Tíminn - 25.05.1966, Side 3

Tíminn - 25.05.1966, Side 3
MWTOKtJÐAGtm 25. aí 1966 TÍiyilNN í SPEGLITÍMANS Þessi mynd var tekin 1 Cann es og á henni sjást Þau Orson Wells og leikkonan Rachel ★ Welsh. Myndin var tekin eftir að Wells hafði tekið við verð- launum þeim, sem hann fékk sem viðurkenningu fyrir Shake speare kvikmynd sína „Fal- staff“ og er Rachel að óska honum til hamingju. ★ Olíu'kóngnum, Jean Paul Getty var meinað inngöngu í klúhb nokkurn í Róm. Þegar hann frétti, að hann fengi ekki inngöngu, svaraði hann því til, að það skipti raunar ekki máli, og þar að auki væri ársgjaldið í það haesta. Ársgjaldið er um 10 þúsund íslenzkar krónur og Getty er einn ríkasti maður heims, dagstekjur hans eru sam kvaemt skattaframtaii hans um 10 milljónir. ★ Kvikmyndastjarnan Joan Grawford drakk te með Harold Wilson og frú fyrir skemmstu á heimili þeirra í Downing Street 10. Á blaðamannafund inn, sem haldinn var af þessu tilefni, mætti leikkonan í eld rauðum kjól og hafði málað á sér varirnar með bláum vara lit. Þessu til skýringar sagði leikkonan, að þetta væri bezt þannig á myndunum. t ★ Innan nokkurra mánaða verður frumsýnd James Bond kvikmyndin Casino Royal með þeim Peter Sellers og Ursula Andress í aðalhlutverkum. 007 kemur þar fram í margs kon ar gervi, m.a. Hitlers Napole- ons og Toulouse Uautrec. Hér á myndinni sjáum við Peter Sellers í gervi Lautrecs og Ur sulu Andress. Kvikmyndahús í Washing- ton eru nú farin að sýna kvik myndina Viva Maria, sem þær leik aí Rrigitte Bardot og Je- anne Moreau. f auglýsingum frá kvikmyndahúsunum má sjá nafn George Hamilton auglýst á undan nöfnum þeirra Bri- gitte og Jeanne þótt hann leiki Sðeins aukahlutverk. Á það ræt ur sínar að rekja til þess, að Hamilton er nú tryggur fylgi- sveinn Lyndu Birk Johnson, dóttur Johnsons forseta. ★ Mótmælaaðgerðir þær, sem áttu sér stað í Hollandi um það leyti, sem Beatrix Hol landsprinsessa gekk að eiga Þjóðverjann Claus von Amsberg hafa nú haft í för með sér nokkrar afleiðingar. í fyrra eyddu um 300 þúsund Þjóðverj ar páskunum í Hollandi en nú í ár voru það aðeins 200 þús- und. Ferðafélög þar í landi ótt ast nú, að ferðum Þjóðverja til Hollands nú í sumar fækki einnig til muna. i * Franska vísnasöngkonan, Francoise Hardy hefur nú gert þriggja mánaða samning við Savoy hótelið í London, og mun hún skemmta gestum þess með söng í þrjá mánuði. Franc oise er fyrsta konan, sem kom izt hefur inn á þetta fræga hót el í síðbuxum. ★ Albert Fancis Capone, sem »r sonur bófaforingjans fræga A.1 Capone hefur nú fengið [eyfi til þess hjá rétti í Florida að fella niður eftirnafn sitt, og íeitir hér eftir Albert Franvis. Ástæðuna til þessa segir hann yera þá að það sé sama hvað hann taki sér fyrir hendur, allt comist í blöðin vegna hins fræga nafn hans.. ★ Lyndon B. Johnson forseti, hefur nú tekið upp á því, að láta lífverði sína taka á móti alaðamönnum við dyrnar á Hvíta húsinu, þegar þeir koma á blaðamannafundu og hvetja lífverðirnir blaðamennina til þess, að slök-kva í sígaret-tum sínum, áður en þeir ganga inn á fund forsetans. Forset- inn sjálfur hefur ekki reykt síð an hann fékk hjartaáfall árið 1955 — og fyrir skömmu síðan brenndu tveir blaða menn göt á teppi hans, og greip hann því til þessa ráðs. ★ Patrick J. Nugent, sem er 22 ára og ætlar að giftast Luci Bainese dóttur Johnsons forseta í ágúst, byrjar að vinna þegar eftir brúðkaupið á útvarps- og sjónvarpsstöð