
(JR SÖNGSKEMMTANIR HÉR
SJ-Reyfejavík, þriðjudag.
Karlakórinn Vísir frá Siglufirði
hefur að undanförnu verið á söng-
ferðalagi í Danmörku og við heim
komuna mun hann syngja í fé-
lagsheimilinu Stapa í Njarðvík-
um á annan í hvítasunnu og á
þriðjudagskvöld í Gamla bíói í
Reykjavík. Þá mun kórinn syngja
inn á plötur fyrir Fálkann.
Stjórnandi kórsins er Gerhard
Schmidt, en hann var ráðinn kenn
ari við Tónlistarskóla Siglufjarð-
ar 1961. Einsöngvarar með kórn-
um eru Guðmundur Þorláksson, i
Sigurjón Sæmundsson og Þórður j
Kristinsson og sölo-kvartett skipa!
Guðný Hilmarsdóttir. Guðmund- |
ur Þorláksson, Magðalena Jóhann j
esdóttir og Marteinn Jóhannesson. \
Hljóðfæraleikarar með kórnum
eru Elías Þorvaidsson, Gerhard
Schmidt, Jónmundur Hilmarsson,
Tómas Sveinbjörnsson og Þórhall-
ur Þorláksson.
Á söngskránni eru lög eftir inn-
lenda og erlenda höfunda.
Gerhard Sehmidt
VONUM AÐ SAMI MEIRIHLUTI
STJÓRNIÁFRAM SEYÐISFIRÐI
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Á Seyðisfirði bættu Framsókn-
armenn við sig einum bæjarfull-
trúa og hafa nú tvo. Fengu þeir
núna 84 atkvæði, en höfðu 68 at-
kvæði. Blaðið hafði í dag samband
við Hörð Hjartarson, efsta mann
á lista Framsóknarflokksins á Seyð
isfirði, og ræddi stuttlega við hann
um úrslitin.
— Við erum að sjálfsögðu
ánægðir með úrslitin, — s.agði
Hörður. við jukum fylgi okkar
nokkuð og bættum við okkur bæi-
arfulltrua.
— Um hvað var aðallega kosið
á Seyðisfirði?
— Það var einkum um þær
framkvæmdir. sem bærinn hefur
staðið að hér að undanförnu, en
verklegar framkvæmdir bæjarins
hafa verið miklar á mörgum svið-
um.
— Verður sami meirihluti áfram
í bæjarstjórninni,
— Það hefur ekkert verið rætt
um það ennþá, en ég býst við
að við höldum viðræðufundi bráð-
lega og ræðum þá um myndun
meirihluta Aftur á móti vonum
við Framsóknarmenn. að sami
meirihiuti haldi áfram að fara með
stjórn bæjarins, — sagði Hjörtur
að lokum.