Jonhsons< fjöl- skyldunnar í Texas. ★ Gleraugnasmiðnum Peter Söhnges í Munchen hefur nú loks heppnazt eftir margra ára tilraunir að gera kontaktlinsur fyrir nærsýna hunda og ketti. Meðal fyrrverandi viðskipta- vina hans eru þau Baldvin Bel- gíukonungur og Grace fursta- frú af Monaco. ★ Ronald og Pamela Johnson heita ung og nýgift hjón í Chicago. Þau langaði ein ósköp til þess að eignast smáteikn- ingu eftir einn dýrasta málara heims, Picasso, svo að þau sendu honum 25 dollara ávís un og vonuðust til þess, að hann sendi þeim smáteikningu til baka. Ávísunin kom til baka og aftan á hana hafði Picasso teiknað með grænum tússi smá höfuð. ★ Franski kvikmyndasjarmör inn Jean Paul Belmodno hefur nú tekið upp á því að velja sér meðleikendur með raf eindaheila. Fyrir skömmu mat aði hann heilann með 2000 at- riðum og út kom nafnið Nadja Miller. Einhverjir erfiðlei-k ar verða sennilega á að finna leikkonu með því nafni, en ver ið getur, að Jean Paul Bel- mondo láti sig hafa það að breyta einum staf í nafninu og fái sem mótleikara Nadja Till er í næstu kvikmynd sinni. 3 Á VÍÐAVANGI Sá tryggi Morgunblaðið kunngerir „kosningasigur" sinn með þess ari stórfyrirsögn framan á Mogga í gær: „Tryggur meiri- hluti Sjálfstæðisfiokksins í borgarstjóm Reykjavíkur". Það er ofurlítil gestaþraut að átta sig á því, hvað snilligarparnir eiga við. Ef til vill finnst þeim það mcrkilegast við úrslit kosn inganna hvíiíkt trygglyndi kjós enda lýsir sér í þvf aa veita* íhaldinu 386 atkvæða meiri- hiuta á áttunda fulltrúann til þess að halda völdunum, sem aldrei hafa staðið cins tæpt síðustu tuttugu árin. Eða eiga þeir ef til vill við það, að þeim finnist meirihlutinn nú einstak léga vel „tryggður", með þess um hætti. En ýmsum mun finnast, að það sé óvenjulega þakklátur flokkur og borgar- stjóri sem telur það alveg ein- staka tryggð við sig, þegar kjósendur minnka fylgi sitt við hann um nálega 5%, eða telja þeir það alveg sérstaka trygg- ingu fyrir sig, þegar borgar- stjómarmeirihlutinn hefur ekki lengur kjósendameirihluta að baki sér? Skýringin á tapinu Morgunblaðið iýsir eigin kosningabaráttu í Reykjavfk og flokks sfns með þessum orðum í gær? „Sjálfstæðismenn lögðu áherzlu á það í þessari kosninga baráttu að leggja verk sín skýr lega fyrir kjósendur, skýra frá því sem gert hefur verið á veg um Reykjavíkurborgar s. i. kjörtímabil og hvað fyrirhugað væri að gera næsta kjörtíma bil. Þannig hafa kjósendur í Reykjavík haft góða aðstöðu til þcss að meta og vega verk borgarstjómarmeirihlutans“. Þarna e.v ef til vill fundin skýringin á tapi íhaldsins í höf uðborginni. Fólk hefur ef til vill séð og skilið ósjórnina bct ur en áður. „Góða málefna- aðstaðan" En Morgunblaðið hefur fleiri skýringar á boðstólum og segir: „Sjálfstæðismenn höfðu góða málefnalega aðstöðu f þessum kosningum, ef til vlll betri mál efnaaðstöðu en í nokkmm kosn ingum hingað til“. Og samt fór svona, að meiri hlutinn hjaraði á örfáum at- kvæðum og verður að láta sér nægja minnihluta kjósenda. Lít illæti íhaldsins kemur enn bet ur i Ijós í þessum ummælum Mogga. Menn sjá hvernig fara hlýtur, ef málefnastaðan yrði nú svolítið verri í næstu kosn ingum, og Mbl. „leggur verk sín eins skýrlega“ f>TÍr kjósend ur og það telur sig hafa gert núna. Nú jæja, þá er bara að grípa til gamla ráðsins á neyðar stundu og beisla blekkinguna betur. SERVÍETTU- PRENTUN SÍMI 32-101.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.